Annáll ÍBV íþróttafélags í 20 ár/2003 -

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. júlí 2019 kl. 15:30 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. júlí 2019 kl. 15:30 eftir Vpj1985 (spjall | framlög) (Ný síða: == '''2003 -''' == === '''JANÚAR''' === === '''Þrettándinn tókst vel''' === Að venju var mikið um að vera á þrettándanum í Vestmannaeyjum á árlegu grímuballi Eyverja f...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

2003 -

JANÚAR

Þrettándinn tókst vel

Að venju var mikið um að vera á þrettándanum í Vestmannaeyjum á árlegu grímuballi Eyverja fyrir unga fólkið og um kvöldið var þrettándagleði ÍBV sem sjaldan eða aldrei hefur verið íburðarmeiri. Þrettándagleðin hófst klukkan sjö þegar jólasveinarnir þrettán örkuðu af Hánni niður á jafnsléttu þar sem Grýla og Leppalúði og allt þeirra pakk beið ásamt fjölda fólks á öllum aldri. Hersingin hélt upp á malarvöll þar sem dansað var af krafti í kringum varðeld. Mikil fjöldi fólks fylgdist með sýningunni sem sjaldan eða aldrei hefur verið tilkomumeiri.

Stelpurnar styrkja stöðu sína

ÍBV tók á móti Val í Essodeild kvenna en sex vikur eru frá því að ÍBV liðið lék síðasta leik í deildinni en leikur liðsins bar þess ekki merki. Liðið átti ekki í teljandi vandræðum með gestina og sigraði örugglega með fjórtán marka mun, 27 -13. Eftir að hafa komist í 5 - 0 jafnaðist leikurinn aðeins og staðan í hálfleik var 13-6. Seinni hálfleikur var á svipuðum nótum og sá fyrri, ÍBV gaf í þegar á þurfti og endaði leikinn með því að auka forystu sína um helming. Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 5/1, Alla Gorkorian 4/1, Ana Perez 4, Sylvia Strass 3/2, Birgit Engl 3, Elísa Sigurðardóttir 2, Edda Eggertsdóttir 2, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Anna Yakova 2. Varið: Vigdís Sigurðardóttir 24/4.

Annar flokkur úr leik í bikarnum

Annar flokkur karla lék í sextán liða úrslitum í bikarkeppninni en í fyrra komst liðið alla leið í undanúrslit. Það ríkti því nokkur eftirvænting hvernig strákunum gengi í ár en nú leikur liðið mun fleiri leiki enda tekur það þátt í Íslandsmótinu. Andstæðingarnir voru úr Mosfellsbænum en Afturelding er í efri hluta deildarinnar. Leikurinn var hins vegar jafn og spennandi og gat sigurinn endaði hvoru megin sem var. Staðan í hálfleik var 12 -12 en heppnin var á bandi gestanna í lokin sem sigruðu með tveimur mörkum, 24 - 26 og er ÍBV því fallið úr leik í bikarnum. Mörk ÍBV: Kári Kristjánsson 3, Davíð Þór Óskarsson 8, Sindri Haraldsson 3, Sigurður Ari Stefánsson 6, Sindri Ólafsson 2, Sigþór Friðriksson 2 auk þess varði Eyjólfur Hannesson mjög vel í markinu.

Karlaliðið í æfingaferð

Karlalið ÍBV í handknattleik mun leggja land undir fót og ferðast alla leið suður til Kanaríeyja þar sem liðið mun dveljast í æfingabúðum. Forsaga málsins er að upphaflega var ákveðið að liðið myndi fara saman til Portúgals í janúarmánuði til þess að fylgjast með Heimsmeistaramótinu sem fer fram þar. En ferðin reyndist hins vegar vera mjög dýr og því var ákveðið að fara til Kanaríeyja í staðinn. Þar mun liðið leika gegn liðum sem eru staðsett þar og eru það nokkuð sterk lið. ÍBV mun dvelja ytra í viku.

Slæmt jafntefli hjá stelpunum

Unglingaflokkur kvenna lék gegn Val en flokkurinn er sem stendur í harðri toppbaráttu í B-riðli íslandsmótsins. Leikurinn gegn Val fór fram hér í Eyjum og þrátt fyrir að Valur sé við botn riðilsins þá gerðu þær sér lítið fyrir og stálu stigi af ÍBV en lokatölur urðu 21-21 eftir að staðan hafði verið 5-9 gestunum í hag í hálfleik. Mestur varð munurinn sex mörk en stelpurnar gerðu vel í að jafna leikinn áður en hann kláraðist en niðurstaðan engu að síður slæm. Mikil meiðsli herja nú á liðið og ljóst að róðurinn gæti orðið erfiður það sem eftir lifir vetrar. Mörk ÍBV: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 6, Ester Óskarsdóttir 6, Aníta Ýr Eyþórsdóttir 4, Hildur Dögg 2, Sæunn Magnúsdóttir 1, Hekla Hannesdóttir 1.

Annar flokkur tapar

Annar flokkur karla lék gegn Haukum og fór leikurinn fram í Hafnarfirði. ÍBV hefur valdið nokkrum vonbrigðum í vetur. Liðið sem komst alla leið í undanúrslit í bikarnum í fyrra er vel mannað en reyndar eru strákarnir á fullu með meistaraflokki líka og er álagið töluvert. En þrátt fyrir að vera aðeins þremur mörkum undir í hálfleik, 18-15 þá töpuðu strákarnir með tíu mörkum, 35-25.

 Einn Eyjamaður í landsliðshópnum

Guðmundur Guðmundsson skar landsliðshóp sinn niður um miðjan janúar en liðið leikur við Svía á næstunni. Fækkað var í hópnum um tvo leikmenn sem missa því af heimsmeistarakeppninni sem senn fer í hönd. Eyjamaðurinn Birkir Ívar Guðmundsson hlaut ekki náð fyrir augum Guðmundar en Gunnar Berg Viktorsson kemst til Portúgals.

Sigur í báðum leikjum

ÍBV og Gróttu/KR áttust við í Essodeild kvenna á Seltjarnarnesi. Leikmenn Gróttu/KR tóku fast á móti ÍBV og oft á tíðum dönsuðu þær eftir þeirri hárfínu línu að vera grófar en slakir dómarar leiksins voru allt annað en vandanum vaxnir. En með mikilli baráttu í seinni hluta fyrri hálfleiks tókst stelpunum að jafna leikinn og staðan í hálfleik 9-9. Seinni hálfleikur fór vel af stað, Grótta/KR skoraði reyndar fyrsta markið en í kjölfarið kom góður leikkafli hjá ÍBV. Hann byggðist fyrst og fremst á mjög góðri vörn og glæsilegum hraðaupphlaupum þar sem hin eldsnögga Sylvia Strass greip alla bolta og skilaði þeim í þokkabót í netið. ÍBV náði þægilegri forystu sem stelpumar héldu til leiksloka en undir lokin klóruðu heimasætur aðeins í bakkann og lokatölur urðu 21-24. Mörk ÍBV: Ingibjórg Jónsdóttir 7, Alla Gorkorian 7, Sylvia Strass 4, Ana Perez 3, Edda Eggertsd. 1, Anna Rós Hallgrímsd. 1 og Birgit Engl 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 10.

Eftir leikinn brunuðu stelpurnar beint norður og gistu þar en þær áttu leik við KA/Þór daginn eftir. Leikurinn fór fjörlega af stað hjá ÍBV en góð vörn og frábær markvarsla Vigdísar Sigurðardóttur urðu til þess að liðið fékk fjölmörg færi úr hraðaupphlaupum. ÍBV héldu engin bönd og í hálfleik var ÍBV komið með níu marka forystu 8-17. Seinni hálfleikur var aðeins rólegri enda fengu varamenn liðsins að spreyta sig en það kom ekki að sök og endaði leikurinn með 13 marka sigri ÍBV, 19-32. Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 6, Anna Yakova 5, Alla Gorkorian 5, Anna Rós Hallgrímsdóttir 3, Birgit Engl 3, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Ana Perez 2, Helle Hansen 2, Sylvia Strass 2, Edda Eggertsdóttir 1, Björg Ólöf Helgadóttir 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 24/3

Heldur slakt gengi

Íslandsmót yngri flokka í innanhússknattspyrnu héldu áfram í seinni hluta janúar en þá léku þrír flokkar ÍBV, annar flokkur karla og kvenna og þriðji flokkur karla. Annar flokkur karla lék á sunnudaginn og fór riðill ÍBV fram í Austurbergi. ÍBV lék í F riðli með Fram, IR og Víkingum. ÍBV gerði jafntefli gegn IR og Fram en tapaði gegn Víkingum og enduðu þeir þar með í neðsta sæti riðilsins og komust ekki í úrslit. Annar flokkur karla gerði tvö jafntefli, eitt tap. Annar flokkur kvenna lék sömuleiðis og lék liðið í D-riðli ásamt Ægi, Stjörnunni, Fjölni og ÍR. Óvæntustu úrslitin urðu án efa þegar liðið tapaði gegn Ægi en leikið var í Þorlákshöfn og spurning hvort heimavöllurinn hafi haft eitthvað að segja. Annars tapaði ÍBV einnig gegn Stjörnunni en sigraði hins vegar bæði Fjölni og ÍR en það dugði ekki til og ÍBV komst því ekki í úrslit. Þriðji flokkur karla lék í D-riðli ásamt Hamri, KFR, Njarðvík, Selfossi og Ægi. Eyjapeyjar áttu ekki í teljandi vandræðum með andstæðinga sína úr Suðurkjördæmi, unnu alla leikina fyrir utan einn en gegn KFR gerðu strákarnir jafntefli. Það dugði hins vegar til að ná efsta sætinu í riðlinum sem fleytir liðinu í úrslit sem verða síðar í vetur.

Knattspyrnuvertíðin að hefjast

Knattspyrnuvertíðin hjá karlaliðinu hófst af alvöru í lok janúar þegar liðið lék sína fyrstu æfingaleiki á nýju ári en liðið tók þá þátt í fjögurra liða móti í Reykjanesbæ. Liðin sem tóku þátt voru auk ÍBV, Keflavík, FH og ÍA. ÍBV lék gegn tveimur liðanna, fyrst gegn Keflavík en sá leikur endaði með eins marks sigri strákanna úr bítlabænum en lokatölur urðu 2-1 og skoraði Bjarni Rúnar Einarsson mark ÍBV. Seinni leikurinn fór svo fram á sunnudaginn og var hann gegn ÍA. Skagamenn nýttu sín færi betur í leiknum og sigruðu 3-1 en ÍBV misnotaði m.a. vítaspyrnu í leiknum. I lið ÍBV vantaði nokkra af fastamönnum liðsins, svo sem Birki Kristinsson, Hjalta Jóhannesson, Gunnar Heiðar Þorvaldsson en yngri leikmenn fengu tækifæri í staðinn.

Vigdís íþróttamaður Vestmannaeyja

Föstudagskvöldið 17.janúar fór fram í Þórsheimilinu glæsilest hóf þar sem ÍBV-héraðssamband afhenti íþróttamanni ársins 2002 sína viðurkenningu. Auk þess valdi hvert aðildarfélag fyrir sig, íþróttamann ársins úr sínum röðum. Íþróttamaður ársins 2002 var að þessu sinni valin Vigdís Sigurðardóttir, markvörður handknattleiksliðs ÍBV. Þór Vilhjálmsson, formaður héraðssambands ÍBV afhenti Vigdísi veglegan bikar og rakti við það tækifæri feril Vigdísar. „Vigdís hóf ung að iðka handknattleik og lék með yngri flokkum Knattspyrnufélagsins Týs og ÍBV. Hún fór til náms til Reykjavíkur og gekk þá til liðs við Hauka í Hafnarfirði og varð Íslandsmeistari með þeim árið 1996 og svo aftur 1997 og einnig bikarmeistari það ár. Þá flutti hún aftur heim til Eyja að námi loknu og tók sér frí frá íþróttaiðkun vegna barneigna í eitt ár. En tók svo fram skóna að nýju og hóf að leika með ÍBV. Vigdís varð íslandsmeistari og meistari meistaranna með ÍBV árið 2000, bikarmeistari 2001, bikarmeistari og meistari meistaranna 2002. Þá var hún kosin besti leikmaður íslandsmótsins árið 2002 á lokahófi HSÍ. Hún lék um tíma með íslenska kvennalandsliðinu en hefur ekki gefið kost á sér í seinni tíð þótt til hennar hafi verið leitað. Vigdís er góð fyrirmynd yngri leikmanna, jákvæð, reglusöm og metnaðargjörn og er enn að bæta sig í sinni íþrótt. Þetta gerir hún samtímis því að reka heimili og sinna krefjandi vinnu. Vigdís er glæsilegur fulltrúi íþróttahreyfingarinnar í Vestmannaeyjum," sagði Þór. Formaður íþróttafélagsins, Óskar Freyr Brynjarsson reið á vaðið og gerði grein fyrir hvernig valið færi fram.

Knattspyrnukona ársins var valin Michelle Barr. „Michelle er skoskur landsliðsmaður, hún hefur spilað með ÍBV síðustu tvö ár í vörn liðsins. Michelle var fyrirliði liðsins áríð 2002 og einn af máttarstólpum þess og góður leiðtogi jafnt innan vallar sem utan," sagði Óskar Freyr. Knattspyrnumaður ársins var valinn Birkir Kristinsson. „Birkir er margreyndur landsliðsmaður og verðugur fulltrúi íþróttahreyfingarinnar hvernig sem á málið er litið. Hann er sá leikmaður sem leggur sig mest fram við æfingar, er til fyrirmyndar á leikvelli og utan hans og þó að Birkir verði fertugur á næsta ári vitum við að hann verður besti markvörður Íslandsmótsins í sumar."

Handknattleikskona ársins 2002 var valin Vigdís Sigurðardóttir, sem hlaut einnig þann titil fyrir áríð 2001. „Vigdís og hennar félagar í ÍBV hafa náð frábærum árangri síðustu ár. Á árinu 2002 urðu þær bikarmeistarar og meistarar meistaranna. Vigdís, sem er landsliðsmaður er mikil keppnismanneskja og leggur sig alla fram við það sem hún tekur sér fyrir hendur og er ávallt stutt í brosið hjá henni. Það segir mikið til um Vigdísi að þar sem hún spilar er ávallt góður árangur."

Handknattleiksmaður ÍBV árið 2002 er Svavar Vignisson, einnig annað árið í röð. „Svavar var yfirburðaleikmaður hjá ÍBV á síðasta tímabili en Svavar leggur sig alltaf hundrað prósent fram við æfingar, sem og í leikjum. Hann er harður nagli sem gefur ekkert eftir."

Unglingaflokkur tapaði heima

Um miðjan janúar fór fram uppgjör milli toppliðanna í A-riðli í íslandsmótinu í handknattleik í Unglingaflokki en þá tókt ÍBV á móti Fram 2. ÍBV hefur gengið vel það sem af er vetri og hafði fyrir leikinn ekki tapað leik en það átti eftir að breytast. Meiðsli hafa sett strik í reikninginn hjá liðinu. Leikurinn fór illa af stað fyrir ÍBV og var staðan í hálfleik 8-12 fyrir Fram 2. Munurinn jókst svo upp í sjö mörk en stelpurnar klóruðu í bakkann undir lokin og lokatölur leiksins urðu 18-20. Mörk ÍBV: Aníta Ýr Eyþórsdóttir var með 6, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 5, Ester Óskarsdóttir 3, Sæunn Magnúsdóttir 2, Hildur Dögg Jónsdóttir, Björg Ólöf Helgadóttir 1.

Góð æfingaferð

Karlalið ÍBV var í síðustu viku í æfingarferð en liðið dvaldi á Kanaríeyjum í vikutíma. Liðið lék þrjá leiki, fyrst var leikið gegn spænsku 2. deildarliði en eins og allir vita tilheyra Kanaríeyjar Spáni og þar eru nokkur handboltalið sem taka þátt í Spánarmótinu. ÍBV vann fyrsta leikinn nokkuð örugglega 35 - 19 en næsti leikur, gegn 1. deildarliði tapaðist naumlega. Þriðji og síðasti leikurinn var svo gegn úrvalsdeildarliði eyjanna, Galdar, en það er um miðja spænsku deild og er að sjálfsögðu eingöngu skipað atvinnumönnum. ÍBV náði að sýna ágæta takta gegn atvinnumönnunum en í þeirra herbúðum eru m.a. norskur, danskur og júgóslavneskur landsliðsmenn. Lokatölur í þessum leik urðu 31-27 Spánverjunum í vil.

 3. flokkur áfram

Riðill þriðja flokks kvenna í Íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu fór fram hér í Eyjum eina helgi í janúar. Hingað komu fjögur lið ofan af landi. ÍBV vann þrjá leiki og gerði eitt jafntefli og komst þar með í úrslit íslandsmótsins sem verður síðar. Úrslit hjá ÍBV voru annars þessi: ÍBV-Ægir 3-0, ÍBV-Hamar 6-0, ÍBV-Selfoss 0-0, ÍBV-Þróttur Vogum 8-0.

Fyrsta tapið staðreynd

Kvennalið ÍBV átti fyrir höndum mjög erfiðan útileik þegar stelpurnar mættu Haukum sem ásamt Stjörnunni er helsti keppinautur ÍBV um sigur í deildinni. ÍBV hafði til þessa ekki tapað leik. ÍBV byrjaði mun betur í leiknum og komst m.a. í 1-5 og 4-10 en Haukar náðu að minnka muninn niður í eitt mark fyrir leikhlé og var staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja 14 - 15. Haukaliðið mætti svo ákveðnara til leiks í síðari hálfleik, Haukar komust svo yfir og virtust vera stinga af í stöðunni 21 -19 en ÍBV náði að hrista af sér slenið og jafna 24-24. Haukar höfðu svo betur á lokakaflanum og unnu 27-25. Dómarapar leiksins hafði mikið að segja um gang leiksins, eins og svo oft áður enda virðast störf þeirra í fæstum tilvikum fylgja gæðum leikja. Ekki aðeins var dómgæslan léleg á leiknum því einnig var öll umgjörð leiksins mjög óvinveitt Eyjamönnum. Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari ÍBV, var rekin út af þegar 40 sekúndur voru liðnar af leiknum. Yfirsjónin var ekki stór, hún steig inn á til að hlúa að einum sinna leikmanna, áður en hún fékk til þess leyfi frá dómara. Þeir sáu ekki brotið en því var komið til skila þannig að þeim var nauðugur einn kostur að sýna Unni rauða spjaldið. Mörk ÍBV: Anna Yakova 8, Alla Gorkorian 5/3, Ingibjórg Jónsdóttir 4, Elísa Sigurðardóttir 3, Sylvia Strass 2, Birgit Engl 1, Ana Perez 1, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 18.

Þrír tapleikir

Annar flokkur karla lék þrjá leiki á einni helgi en leikirnir fóru fram á höfuðborgarsvæðinu. Fyrsta var leikið gegn Val og var um hörkuleik að ræða. Staðan í hálfleik var 14-14 en Valsarar höfðu betur á lokakaflanum og sigruðu 27-26. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 12, Sigþór Friðriksson 4, Kári Kristjánsson 4, Sigurður Ari Stefánsson 2, Sindri Ólafsson 2, Sindri Haraldsson 1, Jens Elíasson 1.

Daginn eftir var svo komið að Víkingum en í Víkinni voru heimamenn sterkari og eftir að staðan í hálfleik hafði verið 13-10, sigruðu Víkingar með níu mörkum, 30-21. Mörk ÍBV: Kári Kristjánsson 4, Sigurður Ari Stefánsson 4, Sigþór Friðriksson 3, Davíð Þór Óskarsson 3, Jens Elíasson 2, Grétar Eyþórsson 2, Magnús Sigurðsson 1, Benedikt Steingrímsson 1, Sindri Haraldsson 1. Síðasti leikurinn var gegn FH í Hafnarfirði og sigruðu heimamenn með sex mörkum 31- 25. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 5, Sigurður Ari Stefánsson 4, Kári Kristjánsson 4, Sigþór Friðriksson 3, Sindri Haraldsson 3, Baldvin Sigurbjörnsson 2, Sindri Ólafsson 1, Grétar Eyþórsson 1, Eyjólfur Hannesson 1.

