Anna Jenný White Marteinsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. september 2018 kl. 17:43 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. september 2018 kl. 17:43 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Adólf Sigurgeirsson og Anna Jenný White Marteinsdóttir.

Anna Jenný White Marteinsdóttir frá Björgvin, húsfreyja fæddist 31. mars 1937 í Reykjavík, d. 16. maí 2018.
Foreldrar hennar voru Martin Christian Frederiksen vélstjóri, f. 25. maí 1910, d. 24. febrúar 1988, og Margrét Ingibjörg Halldórsdóttir húsfreyja frá Björgvin, f. 25. mars 1909, d. 18. ágúst 2012.

Hálfsystir Önnu Jennýjar, sammædd, er
1. Margrét Cornette húsfreyja, f. 1. apríl 1944.

Anna Jenný var með móður sinni í æsku. Hún fluttist til Eyja skömmu eftir fæðingu og bjó í Björgvin, vann við fiskiðnað, var í vist á Englandi í 2 ár og vinnukona hjá Margréti Pétursdóttur og Einari Guttormssyni.
Þau Adólf bjuggu saman á Kirkjubæjarbraut 5 frá 1958, giftu sig 1959, eignuðust fjögur börn, en misstu elsta barnið á áttunda aldursári þess. Þau byggðu síðan Grænuhlíð 25 og bjuggu þar fram að Gosi.
Þau fluttu til Grindavíkur skömmu eftir Gos og hafa búið þar síðan.

Maður Önnu Jennýjar, (17. maí 1959), er Adólf Sigurgeirsson plötu- og ketilsmiður frá Stafholti, f. 15. ágúst 1930.
Börn þeirra:
1. Sigurgeir Halldór Adólfsson, f. 24. desember 1959, d. 18. ágúst 1967.
2. Kjartan Friðrik Adólfsson bókari, f. 6. nóvember 1964.
3. Margrét Adólfsdóttir húsfreyja, ræstingastjóri, f. 27. september 1966.
4. Sigrún Adólfsdóttir húsfreyja, tölvutæknir í Þýskalandi, f. 13. desember 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.