Anna Sigurðardóttir (Vatnsdal)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. september 2016 kl. 21:57 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. september 2016 kl. 21:57 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Anna Sigurðardóttir.

Anna Sigurðardóttir frá Vatnsdal, húsfreyja í Helgafelli fæddist 12. september 1922 í Vatnsdal og lést 14. febrúar 2013.
Foreldrar hennar voru Sigurður Oddgeirsson frá Ofanleiti, verkamaður, tryggingamaður, vélstjóri í Reykjavík f. 24. apríl 1892, d. 1. júní 1963, og kona hans Ágústa Þorgerður Högnadóttir frá Vatnsdal, húsfreyja, f. 17. ágúst 1901, d. 7. nóvember 1948.

Anna var tvígift.
I. Fyrri maður hennar, (12. desember 1942), var William Thomas Mountford flugmaður, f. 6. maí 1921, d. 23. ágúst 2012.
Börn þeirra:
1. Patricia Ágústa Högnadóttir húsfreyja í Eyjum, f. 14. mars 1944 á Englandi. Hún er kjörbarn Högna. Maður hennar er Stefán Jón Friðriksson sjómaður, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 12. febrúar 1943.
2. Svana Högnadóttir húsfreyja og verkakona í Eyjum, f. 8. nóvember 1945 á Englandi. Hún er kjörbarn Högna. Maður hennar er Ingi Páll Karlsson sjómaður, f. 8. júní 1945.

II. Síðari maður Önnu, (1. ágúst 1953), var Högni Sigurðsson vélstjóri frá Vatnsdal, f. 19. janúar 1929. Hjónin voru systkinabörn.
Barn þeirra:
3. Sigríður Högnadóttir húsfreyja, verslunarmaður í Eyjum, f. 5. september 1956. Maður hennar, (óg.) er Haukur Hauksson sjómaður, f. 8. febrúar 1960 í Keflavík.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Knudsensætt 1-2. Ritstjóri Þorsteinn Jónsson. Sögusteinn 1986.
  • Morgunblaðið 23. febrúar 2013. Minning.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.