Baráttusigur

ÍBV tók á móti Víkingum en eftir að hafa tapað sínum fyrsta leik gegn Haukum á útivelli áttu flestir von á því að Víkingar fengju að fínna til tevatnsins en annað kom á daginn. Gestirnir voru sprækari lengst af í leiknum en ÍBV komst yfir á réttum tíma í leiknum og sigraði með þremur mörkum, 25 – 22. ÍBV lenti strax undir í fyrri hálfleik og komust Víkingar mest þremur mörkum yfir en leikmenn ÍBV náðu að snúa við blaðinu og voru yfir í leikhléi, 13-12. Strax í fyrri hálfleik fór á sömu leið og í þeim fyrri, ÍBV lenti undir og var mest þremur mörkum undir en eins og í fyrri hálfleik náðu stelpurnar að snúa leiknum sér í hag og sigra með þremur mörkum, 25 - 22. Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 9, Sylvia Strass 5, Alla Gorkorian 3/2, Anna Yakova 3,EIísa Sigurðardóttir 2, Ana Perez 2, Birgit Engl 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 23

Birgir ráðinn framkvæmdastjóri

Birgir Stefánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri knattspyrnudeilda karla og kvenna. Birgir er fæddur og uppalinn Eyjapeyi og þekkir því vel til en auk þess er hann lærður viðskiptafræðingur og ætti sú menntun að koma að góðum notum í þeirri baráttu sem framundan er.

Margrét Lára æfir með þremur landsliðum

Í janúar fóru fram úrtaksæfingar hjá yngri kvennalandsliðum Íslands í knattspyrnu auk þess sem A-landslið Íslands æfir fyrir æfingaleik liðsins gegn Bandaríkjunum. Margrét Lára Viðarsdóttir hefur lengi haft það orð á sér að vera eitt mesta efni í kvennaknattspyrnunni í dag. Staðfesting á þessu er að hún hefur verið valin til æfinga með öllum kvennalandsliðum Íslands, utan U-21 árs liðsins enda æfir það ekki um þessar mundir. Æfir Margrét með U-17 ára, U-19 ára og A-landsliði Íslands um þessar mundir. Eyjamenn eiga fleiri fulltrúa á þessum æfingum, í U-17 ára liðinu æfir Thelma Sigurðardóttir og Olga Færseth er að sjálfsögðu með A-liðinu.

Keppnisleyfi Hásteinsvallar afturkallað enn og aftur

Enn og aftur er aðstaðan á Hásteinsvelli komin inn á borð bæjarstjórnar. Síðastliðið sumar var keppnisleyfi vallarins afturkallað af KSI þar sem ekki hafði verið staðið við gerð stúku við völlinn. Því var kippt í liðinn með þeim formerkjum að völlurinn hefði því leyfi til næstu fimm ára. Á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs þann 3. janúar sl. gerði íþróttafulltrúi grein fyrir fundi sem hann átti með fulltrúum KSÍ og íþróttahreyfingarinnar í Eyjum ásamt bæjarstjóra vegna reglugerða sem snúa að keppnisleyfum fyrir knattspyrnuvelli þar sem leikið er í efstu deild. Fram kom á fundinum að útgefið leyfi til næstu fimm ára er ekki lengur í gildi en undanþágu er hægt að veita svo fremi sem lögð er fram áætlun og samþykktir sem taka mið af því að girða svæðið af. Eins er stúkan nýreista ekki lengur nægilega góð, því nú er talað um yfirbyggða stúku. Er þetta vegna reglugerðar Knattspyrnusambands Evrópu. ÍBV-íþróttafélag þarf að sækja um undanþágu í byrjun mars og verður þá áætlunin að vera tilbúin. Íþrótta- og æskulýðsráð lagði á það áherslu að sem fyrst liggi fyrir ákvörðun um málefni Hásteinsvallar svo þau skilyrði verði uppfyllt, sem þarf til að undanþága verði gefin út. Á fundi bæjarstjórnar á fimmtudag kom fram tillaga frá bæjarfulltrúum Vestmannaeyjalistans varðandi málið: „Bæjarstjórn samþykkir að óska eftir skriflegum skýringum frá KSI, varðandi það hvað hefur breyst frá því snemma í sumar þegar lofað var að framkvæmdir þær sem þá voru gerðar myndu duga til að halda keppnisleyfi næstu 5 ár." Var það samþykkt með sjö samhljóða atkvæðum.

FEBRÚAR

Fjörugt karlakvöld

Í byrjun febrúar hélt handknattleiksdeild karla, ÍBV árlegt karlakvöld um borð í Herjólfi. Þar var margt til skemmtunar fyrir bæði hug og maga. Byrjað var með vínkynningu þar sem gestir fengu að kynnast dásemdum vína frá Chile og Ástralíu, bæði rauðum og hvítum. Kári Vigfússon og hans fólk sá um um matinn og þar sannaðist enn og aftur að Kári er snilldarkokkur. Undir borðum lék Gísli Brynjólfsson á nikkuna. Ræðumaður kvöldsins var séra Hjálmar Jónsson, nú dómkirkjuprestur en áður þingmaður. Hjálmar fór á kostum með vísuna að vopni. Var það blandað mátulegum skammti af nettum skotum á náungann sem Jóhann lögfræðingur hafði komið í hendur klerki. Allt var innan velsæmismarka og enginn steig sár upp frá borðum. Allt var þetta undir öruggri stjórn séra Kristjáns Landakirkjuklerks sem sýndi að þar er fagmaður á ferð þegar veislustjórn er annars vegar.

Jafntefli í Garðabæ

ÍBV sótti Stjörnuna heim í byrjun febrúar en liðin voru í harðri toppbaráttu ásamt Haukum. ÍBV var mun betra liðið framan af, komust Eyjastúlkur m.a. sjö mörkum yfir en misstu muninn niður og staðan í hálfleik var 7-9 fyrir ÍBV. ÍBV hélt forystunni áfram í upphafi síðari hálfleik en um hann miðjan virtist leikur liðsins nánast hrynja. Þegar rúm mínúta var eftir var útlitið svart, Stjarnan var þá þremur mörkum yfir 20-17. En með mikilli baráttu og villtum varnarleik náðu stelpurnar að skora tvö mörk og unnu svo boltann þegar nokkrar sekúndur voru eftir. Þegar leiktíminn rann út var brotið á Birgit Engl, ÍBV fékk aukakast og um leið rann leiktíminn út. Fæstir áttu því von á að ÍBV ætti eftir að jafna leikinn en Anna Yakova gerði sér lítið fyrir og þrumaði boltanum í netið og tryggði því ÍBV mikilvægt stig, lokatölur 20-20. Mörk ÍBV: Anna Yakova 7, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Edda Eggertsdóttir 3, Alla Gorkorian 3/1, Sylvia Strass 2, Ana Perez 1, Björg Ólöf Helgadóttirl. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttír 14.

Sigur hjá öðrum flokki

Annar flokkur karla lék  gegn ÍR og fór leikurinn fram  í Eyjum. Leikurinn var hraður og skemmtilegur og alls skoruð sjötíu mörk í honum. Eyjamenn höfðu betur, skoruðu tveimur mörkum meira og unnu því 36- 34 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 18-19 fyrir ÍR. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 9, Kári Kristjánsson 9, Sigurður Ari Stefánsson 8, Sindri Haraldsson 4, Sindri Ólafsson 4, Sigþór Friðriksson 2.

Sigur og tap í karlafótbolta

Karlalið IB V í knattspyrnu lék tvo æfingarleiki en báðir fóru þeir fram í Reykjavík. Fyrst var leikið í Egilshöllinni og var andstæðingurinn Afturelding, sem leikur í 1. deild. Strákarnir voru ekki í teljandi vandræðum með 1. deildarliðið og sigruðu með þremur mörkum gegn einu. Mörk ÍBV skoruðu þeir Bjarni Geir, Bjarni Rúnar og Páll Hjarðar. I síðari leiknum var leikið gegn FH en þrátt fyrir ágætan leik ÍBV voru það FH-ingar sem skoruðu mörkin, fjögur urðu þau talsins og komu þau öll í síðari hálfleik.

Í úrslit þriðja árið í röð

ÍBV tók á móti Stjörnunni í undanúrslitum bikarkeppninnar. Fór leikurinn fram fyrir fyrir fullu húsi áhorfenda í íþróttamiðstöðinni. Leikurinn endaði með átta marka sigri ÍBV, 26 - 18 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-5. Leikurinn sjálfur varð hins aldrei spennandi, voru yfirburðir ÍBV liðsins það miklir í leiknum og í raun fáránlegt til þess að hugsa til þess að þetta sama lið hafi verið heppið að ná jafntefli gegn Stjörnunni í tveimur síðustu leikjum. Lykillinn að sigrinum var án efa sterkur varnarleikur liðsins og skoraði aðeins einn leikmaður yfir tvö mörk hjá Stjörnunni, það var Jóna Ragnarsdóttir sem skoraði sjö mörk, þar af fimm úr vítum. Mikil stemmning var á pöllunum, sem reyndar keyrði fram úr hófi á köflum þegar stuðningsmönnum liðanna lenti saman en allt endaði það á friðsamlegum nótum. Mörk ÍBV: Anna Yakova 6, Alla Gorkorian 6/1, Sylvia Strass 5, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Edda Eggertsdóttir 2, Ana Perez 2, Björg Ó. Helgadóttir. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 15/2.

Sigur og tap hjá strákunum

Karlalið ÍBV lék gegn Stjörnunni í fyrsta leik sínum að loknu HM-hléi á karlaboltanum. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann, Eyjamenn voru betri í fyrri hálfleik og leiddu með 1 - 2 mörkum en lentu í vandræðum undir lok fyrri hálfleiksins og voru undir 17 -18 í leikhléi. Í síðari hálfleik leit allt út fyrir að gestunum væri að takast að næla sér í bæði stigin enda var komið að þeim að vera yfir en Eyjamenn neituðu að gefast upp. Undir forystu fyrirliða síns, Sigurðar Bragasonar, tókst leikmönnum ÍBV að snúa leiknum sér í hag og á lokakaflanum dró í sundur með liðunum. ÍBV sigraði svo í þessum mikla markaleik, 35-31. Mörk ÍBV: Sigurður Bragason 10, Davíð Þór Óskarsson 8/5, Robert Bognar 5, Erlingur Richardsson 4, Kári Kristjánsson 4, Sigurður Ari Stefánsson 3, Sigþór Friðriksson 1. Varin skot: Eyjólfur Hannesson 9, Viktor Gigovl 10/1.

ÍBV mætti HK tveimur dögum síðar á útvelli. Leikmenn ÍBV mættu vel stemmdir til leiks og voru lengst af yfir í fyrri hálfleik, þó aldrei meira en tveimur mörkum en undir lok hálfleiksins náðu leikmenn HK að ná undirtökunum og í hálfleik var staðan 15-13. Eyjamenn byrjuðu seinni hálfleikinn ágætlega og eftir fimm mínútur var staðan orðin jöfn, 16-16. En þá fór að síga á ógæfuhliðina, heimamenn skoruðu þá þrjú mörk í röð og náðu svo mest fimm marka forystu, 28-23. Leikmenn ÍBV náðu þó aðeins að klóra í bakkann undir lokin og leikurinn endaði með þriggja marka sigri HK, 30-27. Mörk ÍBV: Róbert Bognar 7, Davíð Þór Óskarsson 6/3, Michael Lauritzen 3, Sigurður Ari Stefánsson 3, Erlingur Richardsson 3, Sigþór Friðriksson 3, Sigurður Bragason 2. Varin skot: Eyjólfur Hannesson 9, Viktor Gigov 2.

Gestirnir sáu aldrei til sólar

ÍBV mætti einu af slökustu liðum Essodeildar kvenna í byrjun febrúar. Þá kom í heimsókn sameiginlegt lið Fylkis og ÍR. Eftir að hafa skorað fyrsta mark leiksins sáu gestirnir aldrei til sólar og endaði leikurinn með 22 marka sigri ÍBV, 37-15. Þrátt fyrir augljósa yfirburði lék ÍBV liðið ágætan handbolta og notaði leikinn til að koma varamönnunum í leikform. ÍBV keyrði stíft á hraðaupphlaup og fengu leikmenn góða æfingu í að útfæra hraðaupphlaup sem gekk vel í flestum tilvikum. Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 9/3, Sylvia Strass 7, Birgit Engl 7/1, Ingibjörg Jónsdóttir 4, Ana Perez 4, Edda Eggertsdóttir 3, Anna Rós Hallgrímsdóttir3. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 11, Íris Sigurðardóttir 2.

Góð ferð Eyjamanna á KSÍ-þingið

KSÍ þingið fór fram laugardaginn 8. febrúar á Hótel Loftleiðum og var að venju fjölmennt. ÍBV bar upp tvær tillögur, annars vegar að KSÍ geri breytingu á bikarkeppninni en keppninni var breytt þannig á síðasta þingi að undanúrslit fari fram á Laugardalsvelli. ÍBV lagði til að liðin sem dregin væru á undan úr hattinum fengju heimavallarrétt í undanúrslitum, eins og áður var og var sú tillaga samþykkt. Þannig að á næsta þingi mun stjórn KSÍ leggja fram breytinguna og er það þá undir þingheimi komið að samþykkja breytinguna endanlega. Hin tillagan sem ÍBV lagði fram var ekki síður merkileg en þar var lagt til að KSÍ stofni jöfnunarsjóð vegna ferðakostnaðar í þremur efstu karladeildunum og efstu deild kvenna. Þar áttu félögin, sem taka þátt í áðurnefndum deildum, að greiða upphæð í sjóð sem KSÍ myndi síðan deila út með tilliti til ferðakostnaðar. Tillagan var samþykkt með þeirri breytingu að greiðslan komi úr ríkissjóði en ekki frá félögunum sjálfum þannig að boltinn er nú hjá Alþingi. Þá var tillaga stjórnar KSÍ um breytt fyrirkomulag í aðalkeppni bikarkeppninnar felld en þar átti að koma átta efstu liðunum inn í keppnina í 16 liða úrslitum í stað 32ja liða úrslitum eins og er nú. Þá var Einar Friðþjófsson kosinn landshlutafulltrúi Suðurlands en hann tekur þar við af Jóhanni Ólafssyni sem hafði gegnt þeirri stöðu í 27 ár eða frá árinu 1975.

Sigur hjá 3ja flokki

Laugardaginn 8.febrúar lék þriðji flokkur karla gegn FH. Leikurinn var jafn og spennandi en Eyjapeyjar höfðu þó alltaf undirtökin og staðan í hálfleik var 13-12 fyrir ÍBV. Í seinni hálfleik voru strákarnir ávallt skrefi á undan þar til undir lokin að þeir náðu að hrista Hafnfirðinga af sér og sigra með fjórum mörkum  24-20. Mörk ÍBV: Grétar Eyþórsson 7, Jens K. Elíasson 5, Vignir Svavarsson 5, Baldvin Sigurbjörnsson 4, Hilmar Björnsson, Leifur Jóhannesson og Magnús Sigurðsson 1. Fjórði flokkur kvenna lék einnig helgina 8. til 9. febrúar en þá var leikin ein umferð í riðli stelpnanna. ÍBV lék þrjá leiki, þær unnu KA 15 - 13 og Völsung 12 - 8 en töpuðu fyrirFH14-17.

Margrét Lára ekki í hópnum

Margrét Lára Viðarsdóttir var ekki valin í 17 manna hóp íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu sem mætir því bandaríska. Margrét þarf reyndar ekki að örvænta um verkefnaskort því hún er enn gjaldgeng í U-17 ára landsliðið. Nýjasti leikmaður kvennaliðsins ÍBV, Olga Færseth, er hins vegar í hópnum og mun væntanlega spila í fremstu víglínu liðsins.

ÍBV Íslandsmeistari

Fjórði flokkur kvenna lék í úrslitum í Íslandsmótinu í innanhússknattspyrnu sem fór fram í Austurbergi. Á fyrsta keppnisdegi fóru fram undanriðlar en þar var leikið í tveimur þriggja liða riðlum og tvö efstu liðin komust í undanúrslit. ÍBV var í riðli með Einherja og Víkingi Reykjavík og unnu stelpumar báða leikina nokkuð örugglega. Í undanúrslitum mætti ÍBV Haukum og urðu lokatölur þar 2- 1 fyrir ÍBV en mörk ÍBV skoruðu þær Svava Kristín Grétarsdóttir og Kolbrún Inga Stefánsdóttir. í úrslitaleiknum sjálfum mætti ÍBV Grindavík. Leikurinn var æsispennandi og komst ÍBV yfir 1-0 . Grindvíkingar svöruðu með tveimur mörkum en Eyjastúlkur börðust vel og skoruðu síðustu tvö mörk leiksins, sigruðu því 3-2 og eru Íslandsmeistarar í innanhússknattspyrnu 2003. , Mörk ÍBV í úrslitaleiknum skoruðu þær Þórhildur Ólafsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir og Kolbrún Inga Stefánsdóttir.

Jafntefli gegn HK

Karlalið ÍBV lék einn æfingaleik um miðjan febrúar en þá lék liðið gegn HK. Úrslit leiksins urðu 1-1 en mark ÍBV skoraði Bjarnólfur Lárusson eftir að HK hafði komist yfir en ÍBV stillti aðeins upp þeim leikmönnum sem æfa með liðinu í Reykjavík þar sem ekki var fært milli lands og Eyja. ÍBV leikur svo sinn fyrsta leik í deildarbikarnum  í lok febrúar þegar liðið mætir Grindavík og fer leikurinn einnig fram í Fífunni.

Andri á úrtaksæfingu

Andri Ólafsson, knattspyrnumaðurinn efnilegi hefur verið valinn til þess að taka þátt í úrtaksæfingu U- 19 ára landsliðsins. Einnig fara fram úrtaksæfingar hjá U-17 ára landsliðinu en ÍBV á engan fulltrúa þar.

5. sæti hjá þriðja flokki

Þriðji flokkur karla tók þátt í innanhússmótinu en þar voru tveir fjögurra liða riðlar til að byrja með. ÍBV endaði í þriðja sæti í sínum riðli eftir að hafa unnið einn leik og tapað tveimur. ÍBV spilaði því um fimmta sætið gegn Þrótti Neskaupstað og sigraðu Eyjapeyjar 3-0.

Ágætis árangur hjá stelpunum

Unglingaflokkur lék tvo leiki um miðjan febrúar gegn FH og Víking/ HK. ÍBV tapaði fyrri leiknum gegn FH 25-16 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 12-6 fyrir FH. Mörk ÍBV: Aníta Ýr Eyþórsdóttir 6, Ester Óskarsdóttir 5, Björg Ólöf Helgadóttir 2, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Sæunn Magnúsdóttir. 1. Gegn Víking/ HK gekk ÍBV hins vegar aðeins betur en þess má geta að í ferðinni voru aðeins sjö leikmenn þannig að enginn skiptimaður var með í för. Leikurinn gegn Víking/HK endaði með jafntefli, 18-18 en staðan í hálfleik var 9-10. Mörk ÍBV: Þórsteina 4, Ester 4, Björg 4, Hildur Jónsdóttir 3, Aníta 2, Sæunn 1.

Góður sigur

ÍBV lék gegn FH  laugardaginn 22. febrúar. ÍBV hafði yfirhöndina nánast allan tímann og sigraði með 22 -29. ÍBV byrjaði betur í leiknum og náðu stelpurnar fljótlega þægilegri forystu án þess þó að ná að hrista Hafnfirðinga alveg af sér. Staðan í hálfleik var 11-15 fyrir ÍBV og Hafnfirðingar ennþá inni í myndinni. Seinni hálfleikur var á svipuðum nótum og sá fyrri, ÍBV byrjaði reyndar af meiri krafti en í þeim fyrri og náði átta marka forystu. Anna Yakova og Sylvia Strass voru allt í öllu og skoruðu samtals 22 mörk af  29 sem eru tæp 76 % af mörkum liðsins. Mörk ÍBV: Anna Yakova 12, Sylvia Strass 10, Anna Rós Hallgrímsdóttir 2, Ana Perez 2/1, Birgit Engl 1, Alla Gorkorian 1/1, Helie Hansen 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 14/2.

Klaufalegt hjá ÍBV

ÍBV tók á móti Þór frá Akureyri í síðari hluta febrúar mánaðar. Þórsarar byrjuðu betur í leiknum og fljótlega náðu þeir undirtökunum. Eyjamenn létu hins vegar ekki slá sig út af laginu og sneru leiknum sér í hag og náðu mest fjögurra marka forystu í fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi var 16 -13 en lokatölur voru 31-32 gestunum í hag. Seinni hálfleikur fór einnig ágætlega af stað, IBV var með 3-4 marka forystu framan af en um miðjan hálfleikinn hrundi sóknarleikur liðsins eins og spilaborg. Tveimur leikmönnum fleiri, í stöðunni 26-26 tókst Eyjamönnum ekki að skora en í staðinn skoruðu gestirnir tvo mörk og voru komnir með pálmann í hendurnar. Undir lokin gat sigurinn endað hvorum megin sem var og allt leit út fyrir að liðin myndu skilja jöfn eftir að Sindri Ólafsson hafði jafnað metin þegar aðeins tíu sekúndur vora eftir. En einum leikmanni færri tókst ÍBV ekki að koma í veg fyrir að gestirnir skoruðu sigurmarkið og nældu Akureyringar sér því í dýrmæt stig. Með örlítilli heppni og meiri einbeitingu þá hefði ÍB V án efa tryggt sér sigurinn. Mörk ÍBV: Sigþór Friðriksson 7, Davíð Þór Óskarsson 6/2, Robert Bognar 5, Erlingur Richardsson 3, Sigurður Bragason 3, Sigurður Ari Stefánsson 3, Kári Kristjánsson 2, Sindri Ólafsson 1, Michael Lauritsen 1. Varin skot: Viktor Gigov 13.

