Anna Grímsdóttir (Haukabergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. október 2021 kl. 14:15 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. október 2021 kl. 14:15 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Sigríður Grímsdóttir frá Haukabergi, húsfreyja fæddist 14. júlí 1928 á Gunnarshólma.
Foreldrar hennar voru Grímur Gíslason skipstjóri, f. 20. apríl 1898, d. 31. mars 1980, og kona hans Guðbjörg Magnúsdóttir frá Felli, húsfreyja, f. 11. ágúst 1901, d. 5. maí 1982.

Börn Guðbjargar og Gríms:
1. Magnús Grímsson skipstjóri, f. 10. september 1921 á Felli, d. 16. desember 2008.
2. Anton Einar Grímsson vélstjóri mjólkurfræðingur, verkstjóri, f. 14. október 1924 á Felli, d. 11. júní 2014.
3. Anna Sigríður Grímsdóttir húsfreyja, f. 14. júlí 1928 á Gunnarshólma.
4. Gísli Grímsson vélstjóri, vélvirki, f. 16. janúar 1931 á Gunnarshólma, d. 29. mars 2016.
5. Guðni Grímsson vélstjóri, f. 13. nóvember 1934 í Uppsölum við Vestmannabraut 51.

Anna var með foreldrum sínum í æsku, á Gunnarshólma við Vestmannabraut 37, þá á Uppsölum við Vestmannabraut 51, en að lokum á Haukabergi við Vestmannabraut 11.
Þau Guðjón giftu sig 1950, eignuðust tvö börn. Þau bjuggu á Faxastíg 11, nú nefnt Nýja-Klöpp, en lengst á Heiðarvegi 52.
Guðjón lést 2001. Anna býr á Kleifahrauni 3.

Maður Önnu, (10. júní 1950), var Guðjón Magnússon netagerðarmaður, afreksmaður í íþróttum, f. 4. apríl 1921, d. 4. janúar 2001.
Börn þeirra:
1. Magnús Birgir Guðjónsson netagerðarmaður, f. 13. júlí 1949 á Haukabergi. Kona hans Jóna Kristín Ágústsdóttir, látin.
2. Þuríður Guðjónsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður, f. 19. nóvember 1952 í Eyjum. Maður hennar Ólafur Friðriksson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.