Annáll ÍBV íþróttafélags í 20 ár/2012 -

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júlí 2019 kl. 14:02 eftir Gisli (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júlí 2019 kl. 14:02 eftir Gisli (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

2012 -


    

Þrettándinn

Þrettándinn var að venju haldin með pompi og prakt. Jólasveinar, tröll og álfar voru kvödd að að viðstöddu miklu fjölmenni á malarvellinum í Löngulág. Veðurguðirnir voru þokkalega hliðhollir, því þurrt var að mestu bæði í göngunni og á malarvellinum. Merki ÍBV var tendrað í hlíðum Molda, flugeldasýning af Hánni og jólasveinarnir komu niður af fjallinu með blysin sín og gengu í fararbroddi á malarvöllinn.

Æfingagjöld hækka

Um áramótin hækkuð æfingagjöld félagsins um 16 % eða úr 36 þúsund krónum í 43 þúsund krónur. ÍBV íþróttfélag veitir systkinaafslátt,  þannig að annað barn greðir 28 þúsund krónur og þriðja barn 15 þúsund krónur. Þess má geta að félagið niðurgreiðir allan ferðakostnað og auk þess gefst foreldrum tækifæri til að vinna fyrir æfingagjöldum t.d. með gæslustörfum á þjóðhátíðum.

Íslandsmeistarar í futsal

Karlalið ÍBV varð í byrjun árs Íslandsmeistari í innanhússknattspyrnu, futsal. Liðið lék í riðli með Sindra, Afríku og Leikni. Eyjastrákar unnu alla sína leiki og komust þar með í  úrslitakeppnina sem leikin var í Laugardalshöll. Í undanúrslitum sigruðu þeir Fjölni, 7-3 og úrslitaleikurinn var gegn Víkingi frá Ólafsvík. Þar hafði ÍBV betur og vann 5-0 og þar með Íslandsmeistaratitilinn.  

Fleiri Íslandsmeistarar í futsal

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu fagnaði einnig sigri á Íslandsmeistaramótinu í innanhússknattspyrnu, futsal. Keppnin fór þannig fram að fimm lið voru saman í einni heild og spiluðu allar við alla. Það lið sem fékk flest stig í lok móts varð Íslandsmeistari. Þetta er í annað sinn sem ÍBV fagnar sigri í keppninni, því árið 2010 var ÍBV einnig Íslandsmeistari.

Sætur sigur á Stjörnunni

Kvennalið ÍBV vann sætan sigur á Stjörnunni í fyrsta leik leik sínum í N1 deildinni á nýbyrjuðu ári.  Lokatölur urðu 24-26 eftir að staðan í hálfleik var 12-14. Liðið situr nú í 4. sæti deildarinnar.

Tryggvi íþróttamaður ársins

Á viðurkenningahátíð Íþróttabandalags Vestmannaeyja í lok janúar, var Tryggvi Guðmundsson, knattspyrnumaður útnefndur Íþróttamaður Vestmannaeyja fyrir árið 2011. Þá var Svava Tara Ólafsdóttir, sem keppir bæði í handbolta og fótbolta,  valin íþróttamaður  æskunnar og Jóhannes Ólafsson, sem lengi hefur unnið að málefnum knattspyrnunnar í Eyjum fékk sérstök heiðursverðlaun fyrir störf sín.

Haukar engin fyrirstaða

Kvennalið  ÍBV átti ekki í neinum vandræðum með Haukastúlkur þegar liðin áttust við í N1 deildinni í handbolta. Þessi fyrrum stórlið í íslenskum kvennabolta mega muna sinn fífil fegurri, enda börðust þau um titlana fyrir ekki svo löngu síðan. Eyjaliðið er reyndar í blússandi sókn þessar vikurnar á meðan Haukastúlkur tefla fram ungu og óreyndu liði enda  urðu lokatölur 38-20 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 22-8.

Mörk ÍBV skoruðu Þorsteina 10,  Ivana Mladenovic 5, Ester 5, Rakel 4, Drífa 4, Guðbjörg 3, Mariana Trobojevic 2 og Sandra Gísladóttir 1. Florentina varði 25 skot.

Komnar í undanúrslit Eimskipsbikarsins

Eyjakonur heimsóttu þær Selfosskonur í  Eimskipsbikarnum í 8  liða úrslitum. Selfoss leikur í 2 deild Íslandsmótsins. Aldrei var spurning hvoru megin sigurinn lenti, ÍBV vann 20-37.

Sigur á Gróttu – dómarinn fullur

Svavar Vignisson, þjálfari meistaraflokks kvenna í handbolta var ekki sáttur eftir sigur liðsins á Gróttu. Sagði hann liðið ekki hafa spilað leikinn vel. „Þetta var bara lélegur leikur af okkar hálfu“ sagði hann. Engu að síður sigruðu  Eyjastúlkur leikinn 26-19 og eru nú í fjórða sæti deildarinnar.

Leikurinn hafði nokkurn eftirmála. Svavar lét hafa eftir sér að dómarinn hefði angað af áfengislykt og að dómararnir hefðu dæmt eins og þeir væru blindfullir. Dómaranefnd HSÍ sendi  umræddan dómara, Júlíus Sigurjónsson í leyfi eftir að hann viðurkenndi að hafa drukkið bjór kvöldið fyrir leikinn. Engu að síður var Svavar dæmdu r í  25 þúsund króna sekt.

Og svo kom tap gegn Val

Íslandsmeistarar Vals höfðu betur gegn ÍBV þegar liðið heimsótti Eyjar. Mikið hefur verið talað um yfirburði Vals og Fram í N1 deildinni í vetur en í þessum leik kom  bersýnilega í ljós að þessi munur er að minnka hvað ÍBV varðar. Leikurinn var í járnum mest allan tímann en í blálokin náðu Valsstúlkur þriggja marka forystu og sigruðu 32-29.

Þurftu sigur

Karlalið ÍBV fór illa að ráði sínu þegar liðið sótti Selfoss heim í 1. deildinni. Eyjamenn þurftu nauðsynlega á  sigri að halda í  voninni um 1. deildarsætið, en ÍR-ingar eru á toppnum og með fjögurra stiga forystu á ÍBV. En það fór sem sagt þannig að Selfoss hafi betur í leiknum og sigraði með einu marki 20-21.

Mörk ÍBV skoruðu; Magnús Stefánsson 4, Sigurður Bragason 4, Andri Heimir Friðriksson 4, Theodór Sigurbjörnsson 3, Pétur Pálsson 2, Leifur Jóhannesson 1, Vignir Stefánsson 1 og Arnar Pétursson 1.

Kolbeinn í stuði

Það ætlar ekki að ganga vel hjá karlaliðinu í upphafi árs. Þeir tóku á móti Víkingum í íþrótthúsinu í Eyjum og biðu lægri hlut, 21-22. Sóknarleikur ÍBV liðsins var skelfilegur fyrsta stundarfjórðunginn, enda skoraði liðið þá aðeins tvö mörk, þar af annað úr víti. En gamla brýnið, Sigurður Bragason náði að blása lífi í sóknarleikinn sem var þó langt í frá ásættanlegur. Það var svo á lokamínútunum að ÍBV drengir settu í gírinn og áttu meira að segja möguleika á jafntefli en færið nýttist ekki. Markvörðurinn Kolbeinn Aron var besti maður liðsins.

Með bakið upp við vegg

Karlalið ÍBV er komið með bakið  upp að vegg eftir fjórða tapið í röð í 1. deildinni. Nú síðast tapaði liðið fyrir Stjörnunni á útivelli, 37-30. ÍBV liðið hefur ekki unnið leik það sem af er ári. Með versnandi gengi hefur liðið einnig hrapað niður stigatöfluna og er nú komið í  4. sæti af 6 liðum.

1000 marka maðurinn

Þegar ÍBV mætti á heimavöll Víkinga nokkru síðar, snérist dæmið við, ÍBV sigraði, 22-23.  Þetta var kærkominn sigur í öllu mótlætinu undanfarið. Í rauninni hefur ekkert gengið síðan í fyrstu umferðinni, en leikin er fjórföld umferð í 1. deild, fimm leikir í hverri umferð. Þetta var hinsvegar tímamótaleikur hjá Sigurði Bragasyni sem skoraði sitt 1000. mark í Íslandsmótinu fyrir  ÍBV. Fyrsta markið sem Sigurður skoraði fyrir ÍBV var árið 1994 og þá gegn Fjölni. Hann hefur verið á leikskýrslu í 332 leikjum sem gera þá rúmlega 3 mörk í leik. Alla tíð hefur Sigurður leikið með ÍBV utan  veturinn 2000-2001 þegar hann lék með  Víkingum. Hann er markahæsti leikmaður ÍBV frá upphafi.

Sigur á botnliðinu

Karlaliði ÍBV urðu ekki á nein mistök þegar liðið mætti botnliði 1. deildar, Fjölni. Eyjamenn voru sterkari allan  tímann og sigurinn sannfærandi, 28-18

ÍBV hlaðið viðurkenningum

Á ársþingi KSÍ fékk ÍBV þrenn verðlaun. Félagið fékk Grasrótarverðlaunin svonefndu, en verðlaunin eru veitt í þremur flokkum sem eru ákveðin af Evrópska knattspyrnusambandinu. ÍBV fékk grasrótarverðlaun stúlkna fyrir Pæjumótið. ÍBV fékk Dragostyttuna ásamt Val og BÍ/Bolungarvík, en styttuna fá félög í tveimur efstu deildunum sem sýna prúðmannlegasta leik tekið mið af gulum og rauðum spjöldum. Síðasta en ekki síst fékk ÍBV háttvísisverðlaun í Pepsídeild kvenna, en liðið fékk fæst gul og rauð spjöld í deildinni.

Geta borið höfuðið  hátt eftir úrslitaleik bikarkeppninnar

Villtur, grimmur og hreint út sagt magnaður varnarleikur Valskvenna lagði grunninn að öruggum 27:18 sigri þeirra á ÍBV og þar með fyrsta bikarmeistaratitli þeirra í 12 ár. Valskonur komust  í 8:2 á fyrsta stundarfjórðungnum og hleypti Eyjakonum aldrei nærri sér eftir það. „Það hefur sýnt sig oft áður, bæði í Evrópuleikjum og hér heima, að þessi 3+3 vörn kemur andstæðingunum alltaf á óvart. Þegar við náum að spila hana eins og í þessum leik þá á enginn séns. Mótherjarnir verða bara pirraðir og eiga ótrúlega erfitt með að spila á móti henni. Galdurinn á bakvið þetta er að allir í vörninni séu mjög vel samstilltir. Það er langt á milli manna en þeir þurfa að vera mjög vel tengdir saman og svo snýst þetta bara um að sýna rosalega grimmd. Annars er þetta ekki hægt,“ sagði Kristín Guðmundsdóttir sem var markahæst Valskvenna í leiknum og tók af skarið við eina alvöru áhlaup ÍBV í leiknum, um miðjan seinni hálfleik. „Eins og við séum heppnar“ Þetta var annar bikarmeistaratitill Kristínar en hún varð meistari með Stjörnunni 2008. Þrátt fyrir að Valsliðið hafi verið sigursælt síðustu ár, og orðið Íslandsmeistari tvö ár í röð, hefur liðið nefnilega ekki landað bikarmeistaratitlinum frá því árið 2000. Frábærir leikmenn á borð við Hrafnhildi Skúladóttur og Önnu Úrsúlu Guðmundsdóttur voru því að verða bikarmeistarar í fyrsta sinn. 

ÍBV stelpurnar geta svo sannarlega borið höfuðið hátt þrátt fyrir tap, þær mættu einfaldlega ofjörlum sínum.

En þótt ÍBV stelpur hafi tapað bikarúrslitaleiknum fór ekkert milli mála hvort félagið  átti betri stuðningsmenn. Stuðningsmannahópur ÍBV var mun fjölmennari en Vals, þótt leikurinn færi fram í höfuðborginni. Og þótt ÍBV stelpurnar hafi tapað var þeim fagnað meira af sínum stuðningsmönnum en Vals sem voru þó sigurvegarar.

Andlát

Steingrímur Jóhannesson sem nánast alla sína ævi spilaði fótbolta með ÍBV, lést 1. mars, á krabbameinsdeild Landsspítalans, 39 ára gamall. Útför hans fór fram frá Bústaðakirkju 12. mars, að viðstöddu miklu fjölmenni. Gríðarlegur fjöldi Vestmannaeyinga brá sér yfir sundið til að vera við útförina og ÍBVarar stóðu heiðursvörð þegar kistan var borin út. Þá stóð félagið fyrir fjársöfnun fyrir ekkju hans.

Hvorki gengur né rekur

Karlaliði ÍBV ætlar að ganga erfiðlega í 1. deildinni. Enn eitt  tap liðsins leit dagsins ljós þegar Selfyssingar heimsóttu Eyjarnar og sigruðu 21-23.  Bæði eru þessi lið með 16 stig, en ÍBV með betri markatölu.

Tap gegn efsta liðinu

Efsta lið N1 deildarinnar í kvennahandbolta, Fram, var í heimsókn í byrjun mars. Nokkur getumunur var á liðunum og sigur Fram, 17-19 mjög öruggur.

Mörk ÍBV: Grigore Ggorgata 7, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Ester Óskarsdóttir 3, Mariana Trbojovic. Florentina Stanciu varði 18 skot þar af 2 víti.

Næst lélegasta liðið, - skortur á aga

Karlalið ÍBV lauk keppni á Íslandsmótinu í handbolta með sigri á Fjölni, 29-35, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12-17. Það ríkti þó ekki mikil gleði hjá aðstandendum ÍBV eftir leikinn, því liðið komst ekki í  umspil um laust sæti í úrvalsdeildinni. Niðurstaða tímabilsins er því sú að ÍBV er næstlélegasta lið Íslands í karlahandbolta, sem er erfitt fyrir metnaðarfullt félag að sætta sig við.

Í viðtali  Eyjafrétta við Arnar Pétursson þjálfara ÍBV, sagði hann í liðinu væri fullt af krúsidúlluvandamálum. Hann segist hafa gert ákveðin mistök varðandi agann. Ég gaf of mikið eftir á ákveðnu tímabili í stað þess að vera trúr minni sannfæringu. Það gerist ekki aftur, sagði hann. 

3ja sæti í N1 deildinni

Kvennalið ÍBV lagði Haukastúlkur að velli í síðustu umferð N1 deildarinnar, 24-21. Liðið hafði þegar tryggt sér þriðja sætið í deildinni og því ekki að neinu að keppa þannig. Ester Óskarsdóttir var í miklu stuði og skoraði 9 mörk í 10 skottilraunum.

Framundan er úrslitakeppnin þar sem ÍBV mætir Fram.

Unnu 2. deildina

2. flokkur karla vann 2. deildina í handbolta – sigraði Víking í lokaleiknum, 33-21. ÍBV var með mikla yfirburði í deildinni, tapaði aðeins tveimur leikjum af 18. Liðið leikur því í úrslitakeppninni og mætir þar Val. 

Aðalfundurinn

ÍBV íþróttafélag hélt aðalfund sinn um miðjan apríl. Það sem helst bar til tíðinda var mikill viðsnúningur í rekstri félagsins. Félagið tapaði 19.4 milljónum árið 2011 en hagnaðist um 34,8 milljónir árið 2010.  Er þetta viðsnúningur uppá 54 milljónir króna. Skuldir félagsins námu í árslok 2011 136,2 milljónum.

Handknattleiksdeildin skilað 1.2 milljónum í hagnað. Knattspyrndeild kvenna var rekin með 2.5 milljóna halla og knattspyrnudeild karla var rekin með 6.3 milljóna króna halla, en sú deild velti um 90 milljónum króna.

Þá kom fram að hagnaður af Þjóðhátíðinni hefði verið 25.3 milljónir árið 2011 en árið 2010 var hagnaðurinn 54,9 milljónir en kostnaður við hana var um 90 milljónir.

Hinsvegar högnuðust deildir félagsins um 20 milljónir á þjóðhátíðinni, og  má því segja að félagið hafi fengið um 45 milljónir í hagnað af henni.

Líflegar umræðu  voru á fundinum um hin ýmsu mál. Tryggvi Már Sæmundsson  framkvæmdastjóri ÍBV íþróttafélags að félagið hefði ráðist í að kaupa rútu til að flytja liðin félagsins frá Landeyjahöfn á áfangastað, hinsvegar ef liðin fljúga greiði félagið sömu  upphæð til viðkomandi deilda og ef þau færu í gegnum Landeyjahöfn.

Þá spurði  Stefán Jónasson hvernig stæði á því að verk á vegum félagsins, eins og stúkubyggingin við Hásteinsvöll og Stóra sviðið í Herjólfsdal væru ekki boðin út. Jóhann Pétursson formaður félagsins svaraði því til að hagkvæmast hefði verið að leita til sama aðils sem séð hefði um verkin.

Jóhannes Ólafsson velti upp hvort ekki væri tímabært að gerð yrði úttekt á því hversu miklar tekjur félagið skapaði bæjarfélaginu. Hann bætti því við að ný stjórn þyrfti að vinna að því að ná meiri sátt við samfélagið í Eyjum, umræða um  félagið væri oft á tíðum neikvæð.

Ný stjórn var kosin, hana skipa: Jóhann Pétursson, formaður; Páll Magnússon, varaformaður; Guðný Einarsdóttir, gjaldkeri; Þórunn Ingvarsdóttir, ritari og Stefán Örn Jónsson meðstjórnandi.

Fram og stór biti

Það fór eins og margra grunaði, að Fram yrði of stór biti fyrir ÍBV í kvennahandboltanum og komst nokkuð örugglega í úrslit Íslandsmótsins. Fram vann alla þrjá leikina. Fyrst og fremst var það slakur sóknarleikur sem varð ÍBV að falli. Liðið réði einfaldlega ekki við það að missa Ester Óskarsdóttur úr liðinu en hún á við meiðsli að stríða.  Engu að síður er árangur  ÍBV ágætur, endaði í þriðja sæti í N1 deildinni, komst í undanúrslit og í úrslitaleik bikarkeppninnar. 

Árni kveður eftir farsælt starf

Árni Stefánsson hefur lyft grettistaki í þjálfun ungra handknatt- leiksiðkenda hjá ÍBV síðustu tvö ár. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa og langt síðan ÍBV hefur átt svo mörg lið meðal tíu efstu í Íslandsmóti yngri flokka. Að mörgu leyti má þakka Íþróttaakademíunni þennan góða árangur en Árni hafði yfirumsjón með því að koma akademíunni á koppinn og hefur síðan þá séð um handboltahlið akademíunnar. En nú er komið að leiðarlokum hjá kappanum í Eyjum því hann hefur ákveðið að færa sig til Handknattleikssambands Íslands til að starfa við útbreiðslu- og fræðslumál, málefni sem sannar- lega þarfnast athygli.  HSÍ hefði varla getað fengið betri mann í verkið en Árna, sem starfar af lífi og sál fyrir íþróttahreyfinguna.

Árni var í viðtali við Eyjafréttir á vordögum. Í viðtalinu sagði hann m.a.: „Nú er ég búinn að þjálfa í nærri 35 ár og hef gríðarlega reynslu. Ég hef oft sagt það að íþróttaumhverf- ið hér er mjög gott og aðstaðan frábær.  Við erum t.d. með þrjá sali í handboltanum sem við getum notað við æfingar og mjög góða aðstöðu fyrir fótboltann.  Hjá ÍBVíþróttafélagi starfa mjög hæfir þjálfa rar og ef ég ber saman ÍBV og önnur félög, þá fullyrði ég að ekkert félag á landinu, hefur jafn góða aðstöðu og ÍBV.  Auk þess er mjög gott að starfa hjá félaginu, ef

eitthvað hefur vantað, þá hefur því verið kippt í lag fljótt og örugglega. Fólkið sem er að starfa í kring um íþróttirnar hér er að standa sig frábærlega og án þeirra væri ekki hægt að halda úti eins öflugu starfi og raun berf vitni.  Ég veit að ég hef komið ýmsu til skila og náð að bæta ýmislegt hjá félaginu.  Ég fer því stoltur frá Eyjum og er virkilega ánægður með að hafa komið hingað,“ sagði Árni að lokum. 