Of mörg mistök í lokin

Úrlistaleikur ÍBV og Hauka í bikarnum á laugardaginn var hin mesta skemmtun. Fyrir leikinn var búist við sannkölluðum draumaleik þessara bestu liða landsins í dag og þó að handboltinn hafi ekki verið á- ferðarfallegur var spennan mikil og réðust úrslitin ekki fyrr en á lokasekúndunum. Haukar sigruðu í leiknum með einu marki, 22 - 23 og stöðvuðu þar með sigurgöngu ÍBV í bikarkeppninni sem hafði staðið frá árinu 2000. Leikurinn var jafn og spennandi allan tímann en staðan í hálfleik var 11 - 10 fyrir ÍBV. Seinni hálfleikur einkenndist svo af klaufaskap ÍBV, á upphafsmínútunni fékk liðið gott tækifæri til að auka muninn en tveimur leikmönnum færri tókst Haukum að jafna metin. Haukar náðu svo undirtökunum en í síðasta fjórðungi leiksins áttu liðin í mestum vandræðum með að skora. Elísa Sigurðardóttir jafnaði metin, 20 - 20 þegar tæpar fimmtán mínútur voru eftir en Haukar svöruðu með tveimur mörkum. ÍBV misnotaði átta sóknir í röð og á tíu mínútna kafla skoraði liðið ekki mark. Það gekk hreinlega allt á móti ÍBV, leikmenn misstu boltann klaufalega frá sér, skutu í stöng, létu verja víti og það var svo ekki fyrr en þegar tæpar tvær mínútur voru eftir að Sylviu Strass tókst loks að finna réttu leiðina í gegnum vörn Hauka. Síðustu sekúndur leiksins minntu óneitanlega mikið á úrslitaleik liðanna 2001 þegar ÍBV jafnaði á síðustu sekúndunum úr víti. Það virtist allt stefna í að ÍBV fengi tækifæri á að jafna því þegar aðeins fimmtán sekúndur voru eftir fékk liðið boltann í stöðunni 22-23. En vitlaus skipting undir lokin gerði það að verkum að boltinn var dæmdur af ÍBV og Haukar héldu honum út leiktímann. Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 7/3, Sylvia Strass 7, Anna Yakova 5, Elísa Sigurðardóttir 2, Birgit Engl 1. Varin skot: Vigdfs Sigurðardóttir 14/2.

Sá erfiðasti sem ég hef spilað

Ingibjörg Jónsdóttir var í strangri gæslu allan tímann og náði ekki að skora mark enda lögðu Haukar allt kapp á að loka á það. Hún sagði í samtali við Fréttir að þessi leikur væri án efa sá erfiðasti sem hún hefði spilað. „Þetta var ótrúlega erfitt. Það munaði nánast aldrei meira en 1 til 2 mörkum á liðunum og við náðum aldrei að nýta þau tækifæri sem við fengum til að auka muninn. Ég er á því að spennustigið hjá okkur hafi einfaldlega verið of hátt, við gerðum okkur grein fyrir því að það gæti gerst en við náðum aldrei að vinna okkur út úr því. Nú þurfum við bara að koma þessum leik frá okkur, baráttan í deildinni heldur áfram og þar er titill í boði."

 Haukarnir hungraðri

Eins og áður hefur komið fram gekk ekki lítið á undir lok leiksins. Unnur Sigmarsdóttir fór ekki varhluta af því en þegar hún reyndi að stöðva Birgit Engl fór puttinn úr liði og Birgit slapp inn á völlinn. Unnur sagði í samtali við Fréttir að Haukaliðið hefði einfaldlega verið hungraðra í titilinn. „Mér fannst undirbúningurinn fyrir leikinn vera góður, svipaður og þegar við lékum gegn Stjörnunni í undanúrslitum. En spennustigið var of hátt og stressið virtist bara aukast eftir því sem leið á leikinn. Ég sagði í hálfleik að við hlytum að vera búnar með mistökin enda gerðum við mikið af þeim í fyrri hálfleik en þau urðu líklega helmingi fleiri í seinni hálfleik. Við þurfum núna að leggja áherslu á að koma þessum leik frá okkur. Það er margt framundan og við verðum að standa saman. Við eyddum laugardagskvöldinu saman enda er þetta eins og ein stór fjölskylda og mikilvægt að vinna saman úr þessu. Svo var líka mikilvægt að fá svona góðar móttökur því það sýndi okkur að fólk stendur við bakið á liðinu í blíðu og stríðu."

Áttu ekki að missa boltann -Eða hvað?

Fróðir aðilar um reglur handboltans hafa eftir bikarúrslitaleikinn verið að velta því fyrir sér hvort ÍBV hefði í raun átt að missa boltann í lok leiksins. Reglurnar segja að ef um ólöglega skiptingu sé að ræða meðan leikur sé í gangi þá beri að vísa leikmanni þess liðs út af í tvær mínútur og liðið missir boltann. En ef leiktíminn er stóðvaður og ólögleg skipting á sér stað, þá er leikmanni vísað út af í tvær mínútur en liðið heldur boltanum.

Bragðdauft í Kaplakrika

Karlalið ÍBV lék gegn FH og fór leikurinn fram í Hafnarfirði. Úrslitin voru nánast ráðin um miðjan síðari hálfleik en lokatölur urðu 27 - 23. ÍBV byrjaði ágætlega og fyrri hálfleikur var jafn framan af. Liðin skiptust á að skora en um miðjan hálfleikinn sigu FH-ingar fram úr og náðu mest sex marka forystu en staðan í hálfleik var 14 - 9. Seinni hálfleikur fór svo illa af stað hjá ÍBV, Hafnfirðingar skoruðu fjögur mörk gegn einu marki ÍBV og náðu þar með átta marka forystu, 18 - 10. Undir lokin náðu Eyjapeyjar aðeins að klóra í bakkann og náðu muninum niður í fjögur mörk. En lengra komust þeir ekki og leikurinn endaði með fjögurra marka sigri Hafnfirðinga. Mörk ÍBV: Robert Bognar 9/5, Michael Lauritzen 3, Sindri Ólafsson 3, Erlingur Richardsson 2, Sigurður Bragason 2, Sigurður Ari Stefánsson 2, Kári Kristjánsson 1, Davíð Þór Óskarsson 1/1. Varin skot: Viktor Gigov 12/1

Heldur klaufalegt hjá Eyjamönnum

Karlalið ÍBV lék sinn fyrsta leik í deildarbikarnum í undir lok febrúar en liðið mætti Grindavík og fór leikurinn fram í Fífunni í Kópavogi. Bjarni Jóhannsson og lærisveinar hans í Grindavík eru taldir líklegir til árangurs í sumar. Gat Bjarni stillt upp sínu sterkasta liði sem Eyjamenn gátu hins vegar ekki, vantaði m.a. Bjarnólf Lárusson og Hjalta Jóhannesson sem veikti liðið óneitanlega. Þrátt fyrir það náðu strákarnir að standa í Suðurnesjaliðinu, sérstaklega í síðari hálfleik þegar liðið náði beittari sóknaraðgerðum. Grindvíkingar skoruðu hins vegar mörkin í leiknum og þau urðu tvö, sitt í hvorum hálfleiknum og endaði leikurinn því 0-2 fyrir Grindavík.

Góður sigur hjá 2. flokki

Eyjapeyjar áttu ekki í teljandi vandræðum með andstæðinga sína í ÍR að þessu sinni og sigruðu með átta mörkum, 24 - 32 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 11-18. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 7, Kárí Kristjánsson 7, Sindri Ólafsson 5, Sindri Haraldsson 4, Sigurður Ari Stefánsson 4, Sigþór Friðriksson 3, Grétar Eyþórsson 1, Sævald Hallgrímsson 1.

Kvennaliðið komið af stað

Það hefur farið frekar lítið fyrir kvennaliði ÍBV í knattspyrnu eftir síðasta sumar enda gekk mikið á þá. Nú er liðið hins vegar komið aftur af stað eftir vetrarfrí og spilaði liðið sína fyrstu æfingaleiki í lok febrúar. Fyrst var leikið í Fífunni gegn Breiðablik og sigraði ÍBV 5 - 4 og skoraði Olga Færseth þar sitt fyrsta ÍBV-mark. Seinni leikurinn var svo leikinn á Ásvöllum, gegn FH og þar sigraði ÍBV l-0.

MARS:

Ferðakostnaður að sliga íþróttahreyfinguna

Í upphafi mars birtist ítarleg grein um ferðakostnað íþróttahreyfingunar. En hreyfinginn hefur samgöngurnar við Eyjarnar á sjó voru ekki góðar og því þurfti ÍBV að mestu að treysta á flug. Eins og staðan er er ekki kvöldflug hjá Íslandsflugi þannig að flug með áætlunarflugi er ekki inni í myndinni. Flugfélag Vestmannaeyja hefur að mestu ferjað handboltalið til og frá Eyjum í vetur, bæði á Bakka og Selfoss auk þess sem lið hafa þurft að ferðast með Herjólfi. Magnús Bragason, formaður handknattleiksdeildar karla, sagði að ferðakostnaður hefði aukist undanfarin ár. „Ég hef verið í handknattleiksráði síðustu sjö ár og höfum við prófað ýmsar útgáfur til að komast í leiki á þeim árum. Fyrstu þrjú árin versluðum við eingöngu við Flugfélag Vestmannaeyja og borguðum við þá 4900 krónur á mann til Reykjavíkur. Árið eftir sömdum við svo við Flugfélag Íslands um að borga 5400 á mann en sá ferðamáti var þægilegri enda flogið með allan hópinn í einu á Fokker-vél. I fyrra snerum við svo aftur til Flugfélags Vestmannaeyja og verðið var svipað og áður en í vetur hefur flugmiðinn hækkað mikið. Núna er flug til Reykjavíkur með Flugfélagi Íslands í raun ekki valkostur þannig að við fljúgum til Selfoss og tökum rútu til Reykjavíkur. Slíkt ferðalag kostar um 10 þúsund fyrir manninn. Af þessu má sjá að ferðakostnaður hefur á skömmum tíma næstum tvöfaldast en það er rosalega stór biti fyrir deild sem er ekki með meiri veltu en við erum með." sagði Magnús. „Ég talaði við HSI fyrir veturinn og varaði þá við en þeir hlustuðu ekki. Núna bregður hins vegar Reykjavíkurfélögunum þegar þau um að borga 150 þúsund eða meira fyrir flugið hingað en flest lið eru líka með annan flokk þannig að kostnaðurinn er orðinn umtalsverður fyrir þau. Ég var á formannafundi á og þar var afgreidd áskorun til menningamálanefndar ríkisins varðandi þingsályktunartillöguna sem fjallar um ferðakostnað íþróttafélaga. Formenn annarra félaga tóku mjög vel í þetta og virðast núna vera að opna augun fyrir þessu vandamáli. Ef við eigum að leysa þetta á einhvern hátt sjálfir þá verður HSI að skipuleggja næsta Íslandsmót í samráði við okkur og Flugfélagið þannig að árekstrar verði sem minnstir."

Deildarbikarinn í augsýn

ÍBV mætti Val á Hlíðarenda en búist var við erfiðum leik hjá Eyjastelpum enda var þetta fyrsti leikur liðsins eftir bikarúrslitaleikinn. Hann sat í þeim til að byrja með en svo náðu þær að komast á strik og unnu Val sannfærandi, 16-23. Fyrri hálfleikur var jafn nánast allan tímann, ÍBV reyndar með undirtökin en liðin skiptust á að skora og staðan í hálfleik var jöfn, 9-9. Unnur Sigmarsdóttir hafði greinilega hitt naglann á höfuðið í hálfleiksmessu sinni því leikmenn ÍBV tóku öll völd á vellinum. Varnarleikur liðsins snarlagaðist, markvarslan fylgdi í kjölfarið og liðið náði hraðaupphlaupum. Jafnt og þétt jókst munurinn á liðunum og svo fór að ÍBV sigraði með sjö mörkum, 16-23. Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 6/4, Anna Yakova 6, Sylvia Strass 4, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Birgit Engl 2/1, Elísa Sigurðardóttir 1, Aníta Ýr Eyþórsdóttir 1, Anna Rós Hallgrímsdóttir 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 17/3

ÍBV lék annan leik sinn á tæpum sólarhring þegar stelpurnar tóku á móti botnliði Fram. ÍBV átti ekki í vandræðum með Fram og sirguðu með þrettán marka mun, 34-19. Deildarmeistaratitillinn virðist nú vera innan seilingar. Mörk ÍBV: Anna Yakova 7/1(8/1), Birgit Engl 6(9/1)), Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 5/1(6/1), Aníta Ýr Eyþórsdóttir 4(5), Alla Gorkorian 4/1(6/1), Ingibjörg Jónsdóttir 4(6), Björg Ó. Helgadóttir 1(2), Helle Hansen 1(5/1), Anna R. Hallgrímsdóttir (2). Varin skot: Vigdís 20/3

Fyrsti sigur ÍBV í deildarbikarnum

ÍBV mætti Víkingum í deildarbikar karla í knattspyrnu en leikurinn fór fram í Egilshöll. Liðin leika saman í B riðli en Víkingar höfðu sigrað í fyrsta leik sínum þegar þeir lögðu Valsmenn að velli. Eftir frekar jafnar fyrstu mínútur varð ÍBV fyrir áfalli. Þegar rétt um hálftími var búinn af leiknum fékk Hafþór Atli Rúnarsson að líta rauða spjaldið. Þrátt fyrir það hélst leikurinn í jafnvægi og staðan í hálfleik var 0-0. Um miðjan seinni hálfleikinn fór Bjarnólfur Lárusson einnig sömu leið og Hafþór og því voru Eyjamenn tveimur leikmönnum færri. En þrátt fyrir það skoruðu þeir sigurmarkið skömmu eftir það og var þar að verki Bjarni Rúnar Einarsson, sem lék í framlínunni með Gunnari Heiðari.

Jói og Maggi hætta

Einar styrkustu stoðir handknattleiksráðs karla undanfarin ár, þeir félagarnir Magnús Bragason og Jóhann Pétursson hafa ákveðið að draga sig í hlé eftir tímabilið. Jóhann sagði í samtali við Fréttir að þeir félagar væru búnir að standa lengi í þessum slag. „Við komum líklega ekki til með að hætta alveg afskiptum okkar af handboltanum og erum alveg tilbúnir að vera í bakvarðarsveit með nýju ráði. Þessi vinna hefur gefið manni mikið en eftir sjö ára samfellt starf þá er komin ákveðin þreyta í mann og við viljum í það minnsta minnka við okkur. Ég tel okkur vera að skila góðu búi enda hefur deildin verið rekin réttu megin við núllið allan tímann."

Langþráður útisigur

Karlalið ÍBV sótti Aftureldingu heim, en bæði lið voru í neðri hluta deildarinnar. Leikurinn fór frekar rólega af stað en um miðjan fyrri hálfleikinn fengu Eyjamenn að finna fyrir refsivendi dómaraparsins og voru lengst af leikmanni færri. Þetta nýttu heimamenn sér og náðu mest fjögurra marka forystu en leikmenn ÍBV náðu að minnka muninn niður í tvö mörk fyrir hlé. Eyjamenn mættu svo mjög ákveðnir til síðari hálfleiks og fljótlega náðu þeir góðum tökum á leiknum. Liðið spilaði fínan vamarleik á þessum kafla og þar fyrir aftan varði Viktor Gigov vel. ÍBV náði mest sex marka forystu en heimamenn náðu að klóra í bakkann undir lokin. Mörk ÍBV: Robert Bognar 7, Sigurður Ari Stefánsson 6, Michael Lauritzen 5, Davíð Þór Óskarsson 5/3, Sigurður Bragason 3, Kári Kristjánsson 2, Sigþór Friðriksson 1, Sindri Ólafsson 1. Varin skot: Viktor Gigov 19.

Góð ferð hjá öðrum flokki

Annar flokkur lék tvo leiki aðra helgina í mars, fyrst gegn HK og svo gegn Aftureldingu. ÍBV er í harðri baráttu um laust sæti í úrslitum og þurfti nauðsynlega á stigum að halda. Fyrri leikurinn var gegn HK og leiddi lið ÍBV með fimm mörkum í leikhléi voru svo ekki í vandræðum með að klára leikinn og sigurinn var nokkuð öruggur. Lokatölur urðu 20 - 26. Mörk ÍBV: Davíð Óskarsson 8/2, Sigurður Ari Stefánsson 7, Kári Kristjánsson 6, Sindri Haraldsson 2, Sindri Ólafsson 1, Sigþór Friðriksson 1, Jens Elíasson 1. Leikurinn gegn Aftureldingu á sunnudeginum var öllu meira spennandi en Mosfellingar eru í efri hluta deilarinnar. Ekki er hægt að segja að varnarleikur hafi verið í hávegum hafður í fyrri hálfleik því alls voru skoruð 35 mörk fyrir hlé og skoraði Afturelding l8en ÍBV 17. Seinni hálfleikur var svo öllu rólegri í markaskorun þó að spennan hafi haldist áfram. Svo fór að liðin skildu jöfn, 30-30 og er ÍBV því enn í baráttunni um laust sæti í úrslitum. Mörk ÍBV: Sigurður Ari Stefánsson 9, Davíð Þór Oskarsson 7/6, Sigþór Friðriksson 5, Sindri Haraldsson 4, Kári Kristjánsson 3, Sindri Ólafsson 2. Knattspyrna, deildarbikarinn: Fylkir 1 - ÍBV 0

Stóðu í bikarmeisturunum

Knattspyrnulið ÍBV lék í deildarbikarnum föstudaginn 7.mars gegn Fylki. Eyjamenn gátu ekki stillt upp sínu sterkasta liði en þrátt fyrir það var leikurinn í járnum. Lokatölur urðu 1-0 fyrir bikarmeistarana og er ÍBV því í næstneðsta sæti B-riðils með þrjú stig. Þá lék liðið einnig æfingaleik gegn Þrótti Reykjavík og fór sá leikur fram á laugardeginum. Bæði lið stilltu upp hálfgerðum varaliðum. ÍBV sigraði Þrótt með fjórum mörkum gegn einu og skoruðu þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Pétur Runólfsson tvö mörk hvor.

Tryggðu sér deildarbikarinn

Kvennalið ÍBV lék tvo leiki aðra helgina í mars og fóru þeir báðir fram á heimavelli. Til þess að tryggja sér sigur í deildinni þurfti ÍBV á fjórum stigum að halda. ÍBV vann báða leikina og tryggði sér þar með deildarmeistaratitilinn, þrátt fyrir að tvær umferðir séu eftir. Leikurinn gegn Gróttu/KR byrjaði ekki vel en smám saman náðu stelpurnar tökum á leiknum og staðan í hálfleik var 15 - 11. Munurinn hélt áfram að aukast eftir leikhlé, mestur varð hann m'u mörk, 27-18 en gestimir náðu aðeins að laga stöðuna í síðari hálfleik og lokatölur urðu 29-23. Mörk ÍBV: Anna Yakova 11/1, Alla Gorkorian 4/1, Sylvia Strass 4, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Ana Perez 3, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 3, Elísa Sigurðardóttir 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 15/1.

Leikur ÍBV gegn FH kom flestum á óvart enda var mótspyrna gestanna mun meiri en flestir áttu von á. Svo fór að þrátt fyrir að ÍBV hefði undirtókin lengst af þá voru Hafnfirðingar aldrei langt undan og lokamínúturnar voru nokkuð spennandi. Sigur hafðist þó að lokum og þar með náðu Eyjastúlkur langþráðu takmarki að tryggja sér deildarmeistaratitilinn. Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 9/1, Sylvia Strass 7, Alla Gorkorian 7, Anna Yakova 4, Ana Perez 1, Birgit Engll.

Fjölnismenn lagðir að velli

Þriðji flokkur karla gerði góða ferð í Grafarvoginn þegar liðið mætti Fjölnismönnum. Eyjapeyjar gerðu sér lítið fyrir og sigruðu með þremur mörkum en liðin sitja í sjötta og sjöunda sæti B riðils. Lokatölur urðu 23-26. Mörk ÍBV: Magnús Sigurðsson 6, Baldvin Sigurbjörnsson 4, Hilmar Björnsson 4, Benedikt Steingrímsson 4,Jens Elíasson 4, Sævald Hallgrímsson 4, Leifur Jóhannesson 4, Grétar Eyþórsson 4, Ingibjörn Jónsson 1, Guðni Ingvarsson 1.

