Arnar Ágústsson (Varmahlíð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 2. desember 2017 kl. 18:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 2. desember 2017 kl. 18:52 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Arnar Ágústsson (Varmahlíð)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
Fara í flakk Fara í leit

Arnar Ágústsson frá Varmahlíð, sjómaður, trésmiður fæddist 13. september 1936 í Varmahlíð og lést 12. janúar 1997.
Foreldrar hans voru Ágúst Jónsson formaður, vélstjóri, trésmiður, f. 5. ágúst 1891, d. 1. desember 1969, og k.h. Pálína Eiríksdóttir húsfreyja, f. 10. apríl 1895, d. 13. janúar 1983.

Börn Pálínu og Ágústs:
1. Rut Ágústsdóttir, f. 13. september 1920, d. 13. september 1989.
2. Auður Ágústsdóttir, f. 24. júní 1922, d. 6. júlí 1963.
3. Sara Ágústsdóttir, f. 25. mars 1925, d. 16. janúar 1948.
4. Marta Ágústsdóttir, f. 29. júní 1928.
5. Hafsteinn Ágústsson, f. 1. nóvember 1929, d. 21.apríl 2016.
6. Lárus Ágústsson, f. 25. júlí 1933, d. 29. apríl 2014.
7. Þyrí Ágústsdóttir, f. 7. desember 1934, d. 10. desember 1971.
8. Arnar Ágústsson, f. 13. september 1936, d. 12. janúar 1997.
9. Eiríka Ágústsdóttir, f. 3. júní 1938, d. 29. nóvember 1943.

Arnar var með foreldrum sínum í æsku.
Hann stundaði sjómennsku, lærði húsasmíðar og vann við þær.
Þau Elín giftu sig 1955 og bjuggu á Svalbarði 1955, í Birkihlíð 20 1958 og 1960, eignuðust þrjú börn.
Þau fluttust í Kópavog 1964 og bjuggu þar.
Arnar vann við smíðar í Reykjavík og vann síðar við smíðar hjá Kópavogshæli frá 1976.
Hann lést 1997.

I. Kona Arnars, (25. desember 1955), var Elín Sigríður Aðalsteinsdóttir húsfreyja, starfsstúlka, f. 4. júlí 1936 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Guðrún Árný Arnarsdóttir, f. 8. júlí 1955.
2. Pálína Arndís Arnarsdóttir, f. 10. apríl 1958.
3. Ester Arnarsdóttir, f. 27. ágúst 1960.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.