Anna Pálsdóttir (ljósmóðir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Anna Pálsdóttir ljósmóðir fæddist 14. maí 1910 á Kvíabekk í Ólafsfirði og lézt 6. september 1984.

Ætt og uppruni

Foreldrar hennar voru Páll kennari þar og á Hofsósi og bóndi á Kvíabekk og Ártúni á Höfðaströnd í Skagafirði, oddviti og sýslunefndarmaður, f. 9. júlí 1879, d. 15. desember 1965, sonur Ísaks Árna bónda á Hreiðarsstöðum í Svarfaðardal, síðar á Atlastöðum þar, f. 3. janúar 1851, d. 6. maí 1934, Runólfssonar og konu Ísaks Árna, Önnu Sigríðar húsfreyju, f. 7. desember 1859, d. 25. nóvember 1954, Björns bónda á Atlastöðum Sigurðssonar. Móðir Önnu ljósmóður og kona Páls Árnasonar var Þórey Halldóra ljósmóðir, f. 21. ágúst 1875 að Mýrarkoti á Höfðaströnd, d. 31. júlí 1957 á Hofsósi, Jóhanns bónda á Vatni í Hofshreppi í Skagafirði, Svínavallakoti í Unadal þar, Hóli á Skaga, - og um skeið sjómaður í Grafarósi, f. 1. nóvember 1843, d. 12. desember 1923, Jónatanssonar bónda á Reykjarhóli í Fljótum Jónatanssonar og konu Jónatans á Reykjarhóli, Hólmfríðar Gunnlaugsdóttur. Móðir Þóreyjar Halldóru ljósmóður var Þórey húsfreyja, f. 14. jan. 1843, d. 6. maí 1884, Péturs bónda á Vatni Sveinssonar ríka Hjaltalín og konu Péturs á Vatni, Þóreyjar Ásmundsdóttur frá Bjarnastöðum í Unadal.

Lífsferill

Anna lauk ljósmæðraprófi við Ljósmæðraskóla Íslands 30. sept. 1940.
Hún var ljósmóðir við Landspítalann 1. október 1940 til 10. október 1945 og frá 23. janúar 1973. Ljósmóðir í Eyjum var hún frá 10. október 1945 - goss 1973. Hafði hún tekið við, er Auður Eiríksdóttir ljósmóðir lét af störfum.

Anna var systir Unnar Pálsdóttur húsfreyju á Arnarstapa, konu Sveins Guðmundssonar forstjóra og bæjarfulltrúa.


Heimildir

  • Upphaflega grein skrifaði Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Legstaðaskrá.
  • Kennaratal á Íslandi. Reykjavík: Prentsmiðjan Oddi H.F., 1958-1988.
  • Ljósmæður á Íslandi. Reykjavík: Ljósmæðrafélag Íslands, 1984.
  • Pers.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.