Þrjár í U-21 árs landsliðinu

U-21 árs landsliðið leikur vináttuleik gegn Svíþjóð en ÍBV á þar þrjá fulltrúa. Þær Margrét Lára Viðarsdóttir, Lind Hrafnsdóttir og Rakel Rut Stefánsdóttir hafa allar verið valdar í átján manna hóp íslenska liðsins

Góðir sigrar hjá 2. flokki

Annar flokkur karla lék tvo leiki helgina 14- 16 mars gegn FH og Stjörnunni. Leikurinn gegn FH þótti nokkuð góður og hraður en ÍBV hafði þrátt fyrir það ávallt undirtökin. í hálfleik var staðan 18-14 fyrir ÍBV en leiknum lauk 31-27. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 10, Sigurður Ari Stefánsson 7, Sindri Ólafsson 5, Sindri Haraldsson 3, Kári Kristjánsson 3, Sigþór Friðriksson 1, Sævald Páll Hallgrímsson 1 og Eyjólfur Hannesson 1. Í seinni leiknum var aldrei spuming um hvort liðið færi með sigur af hólmi, ÍBV var mun sterkara liðið í leiknum og endaði hann með fimmtán marka sigri ÍBV, 40-25. Mörk ÍBV: Davíð Þór 10 Óskarsson, Sindri Ólafsson 8, Sigþór Friðriksson 7, Sindri Haraldsson 7, Jens Kristinn Elíasson 2, Sævald Páll Hallgrímsson 2, Baldvin Þór Sigurbjörnsson 1, Benedikt Óskar Steingrímsson 1, Magnús Sigurðsson 1, Sigurður Ari Stefánsson 1.

Handboltamessa

Handaboltafólk í kvenna- og karlaflokkum ÍBV fjölmennir til messu í Landakirkju sunnudaginn 23. mars og koma deildarmeistararnir okkar með bikarinn með sér til kirkju. Það eru bæði leikmenn og aðrir sem að handboltanum standa sem koma til kirkju. Tilgangurinn er að þakka allt það sem áunnist hefur og eiga saman góða stund í sóknarkirkjunni. Prestarnir hvetja því alla að koma fagnandi til kirkju og efla andann.

Naumt tap hjá 3ja flokki

Þriðji flokkur karla lék tók á móti Stjörnunni um miðjan mars. Þrátt fyrir að hafa verið yfir í hálfleik, 15- 14 töpuðu strákarnir með einu marki, 28-29. Þriðji flokkur er í sjötta sæti B-riðils en á inni nokkra leiki á hin liðin og gætu strákarnir fært sig upp töfluna með hagstæðari úrslitum. Mörk ÍBV: Vignir Svafarsson 7 mörk, Jens Kristinn Elíasson 5, Benedikt Óskar Steingrímsson 4, Baldvin Þór Sigurbjörnsson 3, Magnús Sigurðsson 3, Hilmar Bjönisson 2, Sævald Páll Hallgrímsson 2, Grétar Þór Eyþórsson, Leifur Jóhannessson 1.

ÍBV eignast bíla

Gengið hefur verið frá saminingum um að ÍBV fái full afnot af bifreiðum sem staðsettar verða á Bakka og Þorlákshöfn. Um er að ræða tvær 17 manna Ford Transit bifreiðar en það eru Vinnslustöðin og Ísfélagið sem hafa milligöngu um komu bifreiðanna.

Stóðu i bikarmeisturunum 20-24

ÍBV mætti í Víkina í leik sem ekki var að neinu að keppa. Fyrri hálfleikur var ekki vel leikinn af hálfu ÍBV, stelpurnar virtust ekki vera með hugann við verkefnið og lentu strax fjórum mörkum undir. Um miðjan hálfleikinn kom hins vegar ágætur leikkafli þar sem munurinn var komst niður í eitt mark, 9-8 en staðan í hálfleik var 11 -9 fyrir Víkinga. Fljótlega í seinni hálfleik fór ÍBV að ná sínum eðlilega leik fram. Eyjastúlkur skoruðu fyrstu þrjú mörk hálfleiksins og komust þar með yfir. Forystuna lét liðið svo ekki af hendi það sem eftir lifði leiks og sigraði með fjórum mörkum 20-24. Mörk ÍBV: Ana Perez 6/2, Anna Yakova 6, Alla Gorkorian 6, Sylvia Strass 2, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Birgit Engl I, Anna Rós Hallgrímsdóttir 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 16.

Tap gegn ÍR

ÍBV tók á móti ÍR þann 14. Mars í lítið spennandi leik. Það tók ÍBV tíu mínútur að komast í gegnum varnarmúr ÍR-inga en það varð liðinu til happs að strákarnir vörðust vel þannig að gestirnir höfðu aðeins skorað fjögur mörk. Hægt og rólega minnkaði svo munurinn og fékk ÍBV kjörið tækifæri á að jafna stöðuna í 8-8 en fór illa með gott færi. Í staðinn skoruðu ÍR-ingar tvö mörk og voru yfir í hálfleik 7-9. Seinni hálfleikur byrjaði á svipuðum nótum og sá fyrri endaði, liðin skiptust á að skora en ÍR-ingar voru ávallt yfir. Um miðjan hálfleikinn fór leikmönnum að fækka ískyggilega en dómaraparið var duglegt að senda Eyjamenn í kælingu. Þetta fór í taugarnar á leikmönnum sem fengu í ofanálag réttar tveggja mínútna brottvísanir fyrir pirringinn og samtals voru leikmenn í tuttugu mínútur utan vallar en gestirnir aðeins í sex. ÍR-ingar nýttu sér þetta og áttu ekki í vandræðum með að tryggja sér sigurinn á lokamínútunum, 19-29. Mörk ÍB V: Davíð Þór Óskarsson 5/2, Sindri Ólafsson 3, Sigurður Bragason 3, Sigurður Ari Stefánsson 3, Erlingur Richardsson 2, Michael Lauritzen 2, Kári Kristjánsson 1. Varin skot: Viktor Gigov 12.

Hrópleg mismun un á löggæslukostnaði

ÍBV-íþróttafélag hefur sent dómsmálaráðherra bréf þar sem farið er fram á sem gleggstar upplýsingar um löggæslukostnað og annað sem snýr að þjóðhátíð. „Við hjá ÍBV-íþróttafélagi erum mjög óánægðir með það ójafnrétti sem á sér stað varðandi löggæslukostnað á útihátíðum um verslunarmannahelgi. Þannig þurfa stórar hátíðir eins og Kántríhátíðin á Skagaströnd, Neistaflug á Neskaukstað og Síldarævintýrið á Siglufirði ekki að greiða löggæslukostnað en eru í beinni samkeppni við Þjóðhátíð Vestmannaeyja sem þarf að greiða milljónir ár hvert. Þá er ógetið stórra hátíða eins og Menningarnætur í Reykjavík og Landsmóts hestamanna sem greiða engan löggæslukostnað," segir í bréfinu. Gerð er sú krafa að þjóðhátíðin sitji við sama borð og aðrar útihátíðir hvað varðar löggæslukostnað. „Við óskum eftir skýrum svörum við því hvernig búast megi við að löggæslukostnaður verði innheimtur á næstu þjóðhátíð og hvað megi búast við mikilli endurgreiðslu frá hinu opinbera vegna sjóðs sem hefur að hluta greitt löggæslukostnað síðustu tvö ár," eru lokaorð bréfsins sem Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV-íþróttafélags skrifar undir.

Tryggvi loks í náðinni

Tryggvi Guðmundsson, knattspyrnumaður hjá Stabæk, var í lok mars óvænt valinn í landsliðshóp Íslands sem leikur gegn Skotum ytra um helgina. Tryggvi hefur ekki verið inni í myndinni hjá Atla Eðvaldssyni, þjálfara að undanförnu og var t.d. ekki valinn fyrir leikinn gegn Skotlandi á síðasta ári þrátt fyrir góða frammistöðu með liði sínu. Tryggvi kemur inn í hópinn fyrir Heiðar Helguson sem meiddist en í samtali við Fréttir sagðist Tryggvi gera sér grein fyrir stöðu sinni í hópnum. „Það er auðvitað alltaf gaman að vera valinn í íslenska landsliðið þó svo að ég hefði viljað vera í upprunalega hópnum. Maður leggur auðvitað saman tvo og tvo þannig að ég á frekar von á því að ég fái að njóta leiksins frá hliðarlínunni. Ég hef ekkert ennþá heyrt í Atla enda hringir hann ekki út í leikmenn þegar þeir eru valdir en ég held samt sem áður að staðan sé þessi."

Sigur gegn bikarmeisturunum

ÍBV og Haukar mættust í leik sem skipti engu máli. Þrátt fyrir það kom ekkert annað en sigur til greina hjá ÍBV enda höfðu Haukar unnið síðustu tvo leiki. Leikurinn fór reyndar ekki vel af stað fyrir ÍBV, gestirnir náðu strax þriggja marka forystu en innkoma Öllu Gorkorian, sem var á bekknum í byrjun, virkaði sem vítamínsprauta. Fljótlega komust heimastúlkur yfir og létu ekki af forystunni eftir það og staðan í hálfleik var 15-13. Seinni hálfleikur var kaflaskiptur til að byrja með, Haukar byrjuðu á að jafna en ÍBV náði aftur þriggja marka forystu en Haukar minnkuðu muninn niður í eitt mark 20-19. Það reyndist báðum liðum erfiður þröskuld að skora næsta mark, bæði fóru illa með góð færi og skoruðu ekki mark í rúmar fjórar mínútur. Sylvia Strass fékk svo tvöfalda tveggja mínútna brottvísun en þrátt fyrir það voru það leikmenn ÍBV sem fóru á kostum, skoruðu sjö mörk gegn aðeins tveimur mörkum gestanna undir lokin og sigruðu því 27 - 21. Ingibjörg Jónsdóttir, fyrirliði liðsins tók svo við deildarmeistarabikarnum í lok leiksins. Mörk ÍBV: Anna Yakova 9, Alla Gorkorian 8, Sylvia Strass 4, Ana Perez 1/1, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir I, Elísa Sigurðardóttir 1, Aníta Yr Eyþórsdóttir 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 6.

2. flokkur sigraði Víking

Annar flokkur karla lék í lok mars gegn Víkingum og fór leikurinn fram í Eyjum. Strákarnir voru ekki í vandræðum með gestina framan af og höfðu góð tök á leiknum í fyrri hálfleik. Eftir að hafa náð góðri forystu fyrir leikhlé, 22 - 14 slökuðu strákarnir fullmikið á og þegar rétt um tíu mínútur voru til leiksloka var munurinn kominn niður í tvö mörk. En þá settu strákarnir aftur í gír og sigruðu með fimm mörkum, 34 - 29. Mörk ÍBV: Sigurður Ari Stefánsson 10, Davíð Þór Óskarsson 9, Sindri Haraldsson 5, Sindri Ólafsson 4, Kári Kristjánsson 3, Sigþór Friðriksson 3, Sævald Hallgrímsson 2. Þriðji flokkur lék sömuleiðis gegn Víkingum en í þeim leik voru gestirnir sterkari. Reyndar vantaði nokkra leikmenn í lið ÍBV vegna veikinda en þeir sem eftir voru sýndu þó ágæta baráttu. Fyrri hálfleikur var í jafnvægi framan af en staðan í hálfleik var 12 - 16. I seinni hálfleik sigu svo gestirnir lengra framúr ÍBV og endaði leikurinn með tólf marka sigri Víkinga, 22-34. Mörk ÍBV: Sævald Hallgrímsson 11, Vignir Svafarsson 4, Jens Elíasson 2, Magnús Sigurðsson 2, Baldvin Sigurbjörnsson 1, Benedikt Steingrímsson 1, Ingibjörn Jónsson 1.

Stelpurnar töpuðu

Kvennalið ÍBV í fótboltanum lék í deildarbikarnum í lok mars en þær léku gegn Val og fór leikurinn fram í Reykjaneshöll. Alls voru skoruð sjö mörk í leiknum, þrjú þeirra skoraði ÍBV en Valsstúlkur fjögur og töldust þar með sigurvegarar. Nokkrir leikmenn ÍBV urðu fyrir meiðslum í leiknum og því varð að blása fyrirhugaðan æfingaleik af en hann átti að fara fram daginn eftir. Mörk ÍBV skoruðu þær Olga Færseth með tvö mörk og Margrét Lára Viðarsdóttir.

Skoskur landsliðsmaður til ÍBV

Kvennalið ÍBV er um þessar mundir að skoða skoskan leikmann að nafni Mhairi Gilmour. Sú mun eiga nokkra leiki með skoska landsliðinu að baki en Michelle Barr, núverandi leikmaður ÍBV spilar sömuleiðis með skoska liðinu en hún og Sigríður Ása Friðriksdóttir eru báðar komnar aftur í herbúðir ÍBV. Gilmour, sem er 23 ára, spilar úti á kanti eða í framlínunni og hefur verið að spila með Kilmamock í skosku deildinni. Hún mun væntanlega hitta ÍBV þegar liðið verður í Portúgal í æfingaferð í byrjun apríl.

Sigur á Val í deildarbikarnum

Karlalið ÍBV mætti Val í deildarbikarnum en leikurinn fór fram í Egilshöll. Þrátt fyrir frekar slakan fyrri hálfleik þá skoraði ÍBV undir lok fyrri hálfleiks og var þar að verki Gunnar Heiðar Þorvaldsson. Seinni hálfleikur var betri hjá leikmönnum ÍBV en fleiri urðu mörkin ekki og því sigraði ÍBV 1-0. Með sigrinum skaust liðið upp í fjórða sæti B-riðils efri deildar.

Draumurinn úti þetta árið

ÍBV lék sinn síðasta leik í vetur þegar liðið sótti KA heim. Eyjamenn héldu aðeins í KA framan af og skiptust liðin á að skora. Í sundur dró með þeim um miðjan fyrri hálfleikinn og náðu heimamenn fjögurra marka forystu áður en flautað var til leikhlés. Seinni hálfleikur var svo í svipuðum takti og sá fyrri endaði, heimamenn juku forystuna hægt og rólega og endaði leikurinn með átta marka sigri KA, 33-25. ÍBV lauk þar með tímabilinu, endaði í tíunda sæti, með jafn mörg stig og Stjarnan en hafði betur úr innbyrðis viðureignum og endaði því sæti ofar. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 7/2, Robert Bognar 6, Michael Lauritzen 4, Sigurður Bragason 4, Sigurður Ari Stefánsson 4. Varin skot: Viktor Gigov 16/1, Eyjólfur Hannesson 2.

Steingrímur snýr heim

Knattspyrnumaðurinn Steingrímur Jóhannesson skrifaði undir þriggja ára samning við ÍBV eftir að hafa dvalið hjá Fylki síðustu tvö tímabil.

Réttu megin við núllið

Reksturinn á handknattleiksliði hefur ávallt verið erfiður og hefur ástand samgangna við Eyjar ekki bætt úr skák fyrir þá sem koma að rekstri deildarinnar. Þeir hafa hins vegar haft það að leiðarljósi að skila deildinni réttu megin við núllið og hafa gert það undanfarin ár. I ár var farin sú leið að byggja upp á þeim strákum sem eru að koma upp úr öðrum flokki og fengu þeir mikla reynslu út úr vetrinum. Strákarnir ætla flestir að leika með liðinu næsta vetur þannig að reynslunni ríkari og með smá liðsstyrk ætti sól ÍBV að rísa á ný.

Stelpurnar komnar í undanúrslit

Kvennalið ÍBV er komið í undanúrslit Íslandsmótsins eftir að hafa lagt Fylki/IR nokkuð auðveldlega í tveimur leikjum en tvo sigurleiki þurfti til að komast áfram. Fyrri leikurinn var spilaður í Eyjum en gestirnir komu nokkuð á óvart á fyrstu mínútunum, tóku bæði Önnu Yakovu og Sylviu Strass úr umferð og fyrir vikið tók það leikmenn ÍBV smátíma að ná tókum á breyttum aðstæðum. Varnarleikur og markvarsla ÍBV var mjög slök í leiknum, sérstaklega í fyrri hálfleik. Engu að síður var ÍBV betra liðið og staðan í hálfleik var 13- 8. Í seinni hálfleik tóku leikmenn sig á, varnaleikurinn lagaðist og markvarslan í kjölfarið. ÍBV jók muninn örugglega og þegar upp var staðið munaði tólf mörkum á liðunum og lokatölur urðu 32-20. Mörk ÍBV: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 7, Alla Gorkorian 7/4, Anna Yakova 6, Sylvia Strass 5/1, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Elísa Sigurðardóttir 1, Björg Ó. Kelgadóttir 1, Edda Eggertsdóttir 1, Aníta Ýr Eyþórsdóttir 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 12/1.

Seinni leikur liðanna varð aldrei eins auðveldur og flestir áttu von á. ÍBV var í vandræðum í fyrri hálfleik, heimaliðið hélt áfram að taka tvo leikmenn ÍBV úr umferð. ÍBV lenti m.a. þremur mörkum undir í fyrri hálfleik, 10 - 7 en náði að snúa við taflinu fyrir leikhlé og var tveimur mörkum yfir í hálfleik, 11-13. Í seinni hálfleik jókst munurinn hins vegar og lyktaði leiknum með fimm marka sigri ÍBV, 28-23. Mörk ÍBV: Mörk ÍBV: Anna Yakova 9/1, Sylvia Strass 5/1, Birgit Engl 4, Edda Helgadóttir 2, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Edda Eggertsdóttir 2/1, Alla Gorkorian 2, Anna Hallgrímsdóttir 1, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 1. Varin skot. Vigdís Sigurðardóttir 15/1.

Verðum að styrkja liðið

Viktor Ragnarsson hefur tekið við formennsku handknattleiksráðs karla. Viktor staðfesti það í samtali við Fréttir að Erlingur Richardsson yrði áfram með liðið. „Við höfum rætt við Erling og hann er til. Þá höfum við líka rætt við Robert Bognar og hann verður mjög líklega með okkur á næsta ári en Viktor Gigov ekki. Sindri Ólafsson ætlar í skóla næsta vetur og óvíst er með Michael Lauritsen. Þar með vantar okkur örvhentan hornamann og ljóst að við verðum að styrkja leikmannahópinn eitthvað fyrir næsta tímabil. Við erum bara að þreifa fyrir okkur með þau mál en eins og staðan er núna er ekkert fast í hendi."

Skotarnir einfaldlega betri

Atli Jóhannsson og Gunnar Heiðar Þorvaldsson voru báðir í íslenska U- 21 landsliðinu sem lék á föstudagskvöldið gegn Skotum. Leikurinn endaði með eins marks sigri Skotanna en Gunnar Heiðar sagði í samtali við Fréttir að Skotarnir hefðu verið miklu betri. „Þetta var nánast bara eltingaleikur hjá okkur, Skotarnir tefla fram mjög öflugu liði með menn sem eru hjá liðum eins og Manchester United og Newcastle og hafa verið að spila á fullu í allan vetur. Við erum hins vegar flestir rétt að komast í form og fengum góða úthaldsæfmgu í að hlaupa á eftir þeim."

ÆI A-leiknum voru tveir Eyjamenn í hópnum en bæði Tryggvi Guðmundsson og Birkir Kristinsson byrjuðu á bekknum. Tryggvi fékk svo tækifæri þegar fímm mínútur voru eftir, skipti þá við Eið Smára.

Stórsigur

ÍBV lék gegn Haukum í deildarbikarnum þann 23. mars. Eyjapeyjar sýndu Hafnfirðingum enga miskunn, með Steingrím Jóhannesson í byrjunarliðinu en hann skoraði fímm mörk í leiknum. Lokatölur 5-0.

Fyrstir að sigra KA

Í lok mars mættu strákarnir í öðrum flokki karla KA á útivelli en norðanmenn hafa undanfarin ár verið með eitt sterkasta liðið í þessum aldursflokki og höfðu fyrir leikinn ekki tapað leik í vetur og sátu efstir í deildinni. Eyjapeyjar létu það ekki slá sig út af laginu og sigruðu nokkuð óvænt með einu marki 27-28 eftir að hafa verið undir í hálfleik 14-13. Þar með hefur ÍBV tryggt sér sæti í átta liða úrslitum, liðið situr eins og er í sjötta sæti og á enn möguleika á fjórða sætinu. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 11, Sigurður Ari Stefánsson 10, Jens Elíasson 3, Sindri Haraldsson 2, Sigþór Friðriksson 2.

