Ari Magnússon (Heylæk)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. september 2018 kl. 09:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. september 2018 kl. 09:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Ari Magnússon frá Heylæk í Fljótshlíð, sjómaður, útgerðarmaður, fisksali fæddist þar 1. september 1890 og lést 12. apríl 1966.
Foreldrar hans voru Magnús Sigurðsson bóndi, f. 8. október 1858, d. 7. júní 1940, og kona hans Guðrún Helgadóttir húsfreyja, f. 8. apríl 1860, d. 2. nóvember 1916.

Ari var með foreldrum sínum á Heylæk í æsku, var með þeim þar 1910.
Þau Jóhanna bjuggu í Jórvík í Flóa 1920 með tveim börnum sínum.
Þau fluttust til Eyja 1924, bjuggu í Laufási, þar sem Ari var sjómaður og rak útgerð.
Fjölskyldan fluttist til Reykjavíkur, bjó á Freyjugötu 4 1930. Ari gerðist fisksali.
Hann lést 1966 og Jóhanna 1974.

Kona Ara var Jóhanna Jónsdóttir frá Hrauni, húsfreyja, f. 16. ágúst 1887, d. 20. mars 1974.
Börn þeirra:
1. Ísleifur Arason járnsmiður í Reykjavík, f. 6. ágúst 1913 á Heylæk, d. 27. febrúar 1995. Kona hans var Klara Karlsdóttir frá Stóru-Breiðavík við Reyðarfjörð, húsfreyja.
2. Guðmundur Arason skipasmíðameistari, forstjóri, kaupmaður, hnefaleikakappi, f. 17. mars 1919 á Heylæk, d. 27. maí 2008. Kona hans var Rannveig Þórðardóttir frá Reykjavík, húsfreyja.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.