Vetrarlok

Lokahóf ÍBV-íþróttafélags eftir líflegt vetrarstarf var haldið í Höllinni 19. maí.  Þar komu saman leikmenn og aðrir félagsmenn ÍBV og gerðu sér glaðan dag saman.  Einsi kaldi og hans fólk sáu um að enginn fór svangur út og var hófið allt hið glæsilegasta. Skemmtiatriðin voru með hefð bundnu sniði en í ár var boðið upp á skemmtilegt myndband í stað ræðu formanns handknattleiksdeildar, og mæltist það vel fyrir.  Þá skrifuðu tveir nýir þjálfarar undir hjá félaginu en þeir munu starfa hjá félaginu næsta vetur.  Þetta eru þeir Erlingur Birgir Richardsson, sem snýr aftur eftir að hafa starfað hjá HK og gert liðið að Íslandsmeisturum, og Jakob Lárusson.  Þá voru Íslandsmeista rar ÍBV kvenna árið 2000 heiðraðar sérstaklega. Hápunktur kvöldsins var hins vegar verðlaunaafhending fyrir veturinn hjá elstu flokkum félagsins.

Meistaraflokkur kvenna

Mestu framfarir: Kristrún Ósk Hlynsdóttir.

Efnilegust: Drífa Þorvaldsdóttir.

Best: Ester Óskarsdóttir og Florentina Stanciu.

3. flokkur kvenna

Mestu framfarir: Sara Dís Davíðsdóttir.

Efnilegust: Svava Tara Ólafsdóttir.

Best: Drífa Þorvaldsdóttir.

Meistaraflokkur karla

Mestu framfarir: Brynjar Karl Óskarsson.

Efnilegastur: Theodór Sigurbjörnsson.

Bestur: Pétur Pálsson.

2. flokkur karla

Mestu framfarir: Hjörvar Gunnarsson.

Efnilegastur: Haukur Jónsson

Bestur: Brynjar Karl Óskarsson.

3. flokkur karla

ÍBV-ari: Bergvin Haraldsson.

Mestu framfarir: Svavar Grétarsson.

Bestur: Hreiðar Óskarsson.

4. flokkur karla

ÍBV-ari: Hákon Styrmisson.

Efnilegastur: Nökkvi Dan Elliðason.

Bestur: Dagur Arnarsson.

Fyrsti leikur á nýju knattspyrnutímabili

Eyjamenn fengu enga óskabyrjun í Pepsídeildinni þegar liðið mætti Selfossi á útivelli á í fyrsta leik sumarsins.  Leikmenn ÍBV áttu slakan dag og töpuðu sanngjarnt 2:1.  Selfyssingar skoruðu bæði mörkin í fyrri hálfleik en hefðu auðveldlega getað bætt við fleiri mörkum. Síðari hálfleikur var jafnari og þá náðu Eyjamenn að minnka muninn. 

Frammistaða George Baldock, enska miðjumannsins sem var öflugur í liði ÍBV en sótti boltann stundum fullaftarlega á völlinn. Þá má heldur ekki gleyma því að í leikmannahópinn vantaði heila sex leikmenn, þar af fimm sem gætu gert tilkall til sætis í byrjunarliðinu. Mestu munar auðvitað um þá Andra Ólafsson, Tryggva Guðmundsson og Gunnar Má Guðmundsson en enginn af þeim mun verða tilbúinn fyrr en í júní.  Þá voru þeir Eyþór Helgi Birgisson, Aaron Spear og Guðjón Orri Sigurjónsson einnig utan við leikmannahópinn.

Byrjunarlið ÍBV (4-5-1) Abel Dhaira, Arnór Ólafsson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Rasmus Christiansen, Matt Garner, Tonny Mawejje, Ian Jeffs, George Baldock, Guðmundur Þórarinsson, Þórarinn Ingi Valdimarsson, Christian Olsen. Varamenn: Yngvi Borgþórsson, Albert Sævarsson, Ragnar Leósson (kom inn á fyrir Arnór á 72.), Jón Ingason, Gauti Þorvarðarson, Bjarki Axelsson, Víðir Þorvarðarson. Mark ÍBV: Þórarinn Ingi Valdi mars son (víti)

Engin óskabyrjun

Það verður seint sagt að karlalið ÍBV byrji Íslandsmótið í knattspyrnu vel. Liðið hefur aðeins fengið eitt stig úr fyrstu þremur leikjum sínum, tvö töp og markalaust jafntefli gegn Breiðablik á heimavelli.  Það er ekki nóg með að liðinu hafi gengið illa, því þegar loksins fer að sjást til sólar, fær liðið á sig þrjár vítaspyrnur gegn KR, tvær mjög vafasamar og ein beinlínis röng, og KR hafði betur 3:2.  Lukkudísirnar hljóta að snúast í lið með ÍBV og vonandi fyrr en síðar.

Leikurinn gegn Breiðabliki í 2. umferð olli miklum vonbrigðum.  Eftir að hafa tapað fyrsta leiknum gegn Selfossi, mátti búast við að liðið myndi leika varlega gegn Blikum.  En Eyjamenn léku einfaldlega alltof varlega, sem bitnaði verulega á sóknarleiknum og markalaust jafntefli gaf rétta mynd af leiknum. Í þriðju umferð mættu Eyjamenn svo KR á útivelli og eins og áður sagði fengu KR-ingar þrjár vítaspyrnur, nýttu þær allar. Matt Garner klúðraði svo einu vítaspyrnu ÍBV í leiknum í uppbótartíma, spyrnan var arfaslök, laus undan vindinum og markvörður KR-inga varði.  Hins vegar voru vítaspyrnu dómarnir sem ÍBV fékk á sig hreint ótrúlegir.  Fyrsta spyrnan var vafasöm í besta falli.  Sú  önnur var beinlínis röng því boltinn fór í hönd Brynjars Gauta Guðjónssonar, sem var metra fyrir utan vítateiginn en slakir dómarar leiksins færðu brotið inn fyrir og dæmdu vítaspyrnu. Síðasta vítið sem KR-ingar fengu var einnig vafasöm því Rasmus Christiansen varðist vel, steig sóknarmann KR einfaldlega út sem negldi aftan í Rasmus og dómarinn dæmdi víti.

Án sigurs

Ekki náðu Eyjamenn að landa fyrsta sigrinum  þegar liðið tók á móti Fylki.  Bæði lið voru án sigurs í Íslandsmótinu eftir þrjár umferðir og komust í gegnum þá fjórðu án þess að innbyrða þrjú stig.  Lokatölur urðu 1:1 jafntefli í miklum rokleik

Frábær byrjun

Kvennalið ÍBV hefði varla getað byrjað Íslandsmótið betur en þær gerðu þegar þær tóku á móti Val, sem hefur borið höfuð og herðar yfir önnur lið í kvennaknattspyrnunni undanfarin ár.  Valur endaði í öðru sæti Íslandsmótsins í fyrra en ÍBV í því þriðja.  Eyjastúlkur höfðu hins vegar betur, unnu 4:2 og eru í efsta sæti deildarinnar eftir 1. umferðina.

Svo kom skellur

Kvennalið ÍBV náði ekki að fylgja eftir góðum sigri gegn Val í fyrstu umferð Íslandsmótsins þegar liðið sótti nýliða FH heim í Hafnarfjörðinn. Nýliðarnir fóru illa með ÍBV og unnu 4:1 eftir að hafa komist í 4:0. Mark ÍBV gerði Berglind Björg Þorvaldsdóttir úr vítaspyrnu í uppbótartíma.  Fyrrum leikmaður ÍBV, Eyjakonan Bryndís Jóhannesdóttir, skoraði þriðja mark FH-liðsins.

Shaneka mikilvæg

ÍBV lagði Aftureldingu að velli í Pepsídeild kvenna en leikur liðanna fór fram í Mosfellsbæ.  Sigurinn gegn Aftureldingu var því kærkominn en lokatölur urðu 0:3 fyrir ÍBV.

Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV sagði í samtali við Fréttir eftir leikinn að Shaneka Gordon hafi verið ÍBV liðinu mikilvæg.  „Við byrjuðum ekki alveg nógu vel og vorum máttlitlar í byrjun. En eftir svona tuttugu mínútna leik náðum við tökum á leiknum.  Samt fannst mér vanta meiri kraft og áræðni, ekki ólíkt og gegn Breiðabliki, til að klára sóknirnar.  Shaneka Gordon var í fyrsta sinn í byrjunarliðinu og bjargaði í raun og veru liðinu að miklu leyti því hún skoraði tvö mörk og lagði svo upp þriðja markið

Útlendingarnir pirra Hörð

Mikil umræða hefur verið um knattspyrnuþáttinn Pepsímörkin á Stöð2 Sport og umfjöllun um ÍBV í þættinum.  Á dögunum var sett út á fjölda erlendra leikmanna í liðunum og í síðasta þætti átti þáttar stjórnandinn ekki orð yfir fjölda aðkomumanna í liðinu. Fjölmargir hafa réttilega bent á að ÍBV sé engin undantekning í fjölda að- komumanna í liðinu, nema síður sé og því hafi umræðan verið á röngum forsendum.  Hörður hefur verið sakaður um í spjalli á facebook að hafa horn í síðu ÍBV og ræddu stuðningsmenn ÍBV um að segja upp áskrift á stöðinni. Hörður sagði í samtali við Eyjafréttir.is að hann væri ekki í herferð gegn ÍBV og hefði ekkert á móti félaginu.  „Hins vegar má ekki gleyma því að ÍBV er ekki hvaða lið sem er. ÍBV var í bar áttu um Íslandsmeistaratitilinn síðustu tvö ár og ætlaði sér að gera betur en í fyrra. Liðinu var spáð góðu gengi og þjálfari liðsins sagði að leikmannahópurinn væri betri en í fyrra.“

Sanngjarn sigur

Kennalið ÍBV vann öruggan og sanngjarnan sigur á Fylki í byrjun júní. Þær höfðu lengst af eins marks forystu en undir lokin bættu þær við  tveimur mörkum og sigruðu 3-0.  Síðasta mark leiksins var sérlega skemmtilegt. Svava Tara Ólafsdóttir tók hornspyrnu. Hún spyrnti fyrir markið, boltinn sveif í háum boga yfir sóknarmenn ÍBV og varnarmenn Fylkis og í markið.

Minningarleikur

Föstudaginn  1. júní fór fram minningarleikur um Steingrím Jóhannesson, í rjómablíðu á Hásteinsvelli. Þar áttust við ÍBV og Fylkir en liðin voru að mestu skipuð fyrrum leikmönnum liðanna. Fjölmargir komu við sögu í leiknum sem lauk með sigri ÍBV, 5-3. Síðasta markið skoraði Martin Eyjólfsson, - það er eins og það hafi gerst áður gegn Fylki á Hásteinsvelli.

2. flokkur

Annar flokkur karla byrjaði Íslandsmótið 19. maí þegar strákarnir tóku á móti sameiginlegu liði Selfoss og Árborgar.  Það voru gestirnir sem höfðu betur, 0:1 en liðin leika saman í B-deild. Þjálfari liðsins er sá sami og í fyrra, Gregg Ryder.

Annar flokkur karla lék annan leik sinn í sumar þegar liðið tók á móti Val á Týsvellinum.  Leikur inn var mjög fjörugur, sex mörk litu dagsins ljós, níu leikmenn fengu áminningu í leiknum en í byrjun síðari hálfleiks var Óskari Elíasi Óskarssyni vísað af leikvelli.  Þá var staðan 3:0 fyrir ÍBV en það kom ekki að sök, ÍBV skoraði fjórða markið en Valsmenn náðu að minnka muninn með tveimur mörkum undir lokin.  Lokatölur urðu því 4:2 fyrir ÍBV, sem hefur unnið einn leik og tapað einum í upphafi Íslandsmótsins.  Liðið leikur í B-deild en mörk ÍBV gerðu þeir Jón Ingason (2) og Jake Gallagher (2).

Annar flokkur kvenna, sem leikur í B-deild Íslandsmótsins, lék sinn fyrsta leik  þegar stelpurnar tóku á móti Fjölni.  ÍBV hafði betur, 3:0 en þetta var fyrsti leikur beggja liða.

Tryggvi markakóngur

Tryggvi Guðmundsson er mesti markakóngur íslenskrar knattspyrnu frá upphafi. Það undir strikaði hann þegar hann skoraði sitt 127. mark í efstu deild og bætti þar með metið yfir flest mörk skoruð frá upphafi.  Metinu deildi hann með Inga Birni Albertssyni en báðir höfðu þeir skorað 126 mörk. Markið skoraði Tryggvi þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli á Hásteinsvelli 4-1, en ÍBV vann þar með sinn fyrsta sigur í suma.

127. mark Trygggva var aukaspyrna rétt utan við vítateigslínuna, hann lyfti boltanum fagmannlega yfir varnarvegg Stjörnunnar.

Lið ÍBV 4-5-1 Mark: Abel Dhaira.  Vörn: Arnór Eyvar Ólafsson, Brynjar Gauti Guðjónsson, Rasmus Christiansen, Matt Garner.  Miðja: Víðir Þorvarðarson (Ian Jeffs 66.), Guðmundur Þórarinsson, George Baldock, Tryggvi Guðmundsson (Ragnar Leósson 83.), Tonny Mawejje. Sókn: Christian Olsen (Gunnar Már Guðmundsson 90.). Mörk ÍBV: Brynjar Gauti Guðjónsson, Tryggvi Guðmundsson, Christian Olsen og Ian Jeffs.

Pæjumótið

Pæjumót  TM og ÍBV hefur líklega aldrei farið fram í jafn góðu veðri og í ár. Alla keppnisdagana var sól og blíða en veðrið skiptir alltaf máli hvernig til tekst. Það er jafnframt eini þátturinn sem skipuleggjendur mótsins geta ekki stjórnað.

Um 600 þátttakendur voru á mótinu frá 9 félögum en alls voru liðin 56 talsins og voru leikirnir alls rúmlega 200 talsins. Keppendur komu  til Eyja seint á miðvikudegi en fyrstu leikirnir fóru fram á fimmtudagsmorgun. Setning mótsins var svo um kvöldið. Kvöldvaka, landsleikur, grillveisla og diskósund, auk lokahófs á laugardagskvöldi, var til skemmtunar auk allra knattspyrnuleikjanna.

Valur varð sigurvegari í keppni A-liða en úrslitaleikurinn var æsispennandi, þar mætti Valur Breiðabliki og sannast sagna var Breiðablik sterkari aðilinn.

Hjá B-liðunum var það hinsvegar Breiðablik sem hafði betur gegn FH, 2-0. Í flokki C-liða sigraði  Afturelding Stjörnuna 3-0.

Eyjaliðunum hefur oft gengið betur á Pæjumótun en í  ár. A-liðið endaði í 15. og næst neðsta sæti. B-liðið endaði í 11. sæti af 16  liðum og C-liðið endaði í 6. sæti af 16 liðum. Einnig var keppt í D –liðum en ÍBV var ekki með lið þar. ÍBV fékk hinsvegr verðlaun í mótslok fyrir að vera með prúðasta liðið.

Sem fyrr voru fjölmargir sem lögðu hönd á plóg við framkvæmd og undirbúning mótsins.  Allt eru þetta tannhjól í vél sem hefur virkað í áratugi og heldur vonandi áfram að virka um ókomna tíð.

Fyrri hálfleikur betri en sá seinni

Kvennalið ÍBV vann þriðja leik sinn í röð þegar þær lögðu Selfoss að velli í 6. umferð Pepsídeildarinnar.  Leikurinn fór fram á Hásteinsvelli og í fyrsta sinn í sumar var ekki hávaðarok á vellinum þegar stelpurnar spila þar.  Leikmenn ÍBV virtust kunna vel við sig í blíðunni enda urðu lokatölur leiksins 7:1.  Öll mörkin komu í fyrri hálfleik og ef það er eitthvað sem mætti setja út á leik ÍBV, þá er það að hafa ekki bætt við mörkum í síðari hálfleik.

Heiður eða kaldar kveðjur

Þegar nálgast þjóðhátíð vakna ýmsir hópar af værum blundi, og senda tóninn til Vestmannaeyja. Femínístafélag Íslands „heiðraði“ ÍBV-íþróttafélag á sinn hátt. Þær segja í frétt frá sér: -Nauðganir eru nauðgurum að kenna og engum öðrum – nema ef vera skyldi samfélagi sem grípur ekki til alvarlegra aðgerða gegn slíkri hegðun,

ÍBV íþróttafélag og þjóðhátíðarnefnd fá hvatningaverðlaun Femínístafélagsins

„ÍBV-Íþróttafélag hefur allt frá stofnun félagsins haft að leiðarljósi jafnrétti jafnt innan vallar sem utan. Lögð er áhersla að halda úti jafn mörgum flokkum hjá kynjunum auk þess sem m.a. er gætt að jafnræði gagnvart hæfi þjálfara,“ segir í frétt frá ÍBV-íþróttafélagi og þjóðhátíðar nefnd félagsins sem fengu Bleiku steinana, hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands, sem afhentir voru um miðjan júní.

Femínistafélagið segir Bleiku steinunum ætlað að hvetja viðtakendur til að hafa jafnréttissjónarmið ætíð að leiðarljósi í verkum sínum og er þar vísað til komandi þjóð- hátíðar. „Samkvæmt fréttum voru a.m.k. fimm nauðganir tilkynntar eftir síðustu þjóðhátíð í Eyjum en ekki er hægt að reikna með að sú tala sé endanleg þar sem samk væmt reynslu þeirra sem aðstoða þolendur kynferðisofbeldis getur liðið þó nokkur tími á milli þess að brotið á sér stað og þar til þolendur leita sér aðstoðar,“ segir í frétt Femínistafélagsins. Rifjuð eru upp ummæli formanns þjóð hátíðarnefndar fyrir síðustu Þjóðhátíð um að samtök á borð við Stígamót sem aðstoða þolendur kynferðisofbeldis, auki á vandamál sem tengjast nauðgunum á útihátíðum. Telur Femínistafélag Íslands brýnt að minna ábyrgðaraðila hátíðarinnar á að nauðganir eru nauðgurum að kenna og engum öðrum – nema ef vera skyldi samfélagi sem grípur ekki til alvarlegra aðgerða gegn slíkri hegðun. Verða þetta að teljast ansi kaldar kveðjur frá Femínistafélaginu. Segja þær að til að sporna við nauðgunum á þjóðhátíð verði að grípa til að gerða. Nauðsynlegt sé að hátíðar haldarar fræðist sjálfir og miðli upplýsingum til annarra um hvað kynferðisofbeldi sé og hvaða afleiðingar það hefur. Telja þær aðkomu forvarnahópa mjög æskilega og að leitað verði til Stígamóta og falast eftir reynslu þeirra og aðstoð á hátíðinni. „Afar mikilvægt er að hátíðarhaldarar gefi út yfirlýsingu um að nauðganir séu nauðgurum að kenna og engum öðrum. Nauðganir verði ekki liðnar á þjóðhátíð, heldur barist gegn þeim með öllum ráðum tiltækum,“ segja þær og telja þrátt fyrir allt að  ríkur vilji sé fyrir hendi hjá hátíðarhöldurum til að koma í veg fyrir hvers kyns ofbeldi á hátíð inni og treystir því að þeir taki þessari hvatningu og geri það að sínu aðalmarkmiði að næsta þjóðhátíð í Vestmannaeyjum verði nauðgunarlaus. „Femínistafélag Íslands ber þá von í brjósti að hið sama verði upp á teningnum í skipulagi og framkvæmd annarra útihátíða sem haldnar verða víðs vegar um landið í sumar,“ segir í lokaorðum fréttar Femínistafélgsins.