Sigur gegn Stjörnunni

Kvennalið ÍBV lék gegn Stjörnunni í deildarbikarnum í lok mars og fór leikurinn fram í Fífunni. ÍBV byrjaði vel í leiknum því eftir aðeins ellefu mínútna leik var staðan orðin 2 - 0 fyrir ÍBV. Ekki voru skoruð fleiri mörk í fyrri hálfleik en Garðbæingar virtust ætla að endurtaka leik ÍBV í upphafi síðari hálfleiks því strax á fyrstu mínútu minnkuðu þær muninn. Lengra komust þær hins vegar ekki og Eyjastúlkur innsigluðu sigur sinn skömmu fyrir leikslok og lokatölur því 3-l. Mörk ÍBV skoruðu þær Margrét Lára Viðarsdóttir 2 og Sara Sigurlásdóttir.

APRÍL:

Aðalfundur ÍBV

Á aðalfundi ÍBV sem fram haldin var 9. apríl kom fram að skuldir félagsins lækkuðu verulega á síðasta ári. Fjallað var um málefni Félagsheimilis og samræmingu á barnastarfi í Eyjum. Páll Scheving, framkvæmdastjóri, segir lækkun skulda fyrst og fremst helgast af góðri afkomu á þjóðhátfð, fjáröflunum félagsins og aðhaldssemi í rekstri. Töluverð umræða var á fundinum um yfirtöku félagsins á starfsemi Félagsheimilisins við Heiðarveg en samningur þess efnis var gerður fyrir tæpu ári. Ljóst er að ágreiningur er um hvort rekstur Félagsheimilisins og ÍBV fer saman. Málinu var vísað til aðalstjórnar til frekari umfjöllunar. „Menn ræddu samninga og stuðning fyrirtækja við einstakar deildir ÍBV og samræmingu á barnastarfi í Vestmannaeyjum. Þar er átt við að starfsemi ÍBV skarist ekki við æfingar hjá öðrum íþróttafélögum, kirkjunni, skólunum og öðru æskulýðsstarfi," sagði Páll. Stjórn ÍBV var endurkjörin á fundinum en hana skipa: Óskar Freyr Brynjarsson, formaður, Stefanía Guðjónsdóttir, Smári Jökull Jónsson og Tryggvi Sæmundsson.

Voru 28 tíma a leiðinni

Karla og kvennalið ÍBV í knattspyrnu héldu í æfingaferðir í byrjun apríl, karlaliðið til Spánar og kvennaliðið til Portúgals. Ekki er hins vegar langt á milli liðanna sem eru stutt frá landamærunum og karlaliðið mun leika gegn íslenskum félagsliðum sem eru á sama stað og kvennaliðið og tekur aðeins nokkrar mínútur að keyra á milli landanna. Byrjunin var hins vegar ekki gæfuleg en öll liðin og íslenskir dómarar sem sjá um dómgæslu í Canela Cup voru komin um borð í þotuna en þá vildi ekki betur til en að vélin var biluð. Máttu liðin sitja í þrjá tíma í vélinni áður en þeim var hleypt aftur inn í flugstöðina. Þar dvöldu þau í tæpa tíu tíma og var þá komið í aðrar vélar og komust þau loksins út rúmum hálfum sólarhring á eftir áætlun. Í stað þess að fljúga á fyrirhugaðan áætlunarstað var flogið með hópinn til Lissabon og keyrt þaðan með rútu yfir landamærin sem tók eina átta tíma og var því ferðalagið góður sólarhringur. Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, sagði í samtali við Fréttir að það hefði verið slæmt að tapa þessum tíma í jafn stuttri ferð. „Jú, vissulega setur þetta allt á annan endann í skipulagningu og ferðin missir að nokkru leyti marks. Það var ekki bara að við þyrftum að bíða eftir vélinni á Íslandi heldur tók við rútuferð þegar við komum út og við vorum ekki komnir á hótel fyrr en um hádegi á sunnudeginum eftir 28 tfma ferðalag. Enda bar leikurinn gegn Fylki þess merki, menn voru þreyttir, eins og reyndar Fylkismenn líka en ég varð einfaldlega að skipta öllum út af. Annars eru aðstæður hérna frábærar, veðrið gott og vellirnir líka."  Næst lék ÍBV gegn Aftureldingu. ÍBV var ekki í teljandi vandræðum með Mosfellinga og urðu lokatölur 3-0. Mörk ÍBV skoruðu þeir Pétur Runólfsson, Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Bjarni Rúnar Einarsson. Þá var ljóst að ÍBV myndi leika um fimmta sætið í mótinu og þar mætti ÍBV FH. Leikurinn var jafn og spennandi en Steingrímur Jóhannesson tryggði ÍBV sigurinn þegar hann skoraði eina mark leiksins. ÍBV tapaði þar með aðeins einum leik í mótinu, gegn Fylki þannig að liðið virðist vera á réttri leið fyrir átökin í sumar.

Kvennalið ÍBV er í Portúgal en það er aðeins um fimmtán mínútna keyrsla til Canela þar sem karlaliðið dvelur. ÍBV lék þrjá æfingaleiki, tvo gegn FH og svo gegn spænsku liði í Sevilla. A-lið ÍBV sigraði FH 7-1 og þar skoruðu Olga Færseth 3, Margrét Lára Viðarsdóttir 2 og nýjasti leikmaður liðsins, Skotinn Mhairi Gilmour 2 mörk. Næst lék B-lið ÍBV við FH og tapaðist sá leikur 2-3 en mörk ÍBV skoruðu þær Thelma Sigurðardóttir og Erla S. Sigurðardóttir. Síðasti leikur liðsins var svo gegn spænska úrvalsdeildarliðinu Deportivo Hispalis og vann ÍBV þann leik 6-1. Þar skoruðu Gilmour 2, Margrét Lára 2, Thelma og Sara Sigurlásdóttir eitt hvor. Heimir Hallgrímsson sagði að hann væri þokkalega sáttur við æfingaferðina. „Ég er alveg þokkalega sáttur við þessa ferð og kannski það eina sem mætti finna að henni var að ég hefði viljað mæta sterkari andstæðingum en við gerðum, leikirnir voru kannski aðeins of auðveldir fyrir A liðið."

Tapaði tveimur leikjum

Þriðji flokkur karla lék laugardaginn 5. apríl tvo leiki. Fyrst var leikið gegn Aftureldingu og svo gegn Stjörnunni og töpuðust báðir leikirnir. Fyrri leikurinn gegn Aftureldingu fór vel af stað fyrir ÍBV þar sem Afturelding hafði aðeins tapað einum leik fram að því. Staðan í hálfleik var 13 - 13 og allt útlit fyrir spennandi leik. Þorgils Jónsson var að verja vel í marki ÍBV en hann kom ekki í veg fyrir að ÍBV tapaði leiknum og urðu lokatölur 34 - 25 fyrir heimaliðið. Mörk ÍBV: Vignir Svafarsson 7, Benedikt Steingrímsson 5, Jens Elíasson 3, Leifur Jóhannesson 3, Grétar Eyþórsson 3, Baldvin Þór Sigurbjömsson 2, Magnús Sigurðsson 1 og Hilmar Bjömsson 1. Leikurinn gegn Stjömunni var á svipuðum nótum og fyrri leikurinn. Fyrri hálfleikur var jafn og staðan þegar liðin gengu til búningsherbergja í hálfleik, 12- 11. Seinni hálfleikur var svo ekki eins góður hjá ÍBV og urðu lokatölur leiksins 35 -25. Mörk ÍBV: Jens Elíasson 6, Grétar Eyþórsson 5, Magnús Sigurðsson 4, Baldvin Sigurbjömsson 3, Sævald Páll Hallgrímsson 2, Benedikt Steingrímsson 2, Leifur Jóhannesson 2, Einar Páll Pálsson 1.

Létt hjá unglingaflokki

Unglingaflokkur í handbolta lék gegn Aftureldingu en gestirnir era neðstir í B-riðli með ekkert stig á meðan ÍBV er í efsta sæti. Styrkleikamunurinn á liðunum er mikill og kom hann skýrt fram í leiknum þar sem í hálfleik var staðan orðin 20 - 5 fyrir ÍBV. Seinni hálfleikur var svo svipaður og þeim fyrri og endaði leikurinn með 26 marka sigri ÍBV, 38-12. ÍBV er í öðru sæti B-riðils með átján stig og komst þar með í úrslit íslandsmótsins. Mörk ÍBV: Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 11, Hildur D. Jónsdóttir 6, Ester Óskarsdóttir 6, Aníta Ýr Eyþórsdóttir 5, Björg Ó. Helgadóttir 4, Sæunn Magnúsdóttir 3, Viktoría Guðmundsdóttir 1, Hildur Bjarkardóttir 1, Þórunn Sigurðardóttir l.

Andri í U-19 ára landsliðið

Andri Ólafsson, knattspymumaðurinn efnilegi úr ÍBV, hefur verið valinn í U-19 ára landsliðið sem mun leika tvo æfingaleiki gegn Skotum, í Skotlandi dagana 22. og 24 apríl. Andri, sem er á átjánda ári, hefur spilað með U-17 ára liðinu að undanfömu en þetta er í fyrsta sinn sem hann er valinn í U-19 ára landsliðið.

ÍBV í úrslitin

ÍBV lék í undanúrslitum gegn Val en tvo sigra þurfti til þess að komast í sjálfa úrslitaleikina. Fyrri leikur liðanna fór framí Eyjum en hann var nokkuð jafn til að byrja með en smám saman tókst leikmönnum ÍBV að ná undirtökunum og í hálfleik var staðan ll:8 fyrir ÍBV. Í seinni hálfleik var sett í annan gír og ÍBV hreinlega valtaði yfir andstæðinga sína. Lokatölur leiksins urðu 27-17 og af leiknum að dæma var erfitt að sjá að Valur ætti möguleika gegn ÍBV. Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 11/1, Anna Yakova 9/1, Birgit Engl 2, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Edda Eggertsdóttir 1, Björg 0. Helgadóttir 1, Sylvia Strass 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 18/1

Seinni leikurinn þróaðist á svipaðan hátt og sá fyrri, jafnt til að byrja með en svo seig ÍBV fram úr. Staðan í hálfleik var 15-8 fyrir ÍBV og úrslitin nánast ráðin. Engu að síður héldu stelpurnar áfram og náðu mest tíu marka forystu. En undir lokin var kæruleysi komið upp hjá leikmönnum ÍBV enda úrslitin ráðin. Valsstúlkur náðu að minnka muninn niður í fimm mörk og lokatölur urðu 27-22. Þar með er ÍBV komið í úrslit íslandsmótsins eftir að hafa komist í gegnum úrslitakeppnina án þess að tapa leik. Mörk ÍBV: Ingibjörg Jónsdóttir 6, Sylvia Strass 6, Alla Gorkorian 5, Anna Yakova 4, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Birgit Engl 2, Anna Rós Hallgrímsdóttir 1, Björg Olöf Helgadóttir 1. Varin skot: Vigdís 17/2.

Sigur á KR

Kvennalið ÍBV lék gegn KR í deildarbikarkeppninni. Leikur liðanna fór fram í Reykjaneshöll og var mjög spennandi. Olga Færseth kom ÍBV í 1-0 í fyrri hálfleik og var það hálfleiksstaðan. KR-ingar jöfnuðu svo fljótlega í síðari hálfleik en Margrét Lára Viðarsdóttir kom ÍBV aftur yfir. ÍBV fékk svo vítaspyrnu sem nýttist ekki en KR-ingar misstu leikmann útaf þegar vítið var dæmt og lék ÍBV því einum leikmanni fleiri. Leikmönnum ÍBV tókst að halda forystunni og sigruðu því 2-1.

Enn gengur Atli framhjá Tryggva

Atli Eðvaldsson, landsliðsþjálfari valdi leikmannahóp íslenska landsliðsins sem mun leika vináttuleik gegn Finnum í Finnlandi 30. apríl. Birkir Kristinsson er á sínum stað og Hermann Hreiðarsson kemur aftur inn í hópinn eftir meiðsli en enn á ný gengur landsliðsþjálfarinn framhjá Tryggva Guðmundssyni. Tryggvi var kallaður óvænt inn í hópinn fyrir leikinn gegn Skotlandi á dögunum og spilaði síðustu fimm mínútur leiksins en hefur nú á ný misst sæti sitt.

Fjórði flokkur átti misjöfnu gengi að fagna

Fjórði flokkur kvenna í knattspyrnu lék í Faxaflóamótinu um miðjan apríl. Fyrst var leikið gegn Haukum og léku bæði A- og B-lið. Bæði lið töpuðu, A-liðið 0-4 og B 2-4. Síðar sama dag lék liðið svo gegn HK þar gerði A-liðið 4-4 jafntefli en B-liðið vann 9-0. Daginn eftir lék ÍBV svo gegn ÍA og fóru leikurinn fram á Skaganum. A-liðið tapaði 3-0, B-liðið vann sinn leik 2-10 og C-liðið vann einnig 2-5.

Frans á úrtaksæfingar

Frans Friðriksson hefur verið valinn til þess að taka þátt í úrtaksæfingum U-15 ára landsliðs íslands. Æfingarnar fara fram dagana 26. til 27. apríl í Reykjaneshöll og í Fífunni en í hópnum eru 32 leikmenn.

Gekk vel

Þórsteina Sigurbjörnsdóttir, handknattsleikskona úr ÍBV var með U-20 ára landsliði íslands í handknattleik í Júgóslavíu en þar lék liðið í undankeppni HM. Íslenska liðið tapaði öllum leikjunum en Þórsteina var í byrjunarliðinu í fyrstu tveimur leikjunum. „Mér gekk ágætlega, þrátt fyrir að við töpuðum leikjunum. Þetta var spennandi ferðalag, keppnishallirnar voru mjög fínar en umhverfið jaðraði við að vera sóðalegt." sagði Þórsteina.

Fékk keppnisleyfí

Nú hefur KSÍ gengið frá leyfisveitingum fyrir þau lið sem leika í úrvalsdeildinni í sumar. Öll liðin fengu keppnisleyfi en samkvæmt nýjum og hertari reglum dugir liðum ekki að vinna sér inn rétt til keppni í efstu deild heldur þarf rekstrargrundvöllur og umgjörð félaganna að vera í lagi.

Í byrjunarliðinu

U-19 ára landslið íslands lék þann 22.apríl gegn jafnöldrum sínum í Skotlandi en leikurinn fór fram ytra. Andri Ólafsson, leikmaður ÍBV var í byrjunarliðiði íslenska liðsins sem fór með sigur, 2-1 en markalaust var í hálfleik.

Margrét Lára á úrtaksæfingar

Margrét Lára Viðarsdóttir, knattspyrnukona úr ÍBV, hefur verið valin til þess að taka þátt í úrtaksæfingum U-17 ára landsliðs Íslands en æfingarnar fara fram um fyrstu helgina í maí.

Stórsigur í furðulegum leik

Karlalið ÍBV í knattspyrnu lék gegn FH í deildarbikarnum en þjálfarar beggja liða höfðu komið sér saman um að fresta leiknum þar sem bæði lið voru að koma úr erfiðri æfingaferð. KSÍ samþykkti það hins vegar ekki en þar sem búið var að gefa meistaraflokksleikmönnum liðanna frí var ákveðið að tefla fram öðrum flokki. Magnúsi Gylfasyni, þjálfara ÍBV gekk hins vegar illa að ná í lið þar sem ófært var milli lands og Eyja og því urðu nokkrir meistaraflokksleikmenn í liðinu. Eftir hálftíma leik var staðan orðin 4 - 0 fyrir ÍBV en leiknum lyktaði svo með sjö marka sigri ÍBV 7-0. Magnús hefur greinilega notað tækifærið til þess að skoða ýmsa möguleika, þannig setti hann Birki Kristinsson í fremstu víglínu síðustu mínúturnar auk þess sem Sveinn Sveinsson, aðstoðarþjálfari liðsins, spilaði einnig í síðari hálfleik. FH-ingar voru ekki ánægðir með þetta, töldu að ÍBV hefði ekki staðið við sitt að mæta með 2. flokk í leikinn að því er kemur fram í Morgunblaðinu.

Töpuðu gegn Þrótti

ÍBV lék síðasta leik sinn í riðlakeppni deildarbikarsins en þá mætti liðið Þrótti og fór leikurinn fram á gervigrasinu í Laugardal. ÍBV hafði þegar tryggt sér sæti í átta liða úrslitum en Þróttarar þurftu nauðsynlega á sigri að halda. Heimamenn voru mun sterkari aðilinn í leiknum og sóttu meira í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Þrótt en þeir bættu einu marki við fyrir leikslok og sigruðu því 2-0.

Magnaðar lokasekúndur

ÍBV og Haukar léku sinn fyrsta leik á laugardaginn 26.apríl í úrslitum Íslandsmótsins í handbolta, en þrjá sigurleiki þarf til að tryggja sér titilinn. Leikurinn fór fram á heimavelli ÍBV þar sem liðið hafði tryggt sér heimaleikjaréttinn eftir deildarkeppnina. Leikurinn var vægast sagt mjög spennandi og mikil stemmning var á meðal sjö hundruð áhorfenda sem fylltu íþróttahöllina. Leikurinn fór ekki vel af stað fyrir ÍBV, liðið lenti fljótlega þremur mörkum undir, 1 -4 en stelpumar bitu í skjaldarrendur og náðu að jafna leikinn í 5-5. Eftir það skiptust liðin á að skora, Íslandsmeistarar Hauka höfðu samt sem áður undirtökin en Eyjaliðið var aldrei langt undan. Þegar skammt var eftir af fyrri hálfleik var staðan 11-13 fyrir gestina en ÍBV skoraði tvö síðustu mörkin fyrir leikhlé og staðan í hálfleik var 13-13. Seinni hálfleikur var svo í járnum framan af, ÍBV skoraði fyrsta markið en aftur náðu gestirnir undirtökunum og voru fyrri til að skora. En í stóðunni 19-20 hrökk lið ÍBV í gang og skoraði næstu fjögur mörk og lagði þar með grunninn að sigri sínum. Haukar reyndu að taka tvo leikmenn úr umferð undir lok leiksins en höfðu ekki erindi sem erfiði og ÍBV sigraði því með sex marka mun, 29-23. Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 8/2, Anna Yakova 8, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 4, Ana Perez 3/3, Sylvia Strass 3, Birgit Engl 2, Ingibjörg Jónsdóttir I. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 13.

Liðin mættust aftur nokkrum dögum síðar á Ásvöllum í æsispennandi leik. Fyrri hálfleikur var Eyjaliðinu erfiður, á tímabili var munurinn fjögur mörk, Haukum í vil en með mikilli baráttu tókst stelpunum að jafna fyrir leikhlé, 12-12. Seinni hálfleikur var betri af hálfu ÍBV og náðu þær forystunni en heimaliðið neitaði að gefast upp. ÍBV var með tveggja marka forystu undir lokin en Haukar jöfnuðu í 25-25 og svo 26-26 þegar aðeins 23 sekúndur voru eftir af leiktímanum. Unnur Sigmarsdóttir tók þá leikhlé og leikmenn réðu ráðum sínum. Síðasta sókn ÍBV gekk brösuglega enda leikmanni færri og þegar aðeins rúmar tvær sekúndur voru eftir fékk ÍBV aukakast. Leikmenn stilltu upp fyrir Öllu Gorkorian sem skoraði sigurmarkið um leið og leiktíminn rann út og lokatölur 26-27 fyrir ÍBV. Þar með er ÍBV komið með aðra höndina á Islandsmeistaratitilinn. Mörk ÍBV: Anna Yakova 8, Sylvia Strass 7, Alla Gorkorian 5, Ana Perez 3, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Edda Eggertsdóttir I, Birgit Engl I. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 15/2.

Fjölmennt og vel heppnað mót

Síðustu helgina í apríl fór fram í Eyjum síðasta fjölliðamót Íslandsmótsins í sjötta flokki karla í handbolta. Alls komu hingað um 600 manns í tengslum við mótið en auk þess fylgdi góður hópur af foreldrum þannig að þetta handboltamót er svipað að stærðargráðu og Vöruvalsmótið í fótbolta. Alls voru 49 lið skráð til leiks, frá 14 félögum og voru leiknir 128 leikir á þremur dögum. Páll Scheving, framkvæmdastjóri ÍBV, bar hitann og þungann af skipulagningu helgarinnar og hann sagði í samtali við Fréttir að allt hefði gengið eins og vel smurð vél. „Ég held að þetta hafi hreinlega gengið eins vel og mögulegt var og ég hef ekki heyrt annað en að allir séu ánægðir. Þetta er annað árið í röð sem við höldum svona fjölmenn mót, í fyrra vorum við með tvö en aðeins eitt í ár. Við reynum líka að gera þetta svolítið sérstakt, höfum sérstaka umgjörð í kringum úrslitaleikina þar sem allir leikmenn eru kynntir með öllu tilheyrandi. Svoleiðist þekkist ekki hjá öðrum félögum sem halda svona mót enda eru strákarnir með stjömur í augunum á meðan þessu stendur." En hvernig gekk að koma þessu heim og saman á aðeins þremur sólarhringum? „Við Eyjamenn erum auðvitað orðnir ótrúlega sjóaðir í svona mótahaldi og héma er mikil reynsla og þekking þegar kemur að svona vinnu. Við búum líka við það að hér býr duglegt fólk sem er tilbúið að hjálpa til. HSÍ hefur gefið það út að leyfilegt sé að vera aðeins með einn dómara á leik en við settum okkur það markmið að vera með tvo á hverjum einasta leik og það tókst. Við eram líka með frábæra aðstöðu héma í Eyjum, þrjá löglega handboltavelli í sama húsinu þannig að það eru ekki mörg félög í landinu sem geta haldið svona glæsileg mót."

