Anna Erlendsdóttir (Boðaslóð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 12. september 2019 kl. 16:56 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 12. september 2019 kl. 16:56 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Anna Guðrún Erlendsdóttir frá Brekkuborg í Fáskrúðsfirði, húsfreyja, fiskverkakona fæddist 11. júlí 1924 og lést 11. febrúar 1998.
Foreldrar hennar voru Erlendur Jónsson húsmaður í Eyjum í Breiðdal 1920, síðar bóndi í Brekkuborg, f. 14. júlí 1893, d. 31. júlí 1967, og Jóhanna Helga Jónsdóttir húsfreyja, f. 2. september 1896, d. 6. maí 1983 í Eyjum.

Þau Halldór giftu sig 1944, eignuðust þrjú börn og ólu upp dótturbarn.
Þau bjuggu á Fáskrúðsfirði, en fluttust til Eyja 1951, reistu sér hús á Boðaslóð 16, þar bjuggu þau til 1978, en fluttu þá í Blokkina að Hásteinsvegi 60.
Halldór lést 1982. Anna bjó áfram að Hásteinsvegi 60. Hún lést 1998.

I. Maður Önnu Guðrúnar, (11. júlí 1944), var Halldór Jónsson frá Hafnarnesi í Fáskrúðsfirði, sjómaður, útgerðarmaður, f. 28. ágúst 1919, d. 17. maí 1982 í Eyjum.
Börn þeirra:
1. Jóhann Halldórsson skipstjóri, f. 24. október 1942. Kona hans er Aðalbjörg Bernódusdóttir.
2. Guðlaug Brynja Halldórsdóttir, f. 25. nóvember 1944. Maður hennar Haraldur Benediktsson.
3. Stúlka, f. 30. september 1947, d. 1. desember 1947.
Fósturdóttir þeirra, dóttir Brynju:
4. Erna Þórsdóttir húsfreyja, f. 28. júlí 1963. Maður hennar er Halldór Hjörleifsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.