Anna Guðný Jóhannsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. mars 2023 kl. 10:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. mars 2023 kl. 10:08 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Anna Guðný Jóhannsdóttir“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Anna Guðný Jóhannsdóttir.

Anna Guðný Jóhannsdóttir frá Hrauni í Borgarfirði eystra, húsfreyja fæddist þar 31. júlí 1928 og lést 23. maí 2018 á hjúkrunarheimilinu Lundi á Hellu.
Foreldrar hennar voru Jóhann Helgason bóndi á Ósi á Borgarfirði eystra, verkamaður, útgerðarmaður, f. 30. desember 1891 í Njarðvík, N.-Múl., d. 10. febrúar 1972, og kona hans Bergrún Árnadóttir frá Brúnavík, N.-Múl., húsfreyja, f. þar 3. október 1896 (Pr.þj.bók 11. nóvember), d. 25. júní 1972.

Anna var með foreldrum sínum á Ósi.
Þau Áskell giftu sig 1953, eignuðust fimm börn. Þau fluttu til Eyja 1955, bjuggu á Oddsstöðum.
Þau fluttu til Þorlákshafnar eftir 10 ára dvöl í Eyjum og bjuggu þar í nær 50 ár. Þau dvöldu síðustu ár sín í Lundi á Hellu.
Áskell lést 2017 og Anna 2018.

I. Maður Önnu Guðnýjar, (25. maí 1953), var Áskell Torfi Bjarnason sjómaður frá Lágadal í Nauteyrarsókn í N.-Ísafj.s., f. 14. september 1926, d. 24. febrúar 2017.
Börn þeirra:
1. Árni Áskelsson, f. 6. febrúar 1953. Kona hans Jóhanna Marín Jónsdóttir.
2. Bjarni Áskelsson, f. 25. október 1954. Fyrri kona hans var Margrét Bárðardóttir, látin. Kona hans Ingibjörg H. Sigurðardóttir.
3. Guðmundur Sveinn Áskelsson, f. 13. október 1956 á Oddsstöðum. Kona hans Þóra Bjarnadóttir.
4. Guðni Torfi Áskelsson, f. 6. apríl 1959 á Sj.húsinu. Sambúðarkona hans Júlíana Hilmisdóttir.
5. Gestur Áskelsson, f. 6. júní 1961 á Oddsstöðum. Kona hans Sigríður Kjartansdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.