Hjá A-liðum varð Afturelding íslandsmeistari en samanlagður árangur úr öllum fjölliðamótum vetrarins skar úr um það. Í B- og C-liðum urðu hins vegar Haukar Islandsmeistarar. ÍBV var að sjálfsögðu með þrjú lið í mótinu en þau unnu ekki til verðlauna að þessu sinni.

Tveir góðir sigrar hjá stelpunum

Kvennalið ÍBV í knattspyrnu lék tvo leiki í deildarbikamum í lok apríl. Fyrst lék liðið gegn Breiðabliki á laguardag en ÍBV hafði til þessa aldrei unnið Breiðablik í opinberu móti. Sú grýla var hins vegar kveðin í kútinn því ÍBV sigraði 5-3 eftir að hafa komist í 5- 1. Mörk ÍBV: Margrét Lára Viðarsdóttir 2, Olga Færseth, Íris Sæmundsdóttir og Mhairi Gilmour. Síðari leikurinn fór svo fram daginn eftir og þá var leikið gegn Þór/KA/KS. ÍBV var óvænt undir í hálfleik, 1 -2 en leikmönnuin liðsins tókst að snúa leiknum sér í hag í þeim síðari og ÍBV vann 4-2. Mörk ÍBV: Olga Færseth, Mhairi Gilmour, Thelma Sigurðardóttir og Svetlana Balinskaya. TværfráÍBV Það var ekki eintóm hamingja í herbúðum kvennaliðs ÍBV í knattspyrnu því þrátt fyrir tvo góða sigra í deilarbikarnum þá varð liðið fyrir áfalli um helgina. Pálína Bragadóttir, sem gekk í raðir ÍBV fyrr í vetur, meiddist í æfingaferð liðsins í Portúgal og um helgina kom í ljós að hún er með slitin krossbönd í hné og kemur þar af leiðandi ekki til með að leika með liðinu í sumar. Þá mun Elva D. Grímsdóuir ekki heldur leika með liðinu þar sem hún fylgir unnusta sínum, Birki Pálssyni, austur á land þar sem hann mun leika með Hugin í sumar en bæði Elva og Pálína hafa verið að leika vel á undirbúningstímabilinu

MAÍ:

Góður samningur við Ölgerðina

ÍBV náði á dögunum mjög góðum samningi við Olgerð Egils Skallagrímssonar og Óskar Freyr Brynjarsson sagði í samtali við Fréttir að þrátt fyrir góðan samning félagsins við Vífilfell komi nýi samningurinn til með að hjálpa mikið í rekstrinum. „Við náðum mjög góðum samningi við Ölgerðina sem kemur að öllu okkar starfi, Þjóðhátíð, Shell- og Vöruvalsmóti, knattspyrnu og handbolta og starfi yngri flokkana. Samningurinn við Vífilfell rennur út í sumar en við höfum átt mjög gott samstarf við þá. En við verðum að hafa í huga hvað þetta er viðamikill rekstur, fyrir utan þjóðhátíð, Shell- og Vöruvalsmót sendum við 25 flokka í íslandsmót í handbolta og fótbolta."

Yfirlýsing frá ÍBV- íþróttafélagi

Ágætu Eyjamenn og stuðningsmenn ÍBV. Árlega heldur ÍBV- íþróttafélag þjóðhátíð í Herjólfsdal. Gríðarlegur kostnaður er samfara þeim hátíðahöldum. Einn er sá kostnaðarliður sem við hjá ÍBV teljum mjög ósanngjarnan en það er kostnaður við löggæslu. Það skal tekið skýrt fram að ÍBV sér um gæslu á þjóðhátíð sem Björgunarfélag Vestmannaeyja hefur forgöngu um en löggæslan er því til viðbótar. Ekki er ólíklegt að löggæslukostnaður á Þjóðhátíð 2003 gæti verið um kr. 4.000.000.- Eins og staðan er í dag gæti ÍBV þurft að greiða þennan kostnað. Við hjá ÍBV höfum óskað eftir því frá stjórnmálaflokkum sem bjóða fram til alþingiskosninga 2003 að þeir standi með okkur í því baráttumáli að löggæslukostnaður falli ekki á ÍBV vegna þjóðhátíðar líkt og er t.d. með Menningarnótt Reykjavíkur, 17. júní skemmtun í Reykjavík, Neistaflug í Neskaupstað, Sfldarævintýri á Siglufirði o.fl. ÍBV hefur afhent stjórnmálafokkum yfirlýsingu þessa og óskað eftir skriflegu samþykki þeirra fyrir þessu sanngjarna baráttumáli ÍBV sem skiptir félagið gríðalega miklu máli. ÍBV mun fylgja þessu máli vel eftir og gera grein fyrir því opinberlega hvernig stjórnmálaflokkarnir taka á þessu sanngirnismáli nú fyrir kosningar og biðjum við ykkur ágætu Eyjamenn sem stuðningsmenn ÍBV að standa þétt við bakið á félaginu okkar

F.h. ÍBV-íþróttafélags: Að þessari yfírlýsingu standa allar deildir ÍBV-íþróttafélags ásamt aðalstjórn.

Besti árangur ÍBV frá upphafi

ÍBV tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn þegar liðið mætti Haukum í þriðja leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Sterkur varnarleikur einkenndi fyrstu mínútur leiksins og fyrsta markið kom ekki fyrr en eftir fimm mínútur og voru það gestirnir sem skoruðu. Haukar, líkt og í fyrstu viðureign liðanna í Eyjum, héldu forystunni framan af og virtust vera meira tilbúnar í slaginn en heimaliðið. Munurinn varð þó aldrei meira en tvö mörk og þegar flautað var til leikhlés höfðu Haukar betur með einu marki, 10:11. Sama var upp á teningnum í upphafi síðari hálfleiks og náðu gestirnir þriggja marka forystu í upphafi seinni hálfleiks. Þá kom Alla Gorkorian aftur til leiks en hún var tekin út af um miðjan fyrri hálfleik og var greinilega ekki sátt við það. Hún sýndi hversu mikilvæg hún er Eyjaliðinuá þessum kafla, átti glæsilegar sendingar þvert yfir völlinn í hraðaupphlaupum ÍBV, stal boltanum af Haukum og skoraði glæsileg mörk. Áður en hennar kafli var búinn var ÍBV komið yfir 16:15 og gríðarleg stemmning í húsinu. Nú tók við mikill darraðardans þar sem liðin skiptust á að ná forystu. Haukar komust tveimur mörkum yfir þegar fimm mínútur voru til leiksloka 18:20 og virtust hafa þetta í hendi sér. Eyjakonur skoruðu næstu tvö mörk leiksins og staðan var jöfn. Aftur fengu Haukar tækifæri á að komast yfir þegar rúmar tvær mínútur voru eftir. Þær náðu að galopna vörn ÍBV en Nína K. Björnsdóttir skaut í gólfið og hátt yfir úr dauðafæri. ÍBV-liðið brunaði fram og af miklu harðfylgi skoraði Birgit Engl tuttugasta og fyrsta mark ÍBV. Og allt ætlaði um koll að keyra á áhorfendabekkjunum í Eyjum. Haukaliðið hafði því einn möguleika enn og nú að knýja fram framlengingu en hrikaleg sending Nínu hafnaði beint í höndunum á Öllu Gorkorian sem brunaði fram ásamt samherjum sínum og skoraði svo sjálf tuttugasta og annað mark ÍBV sem jafnframt var lokamark Íslandsmótsin sþetta tímabilið. Gríðarleg fagnaðarlæti brutust út í húsinu.Það var enginn vafi hver var maður leiksins. Vigdís Sigurðardóttir átti sannkallaðan stórleik og er það ekki í fyrsta skiptið sem hún dregur vagninn þegar ÍBV er annars vegar, þrjú vítaköst varði hún og samtals 25 skot í leiknum. Mörk ÍBV: Alla Gorkorian 8/2, Ingibjörg Jónsdóttir 3, Birgit Engl 3, Sylvia Strass 3, Anna Yakova 3, Edda Eggertsdóttir 1, Ana Perez 1. Varin skot: Vigdís Sigurðardóttir 25/3

Mikil seigla

Unnur Sigmarssdóttir, þjálfari ÍBV, var að stýra liðinu í fyrsta sinn á þessum vetri og landaði hún tveimur titlum, þeim stóra og deildarmeistaratitlinum – hún var sátt í samtali við Morgunblaðið þegar stóri bikarinn var kominn í höfn. „Já, ég er mjög sátt við það, ég er með frábært lið í höndunum, við sýndum mikinn karakter og snerum leiknum algjörlega okkur í vil á réttum tímapunkti og kláruðum þetta bara.“ Unnur bætti því við að leikurinn hefði boðið upp á allt það sem góður handknattleiksleikur getur boðið upp á. „Þetta var mjög spennandi, hreinlega alveg frábær leikur og það er ekki hægt að bjóða fólki upp á meiri skemmtun en þetta, það er alveg á hreinu.“

Ingibjörg, Vigdís og Varði kveðja

I lok leiksins gáfu þær Ingibjörg Jónsdóttir og Vigdís Sigurðardóttir það út að þær hyggist báðar leggja skóna á hilluna. Það verður vissulega sjónarsviptir að þeim Ingibjörgu og Vigdísi enda hafa þær verið andlit ÍBV út á við, Ingibjörg sem fyrirliði liðsins og Vigdís leysti Ingibjörgu af í því hlutverki fyrir tveimur árum. Þá hefur Þorvarður Þorvaldsson, formaður deilarinnar, ákveðið að draga sig í hlé og gefa öðrum tækifæri á að spreyta sig á starfinu.

Leikið í deildarbikarnum

Karlalið ÍBV lék  gegn ÍA í átta liða úrslitum í deildarbikarnum. Skagamenn vom öllu beittari í leiknum og komust yfir strax á níundu mínútu þegar þeir skomðu úr víti. Það var svo ekki fyrr en þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir að Skagamenn bættu við öðru markinu. Eftir mikinn klaufagang við mark ÍBV náðu þeir að pota boltanum inn eftir að ÍBV hafði mistekist nokkrum sinnum að hreinsa frá marki.    

Kvennalið ÍBV lék í undanúrslitum en liðið mætti Breiðabliki og fór leikurinn fram í Fífunni. Byrjunin á leiknum var vægast sagt afleit hjá ÍBV, eftir fimmtán mínútna leik var staðan orðin 3-0 Blikum í vil. Ekki voru skoruð fleiri mörk í fyrri hálfleik en í þeim síðari komust Blikar í 4-0 áður en ÍBV minnkaði muninn. Lokatölur urðu 4-2 og skoruðu Olga Færseth og Mhairi Gilmour.

Yngri flokkarnir

Bæði annar og þriðji flokkur léku gegn HK og sigruðu báðir flokkar leikina. Annar flokkur karla sigraði með tuttugu marka mun, 35-15 eftir að staðan hafði verið 14-9 í hálfleik. Mörk ÍBV: Sigþór Friðriksson 8, Davíð Óskarsson 7, Kári Kristjánsson 6, Sigurður Ari Stefánsson 5, Guðni Ingvarsson 4, Sindri Haraldsson 3, Leifur Jóhannesson 3. Þriðji flokkur lék einnig gegn HK og sigruðu þeir sinn leik með einu marki, 22-21.

Sylvia og Birgit áfram

Í hófi sem bæjarstjórn Vestmannaeyja hélt til heiðurs Íslandsmeistumm ÍBV var greint frá því að austurrísku leikmennirnir í liðinu, þær Sylvia Strass og Birgit Engl, hafi ákveðið að leika með liðinu aftur á næsta ári. Þær stöllur skrifuðu báðar undir eins árs samning en fyrir höfðu forráðamenn ÍBV tryggt áframhaldandi þjónustu þeirra ÖIlu Gorkorian og Önnu Yakovu.

Karen Burke aftur í ÍBV

Enski landsliðsmaðurinn Karen Burke hefur ákveðið að leika aftur með ÍBV en hún kom fyrst til liðs við liðið árið 1998 en lék lítið með liðinu þá. Karen lék hins vegar bæði árið 1999 og árið 2000 en hefur ekki leikið með ÍBV síðan. Hún er 32 ára, sókndjarfur miðjumaður og hefur skorað 16 mörk í 21 leik með ÍBV.

Ensku strákarnir með ÍBV í sumar

Ensku Ieikmennimir sem ÍBV hefur verið að skoða undanfarna dag munu leika með ÍBV í sumar. Um er að ræða varnarmanninn Tom Betts og svo sókndjarfan miðjumann að nafni Ian Jeffs en báðir koma þeir frá enska 2. deildarliðinu Crewe Alexandra en liðið vann sér sæti í 1. deild á næstu leiktíð. Báðir eru leikmennirnir 21 árs.

Kári í landsliðshópinn

Kári Kristjánsson, handboltakappi úr ÍBV, hefur verið valinn í íslenska ungmennalandsliðið skipað leikmönnum fæddum 1984 og síðar.

Erum tilbúnir í slaginn

Eyjamenn réðu til sín nýjan þjálfara fyrir komandi átök en sá heitir Magnús Gylfason. Magnús segir í samtali við Fréttir að þrátt fyrir erfiðar aðstæður þá sé hann nokkuð sáttur við undirbúning liðsins? „Ég er mjög sáttur við undirbúninginn og tel að liðið sé á réttu róli fyrir fyrsta leik. Við höfum verið að fá menn inn í hópinn sem ég hef mikla trú á auk þess að vera með sterka einstaklinga fyrir í hópnum. Annars hefur þetta gengið vel og þótt við höfum verið í tveimur hópum, sem er nýtt fyrir mér, þá held ég að æfingaferðin til Spánar hafi hjálpað okkur mikið. Við spiluðum mikið í deildarbikamum eftir áramót þannig að þá fékk ég tækifæri á að kynnast Ieikmönnum og þeir mér." Er liðið klárt fyrir fyrsta leik? „Ég mundi segja að við séum að verða klárir í slaginn. Meiðsli hafa auðvitað sett eitthvert strik í reikninginn en það má búast við slíku þegar álagið eykst þannig að við erum bara á góðu róli." Nú hafa menn verið að spá um gengi ÍBV og flestir eru á því að liðið muni verða í neðri hluta deildarinnar, eigum við von á erfiðu sumri? „Ég held við getum verið sammála um að liðið sé ungt að árum og liðið lenti í basli á síðustu leiktíð. En ég vona að við séum búnir að styrkja hópinn nægilega til að við getum staðið okkur."

Ingibjörg og Bognar best

Það var mikið um dýrðir í Höllinni föstudagskvöldið 9. maí þegar ÍBV- íþróttafélag efndi til mikillar samkomu þar sem saman voru komnir forráðamenn félagsins, leikmenn, bæði handboltafólk og knattspyrnumenn auk fjölda stuðningsmanna, í allt um 250 manns. Hápunktur kvöldsins var svo uppgjör vetrarins í handboltanum þar sem stelpurnar í meistaraflokki stálu senunni með sína þrjá titla eftir veturinn. Þær eru meistar meistaranna 2002, deildarmeistarar 2003 og loks Íslandsmeistarar ársins 2003. Kvöldið var í alla staði hið glæsilegasta og umgjörðin eins og hún getur best orðið og á borðum voru dýrindis réttir. Mikið var um ræðuhöid þar sem mikið lof var borið á félagið, stjórnendur þess og ekki síst það mikla starf sem bæði keppendur og sjálfboðaliðar eru tilbúnir að leggja á sig. Unnur Sigmarsdóttir, þjálfari Kvennaliðs ÍBV, stiklaði á stóru í árangrí vetrarins. Þar kom fram að leikjafjöldi liðsins var í vetur 55; æfíngaleikir, bikarleikir, deildarleikir og úrslitakeppni. Þrír leikir töpuðust, tveir urðu jafntefli og 50 unnust, „og geri aðrir betur," sagði Unnur. Þá kom einnig fram að liðið hefði verið 318 klst. við æfíngar og 230 klst. hefðu farið í ferðalög, eða samtals 3,5 mánuðir miðað við átta stunda vinnudag. Ingibjörg Jónsdóttir var kjörin besti leikmaður íslandsmeistaranna, Robert Bognar var bestur hjá körlunum og Alla Gorgorian var markahæst. Eyjólfur Hannesson og Hildur Sólveig Sigurðardóttir voru valin efnilegustu leikmennirnir. Davíð Þór Óskarsson og Þórsteina Sigurbjörnsdóttir hlutu Fréttabikaranna.  

ÍBV í viðræðum við Eradze

Forráðamenn handknattleiksliðs karla eru komnir á fullt við undirbúning næsta tímabils en þegar hefur ráðið tryggt að leikstjórnandinn og Ungverjinn, Robert Bognar verði áfram með á næstu leiktíð. Þá mun landi hans vera í skoðun og miklar líkur á því að hann gangi til liðs við ÍBV. Þar er á ferð sterkur órvhentur leikmaður sem getur leikið bæði í homi og í skyttuhlutverki. Þá er ÍBV einnig í viðræðum við landsliðsmarkvörðinn Roland Eradze, sem lék með Valsmönnum í vetur. ÍBV var einnig í viðræðum við markverðina Jóhann Guðmundsson og Hörð Flóka Ólafsson.

Stórsigur hjá ÍBV

ÍBV og KFS áttust við í bryjun maí á Helgafellsvelli. Leikurinn var jafn framan af og mátti varla á milli liðanna sjá. En smám saman náðu leikmenn ÍBV undirtökunum og staðan í hálfleik var 2-l. Í seinni hálfleik kom hins vegar góður leikkafli hjá ÍBV sem skoraði fjögur mörk á stuttum tíma og botninn datt úr leiknum. Lokatölur urðu svo 6-1 fyrir ÍBV, ágætis æfíng fyrir komandi átök. Mörk ÍBV: Bjarni Rúnar Einarsson 4, Bjami Geir Viðarsson 1 og Pétur Runólfsson 1. Mark KFS: Magnús Steindórsson.

Stefnum á sigur í deild

Heimir Hallgrímsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV er með liðið í fjórða sinn á síðustu fimm árum. Blaðamaður Frétta hitti á Heimi stuttu fyrir fyrsta leik liðsins í árlegu spjalli blaðsins við þjálfara liðanna. Hvernig kom það til að þú ákvaðst að taka þetta að þér? „Staðan var mjög erfið hjá stelpunum eftir síðasta sumar, það var búið að leita mikið að þjálfara en enginn fékkst. Ég tók svo að mér að stýra liðinu í innanhúsmótinu og eftir það settumst við niður og ákváðum að ég héldi áfram. Liðið var komið í ákveðna kreppu og mér þykir einfaldlega of vænt um það til þess að sjá það fara niður í einhverja meðalmennsku." Varðandí undirbúningsvinnu fyrir tímabilið þá er ekki komið að tómum kofanum hjá Heimi enda hefur hann ávallt gert meira með kvennaliðinu en bara þjálfa, m.a. leitað að leikmönnum. Hvemig gekk þessi vinna í vetur? „Það gekk mjög vel. Ég hef staðið í þessum sporum áður og vissi nokkurn veginn hvað væri best að leggja áherslu á í vetur. Við kláruðum þau mál fyrst og höfum haft fyrir vikið flesta okkar leikmenn hér í Eyjum frá áramótum. Ég held að mér sé óhætt að fullyrða að aldrei áður hafi ég haft alla mína leikmenn hér heima fyrir fyrsta leik, hvað þá nánast allt undirbúningstímabilið. Við líðum hins vegar fyrir aðstöðuleysið og skort á peningum í vetur og spilum helmingi færri leiki en önnur lið á undirbúningstímabilinu fyrir vikið." Heimir heldur áfram og segir að um áramót hafi ÍBV staðið öðrum liðum langt að baki í undirbúningi. „Ég var í raun ekki ráðinn fyrr en í desember þannig að liðið var þjálfaralaust frá mótslokum í fyrra og fram að því. Við vorum langt á eftir en vonandi höfum við dregið á önnur lið í líkamlegu formi og leikæfíngu. Aðstæður eru líka þannig hérna að það er erfitt að ná fram á æfingu því sem þú ætlar þér því malarvöllurinn er einfaldlega ónýtur. En hver er stefnan fyrir sumarið? „Við ætlum okkur að ná langt í sumar og höfum sett stefnuna á sigur í deildinni. Við höfum fengið góðan liðsstyrk og möguleikarnir eru fyrir hendi. Hefðin er hins vegar ekki með okkur í þessu en einhvern tíma þarf að stíga fyrsta skrefið. Eg hef líka trú á því að deildin verði jafnari í ár en í fyrra. Efstu liðin eiga öll eftir að tapa stigum en það getur lfka unnið með okkur hve deildin er jöfn því það verður ekkert eitt lið sem stingur af."

