Anna Sigurlásdóttir (Reynistað)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 26. október 2021 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 26. október 2021 kl. 11:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Anna Sigurlásdóttir.

Anna Sigurlásdóttir frá Reynistað, húsfreyja, fiskvinnslukona fæddist 18. janúar 1933 á Hálsi við Brekastíg 28 og lést 2. janúar 2010.
Foreldrar hennar voru Sigurlás Þorleifsson sjómaður, verkamaður, f. 13. ágúst 1893, d. 26. nóvember 1980, og kona hans Þuríður Vilhelmína Sigurðardóttir húsfreyja, f. 31. október 1907, d. 27. júlí 1992.

Barn Þuríðar og Ólafs Jónssonar:
1. Margrét Sigurlaug Ólafsdóttir, f. 31. júlí 1926 í Djúpadal í Hvolhreppi, d. 13. apríl 2015.

Börn Þuríðar og Sigurláss:
2. Eggert Sigurlásson, f. 20. febrúar 1929 á Rafnseyri, (Kirkjuvegi 12), d. 29. ágúst 1978.
3. Þorleifur Sigurlásson, f. 16. mars 1930 á Rafnseyri, d. 31. júli 2021.
4. Anna Sigurlásdóttir, f. 18. janúar 1933 á Hálsi v. Brekastíg, d. 2. janúar 2010.
5. Kristín Sigurlásdóttir, f. 28. apríl 1935 á Reynistað, d. 27. október 2020.
6. Ásta Sigurlásdóttir, f. 5. febrúar 1937 á Reynistað, d. 29. mars 2015.
7. Ólöf Sigurlásdóttir, f. 11. janúar 1939 á Reynistað.
8. Jóna Sigurlásdóttir, f. 11. júlí 1940 á Reynistað, d. 10. febrúar 2018.
9. Gústaf Sigurlásson, f. 19. september 1941 á Reynistað.
10. Helgi Sigurlásson, f. 8. janúar 1944 á Reynistað.
11. Andvana drengur, tvíburabróðir Helga, f. 8. janúar 1944.
12. Reynir Sigurlásson, f. 6. janúar 1946 á Reynistað, d. 1. mars 1979.
13. Erna Sigurlásdóttir, f. 23. september 1947 á Reynistað, d. 19. júní 1989.
14. Margrét Sigurlásdóttir, f. 1. janúar 1949 á Reynistað.
15. Geir Sigurlásson, f. 1. apríl 1950 á Reynistað.
16. Linda Sigurlásdóttir, f. 5. mars 1955 á Reynistað.

Barn Sigurláss og fyrri konu hans Rannveigar Guðlaugar Magnúsdóttur:
1. Margrét Freyja Sigurlásdóttir húsfreyja í Keflavík, f. 29. júní 1921, d. 6. mars 1960.

Börn Sigurláss og Aðalheiðar Gísladóttur:
2. Hulda Sigurlásdóttir, f. 2. apríl 1924. Hún var í Langagerði í Hvolhreppi 1930, d. 31. október 2017.
3. Baldur Sigurlásson sjómaður, f. 26. júlí 1926, d. 28. júlí 1980.

Anna var með foreldrum sínum í æsku.
Hún fór snemma til starfa við fiskvinnslu, vann lengst í Vinnslustöðinni.
Anna var markvörður í handknattleiksliði Týs 1952, er liðið varð Íslandsmeistari.
Þau Jónatan giftu sig 1953, eignuðust þrjú börn. Þau bjuggu í fyrstu á Heimagötu 20, byggðu við Brimhólabraut 37 og bjuggu þar.
Þau byggðu við Brimhólabraut 37 og bjuggu þar lengst, en Anna bjó síðast við Vesturveg 10b.
Hún lést 2010.

I. Maður Önnu, (1953, á Sjómannadaginn), var Jónatan Gísli Aðalsteinsson stýrimaður, umsjónarmaður, f. 19. júlí 1931 á Siglufirði, d. 4. desember 1991 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. Sigþóra Jónatansdóttir húsfreyja, f. 28. febrúar 1953. Sambúðarmaður Gísli Sigurður Eiríksson.
2. Aðalsteinn Jónatansson býr í Bandaríkjunum, f. 1. nóvember 1958. Kona hans Þóra Björg Thoroddsen.
3. Þór Vilhelm Jónatansson tölvunarfræðingur, f. 3. október 1973. Kona hans Eva Hrönn Guðnadóttir.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.