Anna Sigfúsdóttir (Nýjabergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. janúar 2019 kl. 11:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. janúar 2019 kl. 11:17 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Anna Aðalbjörg Sigfúsdóttir''' frá Raufarhöfn, húsfreyja, fiskverkakona fæddist 27. október 1945 í Bergholti á Raufarhöfn og lést 21. febrúar 2005 á Landspítalanum....)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Aðalbjörg Sigfúsdóttir frá Raufarhöfn, húsfreyja, fiskverkakona fæddist 27. október 1945 í Bergholti á Raufarhöfn og lést 21. febrúar 2005 á Landspítalanum.
Foreldrar hennar voru Sigfús Kristjánsson, f. 31. júlí 1897 á Rifi á Melrakkasléttu, d. 10. júní 1968, og kona hans Sigríður Sveinbjörnsdóttir húsfreyja, f. 30. maí 1914 á Þórshöfn, d. 18. janúar 1997.

Systir Önnu er
1. Þórdís Vilborg Sigfúsdóttir, f. 10. september 1936, kona Richards Þorgeirssonar.

Anna giftist Stefáni Pétri 1965, eignaðist þrjú börn. Þau bjuggu á Nýja-Bergi, síðar á Hólagötu 16.
Við Gos 1973 flutti fjölskyldan ti Keflavíkur og bjó þar til 1980, er hún flutti til Eyja.
Anna Aðalbjörg lést 2005.

I. Maður Önnu Aðalbjargar, (24. desember 1965), var Stefán Pétur Valdimarsson frá Varmadal, sjómaður, þungavinnuvélastjóri, f. 20. júní 1942, d. 19. desember 2004.
Börn þeirra:
1. Margrét Pétursdóttir húsfreyja, f. 20. október 1965. Maður hennar er Ingibergur Óskarsson.
2. Sigfús Pétur Pétursson, f. 11. júlí 1968. Kona hans er Salóme Ýr Rúnarsdóttir.
3. Valdimar Helgi Pétursson, f. 31. ágúst 1976. Kona hans er Anna Valsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Morgunblaðið 29. desember 2004 og 26. febrúar 2005. Minningargreinar. *Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.