Ótrúlegur klaufaskapur

ÍBV tók á móti KA í fyrstu umferð Landsbankadeildarinnar sunnudaginn 18. maí og fór leikurinn fram í frábæru veðri á Hásteinsvellinum. ÍBV var mun betra liðið í fyrri hálfleik og var nánast einstefna að marki KA. Eyjamenn virkuðu ferskir og allar sóknaraðgerðir þeirra voru lýstu hugmyndaflugi. Það var því í samræmi við gang leiksins að ÍBV komst í 2-0 en slysalegt mark KA undir lok fyrri hálfleiks hleypti þeim aftur inn í leikinn. Samt sem áður voru ekki margir á því að KA-menn ættu möguleika á sigri því yfirburðir ÍBV höfðu verið miklir í hálfleik. En seinni hálfleikur var hrein martröð fyrir hinn nýráðna þjálfara ÍBV, Magnús Gylfason. Hann þurfti að horfa upp á einn sinn leikreyndasta leikmann, Bjarnólf Lárusson, gera afdrifarík mistök þegar hann nældi sér í sitt annað gula spjald í leiknum. Spjaldið var kannski harður dómur í því tilviki en þegar leikmenn fá á sig gult spjald strax á þriðju mínútu verða þeir að hugsa sig tvisvar um áður en þeir fara í tæklingar en það gerði Bjarnólfur ekki. Fékk hann því rauða spjaldið og Eyjamenn orðnir tíu. Áður höfðu Eyjamenn skorað í eigið mark og eftirleikurinn var ÍBV erfiður þar sem drifmótor liðsins var farinn af velli. KA-menn skoruðu sigurmarkið þegar 25 mínútur voru eftir og héldu forystunni til loka. Mörk ÍBV skoraði Gunnar Heiðar Þorvaldsson.

Bestar í vörn og sókn

Lokahóf handknattleiksfólks fór fram á Broadway og var mikið um dýrðir. Eins og við var að búast var kvennalið ÍBV framarlega þegar kom að því að velja bestu leikmennina og fengu Eyjastúlkur þrenn verðlaun. Ingibjörg Jónsdóttir stóð uppi sem besti varnarmaður Essodeildarinnar og Sylvia Strass þótti sú besta í sókn en Vigdís Sigurðardóttir fékk háttvísisverðlaun dómarasambandsins. Það vakti nokkra athygli að sá þjálfari sem skilaði flestum titlum í hús á nýliðinni leiktíð var ekki á meðal þriggja bestu þjálfara leiktíðarinnar en þeir sem hafa fylgst með Eyjaliðinu í vetur vita vel framlag Unnar Sigmarsdóttur í vetur.

Ánægjuleg byrjun

ÍBV tók á móti Stjörnunni þriðjudagskvöldið 20. maí í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Leikurinn fór fjörlega af stað og ÍBV sótti stíft fyrstu mínúturnar. Eyjastúlkur uppskáru mark strax á þriðju mínútu en eftir það datt leikurinn aðeins niður, ÍBV var þó betri aðilinn og skömmu fyrir leikhlé juku leikmenn ÍBV við forustuna en þar voru á ferðinni Lind Hrafnsdóttir og Olga Færseth. Í seinni hálfleik voru það gestirnir sem voru með undirtökin án þess þó að ógna marki ÍBV að ráði. Undir lok leiksins settu Eyjastúlkur svo aftur í gír og Olga bætti við einu marki áður en yfir lauk og lokatölur urðu því 4-0.

Tveir nýir leikmenn til karlaliðsins

Forráðamenn karlaliðs ÍBV í handknattleik hafa unnið hörðum höndum að undanförnu að því að styrkja liðið fyrir næsta vetur. Tveir leikmenn skrifuðu undir samning við liðið um miðjan maí. Jóhann Guðmundsson, markvörður Selfoss, hefur ákveðið að leika með ÍBV í vetur en Jóhann varði flest skot í Essodeildinni í vetur, varði m.a. átta víti gegn ÍBV þegar liðin mættust á Selfossi. Þá samdi ÍBV við Imre Kiss, ungverskan leikmann sem leikur hægra megin bæði sem skytta og hornamaður. Kiss þykir nokkuð öflugur og varð m.a. fimmti markahæsti leikmaður ungversku deildarinnar í vetur.

Búið hjá 2. flokki

Annar flokkur karla í handboltanum lék sinn síðasta leik það sóttu Aftureldingu heim. Leikurinn var í átta liða úrslitum Íslandsmótsins en úrslitakeppnin fer þannig fram að liðið sem endaði ofar í deildinni fær heimaleik og þurfti aðeins einn sigur til að komast áfram. Leiknum lyktaði með sigri Mosfellinga, 29- 24 en staðan í hálfleik var 14-16 fyrir ÍBV.

Unnur ekki endurráðin

Þann 20. maí var gengið frá ráðningu Aðalsteins Reynis Eyjólfssonar sem þjálfara meistaraflokks kvenna í handknattleik. Aðalsteinn var þjálfari Gróttu/KR á síðasta tímabili en liðið endaði í sjöunda sæti deildarinnar og datt út í átta liða úrslitum. Aðalsteinn gerði hins vegar unglingaflokk félagsins að íslandsmeisturum og árið áður gerði hann sama aldursflokk að Íslandsmeisturum hjá Stjórnunni. Aðalsteinn mun einmitt sjá um bæði meistaraflokk og unglingaflokk.

ÍBV-íþróttafélag vill samstarf við bæinn

Bæjarráð tók fyrir á fundi sínum mánudag 29.maí bréf frá ÍBV-íþróttafélagi vegna sorphirðu í Herjólfsdal, haugsugu á þjóðhátíð sem og göngustíg. IBV hefur undanfarin ár fengið til Eyja haugsugu til notkunar á þjóðhátíð. Kemur fram í bréfi Páls Scheving Ingvarssonar, framkvæmdastjóra IBV, að það sé kostnaðarsamt þegar aðeins einn aðili stendur að kaupum á þjónustunni og til þess að draga úr kostnaði hefur félagið fengið til liðs við sig þá aðila sem þarfnast þessarar þjónustu, Flugmálastjórn, Vinnslustöðina og ísfélagið sem hafa nýtt sér tækið á meðan það hefur verið í Eyjum. Til að draga enn frekar úr kostnaði óskar félagið nú eftir því að Vestmannaeyjabær noti þessa þjónustu á sama tíma og dragi með því úr kostnaði, öllum til hagsbóta. Þar sem samningum um sorphirðu í Vestmannaeyjum er ekki lokið óskar ÍBV-íþróttafélag þess að Vestmannaeyjabær annist sorphirðu í Herjólfsdal á þjóðhátíð 2003. Einnig óskar félagið þess að sorphirða í Herjólfsdal á þjóðhátíð verði hluti af samningi verkkaupa við verktaka. Einnig kemur fram í bréfi Páls ósk um staðfestingu á því að gengið verði frá upplýstum göngustíg að Herjólfsdal, félagið telur af öryggisástæðum mjög brýnt að ljúka þessu verki fyrir þjóðhátíð. Bæjarráð frestaði erindinu gagnvart sorphirðu og haugsugu og felur bæjarstjóra að afla frekari upplýsinga. Varðandi göngustíg þá er verið að hefja vinnu við stíginn í átaksverkefni og mun hann verða upplýstur en malbikun bíður næsta árs.

Erfið byrjun

ÍBV sótti Val heim og var liðið tekið í kennslustund af heimamönnum. ÍBV lék illa í leiknum, fyrsta mark leiksins kom eftir að Valur hafði fengið vítaspyrnu eftir klaufaleg mistök. Skömmu síðar varði markvörður Valsmanna ágæta vítaspyrnu Gunnars Heiðars og var staðan 1 - 0 í hálfleik. Valsmenn bættu við tveimur mörkum í síðari hálfleik áður en Tom Betts minnkaði muninn. Síðasta orðið átti hins vegar landi hans í liði ÍBV, Ian Jeffs þegar hann og sóknarmaður Valsmanna börðust um boltann en Jeffs varð fyrir því óláni að skora í eigið mark.

Stórsigur gegn Þrótti/Haukum

ÍBV tók á móti Þrótt/Haukum í annarri umferð Landsbankadeildar kvenna. ÍBV byrjaði að sækja án afláts en gestirnir vörðust vel. Þrátt fyrir nokkur ágætis færi gekk illa að finna réttu leiðina í markið. Það var ekki fyrr en eftir 25 mínútna leik að Olga Færseth braut ísinn með laglegu marki. Þrátt fyrir mikla yfirburði tókst ÍBV aðeins að bæta við einu marki fyrir leikhlé og þar var Olga að verki. Í seinni hálfleik opnuðust allar gáttir upp á gátt og eftir aðeins mínútu leik skoraði Mhairi Gilmour þriðja mark ÍBV. Á skömmum tíma tókst ÍBV svo að tvöfalda forskot sitt þegar liðið skoraði þrjú mörk á aðeins fjórum mínútum og staðan orðin 6-0. Áfram var sótt og undir lokin komu þrjú mörk. Á síðustu andartökum leiksins var allt kapp lagt á það að skora tíunda markið en þetta nýttu gestirnir sér og skoruðu eitt mark eftir skyndisókn. Mörk ÍBV: Olga Færseth 3, Mhairi Gilmour 3, Karen Burke, Thelma Sigurðardóttir og Lára D. Konráðsdóttur.

Tryggvi aftur inn í landsliðið

Íslenska karlalandsliðið í knattspymu á tvo leiki framundan, gegn Færeyjum og Litháen og hefur Eyjamaðurinn Ásgeir Sigurvinsson, starfandi landsliðsþjálfari tilkynnt leikmannahóp sinn. Þar eru Birkir Kristinsson og Hermann Hreiðarsson á sínum stað og Tryggvi Guðmundsson er nú valinn aftur en Tryggvi kom óvænt inn í hópinn fyrir leikinn gegn Skotum á dögunum en var ekki með gegn Finnlandi. Þá er Gunnar Heiðar Þorvaldsson meðal leikmanna U-21 árs landsliðs íslands, liðið leikur ekki gegn Færeyjum þar sem þeir tefla ekki fram liði í þessum aldursflokki en liðið leikur hins vegar gegn Litháen.

Alla valin í fyrsta sinn

Um helgina tilkynnti Stefán Amarson, landsliðsþjálfari kvenna, val sitt á landsliðshópnum sem fer í æfingaferð til Danmerkur um miðjan næsta mánuð. Alla Gorgorian ÍBV er í landsliðshópnum í fyrsta sinn en hún fékk íslenskan ríkisborgararétt í vetur. Þá er Eyjakonan Guðbjörg Guðmannsdóttir einnig í landsliðshópnum en hún lék með Víkingi á síðasta tímabili. Birkir ívar Guðmundsson, Eyjamaður, markmaður Hauka, er einnig í landsliðinu en það leikur æfingaleiki gegn Danmörku í lok maí.

Ester í landsliðið

Ein af efnilegri handknattleiksstúlkum ÍBV, Ester Óskarsdóttir hefur verið valin í landslið íslands, skipað leikmönnum á aldrinum 15-16 ára. Ester er enn í fjórða flokki en lék engu að síður reglulega með unglingaflokki í vetur.

Sigurmark úr umdeildri vítaspyrnu

Kvennalið ÍBV mætti Val á Hlíðarenda í opnum og skemmtilegum leik þar sem Valur hafði betur, 3-2. Fyrri hálfleikur fór vel af stað fyrir ÍBV og eftir aðeins tólf mínútur hafði Margrét Lára Viðarsdóttir, sem var að spila sinn fyrsta leik í sumar, skorað fyrsta mark leiksins. En fyrrverandi leikmaður IBV, Laufey Jóhannsdóttir svaraði fyrir Val og staðan í hálfleik var 1-1. Olga Færseth byrjaði svo seinni hálfleikinn á að koma IBV aftur yfir og var lengi vel 1-2 fyrir IBV. En lokakaflinn á leiknum var IBV ekki hagstæður, Valsstúlkur jöfnuðu leikinn þrettán mínútum iyrir leikslok og þrátt fyrir ágætar sóknir ÍBV tókst þeim ekki að skora. Það gerðu hins vegar Valsstúlkur þegar þeim var dæmt vafasamt víti á 88. mínútu sem þær nýttu og tryggðu sér um leið dýrmætan sigur.

Sigur liðsheildarinnar

Karlalið ÍBV tók á móti Fylkismönnum fimmtudaginn 29. maí. Leikurinn var frekar bragðdaufur og sérstaklega fyrri hálfleikur. Eyjamenn voru hins vegar augljóslega sterkari aðilinn og náðu fljótlega undirtökunum á miðjunni. Næst því að skora komst Unnar Hólm þegar hann átti ágætan skalla að marki Fylkis en markvörður þeirra varði í horn. Síðari hálfleikur var aðeins fjörugri og enn voru það leikmenn IBV sem voru sterkari. Eftir tæplega tíu mínútna leik braust Steingrímur Jóhannesson upp vinstri kantinn og sendi yfir á Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem var sloppinn inn fyrir vörn gestanna. En markvörður Fylkis hrifsaði boltann af tánum af Gunnari þegar Gunnar reyndi að leika á hann. Fimm mínútum síðar fékk lan Jeffs svo upplagt skotfæri við markteigshomið en skaut hárfínt framhjá stönginni. Honum urðu hins vegar ekki á nein mistök á 65. mínútu þegar hann skallaði boltann inn af stuttu færi eftir sendingu Steingríms. Eyjamenn vörðu svo sinn hlut það sem eftir lifði leiks, enda var vamarleikur ÍBV mun betri nú en í fyrstu tveimur leikjunum og í kjölfarið kom fyrsti sigurinn.

JÚNÍ:

Frábær sigur

ÍBV sótti Grindavík heim á fyrstu dögum júní mánaðar en fyrirfram bjuggust ekki margir við sigri Eyjamanna. Raunin varð önnur og sigraði ÍBV örugglega 0-2. Í fyrri hálfleik sóttu Eyjamenn meira, Gunnar Heiðar kom ÍBV yfir með marki á 35. mínútu en ekki voru skoruð fleiri mörk í hálfleiknum. Í seinni hálfleik var hins vegar komið að Grindvíkingum að sækja og var sóknarþungi þeirra orðin töluverður á tímabili. En Eyjamenn vörðust skynsamlega og síðustu tíu mínúturnar tókst þeim að sækja meira. Gunnar Heiðar Þorvaldsson tryggði ÍBV svo sigurinn með marki á lokamínútu leiksins og sigraði ÍBV því 2-0. Með sigrinum komst IBV upp í 5. sæti.

Fyrsti sigur á Breiðablik

ÍBV tók á móti Breiðablik í miklum baráttuleik. Leikurinn fór frekar rólega af stað en ÍBV var sterkari aðilinn framan af. Breiðablik komst hins vegar yfir þegar þær skoruðu um miðjan hálfleikinn eftir að ÍBV mistókst að hreinsa frá marki. Margrét Lára jafnaði hins vegar metin mínútu fyrir leikhlé og því var jafnt í hálfleik 1 -1. Seinni hálfleikur var töluvert fjörugri og hafði Heimir Hallgrímsson greinilega lesið duglega yfir sínum leikmönnum í hálfleik því strax eftir sjö mínútur var staðan orðin 3-1 fyrir ÍBV og Margrét Lára komin með þrennu. En gestirnir neituðu að gefast upp og náðu smá saman tökum á leiknum. Þeim tókst að jafna leikinn á tíu mínútna kafla en með sigurviljann að vopni tókst leikmönnum ÍBV að tryggja sér sigurinn. Fyrst brunaði Karen Burke upp allan völlinn og sendi á Olgu Færseth sem skoraði. Síðan var það Mhairi Gilmour sem nýtti sér varnarmistök Blika, lokatölur 5-3.

Íris með hundrað leiki

Í leiknum gegn Breiðablok, lék Íris Sæmundsdóttir sinn hundraðasta leik. Íris hefur verið lengi að, tók sér reyndar bameignarfrí á síðasta tímabili en hefur tekið fram skóna að nýju. Íris fagnaði tímamótunum með því að leggja Breiðablik í fyrsta sinn á ferlinum og í sögu ÍBV.

Enskur landsliðsmarkvörður til ÍBV

Góður liðsstyrkur hefur borist kvennaliði ÍBV en landsliðsmarkvörður enska landsliðsins, Rachel Brown, hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍBV. Reyndar er enn óljóst hvort hún komi til með að leika með ÍBV en forráðamenn ÍBV vildu tryggja sér leikmanninn áður en lokað yrðu fyrir félagsskiptin.

Sigur og tap hjá öðrum flokki

Annar flokkur karla lék gegn Víkingi á Hásteinsvellinum. Þetta var fyrsti leikur ÍBV og óhætt að segja að byrjunin lofí góðu því ÍBV sigraði 4-1 en þjálfari liðsins er Sveinn Sveinsson. Mörk IBV: Björgvin Þorvaldsson, Benedikt Steingrímsson, Andri Ólafsson og Stefán Hauksson. Annar flokkur kvenna lék líka sinn fyrsta leik þegar liðið mætti Breiðabliki á heimavelli. IBV var einu marki undir í hálfleik en gestirnir bættu við þremur mörkum í þeim síðari og endaði leikurinn því 0-4.

Gunnar Heiðar í byrjunarliðinu

Gunnar Heiðar Þorvaldsson, leikmaður IBV, var í byrjunarliði íslenska U-21 árs landsliðsins þegar liðið mætti Litháen ytra. Gunnar lék sem tengiliður en leiknum lyktaði með tapi íslenska liðsins 0-3.

Sigur þrátt fyrir slakan leik

Eyjastúlkur léku fimmta leik sinn í deildinni gegn Þór/KA/KS á Akureyrarvelli. Leikurinn þótti nokkuð bragðdaufur en sigur vannst og urðu lokatölur 0-3. Réðu Eyjastúlkur gangi leiksins frá fyrstu mínútu og fyrsta markið kom á 21. mínútu en þar var á ferðinni Olga Færseth. Eftir það náði heimaliðið nokkrum góðum sóknum en leikmenn ÍBV voru grimmari upp við markið og náðu að bæta við marki áður en hálfleikurinn var úti en það var sjálfsmark. Þriðja mark ÍBV kom svo í upphafi síðari hálfleiks frá Mhairi Gilmour og þar með voru úrslitin ráðin.

Tryggvi fékk uppreisn æru

Það er óhætt að segja að Tryggvi Guðmundsson hafi gefið fyrrverandi landsliðsþjálfara Íslands, Atla Eðvaldssyni langt nef þegar hann skoraði sigurmark Íslands gegn Færeyingum. Tryggvi var ekki í náðinni hjá Atla síðasta árið og vakti það oftar en ekki furðu að Atli skyldi ekki hafa einn af markahæstu mönnum norsku deildarinnar í leikmannahópnum. Tryggvi kom hins vegar inn á gegn Færeyingum og skoraði sigurmarkið þegar komið var fram yfir venjulegan leiktíma og tryggði Íslandi þar með sigurinn og dýrmæt stig í riðlinum sem er opinn í alla enda.

Margrét og Olga í landsliðið

Margrét Lára Viðarsdóttir og Olga Færseth hafa báðar verið valdar í A landsliðshóp Íslands en liðið leikur gegn Ungverjalandi. Leikurinn fer fram á Laugardalsvelli og er í riðlakeppni undankeppni Evrópumótsins. Olga er fastamaður í íslenska landsliðinu en þetta mun hins vegar vera í fyrsta sinn sem Margrét Lára er í landsliðshópnum en hún hefur leikið með öllum yngri landsliðum íslands.