Femínistafélagið ætti að kynna sér málið í heild sinni

Stjórn ÍBV-íþróttafélags og þjóð hátíðanefnd láta ekki illa dulin skot Femínistafélgsins á sig fá og benda á að fyrr á árinu fékk  félagið viðurkenningu frá Íþrótta-  og Olym píusambandi Íslands sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ og var ÍBV íþróttafélag fyrsta félagið að fá þá viðurkenningu eftir að kröfur um reglur um m.a. jafnrétti, varnir og viðbrögð gegn kynferðisofbeldi og einelti varð hluti af áætlun ÍSÍ. Handbók ÍBV sé á heimasíðu félagsins ibvsport.is. „Að okkar mati er þjóðhátíðin best skipulagða útihátíð landsins og erum við mjög stolt af þeirri vinsælu fjölskylduhátíð. Skipu lagning þjóðhátíðar hefur verið til mikillar fyrirmyndar og er litið til hennar sem fyrirmyndar slíkra hátíða. Mikil áhersla er lögð á öfluga gæslu á hátíðinni enda slík gæsla öflugasta forvörnin gegn m.a. ofbeldisbrotum,“ segir í frétt félagsins. Vakin er athygli á því að á þjóðhátíðarsvæðinu séu m.a. læknar á vakt, sérhæfðir sjúkraflutningamenn sem og sálgæsla, þar sem koma að sálfræðingar, félagsráðgjafar og aðrir sem til slíkra mála þekkja best.  „Vegna tilvísunar Feminstafélags ins til orða formanns þjóðhátíðarnefndar þá hvetur ÍBV Feministafélagið til að kynna sér málið í heild sinni.  Fræðsla er ávallt af hinu góða. ÍBV Íþróttafélag mun leggja áherslu á að berjast gegn hvers konar ofbeldi hvort sem er á þjóðhátíð eða annars staðar og vill sérstaklega taka undir áréttingu Feministafélagsins að ábyrgð á ofbeldi hvílir hjá ofbeldismanninum einum.  Það er hins vegar ÍBV að sjá til þess að gæsla og aðbúnaður sé til staðar á þjóðhátíð og það hefur verið og mun áfram vera til fyrirmyndar á þjóðhátíð.“

ÍBV segir verðlaun Feministafélags Íslands mikinn heiður fyrir ÍBV og þjóðhátíðarnefnd og viðurkenningu fyrir gott starf en um leið hvatning til að gera enn betur. 

ÍBV og þjóðhátíðarnefnd vilja þakka fyrir þennan heiður og munu hér eftir sem hingað til í engu gefa eftir í baráttu fyrir jafnrétti á öllum sviðum. ÍBV-íþróttafélag og þjóðhátíðarnefnd ÍBV  þakka Feminstafélagi Íslands fyrir verðlaunin og hvatninguna og munu þau hvetja okkur til enn frekari dáða á í framtíðinni segir aðalstjórn ÍBV-íþróttafélags og þjóðhátíðarnefnd ÍBV.

Eyjamenn mættir til leiks

Eyjamenn fóru hreinlega á kostum í leik sínum gegn ÍA þega ÍBV lagði Skagamenn með fjórum mörkum, 0:4 en það gerist ekki á hverjum degi að lið fari upp á Akranes og vinni með fjórum mörkum.  Þetta var jafnframt annar sigurinn í röð hjá ÍBV í Íslandsmótinu og sá þriðji í deild og bikar en markatalan úr þessum þremur leikjum er sérlega glæsileg, 10:1.

Eyjamenn hafa með sigrunum tveimur lyft sér úr fallsæti og upp í 8. sæti en betur má ef duga skal. Fyrir sumarið töluðu bæði þjálfari og leikmenn um að markmiðið væri að gera betur en síðasta sumar. Eyjamenn eru átta stigum frá topp liðunum tveimur, FH og KR og í raun má fátt fara úrskeiðis það sem eftir lifir sumars. Eyjamenn áttu að leika gegn Grindavík í gær, mið vikudag en úrslit leiksins voru ekki kunn þegar blaðið fór í prentun. Eins og áður hefur komið fram, hafa Eyjamenn spilað ágætlega í upphafi móts en markaskorun sem fyrr vandamál.  Það vandamál virðist hins vegar hafa horfið um leið og markahrókurinn Tryggvi Guðmundsson mætir til leiks. Tryggvi er ótrúlega klókur leikmaður og þótt hraðinn sé minni en hann var fyrir 20 árum, þá er hann leiðtoginn í sóknarleik liðsins og hefur án efa breytt miklu fyrir liðið. Þá óttast önnur lið hann enda hefur hann sýnt það að markanefið er enn í góðu lagi.

Þá endurheimti ÍBV Þórarin Inga Valdimarsson að nýju eftir meiðsli. Þórarinn Ingi meiddist gegn Selfossi en var besti maður ÍBV þar til hann meiddist. Hann þrjóskaðist við og spilaði gegn Breiðabliki í næsta leik en var aðeins skugginn af sjálfum sér og augljóslega meiddur, enda var hann frá næstu vikurnar.  Hann var hins vegar einn besti maður vallarins gegn ÍA og gulls ígildi að fá hann til baka úr meiðslum.  Enginn var hins vegar betri en danski sóknarmaðurinn Christian Olsen sem hefur heldur betur fundið fjölina eftir erfiða byrjun. Hann skoraði þrjú mörk, var mjög ó gnandi og hefði í raun getað skorað fleiri mörk í þessum leik. Eins og sjá má hafa Eyjamenn smátt og smátt safnað saman vopn- um eftir erfiða byrjun í Íslands mótinu.  Enn eru fjórir leikir eftir í fyrri umferð Íslandsmótsins og ef ÍBV næði að nálgast toppinn í þessum fjórum leikjum, þá er aldrei að vita hvað gerist í síðari umferð inni.  En framundan er strembið tímabil hjá ÍBV, margir leikir í Íslandsmótinu, bikarkeppninni og Evrópukeppninni og eins gott að leikmenn haldist heilir.

Mörk ÍBV: Christian Olsen (3), Ian Jeffs.

Glæsilegur útisigur

Annað árið í röð tókst kvennaliði ÍBV að fara norður til Akureyrar og vinna stórsigur á Þór/KA í Pepsídeild kvenna.  Í fyrra vann ÍBV 0:5 sigur í fyrsta leik mótsins og komu öllum mjög á óvart enda ÍBV nýliði í deildinni á meðan Þór/KA var spáð góðu gengi.  Nú var staðan þannig að Þór/KA var fyrir leikinn í efsta sæti deildar innar og hafði ekki tapað leik. Eyjastelpur létu það ekkert trufla sig og unnu 1:4, glæsilegur úti sigur hjá ÍBV.

19-3 í síðustu fimm leikjum

Karlalið ÍBV hefur heldur betur tekið við sér eftir slaka byrjun í sumar. Liðið hefur nú unnið fimm leiki í röð og markatala er sérlega glæsileg úr þessum leikjum eða 19 mörk skoruð og aðeins þrjú mörk fengin á sig.  Nú síðast varð 1. deildarlið Hattar frá Egilsstöðum fyrir barðinu á Eyjamönnum í 16-liða úrslitum Borgunarbikarsins.  Eyjamenn höfðu betur 6:1. Þar áður sigruðu þeir Víkinga í Ólafsvík 2-0, einnig í Borgunarbikarnum. 

Shellmótið

Einu af glæsilegustu Shell mót um frá upphafi lauk með lokahófi í Íþróttamiðstöðinni 30. júní. Að baki voru þrír annasamir mótsdagar, þar sem strákarnir spiluðu fótbolta, fóru í báts- og rútuferðir, kynntust hver öðrum og skemmtu sér. Flestir, ef ekki allir sem blaðamaður ræddi við á mótinu, voru sammála um að Shellmótið væri langflottasti íþróttaviðburður landsins, sér stak lega þegar veðrið er eins og það var um helgina.

Reyndar rigndi aðeins á mótsgesti eftir hádegi á föstudag en það kom ekki að sök því fljótlega stytti upp og enginn er verri þótt hann vökni. Mótið, sem fyrst gekk undir nafninu Tommamót, hefur fyrir löngu skipað sér veglegan sess í knattspyrnus umrinu enda þótti það mikið frumkvöðlastarf hjá Lárusi Jakobs- syni og félögum að koma mótinu á koppinn á sínum tíma.  Síðan þá hafa aðrir tekið við kyndlinum, þeir Einar Friðþjófsson, Jóhann Jónsson, Björgvin Eyjólfsson, Björn Elías son, Jónas Sigurðsson, Hörður Óskars son, Jóhann Guðmundsson og Hafsteinn Hjálmarsson skipa mótsnefndina en flestir hafa þeir áratuga reynslu að baki.  Sjálfir segja þeir að það sé bara svo gaman að taka þátt í skipulagningu og svo sjálfu mótshaldinu, þess vegna koma þeir alltaf aftur að ári. Góð reynsla er nú komin á nýtt skipulag sem var reynt á sínum tíma en með því var aflögð hefðbundin getuskipting í A-, B-, C-lið og svo framvegis. Nú spila öll lið og reynt er að getuskipta þeim til að byrja með.  En liðin færast svo til eftir getu, þannig að þegar upp er staðið hafa flest liðin átt góða möguleika á að vinna í það minnsta einn leik, ef ekki fleiri.  Það besta við nýja s kipu- lagið er hins vegar það, að á morgni laugardags, eiga öll liðin enn möguleika á að vinna bikar en alls

eru í boði þrettán bikarar í Shell- mótinu. Bestu liðin keppa að lokum um sjálfan Shellmótsbikarinn en í ár voru það HK og Fjölnir sem áttust við í æsispennandi úrslitaleik.  Fyrri hálfleikur var nokkuð jafn en undir lok hálfleiksins komst HK yfir.  Í síðari hálfleik var HK sterkari aðilinn og náði að bæta við öðru marki skömmu áður en leik var lokið.  Árangur ÍBV var ágætur. Félagið vann Ystaklettsbikarinn og spilaði til úrslita um Bjarnareyjarbikarinn en ÍBV tefldi fram sex liðum í mótinu. Þótt fótboltinn sé aðalatriðið, þá er svo fjölmargt annað í boði fyrir strákana. Flestir voru þeir sammála um að útisvæðið við sundlaugina væri frábært.  Í raun áttu margir erfitt með að benda á eitthvað eitt sem væri skemmtilegast, rútuferðin, bátsferðin, kvöldvakan, lands leikurinn, grillveislan, lokahófið og síðast en ekki síst allir leikirnir.  Allt er þetta eintóm gleði og fjör.

Þjóta upp töfluna

ÍBV þýtur nú upp töfluna í Pepsí deild karla en liðið vann fjórða sigurinn í röð í Íslandsmótinu og þann sjötta í heildina, þegar Eyjamenn lögðu Val að velli 2:0 á Hásteinsvelli.  Leikurinn var erfiður fyrir Eyjamenn, Valsmenn voru betri í fyrri hálfleik en í þeim síðari tóku Eyjamenn öll völd, skoruðu tvö mörk og var síðara markið sérlega glæsilegt hjá Úgandamanninum Tonny Maw ejje, þrumuskot utan vítat eigs. Fyrra markið gerði Ian Jeffs. Eins og áður sagði hafa Eyja menn unnið fjóra síðustu leiki sína í deildinni og hafa þotið upp töfluna.  Liðið hefur  spilað einstaklega vel að undanförnu, varnarleikurinn traustur og sókn arleikurinn beittur.  Ef fram heldur sem horfir, munu Eyjam enn blanda sér af af alvöru í toppslaginn áður en langt um líður.

Komu til baka

Kvennalið ÍBV lenti í miklu basli  gegn Stjörnunni en liðin áttust við á Hásteinsvelli. ÍBV átti væntanlega sinn versta leik í fyrri hálfleik þar sem ekkert gekk upp hjá ÍBV og Stjarnan var verðskuldað tveimur mörkum yfir í hálfleik.  En Eyjastúlkur gerðu vel í því að koma til baka og jafna metin í síðari hálfleik.  Lokatölur urðu 2:2 og ÍBV í fjórða sæti deildarinnar.

Slakt gengi á  Akureyri

ÍBV fór með fjögur lið á N1 mótið á Akureyri,  A,C,D og E lið en alls fóru 32 norður. Það ferðuðust 32 strákar frá ÍBV norður. Úrslit voru ekki í takt við það sem lagt var af stað með en það var huggun harmi gegn að ÍBV fékk verðlaun fyrir fram komu og prúðmennsku á mótinu, utan vallar sem innan.

Úrslitin: A-lið lenti í 18. sæti C-lið lenti í 20. sæti D-lið lenti í 19. sæti E-lið lenti í 18. sæti. 

KR ekki stór biti

KR var ekki stór biti að kyngja fyrir ÍBV þegar Eyjakonur mættu í Vesturbæinn. Lauk leiknum með 0:2 sigri ÍBV þar sem gestirnir úr Eyjum þurftu  aldrei að setja á fullt. Það var kannski ekki von á mikilli fyrirstöðu því það er af sem áður var þegar KR var einn helsti ógnvaldurinn í kvenna boltanum. Nú þegar deildin er hálfnuð hefur KR ekki enn náð að vinna leik og er aðeins með tvö stig. Eyjakonur eru aftur á móti í toppbaráttu og mættu því afslapp- aðar til leiks og lykilleikmenn voru hvíldir. Fóru varla upp úr þriðja gírnum eins og Morgun- blaðið orðaði það. Það voru Danka Podovac og Shaneka Gordon sem sáu um að skora að þessu sinni og Hlíf Hauksdóttir átti  líka góðan leik. Til að fullkomna niðurlægingu KR lét Jón Óli Berglindi Björgu Þorvaldsdóttur og Kristínu Ernu Sigurlásdóttur hvíla á bekknum mestallan leikinn. ÍBV er nú í þriðja sæti með 19 stig eftir níu umferðir. Þór/KA er með 22 stig og Stjarnan 20.

Varið víti dugði ekki til í Borgunarbikarnum gegn KR

ÍBV hefur ekki sótt gull í greipar KR á þessu sumri, töpuðu 3:2 í Vesturbænum í vor eftir að hafa átt möguleika á að jafna undir lok leiksins. Sama var uppi á teningnum í bikarleiknum í átta liða úrslitunum á Hásteinsvelli í byrjun júlí. Þar voru Eyjamenn reyndar yfir, 1:0 þar til fimm mínútur voru til leiksloka þegar KR-ingar skoruð tvö mörk, á 85. mínútu og 87. mínútu. Þar með var bikardraumurinn úti, ósanngjarnt finnst Eyjamönnum eflaust en þarna áttust við tvö sterk lið en meiri barátta á lokakaflanum og frábær markvarsla Hannesar Þórs Haraldssonar var það sem skildi á milli liðanna sem verða örugglega í toppbaráttunni í deildinni. Eyþór Helgi Birgisson skoraði mark Eyjmanna á 17. mínútu og Abel Dhaira varði víti í upphafi seinni hálfleiks en það dugði ekki til, því miður.

Bæði komu liðin löskuð til leiksr, sérstaklega Eyjamenn, því hjá þeim voru Christian Olsen og Tonny Mawejje meiddir og Brynjar Gauti Guðjónsson og George Baldock í banni. Magnús Gylfason átti hinsvegar sterka menn á bekknum og sýndi að breiddin í hópnum er ansi góð. Eyþór Helgi Birgisson og Gunnar Már Guðmundsson komu báðir inní byrjunarliðið í fyrsta skipti á tímabilinu og settu mark sitt á leikinn.  Guðmundur Þórarinsson var í aðalhlutverki. Sá ungi Selfyssingur hefur heldur betur fest sig í sessi hjá ÍBV.

Ný stúka

Undanfarið hefur verið unnið að byggingu nýrrar áhorfendastúku á Hásteinsvelli á vegum ÍBV íþróttafélags.  Stúkan í fyrsta skiptið notuð í bikarleiknum gegn KR sunnudaginn 8. júlí og var þétt setin.

Jónas Sigurðsson skrifaði í Eyjafréttir, skemmtileg grein um fyrstu notkun á stúkunni og þá hópa sem hafa verið fastheldnir á sín stæði á Hásteinsvelli.

Stúkan Fólk var svolítið feimið og vissi ekki alveg hvar það átti að setjast, einhver spurði hvar er Hóllinn? Einn mætti í KR-búningi, það settist enginn í sömu sætaröð, enginn í röðina fyrir aftan eða framan. Hugrakkur KR-ingur. En smátt og smátt þéttist í stúkunni og nánast setið í hverju sæti þegar leikurinn hófst. Það var góð stemmning og ágætis kór sem lét heyra vel í sér þegar dómarinn flautaði einhverja vitleysu eða flautaði alls ekki.  Það er erfitt að vera knattspyrnudómari.

Hóllinn Svo kom hálfleikur. Ég gekk út úr stúkunni að vestanverðu. Samferða mér voru nokkrir sem alltaf hafa verið á Hólnum, en fluttu sig í nýju stúkuna.  Það var ekkert hik á því, Hólverjar sem stóðu vaktina, hver í sinni holu, sem mótast hafa eftir áratuga stapp og stríðsdans, ösk uðu upp í stúkuna til fyrrverandi Hólverja : „Svikarar, svikarar“ og hnefinn á lofti. Það er greinilegt að stór hópur dyggra stuðningsmanna ÍBV ætlar að halda hópinn á Hólnum og halda tryggð við þau menningarverðmæti sem Hóllinn er. Hóllinn er líklega þekktasta stuðni ngsmannagreni á knatt spyrnuvöllum á Íslandi og mörg dæmi um að „leiðbeiningar“ af Hólnum hafi ruglað dómara við dómgæslu. Kveður svo rammt að þessu að það eru margir dómarar sem fara aldrei inn á vallarfjórðunginn næst Hólnum. Það verður greinilega tekist á um það í sumar hvort standa eigi á Hólnum eða sitja í stúkunni. Þar sem þessi fyrsti leikur tapaðist, þá á ég von á að allir Hólverjar sem  rófuðu stúkuna skili sér til baka á Hólinn í næsta heimaleik.

Bekkurinn Annar mjög fastheldinn stuðningsmannahópur sem sækir heimaleiki ÍBV eru spekingarnir í horninu vestan við varamannaskýli aðkom liðanna. Sami hópurinn hefur staðið þarna vaktina á heima- leikjum í áratugi, en settu upp ágætis bekk þegar þeir fóru að reskjast. Bekkjarnir hafa tekið að sér það hlutverk að ná athygli aðkomuliða, liðsstjóra og ekki síst þjálfara til þess að dreifa athygli þeirra og einbeitingu að leiknum, auk þess að

vera með kurteisar ábendingar um það sem verr megi fara í leik að- komuliðanna. Ef aðkomuliðið svarar ábendingum, þá má segja að búið sé að bjóða upp í dans og þá er gaman á bekknum.  Bekkverjar eigna sér slatta af stigum sem ÍBV hefur halað inn undir lok leikja vegna einbeitingarleysis þjálfara aðkomu- liðanna! Það þekkist um allan heim, þar sem leikvöllum er breytt, þá kemur los á dygga stuðningsmenn, harðasta kjarnann, sem verður alltaf að vera á sama stað á sínum heima- velli. Það tekur smá tíma fyrir stuðningsmenn að finna nýjan stað og væntanlega tekur allt sumarið að finna nýjan stað á vellinum, ef þeir þrjóskast ekki við og verða áfram á gamla staðnum. Stúkan festir sig fyrr í sessi, ef ÍBV vinnur leiki, því áhorfendur vilja fara aftur á sama stað og þegar leikur vannst. Hjátrúin er rík. Það þekkist líka að sumir eru svo þrjóskir að þeir hætta að mæta á völlinn, ef búið er að eyðileggja gamla staðinn þeirra á vellinum. Hóllinn á Hásteinsvelli er menningarfyrirbæri sem stúkubyggingar munu eyða, ef menn gæta ekki að sér.  Þetta gerist smátt og smátt. Hóllinn kemur til með að lifa í sumar, en smátt og smátt færa menn sig yfir í stúkuna og þá munu Hólverjar væntanlega setjast vestast í stúkuna, en gæta verður þess að flytja menninguna af Hólnum með sér. Þegar búið verður að byggja yfir stúkuna, þá verða fáir eftir á Hólnum. Bekkurinn aftur móti er einstakt fyrirbæri, menningarverðmæti sem KSÍ og reglugerðarbákn UEFA gera fljótlega upptækt, ef menn gæta sín ekki. Bekkurinn er að vísu á afgirtu áhorfendasvæðinu, en í sömu línu og varamannabekkirnir. Það tíðkast hvergi í heiminum að hafa 3 varamannabekki á knattspyrnuvelli.  Það er alltaf þannig að

áhorfendur eru fyrir aftan varamannabekki, aldrei í sömu línu. Eini möguleiki Bekkverja til að halda áfram samræðum og leið- beiningum til aðkomuliða er að taka frá sætin beint fyrir ofan varamannabekk aðkomuliðsins í stúkunni, en þá missa þeir augn kontakt við þjálfara og varamenn, þannig að það verður erfiðara að ná athygli. Eina leiðin til að varðveita menningu Bekkjarins er að hann fái að vera áfram á sínum stað. Til þess að varðveita Bekkinn, þá þurfa Bekkverjar að vera á undan KSÍ og UEFA og sækja um friðun bekkjarins sem menningarverðmæti til UNESCO. Það þarf að rökstyðja svona umsóknir vel, þannig að það yrði að fylgja með videoupptaka af heilum leik og þýðing á öllu því fjölskrúðuga orðavali sem notað er á Bekknum og að sjálfsögðu svörum aðkomuliðsmanna. Vestmannaeyingar, ÍBV, Hólsarar og Bekkverjar, til hamingju með nýju stúkuna.  Stúkan verður fljótt 12ti maðurinn í ÍBV liðinu.

