Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 11:35 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2006 kl. 11:35 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Sigríður var dóttir hjónanna Árna Þórarinssonar og Steinunnar Oddsdóttur. Hún var snemma talin góður kvenkostur og hálfþrítug varð hún heitmey Jóhanns J. Johnsen á Vilborgarstöðum, sonar Guðfinnu Jónsdóttur Austmann húsfreyju.

Jóhann og Anna Sigríður hófu búskap sinn árið 1880 í gamla Frydendal. Synir þeirra voru: Gísli J. Johnsen, Kristinn Lárus Johnsen, Sigfús Maríus Johnsen, Guðni Hjörtur Johnsen og Árni Hálfdán Johnsen.

Í Frydendal ráku hjónin veitingasölu, útgerð og búskap.


Heimildir

  • Þorsteinn E. Víglundsson. Blik, ársrit gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. 1969.