Anna Sigríður Árnadóttir Johnsen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 16:16 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júní 2007 kl. 16:16 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Sigríður var dóttir hjónanna Árna Þórarinssonar og Steinunnar Oddsdóttur. Anna var snemma talin góður kvenkostur og hálfþrítug varð hún heitmey Jóhanns J. Johnsen á Vilborgarstöðum, sonar Guðfinnu Jónsdóttur Austmann húsfreyju.

Jóhann og Anna Sigríður hófu búskap sinn árið 1880 í gamla Frydendal. Synir þeirra voru: Gísli J. Johnsen, Kristinn Lárus Johnsen, Sigfús M. Johnsen, Guðni Hjörtur Johnsen og Árni Hálfdán Johnsen.

Í Frydendal ráku hjónin veitingasölu, útgerð og búskap.


Heimildir