Úr vörn í sókn

Kynferðisofbeldi er ekki liður í dagskrá þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum og verður aldrei liðið og hefur félagið í því skyni stofnað forvarnahóp gegn kynferðisofbeldi. - Grasrótarhreyfing í Eyjum og þjóðhátíðarnefnd ÍBV  hafa ákveðið að stofna forvarnahóp ÍBV. Hópurinn fær það hlutverk að standa fyrir sérstöku átaks verkefni gegn kynferðisofbeldi og verður það verkefni áberandi á þjóðhátíðinni í byrjun ágúst.  Það er einróma mat forvarna hóps ÍBV að mikilvægt sé að efla forvarnir á þessu sviði enda sé það forgangsverkefni að koma í veg fyrir að ofbeldið eigi sér yfirleitt stað. Markmið hópsins er því fyrst og fremst að vekja athygli á málefninu á sýnilegan hátt því málefnið snertir alla gesti hátíðarinnar. Kynferðisofbeldi er ekki liður í dagskrá þjóðhátíðar í Vestmanna eyjum og verður aldrei liðið.

Stingdu puttanum ofaní fulla skál af vatni

Jóhann Pétursson, hæstaréttalögmaður er formaður  ÍBV íþróttafélags. Hann var í löngu viðtali við Eyjafréttir skömmu fyrir þjóðhátíð. Margt bar þar á góma m.a. að hann hafi verið talsvert fjarverandi undanfarna mánuði og hvort það komi ekki niður á starfinu sem formaður. „Auðvitað vildi maður þurfa að viðurkenna það að fjarvera manns kæmi niður á félaginu en kínverskt máltæki segir að ef þú heldur að þú sért ómissandi prófaðu þá að fylla skál af vatni, stingdu puttanum ofan í og kipptu honum snöggt til baka. Sjáðu holuna sem myndast.  Það er nú þannig að það eru ýmsir og reyndar margir mikilvægari í starfi félagsins en ég og nefni ég kannski fyrst starfsmenn félagsins sem og kvennadeildina og þá sem starfa á mótunum.  Þá verður að nefna þjóðhátíðarnefndina sem hefur gert einstak ega góða hluti í undanförnum árum og gert félaginu í raun mögulegt að starfa með þeim þrótti sem raun ber vitni.  Líkast til er þó allra mesta vinnan á þeim sem  starfa í meist- araflokksráðunum en hún er gríðarleg og oft ekki metin að verðleikum.  Þá er aðalstjórn félagsins mjög vel skipuð dugnaðarforkum sem þekkja vel til starfsins þannig að það er langt frá því að félagið liggi á mínum herðum einvörðungu.“

Áttum að gera út um leikinn í f yrri hálfleik

Kvennalið ÍBV átti möguleika að skjótast tímabundið á topp Pepsídeildarinnar en liðið þurfti þá að leggja Val að velli á heimavelli þeirra, Vodafonevellinum.  Það tókst hins vegar ekki, lokatölur urðu 3:0 fyrir Val sem er nú aðeins þremur stigum á eftir ÍBV.  Öll mörkin komu á fjögurra mínútna leik kafla í síðari hálfleik.

Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, sagði að liðið hefði átt að gera út um leikinn í fyrri hálfleik.  „Við áttum að vera þremur mörkum yfir í hálfleik því við fengum nokkur mjög góð færi til að skora.  Svo skor aði Valur eftir aukaspyrnu, sem var ekki aukaspyrna, í síðari hálfleik og í sannleika sagt, þá voru mínir leikmenn ekki klárir í seinni hálf leikinn.  Þessi úrslit gefa hins vegar engan veginn rétta mynd af úrslitum leiksins.  Við áttum bara að gera út um leikinn í fyrri hálfleik og hugsanlega vorum við óskynsamar í seinni hálfleik.  Þá ætluðum við að sækja stíft á þær en skildum eftir svæði bak við okkur sem Valur nýtti sér vel.  Það segir ýmislegt að Valur vinnur 3:0 en markmaður Vals liðsins er valinn maður leiksins.“

Komu heim með gull, silfur og brons

Í byrjun júlíi fór fram Símamótið í knattspyrnu en mótið, sem áður hét Gull og Silfurmótið, er knattspyrnumót fyrir ungar knatt spyrnustúlkur.  Keppt er í 5., 6. og 7. flokki og sendi ÍBV átta lið til keppni í öllum flokkunum þremur. Árangurinn var stórgóður í mótinu því stelpurnar komu heim með gull, silfur og brons. Bestum árangri náðu stelpurnar í 6. flokki.  A-liðið lék um þriðja sætið og lagði Breiðablik að velli. B-liðið vann hins vegar gull en þær lögðu Breiðablik1 að velli 1-0 í úrslitaleik.  C-liðið endaði svo í 9. sæti og D-liðið í 30. sæti en C- og D-lið léku í sama flokki. A-lið 7. flokks náði einnig stórgóðum árangri en stelpurnar komu heim með silfurverðlaun um hálsinn, þær töpuðu naumlega í úrslitaleik fyrir Stjörnunni 1-0.  ÍBV sendi einnig C-lið til keppni í 7. flokki sem endaði í 12. sæti.  A-lið 5. flokks endaði í 15. sæti og B-liðið í 21. sæti. Sigríður Ása Friðriksdóttir er þjálfari allra flokkanna en Richard Scott þjálfar 5. flokk með henni. 

Áhugaverð staða

Nokkuð áhugaverð staða er komin upp í toppbaráttu Pepsídeildar karla en aðeins munar þremur stigum á efstu þremur liðunum.  Fjórða liðið, ÍBV gæti einnig jafnað FH og Stjörnuna að stigum ef liðið vinnur leikinn sem liðið á inni á önnur lið, en það er einmitt gegn FH í Hafnarfirði.  Nú síðast voru það Framarar sem urðu fyrir barðinu á Eyjaliðinu en lokatölur í leik liðanna á sunnudaginn urðu 3:2.  Christian Olsen gerði tvö mörk og Þórarinn Ingi Valdi marsson eitt.

Leikurinn gegn Fram bar öll þess merki að erfið vika var að baki hjá ÍBV. Liðið hafði leikið fjóra leiki á aðeins tíu dögum og til að bæta gráu ofan á svart, þá féll liðið úr leik bæði í bikar og Evrópukeppni í þessum leikjum.  Það var því enginn glans yfir spilamennsku ÍBV en engu að síður styrkleikamerki að vinna, þrátt fyrir að spila sinn versta leik í langan tíma. Álagið hefur hins vegar sagt til sín því Christian Olsen fór meiddur af velli.  Tryggvi Guðmundsson var hvíldur í leiknum gegn Fram en hann hefur sömuleiðis átt við meiðsli að stríða.  Fleiri leikmenn hafa kennt sér meins en mest megnis eru þetta álagsmeiðsli sem lagast vonandi á næstu dögum.

Sæmilega sáttur

Ég er sæmilega sáttur við úrslitin miðað við gang leiksins. Við vorum alls ekki nógu góðir í dag. Okkur gekk illa að halda boltanum innan liðsins. Þegar við fengum boltann þá vorum við allt of duglegir við að tapa honum frá okkur. Þar af leiðandi vorum við mikið í eltingaleik, mikið um hlaup án bolta,“ sagði Eyjamaðurinn Tryggvi Guðmundsson  eftir að ÍBV tapaði með minnsta mun, 1:0, fyrir St. Patrick’s Athletic í fyrri viðureign liðanna í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildar UEFA. Leikið var á Richmond Park, heimavelli Íranna. „Þótt Írarnir væru meira með boltann þá sköpuðu þeir sér ekki mikið af færum. Við vorum nokkuð þéttir í vörninni en þeir skoruðu eitt mark og þar skildi á milli. Við áttum hinsvegar möguleika á að skora eitt mark. Christian Olsen átti skot í slá á 12. mínútu. Olsen komst þá einn gegn markverðinum og vippaði yfir hann og boltinn lenti ofan á slánni,“ sagði Tryggvi um eina markverða færi ÍBV í leiknum. Tryggvi sagðist vera bjartsýnn fyrir síðari leikinn sem fram fer á Hásteinsvelli á næsta fimmtudag. „Við erum marki undir og erum þar af leiðandi í sömu stöðu og þeir voru í fyrra. Þá mættum við nokkuð bjartsýnir í síðari leikinn en töpuðum. Vonandi verður hugarfar þeirra svipað núna,“ sagði Tryggvi Guðmundsson sem taldi St. Patrick’s e.t.v. vera heldur sterkara en það var fyrri ári. Olsen meiddist Olsen fór af leikvelli meiddur á 43. mínútu. Hann tognaði í aftanverðu læri að sögn Tryggva. „Vonandi er það ekki alvarlegt en það skýrist betur þegar frá líður,“ sagði Trryggvi ennfremur. Ekki þarf að fjölyrða um þá blóðtöku sem verður í Eyjaliðinu ef Olsen getur ekki tekið þátt í næstu leikjum þess af þessum sökum en hann hefur verið einn besti leikmaður liðsins á leiktíðinni. 

16 milljónir í súginn

Eyþór Helgi Birgisson var kominn með hetjuljómann yfir sig þegar hann kom ÍBV í 2:0 í framlengingu gegn írska liðinu St. Patrick‘s Athletic á Hásteinsvellinum í gær. Ferð til Bosníu í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar blasti við og allt var það í algjörum takti við leikinn í blíðviðrinu í Eyjum í gærkvöldi. En sumir kunna ekki að halda takti og augnabliks einbeitingarleysi í vörn Eyjamanna gerði það að verkum að Írar skoruðu útivallarmark af stuttu færi sem kom þeim áfram í keppninni. „Við reyndum okkar allra besta, héldum okkur við okkar leikskipulag og pressuðum vel á þá. Þeir fengu eitt færi á þessum 120 mínútum og það reyndist okkur dýrkeypt. Svona eru Evrópukeppnirnar. Maður verður að halda einbeitingu allan leikinn. Þeir fengu líka bara eitt færi í heimaleiknum sínum og skoruðu þá eitt mark sömuleiðis,“ sagði bakvörðurinn Matt Garner sem var mjög góður í leiknum og fór fram með miklu fordæmi í baráttu sinni. Garner tryggði ÍBV framlengingu með marki af miklu harðfylgi undir lok venjulegs leiktíma. Hann lagði svo upp markið fyrir Eyþór Helga í fyrri hálfleik framlengingarinnar með frábærri tæklingu, markið sem maður hélt að kæmi Eyjamönnum áfram. En fótboltinn er ekki sanngjarn, hann hugsar bara um augnablikið og honum er alveg sama hvernig síðustu 100 mínútur hafa þróast. „Við sáum það á Írlandi að þeir vildu geta spilað boltanum á milli sín og við vissum að við yrðum að skora svo við pressuðum vel á þá. Þegar við svo skoruðum í uppbótartímanum hélt ég að þetta væri komið en okkur var greinilega ekki ætlað að komast áfram,“ sagði Garner sem reyndi að útskýra hvernig markið varð til sem tattúveraði varamaðurinn Stephen O‘Flynn skoraði og kom Írum áfram. „Þetta var há sending og varnarmaðurinn misreiknaði hana því miður. Það eru allir orðnir svo þreyttir eftir svona langan leik og þá gerast svona mistök,“ sagði Garner. Eyjamenn eru þar með úr leik í bikarnum og Evrópudeildinni á fimm dögum með gríðarlega naumum hætti. En líkt og Garner benti á þarf að halda dampi allan leikinn og það gerðu Eyjamenn ekki í gær þó þeir væru mikið betri en gestirnir. Boltinn gekk oft allt of hægt á milli manna og líklega hefur það setið í einhverjum að spila þriðja leikinn á viku. Sextán milljónir í súginn Annað árið í röð féllu Eyjamenn úr leik í Evrópudeildinni fyrir liði St. Patrick’s, sem reyndar var gjörbreytt í ár, og urðu af 100.000 evrum, jafnvirði 16 milljóna króna, sem í boði voru fyrir að fara áfram. Þeir hljóta nú að vera enn staðráðnari en áður í að standa sig í Pepsideildinni og komast í Evrópudeildina á næsta ári. Þá verður nýja stúkan sem notuð var í gær væntanlega fullkláruð en hún var þéttsetin í gær. Þó heyrðist ekkert sérstaklega mikið í stuðningsmönnum ÍBV og þeir tæplega 30 stuðningsmenn St. Patrick’s sem komu til landsins höfðu að minnsta kosti í fullu tré við þá.

(mbl.is)

Bryggjudagurinn

Einn dag á ári, já, einn dag á ári er hægt að kaupa ferskan fisk í Vestmannaeyjum. Það er á Bryggjudegi handboltans hjá ÍBV sem er orðinn einn af föstu liðunum á sumrin í Eyjum. Þá er til sölu fiskur af öllum tegundum, ferskur, frosinn, reyktur og saltaður. Boðið er upp á ýmsan annan varning og krakkar fá að spreyta sig í dorgkeppni. Vinsældir hennar hafa farið vax- andi með hverju árinu og á Bryggjudeginum á laugardaginn reyndu 44 krakkar með sér í dorgi, reyndar með stöng. Heildarafli var um 180 kíló, lang- mest ufsi og smávegis af sandk ola. Flesta fiska, 23 stykki, veiddi Kristján Birkisson, stærsta fiskinn, 1,7 kg dró Arnar Freyr Ísleifsson og Maríus Máni Sigurðarson var með mestan afla, 10,1 kíló. Salan var á Fiskiðjuvigtinni þar sem ótrúlegustu krásir úr ríki Ægis voru í boði. Að sögn aðstandenda gekk salan vel, var svipuð og í fyrra.

Fátt sem gladdi augað

Það var fátt sem gladdi augað þegar kvennalið ÍBV tók á móti FH á Hásteinsvelli rétt fyrir þjóðhátíð.  Eyjaliðið, sem hefur til þessa spilað mjög vel í deildinni og skorað mikið af mörkum, var algjörlega óþekkjanlegt.  Þetta var langlélegasti leikur liðsins síðustu tvö ár, jafnvel lengur, en FH vann sann gjarnan sigur 0:3.

Jón Ólafur Daníelsson, þjálfari ÍBV, var ómyrkur í máli sínu eftir leikinn. „Það er ekkert jákvætt að segja eftir þennan leik.  Við bara gátum ekkert, enginn vilji og leikmenn áhugalausir.  80% af liðinu okkar hafði engan áhuga á þessum leik.“

Viðsnúningur

Viðsnúningurinn sem hefur orðið á gengi ÍBV í Pepsídeildinni er í raun og veru rannsóknarefni. Eftir fimm leiki var liðið í fallsæti með aðeins tvö stig og enginn reiknaði með liðinu í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn.  En 15. júní síðastliðinn sóttu Eyjamenn ÍA heim á Akranes en Skagamenn voru þá á toppnum og höfðu ekki tapað leik.  ÍBV vann óvæntan stórsigur, 0:4 en þegar upp er staðið, var sigurinn kannski ekkert svo óvæntur.  Eyjamenn voru búnir að finna taktinn og hafa ekki tapað leik í Íslandsmótinu eftir þetta.  ÍBV lagði Selfoss að velli  1:0 og var það sjötti sigurleikur liðsins í röð.

Brekkusviðið

Undanfarið hefur verið unnið að byggingu nýs Brekkusviðs, sem gjörbreytir allri aðstöðu skemmtikrafta og fyrir fólk í brekkunni,  sem nú fær að njóta mun meiri hljóðgæða og skjáir verða sitt hvoru megin við sviði sem sýna það sem fram fer á sviðinu. Í sumar var gras sett á þak Brekkusviðsins, en enn er eftir að klæða útveggi þess með náttúrusteini eins og stendur til.

Bæjarstjórn ræddi þessa byggingu í aðdraganda Þjóðhátíðarinnar. Húsið var á sínum tíma reist með þeim skilyrðum að lokið yrði við bygginguna í ár. Bæjarstjórn veitti á fundinum þjóðhátíðarnefnd tveggja ára frest til að klæða húsið með náttúrusteini.

En bæjarstjórn er ánægð með framtakið eins og kemur fram í eftirfarandi bókun frá fundinum: „Bæjarstjórn Vestmannaeyja fagnar þeim myndarskap sem þjóðhátíðarnefnd hefur sýnt í uppsetningu og fyrirkomulagi á þjónustuhúsi og varanlegu sviði í Herjólfsdal. Húsið, sem þegar hefur aukið gæði þjóðhátíðar svo um munar, hefur alla burði til að þjónusta samfélagið um ókomna tíð. Salernisaðstaða hefur verið stór aukin og þjónusta í sölubásum sömuleiðis. Mestu skiptir þó að miðlun á hljóði og mynd bæði inn á danspall og upp í brekku er nú á borð við það sem best gerist. Ástæða er til að geta þess sérstaklega að húsið er með öllu kostað af þjóðhátíðarnefnd og rekið á þeirra kostnað,“ segir í bókun bæjarstjórnar. 

Tjöldun uppáhalds geðveikin

Fáir hafa jafn breitt bak og þeir sem starfa í þjóðhátíðarnefnd.  Á þeim standa öll spjót þessa dagana enda styttist í hátíð Eyjamanna, sjálfa þjóðhátíð í Herjólfsdal. Eyjamönnum stendur ekki á sama um hátíðina og allir hafa skoðun á því sem nefndin gerir. Þeir eiga því hrós skilið, ekki bara fyrir það hvað þeir eru að gera, heldur líka fyrir það eitt að gefa sig í þetta mikil- væga starf fyrir ÍBV-íþróttafélag. Formaður nefndarinnar er Páll Scheving Ingvarsson var Eyjamaður vikunnar í Eyjafréttum í síðasta blaði fyrir þjóðhátíð.

Ein spurning til hans er hverja hann telji hápunkta Þjóðhátíðarinnar:  Tjöldunin hefur alltaf verið uppáhalds geðveikin mín. Það er nú meira hvað menn hafa orðið trylltir á því mómenti. Menn hafa komið til mín algjörlega þrútnir og staðið svona teiknimyndareykur úr eyrunum á þeim, eins og þeir hafi nýlokið við að gleypa tívolíbombu, og tilkynnt mér að nú sé þeirra þátttöku  í þjóðhátíð, íþróttastarfi og jafnvel lífinu snarlega lokið. Bara af því að þeir fengu ekki tjaldstæði á Ástarbraut. En nú er búið að klúðra þessu.  Gufan og þjóðhátíðarnefnd eru með einhverja andskotans niðurtalningu og allt voða kósý og næs. Enginn gleypir tívolíbombu. Það er eitt skrýtið við þetta. Það er allt brjálað yfir öllum breytingum á þjóðhátíðinni, en við þessa breytingu féllust allir í faðma, svarnir óvinir leiðast um, færa jafnvel  hver öðrum rabarbarasultu eða annað heimagert góðgæti. Skrítið, þessi breyting er sú eina sem ég er verulega ósáttur við.

Er gagnrýni á þjóðhátíð meiri nú en áður?: Nei. Hún hefur alltaf verið til staðar. Við erum bara svo fljót að gleyma. 2010 var það steypuklumpur í dalnum, það er almennt í lagi í dag. 2011 samdi samkynhneigður einstaklingur diskó þjóðhátíðarlag, það var ómögulegt en er gúddý í dag. 2012 er það grillbifreið. Úr þessari bifreið ætla menn að selja kjötsneið í brauði, hamborgara, í Herjólfsdal. Þegar þetta spurðist út um samfélagið urðu margir æfir, fullyrtu að þessi grillbifreið myndi ríða viðskiptalífinu í Vestmannaeyjum að fullu. Í marga daga var aðalumræðuefnið í samfélaginu hamborgarar. Margir vildu stranglega banna útlenska hamborgara í Eyjum. En lífið er skrýtið og ég botna stundum ekkert í því. Alveg magnað hvað svona sölubifreiðar geta haft slæm áhrif á andlegt jafnvægi fólks.  Mér brá líka svakalega þegar ég mætti allt í einu ÍSBÍLNUM. Nú færi örugglega að gjósa! Nei, nei, bara minnist enginn á ÍSBÍLINN. Hann bara keyrir um götur bæjarins, hringir stanslaust einhverjum bjölluskratta. Það er allt í lagi, bara næs stemming. Hann hefur engin áhrif á viðskiptalífið í Vestmannaeyjum. Enda selur enginn ís í Eyjum. Eða hvað. Kannski hafa hamborgarar bara miklu öflugri áhrif á sálarlíf fólks en rjómaís.

Áfram ÍBV.....eða hvað

Páll Magnússon ritaði grein í Eyjafréttir þar sem ÍBV er til umfjöllunar. Hér er gripið niður í upphaf greinar Páls.

Fyrst tvær staðhæfingar: Í engu íslensku bæjarfélagi skiptir íþróttafélag jafn miklu máli fyrir bæjarbúa og ÍBV gerir í Vestmannaeyjum. Ekkert bæjarfélag á Íslandi hefur í heild sinni jafn mikinn hag af starfsemi íþróttafélags og Vestmannaeyjabær hefur af starfi ÍBV. Einhverjum kann að þykja eitthvað skorta upp á hæverskuna og hógværðina í þessum fullyrðingum, en þær eru jafn réttar og sannar fyrir því. Rök? Engin dæmi eru um að við burðir á vegum íþróttafélags standi undir jafn stórum hluta af ferðamennsku í einu bæjarfélagi og hér í Eyjum. Tugþúsundir koma til Eyja í tengslum við viðburði á borð við Shellmót, Pæjumót, þrettánda og þjóðhátíð. Þá eru ótaldir allir íþróttahóparnir sem koma vegna Íslands- og bikarmóta í ýmsum greinum - og síðast en ekki síst allur sá óbeini ávinningur sem hlýst af þessu starfi ÍBV. Síðustu vikur hef ég t.d. hitt í sundlauginni þrjár fjölskyldur af höfuðborgarsvæðinu sem allar höfðu sömu sögu að segja: „Við vorum hérna á Shellmótinu og fannst Eyjarnar svo frábærar en gátum skoðað svo lítið að við ákváðum að koma aftur með alla fjölskylduna og vera hérna í nokkra daga“.

Fyrir utan þennan beina og óbeina fjárhagslega ávinning, sem allt samfélagið hefur af starfi ÍBV, hefur svo til hver einasta fjölskylda hér í Eyjum nánast daglegan snertiflöt við félagið í gegnum íþrótta- og æskulýðsstarf fyrir börn og unglinga. Þannig skipar ÍBV afar stóran sess í öllu daglegu lífi okkar Eyjamanna og Eyjólfur á Gullberginu hitti naglann nákvæmlega á hausinn þegar hann sagði í viðtali við Moggann „...lífið væri snautlegt í Eyjum án ÍBV“.

Sætur sigur á Blikum

Leikmenn ÍBV sýndu sitt rétta andlit eftir skelfilegt tap á heima velli fyrir FH í síðustu umferð, og lögðu sterkt lið Breiðabliks að velli 1:2 á útivelli. Breiðablik hafði farið illa með ÍBV í tveimur leikjum á Hásteinsvelli, bæði í deild og bikar og unnið báða lei ina, naumlega þó.  Bikarleikurinn var sérstaklega jafn enda fór hann alla leið í vítaspyrnukeppni þar sem Blikar höfðu betur.  Það hefur væntanlega verið ofarlega í hugum leikmanna í leiknum að ná fram hefndum, sem þær og gerðu.

Og svo tap gegn Blikum

Karlalið ÍBV fóru illa að ráði í sínum leik gegn Breiðabliki en leiknum lyktaði með sigri Breiðabliks, 1:0.  Leikur Eyja manna olli miklum vonbrigðum en það var ekki fyrr en síðustu tuttugu mínúturnar að Eyjamenn sýndu sitt rétta andlit og sóttu nokkuð stíft, án þess að uppskera erindi erfiðisins.  Fyrri leik liðanna lauk með markalausu jafntefli og því tókst ÍBV ekki að skora mark gegn Breiðabliki í sumar.

Þjóðhátíðin

Þjóðhátíðarinnar 2012 verður minnst fyrir góða aðsókn, frábærs veðurs, góðrar dagskrár þar sem í fyrsta skipti var boðið upp á erlenda skemmtikrafta. Allir virtust skemmta sér mjög vel en Vestmannaeyingum var brugðið þegar Eyjamaður á besta aldri varð bráðkvaddur í Brekkunni þegar dagskráin stóð sem hæst á föstudagskvöldið. Þá varpa þrjár kærur um nauðgun skugga á hátíðina. Þetta gerist þrátt fyrir öfluga gæslu og eftirlitsmyndavélar á hátíðarsvæðinu.

Fjallabræður og Þjóðsöngurinn kölluðu fram sælu

Páll Scheving, formaður þjóðhátíðarnefndar, hafði lofað næststærstu þjóðhátíð til þessa og hann stóð við það, en alls voru gestir á um 14. þúsund. Mynstrið er þó annað því aldrei hafa fleiri komið á sunnudeginum þegar hátt á 3. þúsund manns mættu í Dalinn. Hvað stendur upp úr eftir hátíðina? Sennilega er það snaggaraleg framganga Fjallabræðra sem fengu alla í Brekkunni til að standa upp þegar þeir frumfluttu þjóðhátíðarlagið, Þar sem hjartað slær sem er eftir stjórnandann Halldór Gunnar Pálsson. Frábært stemmningslag í anda Kórs Rauða hersins sáluga þar sem frábær söngur Sverris Bergmanns og undirleikur Lúðrasveitar Vest manna eyjar fullkomnuðu flutninginn. Brekkusöngurinn stóð líka undir nafni sem einn af hápunktum þjóðhátíðar. Var reyndar með nokkuð óvenjulegu sniði en þegar 14.000 manns stóð upp í Brekkunni og söng Þjóðsönginn. Það kallaði fram sæluhroll.

Eyjamenn áttu sína fulltrúa

Á dagskránni á föstudagskvöldið áttu Eyjamenn sína fulltrúa, Patrick Rittmüller og Sindri Guðjóns sem sungu og léku og  Leikfélag Vestmannaeyja með sinn sönghóp. Magnús og Jóhann stóðu fyrir sínu eins og alltaf og það gerðu Hjálmar líka og Jón Jónsson. Mugison var loksins mættur á þjóðhátíð, löngu kominn tími til og var hann með spúsu sína með sér til fulltingis. Frábær listamaður sem kann flestum betur að skemmta landanum. Á skemmtuninni á laugardaginn áttu Eyjamenn líka sína fulltrúa í Blíðu og léttu með Eyjalögin. Þá var Mugison mættur aftur og nú ásamt hljómsveit. Galdramennirnir í Buff ná alltaf að gera lífið skemmtilegra og gestir þeirra að þessu sinni voru Bubbi Morthens, Björgvin Halld órss on, Eyþór Ingi og Helgi Björns. Allt söngvarar sem fyrir löngu hafa sungið sig inn í hjörtu Íslendinga. Sérstaklega naut Eyþór Ingi sín vel á Brekkusviðinu og sannaði sig sem einn af okkar allra bestu söngvurum í dag. Frábærlega byggt upp og með því besta sem boðið hefur verið upp á í Herjólsdal. Okkar fólk á Brekkusviðinu á sunnudeginum voru Dans á Rósum og sigurvegarar í söngvakeppni barna. Þá tóku við gamalreyndir þjóðhátíðarmenn, Páll Óskar og Ingó Veðurguð sem kunna vel til verka.

Keating á sína aðdáendur

Stærsta númerið var svo írski söngvarinn Ronan Keating sem mætti með tíu manna hljómsveit. Margir hafa spurt sig, af hverju Ronan Keating? En hann átti sér aðdáendur í Brekkunni enda góður söngvari og hljómsveitin frábær. Sjálfur virtist hann ekki alveg átta sig á hverslags hátíð hann var staddur á og margir í Brekkunni þekktu ekki lögin hans. Ronan Keating getur samt ekki verið annað en ánægður með viðtökurnar enda aðstæður frábærar, gott veður og milli 13.000 og 14.000 manns í Dalnum sem skapaði tónleikunum einstaka umgjörð. Forráðamenn þjóðhátíðar hafa viljað útvíkka hana og gera að alþjóðlegri tónlistarhátíð. Eitthvað sem ekki fellur í kramið hjá mörg- um Eyjamönnum en með nýja sviðinu eru möguleikarnir fyrir hendi að fá hingað alþjóðlega stjörnur og þá ekki endilega á þjóðhátíð.

Átök um Brekkusöng?

Brekkusöngurinn var á sínum stað en með nokkrum öðrum hætti en venjulega. Fyrstir á svið voru þeir Jarl Sigurgeirsson og Sæþór Vídó, þrautreyndir tónlistarmenn, sem komið hafa fram með Árna Johnsen í brekkusöngnum síðustu ár. Þeir stóðu fyrir sínu og lagavalið annað en hjá Árna og tók brekkan vel við sér. Að varpa textunum upp á skjáina á sviðinu hefur eflt Brekkusönginn og gert hann almennari. Þá kom millikafli, myndband með Árna Johnsen í aðalhlutverki sem varpað var upp á Brekkusviðið. Þokkalegt grín en kannski helst til of langt. Þá var komið að þætti Árna Johnsen sem átti að taka nokkur lög og enda svo með þjóðsöngnum, Íslands þúsund ár, en það dugði Árna ekki. Hann kom því skilmerkilega á framfæri að hann væri hin eina sanna rödd Brekkusöngsins sem hann byrjaði með 1977.  Þetta margítrekaði hann og til að undirstrika það söng hann í rúman hálftíma og var klukkan komin fram yfir hálf eitt þegar kom að þjóðsöngnum. Þá var komin þreyta í barnafjölskyldur en stærsti hlutinn í brekkunni naut þess að syngja í þessum stærsta kór landsins. Og þegar þjóðsöngurinn hófst stóðu öll hersingin upp og úr varð ógleymanleg stund, Hápunktur sem seint gleymist.

Hefðir á sínum stað

Hefðirnar voru á sínum stað, brennan á föstudeginum sem nú var tendruð með blysi sem fór á streng þvert yfir Dalinn. Inni í henni var komið fyrir blysum þannig að úr varð mikill blossi þegar kviknaði í brennunni. Ólympískt augnablik. Lítið fór fyrir flugeldasýningunni á laugardagskvöldinu sem var vegna bilunar í stjórnborði. Það var bætt upp á sunnudagskvöldinu með einni glæsilegustu flugeldasýningu sem sést hefur í Herjólfsdal. Og blysin sem nú voru 138 varpa alltaf ævintýraljóma á Dalinn.

Í lok dagskrár á sunnudagskvöldið var tilkynnt á myndbandi að Páll Scheving, formaður þjóðhátíðarnefndar og Tryggvi Már Sæmundsson ætluðu að segja sig úr þjóðhátíðarnefnd.  Tryggvi Már hefur líka sagt af sér sem framk væmdastjóri ÍBV-íþróttafélags. Í meira lagi tilkomumikil afsögn manna sem hafa skilað frábæru starfi en eru ekki óumdeildir.

Flestir fóru með góðar minningar af þjóðhátíðinni 2012.   Öll aðstaða hefur verið bætt í Dalnum sem gerir kleift að taka á móti öllum þessum fjölda. Allt hefur verið gert til að tryggja öryggi gesta og ÍBV-íþróttafélag er öflugt í forvörnum gegn kynferðislegu ofbeldi með sínum Bleika fílnum.  Því miður dugði það ekki til þetta árið sem hlýtur að hvetja félagið enn frekar til að efla þessa þætti.

(Eyjafréttir)

Titilvonin lifir enn

Eyjamenn náðu loksins að vinna KR í fyrsta leik eftir Þjóðhátíð. Áður hafði KR unnið ÍBV tvívegis í sumar í deild og bikar, þar af einu sinni á Hásteinsvelli og í báðum tilvikum í hörkuviðureign.  En það var aldrei inni í myndinni að ÍBV myndi tapa leiknum því leikmenn liðsins mættu einbeittir til leiks og KRingar áttu aldrei von, sérstaklega ekki eftir að markverði þeirra var vísað af velli strax á 9. mínútu. Með sigrinum halda Eyjamenn titilvoninni lifandi. Liðið er í þriðja sæti með 23 stig.

Refsað fyrir agabrot

Tveir leikmenn voru í agabanni í leiknum gegn KR, þeir Tryggvi Guðmundsson og Eyþór Helgi Birgisson en báðir brutu þeir agareglur liðsins um verslunarmannahelgina.  Í viðtali eftir leikinn sagði Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV að leikmennirnir hefðu báðir neytt áfengis en áfengisbann var bæði laugardag og sunnudag um síðustu helgi.  Eftir leikinn sendi knattspyrnudeild ÍBV frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að samningi við Eyþór Helga hafi verið rift en þetta er í annað sinn sem leikmaðurinn brýtur agareglur liðsins.  Eyþór Helgi gekk á ný í raðir ÍBV fyrir yfirstandandi tíambil og átti ár eftir af samningi sínum. Tryggvi er hins vegar sendur í ótímabundið agabann og ekki loku fyrir það skotið að hann hafi spilað sinn síðasta leik fyrir ÍBV enda rennur samningur hans út 16. október á þessu ári.  Það yrði sannarlega sorglegur endir á ferli þessa frábæra leikmanns og mesta markaskorara Íslandssögunnar. 

Fengu háttvísisverðlaun

Fjórði flokkur drengja og stúlkna tók þátt í Rey-cup í ágúst en þetta er stærsta knattspyrnumótið hérlendis í þessum aldursflokki. Öllum gekk vel á mótinu og fengu stúlkurnar háttvísiverðlaun KSÍ og Borgunar fyrir heiðarlega framkomu innan vallar sem utan. A-liðið hjá drengjunum náði besta árangrinum af öllum en þeir lentu í 3. sæti.

Tóku þátt í Olísmótinu

5. flokkur karla tók þátt í Olísmótinu á Selfossi í ágúst.   Fyrst var leikið svokallað Hraðmót en liðunum var svo skipt í riðla eftir árangri í Hraðmótinu.    A-liðið vann einn leik en tapaði tveimur í Hraðmótinu.  Þar vann C-liðið einn leik, gerði eitt jafn tefli og tapaði einum.  E-liðið vann einn leik í Hraðmótinu en tapaði tveimur.  F-liðið gerði svo tvö jafntefli og tapaði einum leik í Hraðmótinu.  Eftir þetta var lið- unum raðað niður eftir styrkleika og árangri í Hraðmótinu.  A-lið ÍBV tapaði öllum fimm leikjum sínum í riðlakeppninni, C-liðið vann einn leik, gerði eitt jafntefli og tapaði þremur og endaði í þriðja til fjórða sæti í sínum riðli.  E-liðið vann þrjá leiki en tapaði tveimur og endaði í þriðja sæti í sínum riðli. F-liðið náði bestum árangri í mótinu. Liðið vann þrjá leiki og tapaði tveimur en endaði í öðru sæti riðilsins. Þess má geta að ÍBV tefldi ekki fram B- eða D-liði í mótinu.  Þjálfarar flokksins eru þeir Friðrik Egilsson og Gregg Ryder.

Áfram barátta

Stelpurnar í ÍBV virðast vera óstöðvandi þessa dagana en þær gerðu góða ferð í Árbæinn  þegar þær unnu Fylki 1:6.   ÍBV stúlkur eru þriðja sæti með 28 stig, efsta liðið Þór/KA er með 32  stig.

Leikurinn gegn Fylki var þó erfiðari en lokatölur gefa til kynna því Fylkir komst yfir í fyrri hálfleik og það var ekki fyrr en undir lok fyrri hálfleiks sem ÍBV jafnaði metin en markið gerði Elínborg Ingvarsdóttir, sem sneri aftur í lið ÍBV eftir m eiðsli undanfarnar vikur.  Allt annað var að sjá til ÍBV liðsins í síðari hálfleik enda gerði liðið nánast út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks með tveimur mörkum Shaneka Gordon og marki Hlífar Hauksdóttur.  Vesna Smilj kovic kom ÍBV í 1:5 og síðasta markið skoraði norður-írski mið vörðurinn, Julie Nelson.

Annar sigur í Árbænum

Karlalið ÍBV gerði einnig góða ferð í Árbæinn og þurfti aðeins 45 mínútur til að afgreiða Fylkis menn.  Lokatölur urðu 0:4 fyrir ÍBV, sem gerir nú harða hríð að toppliðunum tveimur, KR og FH. KR-ingum hefur aðeins fatast flugið í síðustu leikjum, þannig að núna munar aðeins einu stigi á ÍBV og KR og á ÍBV leik til góða.

Mörk ÍBV gegn Fylki gerðu þeir Víðir Þorvarðarson, Þórarinn Ingi Valdimarsson (víti), Christian Steen Olsen og eitt marka ÍBV var sjálfsmark Fylkismanna. 

Titilvonin úr sögunni

Leikmenn ÍBV fóru illa að ráði sínu  þegar Eyjamenn töpuðu í annað sinn fyrir Keflavík með sömu markatölu, 1:0. Keflvíkingar gerðu ekki mikið í leiknum, en gerðu þó nóg því þeir skoruðu eitt mark úr eina skoti sínu á mark ÍBV í leiknum og komu í veg fyrir að ÍBV skoraði.  Reyndar er full djúpt í árina tekið með því að segja að Keflavík hafi átt eitt skot að marki, því mark þeirra var hálfgert sirkusmark þar sem vindurinn kom við sögu.

4. flokkur í úrslitakeppnina

Fjórði flokkur karla sótti Selfoss/- Ægi heim í endaða ágúst. A-liðið vann 1:2 en mörkin skoruðu þeir Darri Viktor Gylfason og Breki Ómarsson.  B-liðið vann einnig sinn leik, 2:3 en mörkin gerðu þeir Ágúst Marel Gunnarsson og Magnús Hilmar Viktorsson (2).  Strákarnir fengu svo BÍ/Bolungarvík í heimsókn..  A-liðið vann 3:0 með mörkum þeirra Darra Viktors Gylfasonar (2) og Ásgeirs Elíassonar.  B-liðið vann einnig 3:0 en mörkin gerðu þeir Felix Örn Friðriksson, Magnús Hilmar Viktors son og Ágúst Marel Gunnarss on.  Með sigrunum tveimur, tryggði Aliðið sér sigur í B-riðli Íslandsmótsins og um leið sæti í úrslitakeppninni.  Úrslitin fara fram helg ina 7. til 9. september en sjálfur úrslitaleikurinn viku síðar.  B-liðið hafnaði í öðru sæti B-riðils og rétt missti af sæti í úrslitunum.  Þjálfarar flokksins eru þeir Friðrik Egilsson, Richard Scott og Viktor Steingrímsson. 

Yngri flokkarnir

2. flokkur karla lék gegn Leikni/KB í ágústlok  en leikurinn fór fram á Leiknisvelli. Leiknismenn höfðu betur 3:1. Strákarnir  mæta svo ÍR/Létti á útivelli.  ÍBV er í fjórða sæti B-deildar með 21 stig eftir 15 leiki.  Fylkir er efstur með 29 stig eftir 15 leiki, þá Þróttur/SR með 29 stig eftir 14 leiki og Selfoss/Árborg með 21 stig eftir 12 leiki.  Það þarf því allt að ganga upp hjá ÍBV ætli liðið sér að komast upp í A-deild. Engu að síður ágætis árangur en liðið var í C-deild sumarið 2010.

3. flokkur karla tók á móti Selfossi/Ægi á þriðjudaginn.  Aliðin gerðu 2:2 jafntefli en í leik B-liðanna höfðu gestirnir betur 0:3. A-liðið er í efsta sæti C2 d eildar en strákarnir eiga enn eftir einn leik.  Hann er gegn Aftureldingu, sem er í öðru sæti en ÍBV hefur svo gott sem tryggt sér í það minnsta annað sætið, og um leið sæti í úrslitum C-deildarinnar þar sem leikið verður um laust sæti í B-deild næsta sumar. 

Úrslitin fara fram 6. og 9. september.  B-liðið er hins vegar í 4. sæti af 5 liðum í C-riðli og á ekki möguleika á sæti í úrslitum.  Þriðji flokkur kvenna fékk FH í heimsókn á sunnudaginn.  Hafnfirðingar höfu betur og unnu 0:2.

ÍBV siglir nokkuð lygnan sjó, er í 5. sæti af 8 liðum og fellur ekki. Samkvæmt vef KSÍ á ÍBV enn eftir einn leik, gegn FH á útivelli og gæti með sigri þar farið upp í 4. sætið.

ÍBV2 lagði Keflavík að velli í B2-riðli Íslandsmótsins. Lokatölur urðu 3:5 en leikurinn fór fram í Keflavík.  Mörkin skoruðu þær Margrét Lára Hauksdóttir (3), Gunnur Rún Hafsteinsdóttir og Valourie Valgardsson.  ÍBV2 endaði í 4. sæti af 6 liðum í B2 deild Íslandsmótsins.

Fjórði flokkur kvenna lék gegn Þrótti á útivelli.  ÍBV tapaði leiknum 3:2.   Stelpurnar sóttu svo BÍ/Bolungarvík heim og unnu 2:3 með mörkum Bríetar Stefánsdóttur og Díönu Helgu Guðjónsdóttur (2).  ÍBV átti aldrei möguleika á að komast í úrslit og endaði í 11. sæti af 12 liðum í Briðli Íslandsmótsins. 

Fimmti flokkur karla tók á móti Fjölni í Eyjum. A-liðið tapaði 1:3, B-liðið tapaði 2:8, C-liðið 2:11 og D-liðið tapaði 3:4.  A-liðið endaði í 10. sæti Ariðils af 12 liðum, B-, C- og D-lið ÍBV enduðu öll í 12. og neðsta sæti. 

Fimmti flokkur kvenna sótti Breiðablik 2 heim í Kópavoginn.  A-liðið vann 0:3 og C-liðið vann 1:2.  A-liðið endaði í 4. sæti af 6 liðum í B2 riðli en Cliðið endaði í 4. sæti af 5 liðum í B-riðli.

Jafntefli gegn Stjörnunni

Eyjamenn sóttu stig í Garðabæ þegar liðið lék gegn Stjörnunni.  Garðbæingar voru betri framan af, og komust yfir í fyrri hálfleik. Eyjamenn sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik en gekk nokkuð illa sóknarlega.  Að lokum voru það bakverðirnir sem sáu um að jafna metin. Matt Garner sendi fyrir mark Stjörnunnar og Arnór Eyvar Ólafsson skoraði jöfnunarmarkið.  Önnur úrslit urðu svo til þess að ÍBV hélt þriðja sætinu enn um sinn.

Á skólastyrk frá handknattleiksdeild

Fjórir ungir handknattleiksmenn skrifuðu undir svokallaðan skólasamning hjá handknattleiksdeild ÍBV í byrjun handboltatímans.  Leikmennirnir fjórir, þrír piltar og ein stúlka, munu æfa og spila með ÍBV í vetur auk þess að stunda nám í Íþróttaakademíu ÍBV og FÍV. Öll munu þau fara eftir ákveðnum reglum varðandi æfingasókn og hegðun utan vallar en á móti mun handknattleiksdeild greiða fyrir þau námið í Framhaldsskólanum og í Akademíuna.    Sindri Ólafsson, formaður handknattleiksdeildar, sagði í stuttri ræðu við undirskriftina að þótt þessu fylgi nokkur kostnaðarauki fyrir deildina, þá telji hann að þeim fjármunum sé vel varið enda stefni deildin á að búa til góða handboltamenn, frekar en að kaupa þá.

Skutust uppí annað sætið

Stelpurnar í meistaraflokki ÍBV skutust  upp í annað sæti deildarinnar með stórgóðum sigri á Stjörnunni á útivelli en Stjarnan fagnaði Íslandsmeistaratitli 2011.  Lokatölur urðu 1:3 fyrir ÍBV, sem komst í 0:3 en mörkin gerðu þær Sigríður Lára Garðarsdóttir, Shaneka Gordon og Kristín Erna Sigurlásdóttir. 

„Ég held að það beri flestum saman um það að við erum með besta liðið í deildinni.  En við nögum okkur í handarbökin vegna leikjanna gegn FH.  Þar má segja að við höfum kastað titlinum frá okkur, því ef við hefðum átt möguleika á titli í leiknum gegn Þór/KA hér heima, þá hefðum við klárað þann leik.  En við verðum bara að fá Biddý heim til að losna við þessa FH-grýlu,“ sagði Jón Ólafur Danélsson, þjálfari ÍBV stúlknanna.

Íþróttaakademían

Íþróttaakademíur ÍBV og Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum (FÍV) annars vegar og Grunnskóla Vestmannaeyja (GRV) hins vegar, eru farnar af stað en alls eru um 66 ungmenni sem æfa handbolta og fótbolta á þeirra vegum eldsnemma á morgnana.  Þjálfarar eru þeir Erlingur Birgir Richardsson, sem sér um handboltann og styrktarþjálfun og Ian Jeffs, sem sér um fótbolta nn. Erlingur hefur yfirumsjón með starfsemi akademíunnar en hann segir að skipting nemenda sé nokkuð jöfn.  „Það er nokkuð jöfn skipting á milli FÍV og GRV og sömu leiðis á milli fótbolta og handbolta.  Það eru tveir á framhaldsskólaaldri sem flakka á milli beggja greinanna og eru þá á einni æfingu í fótbolta og einni í handbolta, í stað þess að vera á tveimur æfingum í sömu greininni.“

Silfurstelpurnar okkar

Kvennalið ÍBV sló heldur betur í gegn á lokakafla Íslandsmótsins. Eftir niðurlægjandi tap gegn FH á Hásteinsvelli, brettu stelpurnar upp ermarnar og töpuðu ekki leik í síðustu sjö umferðunum.  Og þegar upp var staðið, þá náði ÍBV öðru sætinu í Pepsídeildinni, sem er jöfnun á besta árangri kvennaliðs ÍBV í efstu deild.  Sannarlega glæsilegur árangur hjá Jóni Ólafi Daníelssyni, þjálfara ÍBV og lærimeyjum hans.

Í síðasta leiknum tók ÍBV á móti KR, sem var þegar fallið í 1. deild áður en leikurinn hófst.  ÍBV var ekki í neinum vandræðum með   vestur bæjarliðið og lokatölur urðu 6:0. Mörk ÍBV gerðu þær Danka Podovac (4), Vesna Smiljkovic (2), Shaneka Gordon og Kristín Erna Sigurlásdóttir, eitt hvor.

ÍBV lék mjög vel í sumar og sýndi að það var engin slembilukka að liðinu skyldi takast að ná þriðja sætinu í fyrra, á sínu fyrsta ári í efstu deild. ÍBV er aftur komið á stall meðal bestu liða landsins, eftir að kvennaknattspyrnan var lögð niður hjá félaginu 2006. 

2008 var meistaraflokkurinn aftur skráður til leiks undir stjórn Jóns Óla í 1. deildinni. Við tóku uppbyggingarár og reyndar munaði minnstu að ÍBV næði sæti í efstu deild 2009.  Það tókst hins vegar sumarið 2010 og líklega hafði liðið gott af því að spila einu sumari lengur í 1. deild því leikmenn liðsins fengu þar dýrmæta reynslu, sem svo nýttist þeim í fyrra, þegar ÍBV spilaði í fyrsta sinn í fimm ár í efstu deild. 

Það eru margir sem hafa komið að uppbyggingu kvennaboltans hjá ÍBV síðan 2006 og fjölmargir lagt mikla vinnu á sig til að koma ÍBV aftur á stall meðal þeirra bestu.  Fremstur í flokki fer þjálfari liðsins, Jón Ólafur Daníelsson, sem kom til ÍBV til að rífa upp kvennaknatt-spyrnu félagsins.  Það hefur honum tekist svo um munar og verður  spennandi að sjá hvort hann nái að toppa árangur liðsins sjötta árið í röð en árangur ÍBV hefur síðan 2008 alltaf verið betri en árið á undan. Sama stefna og alltaf „Þetta er frábært, vægast sagt frábært,“ sagði Jón Óli eftir leikinn enda nýkominn með silfurpeninginn um hálsinn.  Hann neitaði því ekki að eftir heimaleikinn gegn FH 24. júlí, sem ÍBV tapaði 0:3, hafi hann verið hóflega bjartsýnn á fram haldið. „Ég sagði að með sömu frammistöðu og gegn FH, þá myndum við tapa stórt gegn Breiðabliki í næsta leik í Kópavogi. Strax á næstu æfingu eftir FH-leikinn   ræddum við vel saman, ég og leikmennirnir og það var farið vel yfir vissa hluti, bæði innan vallar og utan. Við fórum svo á Kópavogsvöll og þar upphófst má segja ævintýri seinni umferðar.“

Þið sýnduð það í sumar að árangurinn í fyrra var engin heppni? „Það er bara mál manna, bæði þjálfara og annarra sem koma að kvennaknattspyrnunni, að ÍBV sé einfaldlega með besta liðið í deildinni.  Við sýndum það bæði gegn Þór/KA, sem við áttum að vinna hér heima, og ekki síst gegn Stjörnunni í Garðabænum þar sem við unnum mjög öruggan sigur.  Þannig að menn eru á því að ÍBV sé með besta liðið  gegn á lokakafla Íslandsmótsins.

Yngri flokkarnir

B-lið 4. flokks karla tók þátt í úrslitum B-liða um miðjan september. Skemmst er frá því að segja að ÍBV tapaði öllum leikjum sínum, 7:1 gegn Fylki, 5:1 gegn Haukum og 3:1 gegn KR.  Mörk Eyjapeyja gerðu þeir Aron Örn Þrastarson, Patrekur Bjarni Adolfsson og eitt marka ÍBV var sjálfsmark mótherja.

2. flokkur karla steinlá fyrir Þrótti á Þróttaravelli en lokatölur urðu 4:1.  Mark ÍBV gerði Björn Axel Guðjónsson úr víti þegar hann minnkaði muninn í 2:1.  ÍBV siglir nokkuð lygnan sjó í B-deild Íslandsmótsins, er í 5. sæti með 21 stig og á eftir einn leik, gegn Aftureldingu. Sigur þar gulltryggir ÍBV áframhaldandi sæti í B-deild næsta sumar.

2. flokkur kvenna endaði í efsta sæti B-deildar í sumar en liðið tryggði sér endanlega efsta sætið með góðum sigri á HK/Víkingi á útivelli, 1:2. Bæði mörk ÍBV gerði Sigríður Lára Garðarsdóttir en ÍBV lenti undir um miðjan fyrri hálfleik.  ÍBV endaði sumarið með 31 stig, stigi á undan Stjörnunni en ÍBV vann tíu leiki, gerði eitt jafntefli og tapaði aðeins einum leik, heimaleik gegn Stjörnunni.  Þjálfari flokksins er Jón Ólafur Daníelsson.

Torsóttur sigur

Karlalið ÍBV sigraði Grindvíkinga í 19. umferð Pepsídeildarinnar. Lokatölur urðu 2:1 en aðstæður voru ansi erfiðar á meðan leik stóð, mikill vindur og völlurinn þungur.

Með sigrinum stukku Eyjamenn upp fyrir KR-inga og upp í annað sætið. FH hefur þegar try ggt sér Íslandsmeistaratitilinn og um leið sæti í forkeppni Meistaradeildar innar.  KR hefur þegar tryggt sér sæti í forkeppni Evrópudeildarinnar með því að vinna bikarinn og því eru enn tvö sæti í sömu keppni á lausu.  ÍBV hefur lengst af í vetur verið við toppinn og verið í því sæti sem tryggir liðinu sæti í Evrópu keppninni.  Það væri því þyngra en tárum taki að missa af sætinu á lokasprettinum. 

Síðasti heimaleikurinn

Karlalið ÍBV lék sinn síðasta heimaleik  þegar strákarnir tóku á móti Íslandsmeisturum FH.  Eyjamenn hefðu átt að vinna, enda var staðan 2:0 þegar tæpar fimmtán mínútur voru eftir en Hafnfirðingar sýndu þá af hverju þeir eru meistarar, því þeir fengu tvö færi, nýttu þau bæði og komu í veg fyrir að ÍBV tryggði sér silfrið.  Engu að síður er Evrópusætið í höfn og mun ÍBV því leika í Evrópukeppninni þriðja árið í röð, sem er mjög góður árangur.

Leikurinn gegn FH var í raun alveg ótrúlegur því Eyjamenn voru mun betri í 75 mínútur.  Fyrra mark FHinga, sem kom aðeins þremur mínútum eftir annað mark ÍBV, var klaufalegt og virtist slá leikmenn ÍBV út af laginu.  Það var eins og Eyjamenn færu svolítið á taugum, hættu að spila sinn leik og jöfnunarmark FH-inga var mjög svekkjandi.  Nú er staðan þannig að ÍBV þarf helst sigur í síðasta leik gegn Fram í Laugardalnum, til að tryggja sér annað sætið í Íslandsmótinu, sem er frábær árangur.  Í versta falli endar ÍBV í þriðja sæti, þriðja árið í röð en leikmenn og forráðamenn vilja ná öðru sætinu.

ÍBV íþróttafélag hefur greitt með völlunum segir  Tryggvi Már Sæmundsson

Vestmannaeyjabær mun taka yfir rekstur knattspyrnuvalla bæjarins en síðustu ár hefur ÍBV-íþróttafélag séð um rekstur vallanna í gegnum svokallaðan vallarsamning.  Félagið hefur lýst því yfir að samningurinn sé íþyngjandi fyrir félagið, að sú upp hæð sem Vestmannaeyjabær greiðir félaginu til reksturs vallanna dugi ekki fyrir kostnaði. Á fundi fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyjabæjar var samþykkt að framlengja ekki samninginn við ÍBV íþróttafélag, heldur leysa félagið undan þessari byrði.  Framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs var falið að kanna leiðir til reksturs á íþróttavöllum bæjarins og á Týsheimilinu.

Tryggvi Már Sæmundsson, framkvæmdastjóri félagsins segir að þessi niðurstaða komi til með að hafa áhrif á rekstur félagsins. „Vissulega teljum við að þetta hafi áhrif á félagið, það er engin launung á því að við teljum heppilegast að félagið haldi utan um rekstur vallanna. En það gefur augaleið að það er ekki hægt að halda áfram með samninginn í óbreyttri mynd þar sem hann hækkaði ekki um eina einustu krónu á milli ára og meðgjöf félagsins eykst því alltaf. Ef tekinn er saman kostnaður umfram tekjur síðustu 5 ár í rekstri vallanna þá er sú tala komin í tæpar 12 milljónir. Ef að samningurinn hefði verið vísitölutengdur væri tap félagsins á þessari starfsemi mun lægra.“ Félagið óskaði á sínum tíma eftir því að losna undan samningnum.  Eru þið þá ekki sáttir við að bærinn yfirtaki reksturinn? „Við gerum ekki athugasemdir við það ef bærinn vill reka vellina, svo framarlega að tryggt sé að þjónustan og umhirðan verði eins góð og hún hefur verið hjá okkur í gegnum tíðina. Hinsvegar teljum við að það verði mun kostnaðarsamara fyrir Vestmannaeyjabæ að standa í þessum rekstri ef að til stendur að halda uppi sömu þjónustu. Hugsanlega er hægt að spara með því að loka völlum og æfa innandyra allt árið en keppa úti. Verði sú leið farin sé ég ekki að við getum haldið úti Shell- og Pæjumóti.“ Tryggvi segir jafnframt að félagið vilji fyrst og fremst fá viðurkenningu á því að ÍBV hafi greitt með völlunum undanfarin ár. „Ef að félagið á að sjá um vellina þurfa kröfurnar að vera á hreinu og fjármagn í samræmi við það. Mér finnst til að mynda skrýtið að gjaldskrá bæjarins er vísitölutengd en vísitölutengingin á vallarsamningnum var aftengd fyrir mörgum árum og í raun hefur talan lækkað síðan 2008. Það segir sig sjálft að kostnaðurinn eykst á milli ára ef halda á sama þjónustustigi en styrkurinn stendur í stað eða hreinlega lækkar. Einnig er hægt að benda á að á sama tíma og samningurinn hefur lækkað, hefur til að mynda leikjunum fjölgað. Búið að fjölga liðum í efstu deild karla sem þýðir fleiri leiki og lengra keppnistímabil.“ Hvað með stúkuna við Hásteinsvöll? „Áhorfendastúkan er í eigu ÍBV og því verður hún áfram í umsjón félagsins,“ sagði Tryggvi að lokum.

(Eyjafréttir).

Íslandsbanki og ÍBV íþróttfélag áfram í samstarfi

Samningur milli Íslandsbanka og ÍBV-íþróttafélags var endurnýjaður í lok september.  Bankinn og íþróttafélagið hafa átt gott samstarf síðustu ár sem hefur miðað að því að efla það viðamikla starf sem er innan félagsins. „Nýr samningur gildir fyrir árin 2012-2014 og á þeim tíma mun Íslandsbanki vera einn aðalstyrktar aðili félagsins fyrir handknattleiks-

og knattspyrnuliða félagsins. Samningurinn tekur yfir starfsemi félagsins frá þeim elstu og til þeirra yngstu, en þó með aðaláherslu á starf yngri flokka félagsins. Allir yngri flokkar félagsins í knattspyrnu og handknattleik verða merktir Íslandsbanka framan á keppnistreyjum eins og undanfarin ár. Íslandsbanki leggur mikið upp úr því að viðhalda og efla unglinga

starf innan félagsins og er samningurinn einn liður í því.

Öflugt unglingastarf er undirstaða í starfsemi allra íþróttafélaga og þar verður til sá auður sem ÍBV íþróttafélag byggir á. Íslandsbanki er og verður áfram öflugur bakhjarl íþróttahreyfingarinnar í Vestmanna eyjum,“ segir í fréttatilkynningu frá báðum aðilum samningsins. 

Silfrið rann liðinu úr greipum

Eyjamenn geta nagað sig í handarbökin yfir því að hafa ekki fengið silfurpening um hálsinn eftir tap gegn Fram í síðustu umferð Pepsídeildarinnar.  Leikur Eyjamanna í síðari hálfleik olli miklum vonbrigðum og engu líkara en leikmenn liðsins hafi ekki haft mikinn áhuga á öðru sætinu. Lokatölur urðu 2:1 fyrir Fram en ÍBV komst yfir í fyrri hálfleik með marki Tryggva Guðmundssonar.

Liðið endaði í þriðja sæti með 35 stig, jafnmörg og KR.

Ekki unnið síðasta leik síðan 2007

Þegar horft er til baka, kemur nokkuð óþægileg staðreynd í ljós því ÍBV hefur ekki unnið síðasta leik Íslandsmótsins síðan 2007 og það var í 1. deildinni.  Árið 2008, þegar ÍBV vann 1. deildina, tapaði liðið síðasta leik sumarsins gegn Selfossi. 2009 tapaði liðið svo fyrir Keflavík í síðustu umferðinni 6:1 og svo 4:1 ári seinna.  Í fyrra tapaði ÍBV fyrir Grindavík í síðustu umferðinni 0:2 og nú fyrir Fram 2:1.  Þetta er kannski eitt hvað sem menn ættu að skoða, að klára tímabilið.

Hermann og Gregg

Gregg Oliver Ryder mun koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks ÍBV fyrir næsta tímabil.  Hermann Hreiðarsson mun stýra Eyjamönn um næsta sumar en hann tekur við þjálfun liðsins núna í haust. Gregg, sem er 24 ára gamall Englending ur, hefur þjálfað annan flokk hjá ÍBV og mun sinna því starfi áfram auk þess að koma inn í þjálfara teymi meistaraflokks.  „Hann verður með Hemma og þeim sem kemur til með að aðstoða hann," sagði Óskar Örn Ólafsson formaður knattspyrnu deildar ÍBV í samtali við Fótbolta.net.

Sumarlok knattspyrnufólksins

Sumarlokahóf ÍBV-íþróttafélags fór fram í Höllinni 29. september. Þar komu saman leikmenn meistaraflokks, 2. og 3. flokks karla og kvenna, þjálfarar, starfsmenn, sjálfboðaliðar og aðrir félagsmenn og fögnuðu árangri sumarsins. Hápunktur kvöldsins er að sjálfsögðu verðlaunaafhendingin en í meistaraflokki voru þau Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir og Abel Dhaira valin best.  Þá fengu þau Sara Rós Einarsdóttir og Hannes Jóhannsson Fréttabikarana 2012.

Samkomur sem þessar eru sniðnar að þeim sem starfa fyrir félagið með einum eða öðrum hætti, þannig að þeir sem standa fjær félaginu hafa kannski ekki eins gaman af upprifjun sumarsins.  Maturinn hjá Einsa kalda var frábær eins og við var að búast en alltaf má deila um það hvernig skemmtidagskráin heppnast.  Eftir ræðuhöld, viðurkenningar og skemmtiatriði, var komið að hápunkti kvöldsins, sem var verðlaunaafhendingin.  Ef það er eitthvað sem mætti finna að þessari samkomu, þá er það helst hversu seint verðlaunaafhendingin er, því þarna eru fullorðnir saman með ungu íþróttafólki í 3. flokki og sumir hinna eldri voru orðnir aðeins of góðglaðir.  En engu að síður var ekki að sjá annað en flestir hafi skemmt sér nokkuð vel en hér að neðan má sjá verðlaunahafa sumarsins hjá ÍBV íþróttafélagi.

Meistaraflokkur karla

Bestur: Abel Dhaira

Efnilegastur: Brynjar Gauti Guðjónsson

Markahæstur: Christian Steen Olsen

Meistaraflokkur kvenna

Best: Bryndís Lára Hrafnkelsdóttir

Efnilegust: Sóley Guðmundsdóttir

Markahæst: Shaneka Gordon

2. flokkur karla

Markahæstur: Björn Axel Guðjónsson

ÍBV-ari: Jón Ingason

Mestu framfarir: Jónas Bergsteinsson

Bestur: Björn Axel Guðjónsson

2. flokkur kvenna

Markahæst: Sigríður Lára Garðarsdóttir

ÍBV-ari: María Davies

Mestu framfarir: Bryndís Hrönn Kristinsdóttir

Best: Svava Tara Ólafsdóttir

3. flokkur karla

ÍBV-ari: Hallgrímur Heimisson

Mestu framfarir: Guðmundur Tómas Sigfússon

Efnilegastur: Devon Griffin

Bestur: Hafsteinn Gísli Valdimarsson

3. flokkur kvenna

ÍBV-ari: Júlíana Sveinsdóttir

Mestu framfarir: Gunnur Rún Hafsteinsdóttir

Efnilegust: Díana Dögg Magnúsdóttir

Best: Guðrún Bára Magnúsdóttir

Silfurmerki Íþróttabandalagsins Íris Sæmundsdóttir og Jón Ólafur Daníelsson

100 leikir Arnór Eyvar Ólafsson, Ian David Jeffs, Yngvi Magnús Borgþórsson

Markahæsti leikmaður Íslands Tryggvi Guðmundsson. 

Samningar við alla leikmenn 2. flokks

Knattspyrnudeild kvenna hjá ÍBV undirritaði samninga við alla leikmenn 2. flokks félagsins til tveggja ára.  Þetta er liður ráðsins í að styrkja undirstöður meistara flokks í framtíðinni. 2. flokkur leikur í A-deild á næsta ári og verður því verkefnið erfitt.  Liðið tekur þátt í Faxaflóamótinu sem hefst fljótlega og tekur einnig þátt í Futsal sem er innanhúsmót.  Þá hyggur liðið á æfinga ferð til Spánar um páskana þar sem liðið mun æfa saman og taka þátt í Costa Blanca cup sem er stærsta knattspyrnumót sem haldið er á Spáni. Þá undirritaði Sabrína Lind Adolfsdóttir einnig samning við ÍBV en Sabrína Lind er fyrsti kvenleik maðurinn úr samstarfinu við KFR sem gerir samning við meistara flokk. Sabrína Lind var einn besti leikmaður 3. flokks í sumar ásamt því að spila stórt hlutverk í vörn 2. flokks. Sabrína Lind þykir mjög efnilegur varnarmaður og hefur verið að berja fast á dyr landsliðsins U-17. Sóley Guðmundsdóttir sem var valin efnilegasti leikmaður meistaraflokks skrifaði undir tveggja ára samning við félagið.  Sóley sem var ein af bestu leikmönnum ÍBV í sumar heldur þar tryggð við sitt félag. Það er ljóst að í framtíðinni mun Sóley gera harða atlögu að landsliðssæti en hún á að baki lands leiki bæði með U-17 og U-19.

Vantar uppá leikformið

Kvennalið ÍBV lék fyrsta leik sinn í Íslandsmótinu  þegar liðið tók á móti Gróttu.  ÍBV teflir fram talsvert breyttu liði frá því síðasta vetur eins og fram kom í kynningu á liðinu í síðasta tölublaði.  Enda kom það í ljós í leiknum að leikformið gæti verið betra. Lokatölur urðu 22:22 en staðan í hálfleik var 9:13 fyrir Gróttu.

ÍBV er með sterkara byrjunarlið en Grótta en leikmennirnir virtust ná frekar illa saman í þessum fyrsta leik. Sóknarleikurinn var oft á tíðum mjög vandræðalegur og  byggðist frekar upp á einstaklingsframtaki, frekar en góðu samspili.  Það á væntanlega eftir að batna þegar líður á veturinn og algjör óþarfi að hafa áhyggjur af því strax.  Varnarleikurinn var þokkalegur og markvarslan sem fyrr mjög góð.  Hins vegar er breiddin

ekki mikil hjá ÍBV enda spiluðu sömu sjö leikmennirnir allan leikinn og aðeins tólf voru á leikskýrslu, en mest mega þeir vera 14.  ÍBV lenti undir í fyrri hálfleik og Grótta jók muninn upp í sjö mörk í upphafi þess síðari.  En þá tóku leikmenn ÍBV við sér og jöfnuðu metin þegar aðeins um þrjár mínútur voru eftir. ÍBV fékk svo tækifæri til að komast yfir þegar tæp mínúta var eftir en sóknin fór forgörðum.  Þá fengu gestirnir síðasta tækifærið til að vinna leikinn en vörn ÍBV hélt og skiptust liðin því á stigum í þetta sinn.  Eins og áður var það markvarslan sem stóð upp úr hjá ÍBV. Heiða Ingólfsdóttir, Eyjakonan í marki Gróttu, gerði leikmönnum ÍBV erfitt fyrir og varði alls 23 skot, þar af tvö vítaskot.

Jafntefli í fyrsta leik

Karlalið ÍBV tók á móti Stjörnunni í fyrsta leik sínum í 1. deild Íslandsmótsins í handbolta.  Liðin ættu að þekkja ágætlega hvort annað, enda mættust liðin í Eyjum í æfingaleik skömmu fyrir Íslandsmótið.  ÍBV byrjaði mjög vel í leiknum en Stjarnan náði undir tökunum í seinni hálfleik og virtist ætla fara með tvö stig frá Eyjum en með mikilli baráttu, náðu leikmenn ÍBV að tryggja sér eitt stig. Lokatölur urðu 22:22 en staðan í hálfleik var 12:10 fyrir ÍBV.

Kaflaskipt byrjun

Byrjun kvennaliðs ÍBV í Íslandsmótinu í handbolta er dálítið kaflaskipt.  ÍBV byrjaði á að gera jafntefli gegn Gróttu í fyrsta leik vetrarins í Eyjum, vann svo Stjörnuna nokkuð sannfærandi í Garðabæ en tapaði svo stórt fyrir Fram.  Það fer ekkert á milli mála að liðið skortir leikæfingu en það er eitthvað sem kemur fljótlega, eftir því sem leikjunum fjölgar.

Leikurinn gegn Fram var ekki mikið fyrir augað.  Fram, sem hefur verið næst besta liðið í íslenskum kvennahandbolta undanfarin ár, hafði talsverða yfirburði í leiknum og gerði í raun nóg til að vinna leikinn.  Lokatölur urðu 21:27 en reyndar var staðan 21:26 þegar leiktíminn var úti en Birna Berg Haraldsdóttir, sem lék síðasta sumar með knattspyrnuliði ÍBV, skoraði síðasta mark leiksins beint úr aukakasti og tryggði Fram sex marka sigur.

Staðan í hálfleik var 10:15 fyrir Fram. 

Drífa Þorvaldsdóttir átti góða spretti fyrir ÍBV í síðari hálfleik, skora ði nokkur glæsileg mörk og sýndi að hún er tilbúin í slaginn í efstu deild kvenna.  Sem fyrr varði Florentina Stanciu vel í marki ÍBV en markaskorun skiptist nokkuð jafnt á leikmenn ÍBV.

Mörk ÍBV: Guðbjörg Guðmannsdóttir 5, Grigore Gorgata 5, Drífa Þorvaldsdóttir 4, Simona Vintale 3, Ivana Mladenovic 3, Arna Þyrí Ólafsdóttir 1.

600 á handboltamóti í Eyjum

Fyrstu helgina í október fór fram fjölmennt handboltamót þegar fyrsta umferð Íslandsmóts barna í 5. flokki fór fram. Um var að ræða eldra ár, bæði drengja- og stúlkna en tæplega 600 þátttakendur voru í mótinu, leikmenn og þjálfarar. Mótið gekk afar vel fyrir sig enda aðstaða hvergi betri á landinu en í Vestmannaeyjum til að halda svona mót.  Keppt var í fjórum íþróttasölum, öllum þremur í Íþróttamiðstöðinni og nokkrir leikir fóru fram í Týsheimilinu. ÍBV tefldi fram fimm liðum á mótinu, þremur drengjaliðum og tveimur stúlknaliðum. Í stúlknakeppninni keppti ÍBV1 í 1. deild en stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki. Þær unnu Fram1 15:12, HK1 15:8, ÍR1 12:8, KA/Þór1 13:11 og KR1 16:8.  ÍBV1 endaði því í efsta sæti efstu deildar.

ÍBV2 lék svo í 4. deild en Eyjastelpur unnu alla sína leiki af miklu öryggi og komust því upp um deild. ÍBV2 lagði Stjörnuna2 13:11, Stjörn- una3 13:2, Hauka2 13:3 og Selfoss2 12:4.  Þjálfari stúlknanna er Unnur Sigmarsdóttir. Í drengjakeppninni keppti ÍBV1 í 1. deild.  Strákarnir unnu einn leik, Gróttu1 10:6, gerðu eitt jafntefli gegn HK1 15:15 en töpuðu fyrir FH1 11:17, Haukar1 14:16 og Þór1 16:17. ÍBV1 endaði í fjórða sæti af sex liðum og hélt sæti sínu í efstu deild. ÍBV2 lék í 3. deild, A-riðli en strákarnir unnu alla sína leiki og kom ust upp í 2. deild.  ÍBV vann Stjörnuna1 10:8, FH2 11:4, KA1 18:14, Fram1 13:0 og HK2 19:11. ÍBV3 lék í 4. deild, B-riðli en strákarnir unnu Gróttu2 15:9 og Fjölni3 15:7.  Þeir töpuðu hins vegar fyrir Þór3 13:16 og fyrir ÍR2 3:10 og enduðu í öðru sæti. Þjálfari drengja liðanna er Jakob Lárusson.

Tap gegn Víkingum

Eyjamenn léku gegn Víkingi R. á útivelli í annarri umferð Íslandsmótsins. ÍBV hafði gert jafntefli gegn Gróttu á heimavelli í fyrsta leik í hörkuviðureign og leikurinn gegn Víkingum var ekkert minna spennandi.  Eyjamenn hefðu getað nælt í bæði stigin en Víkingar reyndust sterkari á lokakaflanum. Lokatölur urðu 22:23 en staðan í hálfleik var 12:11 ÍBV í vil.

Komu færandi hendi

Félagarnir, útvarpsmennirnir og hamborgaraframleið endurnir Sigmar Vilhjálmsson og Jóhannes Ásbjörnsson, eða Simmi og Jói, komu færandi hendi til Eyja um miðjan október  þegar þeir afhentu ÍBV-íþróttafélagi eina milljón króna, sem nota á í barna- og unglingastarf félagsins.  Simmi og Jói eiga og reka Hamborgara frabrikkuna í Reykjavík en voru með útibú á þjóðhátíð í sumar.  „Ein af forsendum samstarfsins var sú að barnaog unglingastarf ÍBV myndi njóta hluta afraksturins og nú er það orðið að veruleika,“ sagði Páll Scheving, formaður þjóðhátíðarnefndar, í fréttatilkynningu frá ÍBV og Hamborgarafabrikkunni. „Það er okkur sönn ánægja að hluti ÍBV af verkefninu renni til barna- og unglingastarfs, þar sem við vitum að það kemur að góðum notum. Það var okkur sannur heiður að fá að vera hluti af þjóðhátíð í ár og við viljum þakka þjóðhátíðarnefnd kærlega fyrir frábært samstarf,“ sagði Jóhannes. 

Flottir og  kraftmiklir krakkar

Um miðjan október fór hópur barna frá ÍBV á fjölliðamót í handbolta á Akureyri.  Um var að ræða 6. flokk drengja og stúlkna en strákarnir tefldu fram einu liði sem lék í 3. deild.  Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og urðu í efsta sæti, unnu alla leiki sína nema einn en markatala réði því hvort ÍBV endaði í fyrsta eða öðru sæti.  Samkvæmt þjálfara þeirra, Ingólfi Jóhann essyni, voru strákarnir að spila góðan handbolta og sýna mikla og góða baráttu, enda flottir peyjar. Stelpurnar voru með tvö lið, ÍBV1 sem spilaði í 2. deild og ÍBV2 sem spil aði í 3. deild.  ÍBV1 vann alla sína leiki nokkuð örugglega og endaði í efsta sæti í sinni deild. „Stelpurnar höfðu nokkra yfirburði í 2. deild og verður gaman að takast á við liðin í 1. deild á næsta móti. Stelpurnar voru mjög baráttuglaðar og sýndu á köflum flottan handbolta og gott spil,“ sagði Elísa Sigurðardóttir, þjálfari liðsins. ÍBV2 vann tvo leiki en tapaði tveimur og varð í 3. sæti í 3. deild.  „Þetta er flottur árangur hjá stelpunum og voru miklar framfarir hjá liðinu eftir því sem leið á mótið. Þær voru alltaf tilbúnar að vinna hver fyrir aðra og létu ekkert stoppa sig.  Allur hópurinn var sér og félagi sínu til sóma bæði innan sem utan vallar. Þetta eru flottir krakkar, kraftmiklir og mjög skemmtilegir, sagði Elísa. 

Fyrsti sigurinn – Kolli vallarþulur

ÍBV og Fjölnir áttust við í 3. umferð 1. deildar karla en liðin mættust í Eyjum.  Þessi tvö lið urðu þess vafasama heiðurs aðnjótandi á síðasta tímabili að enda í tveimur neðstu sætum Íslandsmótsins.  Liðin átu að spila á laugardaginn en vegna ófærðar var leiknum frestað fram á sunnudag.  Mikill getumunur er á liðunum og áttu Fjölnismenn aldrei möguleika í leiknum en lokatölur urðu 42:24 fyrir ÍBV, eftir að staðan í hálfleik var 19:10.  Þar með nældu Eyjamenn sér í sinn fyrsta sigur í vetur en liðið hafði gert jafntefli gegn Stjörnunni í fyrstu umferð á heimavelli en tapað svo fyrir Víkingum á útivelli.  Eyjamenn voru án Kolbeins Arons Arnarsonar, mark varðarins sterka, en sá hafði verið veikur stuttu fyrir leik.  Kolbeinn fann sig þó í öðru hlutverki í leiknum, því hann var vallarþulur og sérlega skemmtilegur sem slíkur. Það er spurning hvort honum verði nokkuð hleypt aftur í markið.

Mörk ÍBV: Nemanja Malovic 11, Grétar Eyþórsson 8, Andri Heimir Friðriksson 7, Theodór Sigurbjörnsson 5, Magnús Stefánsson 4, Sigurður Bragason 3, Brynjar Karl Óskarsson 2, Guðni Ingvarsson 1, Sindri Haraldsson 1. Varin skot: Haukur Jónsson 14, Hjörvar Gunnarsson 4.

Yfirspiluðu Aftureldingu

ÍBV er í þriðja sæti N1 deildarinnar þegar fjórum umferðum er lokið en ÍBV lagði Aftureldingu að velli í Mosfellsbæ með 11 mörkum, 17:28. Staðan í hálfleik var 10:11 ÍBV í vil en Eyjastelpur hreinlega yfirspiluðu heimaliðið í seinni hálfleik, skoruðu 17 mörk gegn aðeins 7 mörkum Atureldingar og unnu sannfærandi sigur.

Mörk ÍBV: Simone Vintale 6, Grigore Ggorgata 6, Guðbjörg Guðmannsdóttir 5, Ivana Mladenovic 4, Drífa Þorvaldsdóttir 3, Rakel Hlynsdóttir 2, Arna Þyrí Ólafsdóttir 2. Varin skot: Erla Sigmarsdóttir 18.

Urðu fyrir barðinu á ÍBV

Karlalið ÍBV hefur nú unnið tvo leiki í röð í 1. deildinni,  urðu Þróttarar fyrir barðinu á Eyjamönnum, sem unnu 19 marka sigur, 17:36, eftir að staðan í hálfleik var 9:22.  Áður höfðu Eyjamenn lagt Fjölni að velli og svo virðist sem 1. deildin í vetur verði tvískipt, fjögur lið í toppbaráttu og fjögur lið í botnbaráttu.

Mörk ÍBV: Nemanja Malovic 10, Grétar Eyþórsson 9, Andri Heimisson 7, Theodór Sigurbjörnsson 3, Magnús Stefánsson 2, Sigurður Bragason 2, Anton Björnsson 1, Guðni Ingvarsson 1, Sindri Haraldsson 1.

Erlingur í þjálfarateymi landsliðsins

Erlingur Richardsson, annar  tveggja þjálfara karlaliðs ÍBV og yfirmaður Íþróttakademíunnar í Eyjum, var í endaðan október ráðinn í þjálfarateymi íslenska karlalands liðsins í handbolta.  Ráðningin er mikil viðurkenning á störfum Erlings og ekki síður viðurkenning fyrir það öfluga starf sem hefur verið unnið hjá ÍBV-íþróttafélagi.  Félagið hefur nú alið af sér þjálfara karlalandsliðanna, bæði í handbolta og fótbolta en Heimir Hallgrímsson er sem kunnugt er aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla í fótbolta. 

Styrkur frá UEFA

ÍBV mun, líkt og síðustu ár, fá sinn hlut af greiðslu UEFA til KSÍ vegna ágóða af Meistaradeild Evrópu 2011-2012.  Féð er eyrnamerkt barna- og unglingastarfi en hlutur ÍBV er 3.620.000 kr. Alls fá íslensk félög 43 milljónir, sem skiptast milli félaga í efstu deild karla.  Því til viðbótar ákvað KSÍ að reiða fram 40 milljónir sem skiptast milli liða í öðrum deildum Íslandsmótsins.  Eitt af skilyrðum er að félögin haldi úti yngri flokkum beggja kynja. 

Florentina varði 23 skot – sigrar á HK og Fylki

ÍBV lagði FH að velli í Eyjum en lokatölur urðu 27:18.  Staðan í hálfleik var 14:14 en fyrir leikinn var ÍBV í fjórða sæti og FH í því þriðja. Því var um toppslag að ræða og var jafnræði með liðunum í fyrri hálfleik en í þeim síðari settu vörnin og Florentina Stanciu einfaldlega í lás, FH skoraði aðeins fjögur mörk í seinni hálfleik og eftirleikurinn varð því nokkuð auðveldur fyrir ÍBV.

Mörk ÍBV: Drífa Þorvaldsdóttir 7, Grigore Gorgata 7, Simona Vintale 4, Ivana Mladenovic 4, Rakel Hlynsdóttir 3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2. Varin skot: Florentina Stanciu 23/1.

Svo virðist sem kvennalið ÍBV sé búið að finna taktinn, því næst lögðu þær HK að velli í Kópavogi. Leikurinn gegn HK var afar mikilvægur fyrir framhaldið, enda gat ÍBV með sigri fest sig í sessi sem eitt af toppliðum deildarinnar. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en þegar leið á leikinn, var ljóst að ÍBV færi með sigur af hólmi. Lokatölur urðu 30:35 en staðan í hálfleik var 15:18 fyrir ÍBV.

ÍBV vann frekar fyrirhafnarlítinn sigur á Fylki en lokatölur urðu 30:15. Leikurinn gegn Fylki náði því aldrei að verða spennandi því strax frá upp hafi tók ÍBV öll völd á vellinum og staðan í hálfleik var 20:7. Í síðari hálfleik fengu varamenn ÍBV að spreyta sig en þrátt fyrir það hélt munurinn áfram að aukast.  Með sigrinum komst ÍBV tímabundið upp í annað sætið.

Algjörir yfirburðir

Eyjamenn höfðu mikla yfirburði gegn Gróttu þegar liðin áttust við í Eyjum. Fyrir tímabilið höfðu margir mikla trú á Gróttuliðinu en Seltirningum var m.a. spáð efsta sætinu.  En Eyjamenn sýndu að það er ýmislegt spunnið í liðið, leikmenn höfðu gaman af því sem þeir voru að gera og unnu afar öruggan sigur, 35:18.

Tveir sigrar sama sólarhringinn

Karlalið ÍBV er á góðu skriði um þessar mundir en liðið hefur nú unnið síðustu fimm leiki sína í Íslandsmótinu.  Þeir sóttu Eyjamenn Selfoss heim en fram að þessu höfðu Selfyssingar verið ofar í töflunni en ÍBV.  En leikmenn ÍBV sýndu styrk sinn og unnu á einum af erfiðustu útivöllum 1. deildarinnar.  Lokatölur urðu 26:32 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11:16.

Strákarnir léku svo gegn HK2 í fyrstu umferð bikarkeppninnar, aðeins rúmum hálfum sólarhring eftir að flautað var til leiksloka á Selfossi.  Leikurinn fór fram í Kópavogi en sjálfsagt hefur Selfossleikurinn setið í leikmönnum ÍBV.  Engu að síður hefðu Eyjamenn átt að vinna fyrirhafnarlítinn sigur en annað kom á daginn. Þegar fimm mínútur voru eftir, var staðan jöfn 28:28.  En Eyjamenn reyndust sterkari á lokakaflanum og unnu 30:33. 

Um íþróttaakademíuna

Þróunarverkefni um Íþróttaakademíu GRV og ÍBV  var sett á stofn  á vorönn 2012. Starfshópur um verkefnið var settur á laggirnar þar sem komu að fulltrúar Vestmanna eyjabæjar, sem hafði frumkvæði að verkefninu, fulltrúar frá ÍBV íþróttafélagi og fulltrúar Grunnskóla Vestmannaeyja. Hópurinn lagði línurnar  og kom með tillögur um helstu markmið verkefnisins þar sem lögð var áhersla á  formlegra og betra samstarf milli GRV og ÍBVíþróttafélags, jákvæðni og aukinn skilning á áherslum og starfi hvors aðila fyrir sig, ásamt gagnkvæmum stuðningi þar á milli.

Markmið verkefnisins voru þessi helst:

a. Efla áhuga, metnað og árangur ungra íþróttamanna í námi og íþróttum.

b. Draga úr brottfalli úr íþróttum á viðkvæmum aldri.

c. Draga úr vímuefnaneyslu unglinga.

d. Fylgja eftir skóla-, æskulýðs-, og íþróttastefnu sveitarfélagsins

e. Koma á formlegra samstarfi milli GRV og ÍBV-íþróttafélags.

f. Auka þjónustu við afreksfólk og hvetja nemendur til að tileinka sér hugmyndafræði íþrótta í námi og hugmyndafræði náms í íþróttum.

Eitt stig á erfiðum útivellli

Karlalið ÍBV sótti stig á erfiðan útilivöll í Garðabænum í 8. umferð Olísdeildarinna.  Þar léku þeir gegn heimamönnum í Stjörnunni, sem er í efsta sæti deildarinnar, hafði einmitt sótt stig til Eyja í fyrstu umferð Íslandsmótsins.  Liðin munu svo eigast við í þriðja sinn seinna í vetur en ekki liggur fyrir hvort liðið fær heimaleik.

Lokatölur leiksins urðu 21:21 en Erlingur Richardsson, annar tveggja þjálfara ÍBV var þokkalega sáttur með leikinn.  „Ég held að það séu ágæt úrslit á erfiðum útivelli enda S tjarnan í efsta sæti deildarinnar.  En auðvitað hefði verið mjög gott að vinna þá og hafa það uppi í erminni eftir að hafa gert jafntefli við þá hér í Eyjum.  Nú þurfa Garðbæingar að tapa til að við getum náð þeim að stigum en toppbaráttan er það jöfn að það gæti alveg gerst.“

Erfið fjáhagsstaða samkvæmt heimildum Eyjafrétta

Samkvæmt mjög áreiðanlegum heimildum Eyjafrétta, er fjárhagsvandi ÍBV-íþróttafélags orðinn alvarlegur.  Þannig átti félagið í vandræðum með að greiða út laun í desember og fengu starfsmenn ekki full laun til að byrja með en stjórnarmenn náðu að leysa vandann þannig að starfsmenn fengu að lokum launin að fullu greidd. Samkvæmt heimildum Eyjafrétta eru skuldir félagsins vel á annað hundrað milljónir. 

Viðburðir ÍBV íþróttafélags – gleði, góður andi  og stemmning

Á fundi ÍBV-íþróttafélags í byrjun desember var m.a. kynnt ný skýrsla sem Rögnvaldur Guðmundsson, hjá Rannsóknum og ráðgjöf ferðaþjónustu ehf. vann fyrir félagið.  Skýrslunni, sem heitir Gestir á Pæjumóti, Shellmóti og þjóðhátíð 2012, er ætlað að varpa ljósi á mikilvægi þessara viðburða fyrir samfé lagið í Eyjum. Skýrslan, sem var unnin síðasta sumar, byggðist á þremur könnunum sem gerðar voru síðasta sumar en þá voru farþegar um borð í Herjólfi, sem voru á leið á Pæjumót, Shellmót eða þjóðhátíð spurðir nokkurra spurninga.

Í könnununum var spurt um kyn, aldur, búsetu, menntun, föruneyti gesta, fjölda gistinátta og gistimáta í Eyjum. Enn fremur var spurt hve oft þátttakendur hefðu tekið þátt í viðkomandi móti eða hátíð. Þá voru gestir beðnir um að meta ýmsa þætti varðandi Pæjumótið, Shellmótið og þjóðhátíð með því að gefa þeim einkunn á bilinu 1-10 (10 er hæsta einkunn), auk þess að nefna það jákvæðasta við viðburðina og það sem mætti bæta eða gera öðru vísi. Loks var fólk beðið að sundurliða útgjöld sín síðasta sólarhring inn og jafnframt áætla heildarútgjöld í Eyjum.

Umfang viðburðanna

„Markmiðið með þessari greinar gerð er að nýta upplýsingar úr áðurnefndum könnunum þannig að forysta ÍBV, bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum, ferðaþjónustu aðilar og áhuga fólk geti betur áttað sig á umfangi og gildi Pæjumóts, Shellmóts og þjóðhátíðar. Þessir viðburðir eru allir búnir að sanna sig þó Þjóðhátíð í Eyjum njóti að sjálfsögðu sérstöðu í ljósi langrar sögu. Upplýsingarnar eiga jafnframt að geta nýst ÍBV til að gera enn betur í framtíðinni.“ Jákvæðu punktarnir

Í skýrslunni kemur fram að meðal aldur svarenda á Pæjumóti og Shell móti var 40 ár en 24 ár meðal þjóðhátíðargesta.  88-90% gesta á Pæjumóti og Shellmóti voru bú settir á höfuðborgarsvæðinu en 67% af gestum þjóðhátíðar.  Meirihluti svarenda á Pæjumóti og Shellmóti var með börn í föruneyti sínu, eða á bilinu 60 og 72% en rúmlega tveir þriðju af þjóðhátíðargestum voru með vinum.  69% þjóðhátíðargesta höfðu engin tengsl við Eyjar, 26% áttu vini eða ættingja í Eyjum og 5% voru brottfluttir Eyjamenn. Gestir á Pæjumóti höfðu að jafnaði verið með í 1,5 skipti, að þessu meðtöldu, og gestir Shellmóts höfðu tekið þátt í 1,6 skipti. Þjóðhátíðar gestir höfðu hins vegar að jafnaði verið með á 3,6 þjóðhátíðum, að  þessari meðtalinni.  Meðaldvöl í Eyjum var 3,2 nætur meðal gesta á Pæjumóti, 3,7 nætur hjá gestum á Shellmóti og 3,1 nótt að jafnaði meðal þjóðhátíðargesta. Gistimáti gesta í Pæjumóti og Shellmóti var svipaður. Flestir gistu í skólum, mun fleiri þeirra sem voru á Pæjumótinu, 40% en Shellmótinu 26%.  Þá gistu allmargir á tjaldsvæði, eða 18-19%, 16% hjá vinum eða ættingjum í Eyjum og 14-15% á gistiheimili.  Nær helmingur þjóðhátíðar gesta gisti á tjaldsvæði, fjórðungur leigði hús eða íbúð og 17% voru hjá vinum eða ættingjum. Gestir á Pæjumótinu og Shellmótinu gáfu skipulagi mótanna hæstu meðaleinkunnina, 8,7 og 9,0 en síðan mótinu í heild 8,6 og 8,8. Meðal gesta þjóðhátíðar fengu brennan og gæslan hæstu meðal einkunnirnar, 9,2 og 9,1 en síðan skipulagið og hátíðin í heild. Viðmót íbúa í Eyjum fékk mjög góða meðaleinkunn hjá þátttakendum í öllum könnununum, matsölustaðir í bænum nokkru lægri og merkingar einnig.  Hlutfallslega flestir nefndu gott skipulag, góðan

anda, gleði og skemmtun sem það jákvæðasta við Pæjumót og Shellmót en síðan gott veður. 

Það sem má bæta

Gestir Pæjumóts nefndu oftast að það þyrfti að vera strætó á milli staða á mótinu, einkum gististaða og mótsstaða og að bjóða ætti hollari mat. Algengast var að gestir á Shellmótinu vildu fjölga rusla tunn um á mótssvæðunum og stytta eða bæta kvöldvökuna. Þjóð hátíðargestir vildu helst lækka miðaverðið, bæta tónlistaratriðin og efla gæsluna. Úgjöld gesta Dagleg útgjöld gesta á Pæjumótinu voru að jafnaði 9.700 kr á mann síðasta sólarhringinn í Eyjum en alls um 22.200 kr á mann meðan á dvölinni stóð. Gestir á Shellmótinu eyddu að jafnaði 7.400 kr á mann á dag og 25.600 kr alls í Eyjum. Þjóðhátíðargestir voru með dags eyðslu upp á 22.700 kr á mann og um 60.000 kr. alls í Eyjum.

Á beinu brautinni

Karlalið ÍBV heldur áfram á beinu brautinni en liðið hefur verið svo gott sem óstöðvandi eftir fyrstu tvær umferðirnar í 1. deildinni. Eyjamenn sóttu Fjölni heim í Grafarvoginn um síðustu helgi og eins og við mátti búast var sigur ÍBV sannfærandi enda Fjölnir með eitt af lakari liðum deildar innar. Lokatölur urðu 18:40 fyrir ÍBV eftir að staðan í hálfleik hafði verið 7:23.

Kvennaliðið verður í fríi fram yfir áramót vegna landsleikja.

Karlalið ÍBV vann auðveldan sigur á Þrótti um miðjan desember.  Þróttur er í neðri hluta deildarinnar á meðan ÍBV var öruggt um að vera í öðru sæti fram á næsta ár.  ÍBV þurfti hins vegar stigin tvö til að halda í við Stjörnuna, sem er á toppi 1. deildar. Lokatölur í leiknum gegn Þrótti urðu 41:34 eftir að staðan í hálfleik var 21:14. Sérstaklega var skemmtilegt að sjá ungu leikmennina í liði ÍBV spila gegn Þrótti en þeir stóðu heldur betur fyrir sínu og skoraði Dagur Arnarsson m.a. fimm mörk í leiknum.  Næsti deildarleikur hjá ÍBV verður hins vegar ekki fyrr en á næsta ári en laugardaginn 2. febrúar tekur ÍBV á móti Fylki. Mörk ÍBV: Andri Heimir Friðriksson 9, Theodór Sigurbjörnsson 7, Brynjar Karl Óskarsson 7, Dagur Arnarsson 5, Magnús Stefánsson 5, Guðni Ingvarsson 3, Grétar Þór Eyþórsson 3, Bergvin Haraldsson 1, Svavar Grétarsson 1. Varin skot: Kolbeinn Aron Arnarsson 9, Haukur Jónsson 1. 

Steinlágu  fyrir Fram

Það fór ekki eins og flestir vonuðust til að leikur Fram og ÍBV í undanúrslitum Deildarbikarsins yrði jafn og spennandi.  Skemmst er frá því að segja að Fram var mun sterkari aðilinn í leiknum enda 22:14 yfir í fyrri hálfleik en ÍBV liðið skoraði aðeins fjögur mörk í síðari hálfleik og lokatölur 41:18 fyrir Fram.  Athygli vekur að ungar handknattleiksstúlkur skoruðu alls átta af 18 mörkum ÍBV, þar á meðal skoraði Arna Þyrí Ólafsdóttir 3 mörk en hún er aðeins fimmtán ára. Mörk ÍBV: Simona Vintale 8, Drífa Þorvaldsdóttir 3, Arna Þyrí Ólafsdóttir 3, Sandra Dís Sigurðardóttir 1, Díana Magnúsdóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1 og Ivana Mladenovic 1.

Mikið fjör og mikið gaman

Það var mikið fjör og mikið gaman þegar A- og B-lið ÍBV, áttust við í 16-liða úrslitum bikarkeppninnar í síðasta handboltaleiks ársins. Áhorfendur troðfylltu gamla sal Íþróttamiðstöðvarinnar en leikurinn var jafnframt góðgerðarleikur og fengu fulltrúar Krabba varna Vestmannaeyja ávísun upp á um 1,3 milljón kr. áður en leik lauk. Eins og við var að búast hafði Aliðið betur, 17:24, eftir að staðan í hálfleik hafði verið 7:11.  B-liðið notaði öll trixin í bókinni og voru m.a. um það bil 15 inni á vellinum undir lokin, þar á meðal Hermann Hreiðarsson, sem hafði fengið rautt spjald í fyrri hálfleik.  Allir höfðu þó gaman af uppátækinu, m.a. dómarapar leiksins.

Samningur um íþróttaakademíuna endurnýjaður

Fræðslu- og menningarráð sam þykkti á síðasta fundi sínum í lok árs, áfram haldandi stuðning Vestmannaeyjabæjar við Íþróttaakademíu GRV sem Grunnskólinn og ÍBV-íþróttafélag hafa sameinast um. Tilgangurinn er m.a. að efla áhuga, metnað og árangur ungra íþróttamanna, draga úr brottfalli úr íþróttum og sporna við vímu efnaneyslu unglinga. Hefur það tekist að mati ráðsins. Gert hefur verið ráð fyrir kostnaði í fjár hagsáætlun 2013. Bærinn og ÍBV-íþróttafélag gerðu með sér samstarfssamning vegna þróunarverkefnis á vorönn 2012 þar sem sett var á fót íþróttaakademía við GRV. Samstarf þetta hefur haldist á haustönn 2012 og vilji er til að halda því áfram af beggja hálfu. Markmið verkefnisins er að: Efla áhuga, metnað og árangur ungra íþróttamanna í námi og íþrótt um, draga úr brottfalli úr íþróttum á viðkvæmum aldri, sporna við vímu- efnaneyslu unglinga, fylgja eftir skóla-, æskulýðs-, og íþróttastefnu sveitarfélagsins og koma á formlegra samstarfi milli GRV og ÍBV íþróttafélags. Líka á að auka þjónustu við afreksfólk og hvetja nemendur til að tileinka sér hugmyndafræði íþrótta í námi og hugmynda fræði náms í íþróttum. Í fundargerð segir að á milli 30  og 40 nemendur í 9. og 10. bekk hafi stundað nám við íþróttaakademíuna og hefur markmiðum verkefnisins verið náð með sóma. „Umsjón með verkefninu hefur verið í höndum ÍBV-íþróttafélags og hafa einstaklingar frá félaginu stýrt því af miklum metnaði og myndarskap. Sérstök ánægja er með að verkefnið hefur stuðlað að mun formlegra og betra samstarfi milli GRV og ÍBV íþróttafélags undir heitinu „Stefnum hærra saman“. Afleiðingin er jákvæðari og bættur skilningur á áherslum og starfi hvors annars sem kemur nemendum sem stunda íþrótt- ir til góða bæði hvað varðar íþróttastarfið og námið,“ segir í fundargerð. Í framhaldinu samþykkti ráðið áframhaldandi stuðning við verkefnið og fól framkvæmdastjóra fjölskyldu- og fræðslusviðs að ganga frá endurnýjuðum samstarfssamningi við ÍBV-íþróttafélag. Gert hefur verið ráð fyrir kostnaði í fjárhags áætlun 2013. Verkefni þetta er frumkvöðlaverkefni sem hefur á árinu hlotið úthlutun úr Sprotasjóði menntamálaráðuneytis og úr Lýð heilsusjóði Landlæknisembættisins. Því vill ráðið við þetta tilefni veita aukalega 400.000 krónum til verk efnisins vegna þess góða árangurs sem náðst hefur á þeim stutta tíma sem verkefnið hefur verið í gangi og með góðri trú um áframhaldandi árangur á sviðum forvarna, ástund unar náms- og íþrótta og samstarfs milli grunnskóla og íþróttahreyf ingarinnar. 

Til baka á forsíðu