Vel heppnað Vöruvalsmót

Fjórtánda Vöruvalsmótið var haldið í júní en mótið hefur fyrir löngu skipað sér sess meðal þess helsta sem gerist á hverju sumri í Eyjum. Mótið í ár var í heild vel heppnað enda voru veðurguðirnir hliðhollir Eyjamönnum þessa helgi þó að aðeins hafi blásið um tíma. Nokkrar breytingar voru gerðar á skipulagi mótsins, mótsdögum var fækkað um einn og var það ekki síst gert af þrýstingi liða ofan af landi þar sem erfiðlega gekk að fá fararstjóra í ferð sem tók heila vinnuviku. Flest gullverðlaun í mótinu fengu Blikastúlkur en árangur IBV var einnig góður. Alls voru stelpumar um 500 talsins en alls komu að mótinu um 650 manns. Setningarathöfnin fór fram innandyra í þetta skiptið og þótti takast vel þó svo að eflaust hafi margir saknað þess að vera ekki úti við setninguna. Strax á föstudagsmorgninum fóru fyrstu leikirnir fram og var leikið fram eftir degi en setningin var svo á föstudagskvöldið. Eins og ávallt var skipulagið lofað af þeim sem komu á mótið og flestir ef ekki allir sammála því að tímasetningar hafi staðist. Því er hins vegar ekki að neita að töluvert færri foreldrar mættu í ár með liðunum en oft áður, hverju sem því er að kenna. Þar sem mótsdögum hafði verið fækkað um einn var leikið þéttar og voru stelpurnar í fótbolta frá morgni og fram á kvöld. Því var lögð áhersla á að gera kvöldin sem eftirminnilegust, m.a. með kvöldvöku sem þótti takast mjög vel. Mótslokum var svo fagnað í Höllinni og var mikið sungið á lokahófinu. Breiðablik fékk alls fimm gullverðlaun, ÍBV ein og Fram ein. Hápunktur lokahófsins var svo þegar tilkynnt var hver myndi fá Lárusarbikarinn en í ár kom það í hlut ungrar Eyjastelpu að nafni Fanndís Friðriksdóttir.

Úrslit mótsins

4. flokkur A-lið: 1. Fram, 2. ÍBV, 3. Afturelding.

B-lið: 1. ÍBVl, 2. ÍBV2, 3. Breiðablik 1.

5. flokkur A-lið: 1. Breiðablik, 2. FH, 3. Afturelding

B-lið: 1. Breiðablik 1, 2. FH, 3. Afturelding

C-lið: 1. Breiðablik, 2. FH, 3. ÍBV.

6.flokkur. A-lið 1. Breiðablik, 2. Afturelding, 3. ÍBV.

B-lið 1. Breiðablik 2, 2. Breiðablikl, 3. Afturelding.

Besti leikmaðurinn: 6. flokkur: Gunnhildur Ómarsdóttir, Breiðablik

5.flokkur: Þórdís Anna Ásgeirsdóttir, Breiðablik  

4.flokkur: María Rós Amgrímsdóttir, Fram

Prúðasta liðið: 6.flokkur: FH

5.flokkur: ÍA

4.flokkur: Afturelding

Háttvísisverðlaun Eurocard og KSI 6.flokkur: ÍBV

5.flokkur: Afturelding

4.flokkur: KR

Lárusarbikarinn 2003 Fanndís Friðriksdóttir, IBV.

Samskip og kanttspyrnudeild semja

Í júní var undirritaður samstarfssamningur milli Samskipa og Knattspyrnudeildar ÍBV. Samningurinn er til tveggja ára. Þeir sem undirrituðu þennan samning voru Viðar Elíasson, formaður knattspyrnudeildar og framkvæmdastjóri Samskipa, Agnar Már Jónsson. Hjálpar þessi samningur mikið til þar sem samgöngumál knattspyrnudeildar ÍBV hafa verið kostnaðarsöm og tíðar ferðir ákaflega tímafrekar. Þessi samningur liðkar töluvert til með kostnaði sem af hlýst af við ferðalög meistaraflokkanna og 2. flokks karla og kvenna.

Litli bróðir barðist vel

ÍBV og KFS mættust 32- liða úrslitum bikarkeppninar. Leikurinn varð aldrei sú skemmtun sem flestir höfðu látið sig dreyma um, bæði voru aðstæður hinar verstu, strekkingsvindur á annað markið og kalt. Auk þess varð heimaliðið, KFS að spila einum leikmanni færri í rúmar sjötíu mínútur og það var einfaldlega of stór biti fyrir 2. deildarliðið. Leiknum lyktaði með fjögurra marka sigri, sem í raun hefði getað orðið mun stærri. Fyrri hálfleikur var bragðdaufur í meira lagi. Liðin voru að þreifa fyrir sér fyrstu mínúturnar, allt þar til á 18. mínútu þegar Jóhanni Sveini Sveinssyni var vikið af velli fyrir að fá sitt annað gula spjald í leiknum. Dómurinn var harður, sérstaklega þegar litið er á dómgæsluna í heild. En eftir þetta má segja að KFS hafi átt erfítt uppdráttar. Liðið varðist reyndar mjög vel í fyrri hálfleik og fyrir vikið var jafnt í hálfleik 0-0. Seinni hálfjeikur var mun fjörugri og leikmenn IBV nýttu sér það vel að spila gegn sterkum vindinum. Boltanum var oftar en ekki stungið inn fyrir vörn KFS þar sem Steingrímur Jóhannesson og Bjarni Rúnar Einarsson sköpuðu ávallt mikla hættu. Steingrímur skoraði svo fyrsta mark leiksins með laglegum skalla en tæpri mínútu síðar munaði minnstu að KFS tækist aðjafna. Leikmenn ÍBV tóku eftir þetta öll völd á vellinum og bættu við þremur mörkum fyrir leikslok. Mörk ÍBV: Bjarni R. Einarsson 2, Steingrímur Jóhannesson 1, lan Jeffs 1.

Frábær innkoma Margrétar Láru

Margrét Lára Viðarsdóttir, sem verður 17 ára þann 25.júlínk, lék sinn fyrsta leik með íslenska kvennalandsliðinu á laugardag þegar liðið tók á móti Ungverjalandi. Olga Færseth var að venju í byrjunarliðinu og hún skoraði einmitt annað mark íslenska liðsins en staðan í hálfleik var 2 - 1. Margrét Lára kom inn á þegar 24 mínútur voru eftir af leiknum og fjórum mínútum síðar var hún búin að skora þegar hún fylgdi eftir föstu skoti i Olgu sem fór í slána. Margrét er enn gjaldgeng í U-17 ára landslið Íslands og fór beint eftir leikinn í æfingabúðir unglingaliðsins á Laugarvatni og er því gjaldgeng í öllum kvennalandsliðum Íslands.

Heldur slakt gengi yngri flokkanna

Annar flokkur karla lék gegn Fjölni og fór leikurinn fram í Egilshóll. ÍBV gekk ekki vel í leiknum og endaði leikurinn 7 - 0 fyrir Fjölni en staðan í hálfleik var 3-0. Annar flokkur kvenna tók á móti KR en stelpurnar réðu ekki við sterkt lið KR og lokatölur leiksins urðu 3-5. Mörk ÍBV: Thelma Sigurðardóttir 2, Karitas Þórarinsdóttir. Þriðji flokkur karla tók á móti Breiðabliki en byrjunin á leiknum var ekki góð hjá ÍBV því strákarnir lentu 1-3 undir. En með baráttuna að vopni tókst strákunum að snúa leiknum sér í hag og sigruðu að lokum 5-3. Mörk ÍBV: Einar Kárason 3, Steingrímur Jónsson, Ellert Scheving Pálsson. Fjórði flokkur karla lék tvo leiki en bæði A og B-liðin spiluðu. Fyrsta var leikið gegn Fjölni og þar gerði A-liðið jafntefli 3 - 3 en B-liðið tapaði 3 - 4. Mörk IBV: A: Þórarinn Valdimarsson, Guðjón Ólafsson, Gauti Þorvarðarson. B: Hafsteinn Sigurðsson 2, Ingólfur Einisson. Seinni leikurinn var gegn ÍR og þar gekk ÍBV betur. A-liðið sigraði 3 - 6 og B-liðið vann sinn leik 1-9. Mörk ÍBV A: Eiður Sigurbjörnsson 2, Arnór Ólafsson 2, Þórarinn Valdimarsson, Gauti Þorvarðarsson. Fimmti flokkur karla lék einnig tvo leiki en í flokknum eru fjögur lið og spiluðu þau öll um helgina. Fyrst var leikið gegn FH og töpuðust allir leikirnir, A-liðið 4-1 , B-liðið 7 - 0, C-liðið 10 - 2 og D-liðið tapaði 5-2. Daginn eftir var svo leikið gegn Breiðabliki en bæði þessi lið hafa töluvert fleiri iðkendur en ÍBV. Gegn Breiðabliki gekk lítið betur og töpuðust allir leikimir, A-liðið 7-0, Bliðið 2-0, C-liðið 6-1 og D-liðið 7-0.

Tveir nýir leikmenn

ÍBV skrifaði undir samning við sterka skyttu úr Haukum en hún heitir Nína K. Bjömsdóttir. Nína hefur lengi verið ein sterkasta skytta landsins en á síðasta tímabili átti hún lengi vel í meiðslum. Nína kemur hins vegar ekki til með að flytja til Eyja heldur mun hún búa áfram í Reykjavík en spila með ÍBV. Þá var einnig gengið frá samningi við danskan leikmann að nafni Anja Nielsen en hún leikur í hægra horninu. Anja er 28 ára og kemur frá danska liðinu Ikast/Bording sem varð í öðru sæti dönsku deildarinnar. Hún á 45 landsleiki að baki með danska liðinu sem er eitt það sterkasta í heiminu og skoraði í þeim 78 mörk. Anja varð Olympíumeistari með danska liðinu árið 2000 en hún hefur mikla reynslu úr danska handboltanum, hefur einu sinni orðið danskur meistari, tvívegis bikarmeistari og svo vann Ikast/Bording Chalenge Cup. Anja þykir hraður og skemmtilegur leikmaður, hefur reyndar átt í erfiðum meiðslum undanfarin tvö ár en hefur náð sér af þeim og er að komast í uppmnalegt form.

Alla byrjar vel

Alla Gorkorian spilaði sína fyrstu landsleiki fyrir Íslands hönd en í vetur fékk hún íslenskan ríkisborgararétt. Íslenska liðið var í æfingaferð í Danmörku og lék þar tvo leiki gegn hinu geysisterka danska liði. Fyrri leikurinn endaði með átta marka sigri heimastúlkna 28-20 og skoraði Alla þrjú mörk í þeim leik. Í síðari leiknum skoraði svo Alla sex mörk en þau dugðu ekki til sigurs því Ísland tapaði þeim leik 27-25.

ÍBV fékk styrk

Vestmannaeyjabær afhenti styrki til íþróttahreyfingarinnar í Eyjum upp á 4.228.000 krónur. Annars vegar var um að ræða rekstrarstyrki og hins vegar styrki úr Afreksmanna- og viðurkenningasjóði. Miðast upphæðin þá við unnin afrek á árínu. ÍBV íþróttafélag hlaut rekstrarstyrk að upphæð 957.000 kr. og 1.637.000 kr. úr Afreksmanna- og viðurkenningasjóði, sem gera alls styrk að upphæð kr. 2.594.000

Jónsmessugleði

Knattspyrnuráð ÍBV vill þakka Jónsmessugestum fyrir góðar móttökur og hegðun á Jónsmessugleði deildarinnar . Ráðið kvaðst einnig ánægt með þær viðtökur sem ný staðsetning Jónsmessugleðinnar fékk en hún var haldin í fyrsta sinn milli Fiskiðjunnar og Ísfélagsins.

Margrét Lára í U17- landsliðið

Margrét Lára Viðarsdóttir hefur verið valin í U-17 ára landsliðið sem tekur þátt í Opna Norðurlandamótinu sem fram fer í Svíþjóð um mánaðatmótin. Margrét leikur því í sama mánuðinum með elsta og yngsta kvennalandsliði íslands en hún kom inn á með Aliðinu gegn Ungverjum á dögunum.

Miklar sveiflur hjá stelpunum

ÍBV spilaði tvo leiki á einni viku. Fyrst tók liðið á móti FH sem var lítil fyrirstaða og sigruðu stelpurnar 8-0. Margrét Lára Viðarsdóttir hélt uppteknum hætti og skoraði fjögur mörk í leiknum og er því komin með átta mörk úr fjórum leikjum. Íris Sæmundsdóttir brá líka undir sig betri fætinum og skoraði tvö mörk, annað af markteig en seinna markið skoraði hún af 20 metra færi. Olga Færseth og Michelle Barr skoruðu sitt markið hvort.

ÍBV mætti KR í vesturbænum í uppgjöri toppliðanna. Eftir hálftíma leik var staðan orðin 1 -0 fyrir Islands- og bikarmeisturum KR. Leiknum lyktaði svo með sigri KR, 3-0 og féll ÍBV þar með niður í þriðja sæti deildarinnar. Heimir Hallgrímsson, þjálfari ÍBV, sagði í samtali við Fréttir eftir leikinn að IBV hefði í raun aldrei átt möguleika. „Við vorum einfaldlega lélegra liðið á vellinum, spiluðum illa á meðan KR var að spila mjög vel. Ég skil ekki af hverju allt liðið spilar svona illa í jafn mikilvægum leik. Við voram að klikka á einföldum sendingum og það virtist vera einhver taugaveiklun í liðinu. Nú er þetta í höndum KR að klára deildina en við verðum að treysta á að önnur lið vinni stig af þeim ef við ætlum að eiga möguleika."

Sigur og tap hjá strákunum

ÍBV tók á móti Fram í fimmtu umferð Landsbankadeildarinnar. ÍBV hafði haft mikla yfirburði í fyrri hálfleik án þess þó að skapa sér veruleg færi. Gestirnir vörðust ágætlega og Eyjapeyinn Gunnar Sigurðsson varði oft vel í marki Framara en markalaust var í hálfleik. I upphafi síðari hálfleik færðu piltarnir úr Safamýrinni sig upp á skaftið og ógnuðu marki IBV nokkrum sinnum. En síðasti hálftíminn var eign ÍBV. Gunnar Heiðar Þorvaldsson gaf tóninn með þremur mörkum en Steingrímur og Unnar Hólm bættu við mörkum og því fimm marka sigur ÍBV staðreynd.

Nokkrum dögum síðar tóku strákarnir á móti FH.  Gestirnir voru beittari framan af en ÍBV var fyrri liði til að skora en það gerði Bjarnólfur Lárusson úr víti. Þessi vítaspyrnudómur átti eftir að draga dilk á eftir sér því undir lok fyrri hálfleiks notaði slakur dómari leiksins tækifærið til að kvitta fyrir einn vítaspyrnudóm með því að dæma annan. Dómurinn var algjörlega út í hött og hafði nokkuð með framhaldið á leiknum að segja. Garðar Örn Hinriksson, dómari, hélt áfram uppteknum hætti í síðari hálfleik. Steingrímur Jóhannesson var nærri búinn að koma ÍBV yfir þegar hann átti í baráttu við varnarmann FH og skaut rétt framhjá markinu. Reyndar var brotið á Steingrími sem stóð í lappirnar í stað þess að falla með tilþrifum í grasið og var refsað fyrir það með því að fá ekki víti. Rúmum fímmtán mínútum fyrir leikslok var svo brotið á Gunnari Heiðari við vítateig gestanna en ekkert dæmt. I stað þess að fá aukaspyrnu á hættulegum stað, lenti ÍBV undir því FH-ingar brunuðu fram og skoruðu. Síðasta markið var svo klaufalegt hjá ÍBV. En þrátt fyrir afspyrnuslaka frammistöðu dómara leiksins þá var það ÍBV sem tapaði leiknum, FH-ingar voru einfaldlega betri þennan daginn

3 flokkur á góðu skriði

Þriðji flokkur karla lék tvo leiki í lok júní en þá mætti liðið Þór frá Akureyri. Liðin mættust á miðri leið, í Mosfellsbæ og spöruðu þannig ferðakostnað eins og undanfarin ár. Í fyrri leiknum, sem taldist heimaleikur Akureyringa sigraði ÍBV l-4. Mörk ÍBV: Einar Kristinn, Ellert og Anton. Seinni leikurinn fór fram daginn eftir og vann ÍBV þann leik líka en nú aðeins 1-0. Þriðji flokkur kvenna lék einnig tvo leiki.Stelpurnar mættu FH og endaði leikurinn með þriggja marka sigri FH. Seinni leikurinn var svo gegn ÍR en sá leikur endaði með þriggja marka sigri ÍR-liðsins. Fjórði flokkur kvenna lék líka en í flokknum er stillt upp í A-, B-, og C-lið. Fyrst var leikið gegn Breiðabliki og þar gerði Aliðið 1-1 jafntefli, B-liðið tapaði naumlega 3-2 en C-liðið sigraði 1- 4. Daginn eftir var svo spilað gegn Fjölni, þar sigraði A-liðið 0-7, B-liðið gerði 1-1 jafntefli og C-liðið burstaði í sínum leik 0-10.

ÍBV tekur við Týsheimilinu

Á fundi íþrótta- og æskulýðsráðs 24. júní sl. var samþykktur samningur milli bæjarins og ÍBV-íþróttafélags um rekstur á Týsheimilinu. Jafnframt samþykkti íþrótta- og æskulýðsráð fyrirliggjandi samning þar sem meðal annars er kveðið á um að hverfa frá fyrri ætlan um að flytja starfsemi félagsmiðstöðvar úr Félagsheimili í Týsheimilið. Elsa Valgeirsdóttir (D) bókaði að hún harmaði að ekki skuli hafa náðst að samþætta á einum stað þá æskulýðs- og tómstundastarfsemi sem fram fer á vegum Vestmannaeyjabæjar annars vegar og ÍBV – íþróttafélag

Stórglæsilegt Shellmót

Tuttugasta Shellmótið var haldið í Eyjum í júní og voru þátttakendur tæplega 1200, þjálfarar, leikmenn og fararstjórar en óhætt er að fullyrða að um tvö þúsund manns hafi verið í Eyjum í tengslum við Shellmótið. Mótið var sett í blíðviðri en fyrstu tvo dagana var sól og blíða. Á þriðja degi fór að rigna þegar leið á daginn en það kom ekki niður á mótshaldinu og strákarnir létu engan bilbug á sér finna þótt aðstæður væru blautar. Dagskrá mótsins var með hefðbundnu sniði, setning á fimmtudegi, kvöldvaka á tostudegi, grillveisla á laugardegi og lokahóf á sunnudegi en alla dagana var leikið frá níu á morgnana og fram eftir degi. Þess á milli fóru liðin í bátsferðir og rútuferðir og einhverjir reyndu fyrir sér í Spröngunni. Njarðvík, A-lið, varði titil sinn í Shellmótinu en þeir urðu meistarar árið 2002. I B-liðum var það svo ÍA sem sigraði, í C-liðum Víkingur og í D-liðum voru það Leiknismenn sem báru sigur úr býtum. Eyjaliðunum gekk þokkalega í mótinu í þetta sinn þó að liðin hafí ekki komist á verðlaunapall. Bestum árangri náði C-liðið sem endaði í 5. til 6. sæti en önnur lið ÍBV léku svokallaða jafningjaleiki en einungis er raðað í efstu átta sæti mótsins, önnur lið spila jafningjaleiki. Mótinu var svo slitið við hátíðlega athöfn í Iþróttahöllinni og þar var þröngt á þingi enda um 1400 manns í salnum.

Stelpurnar komnar í undanúrslit

ÍBV og KR mættust í 8-liða úrslitum bikarkeppninar þar sem ÍBV hafði betur 4-2. ÍBV byrjaði leikinn af miklum krafti og vörðust stelpurnar framarlega. ÍBV komst yfir strax á níundu mínútu með marki Olgu Færseth en á 26. mínútu jöfnuðu KR-ingar. En aðeins mínútu síðar kom Karen IBV aftur yfir og var staðan 2 - 1 í hálfleik. Síðari hálfleikur var svo mjög rólegur, KR-ingar voru meira með boltann en leikmenn ÍBV vörðust skynsamlega. Þegar tólf mínútur vom til leiksloka léku þær Margrét Lára Viðarsdóttir og Olga sér að vörn gestanna sem endaði með því að Olga skoraði þriðja mark ÍBV. Þegar tvær mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma minnkuðu gestimir muninn en síðasta orði átti Olga Færseth þegar hún brunaði upp hálfan völlinn og skoraði. Stelpurnar mæta Breiðablik í undanúrslitum.

Yngri flokkarnir

Annar flokkur karla lék gegn Keflavfík í bikarkeppninni en liðin leika í sitthvori deildinni, ÍBV í þeirri lakari. Lokatölur leiksins urðu 4-2 fyrir Keflavfk og er ÍBV því úr leik í bikamum. Annar flokkur kvenna lék gegn Stjörnunni en leikurinn fór fram í Garðabæ. Leikurinn endaði 3 - 1 fyrir Stjörnuna eftir að ÍBV komst yfir 0-1 eftir mark frá Karítas Þórarinsdóttur. Þriðji flokkur karla lék tvívegis gegn Þrótti í lok júní en báðir leikimir fóru fram í Eyjum. Fyrst var leikið í bikarkeppninni en ÍBV tapaði þeim leik, 1-3 eftir að hafa jafnað 1-1. Mark ÍBV: Ellert Scheving Pálsson. Síðari leikurinn var svo í Íslandsmótinu en hann fór fram daginn eftir. Þá léku Eyjamenn mun betur og sigmðu örugglega 7-3. Mörk IBV: Ellert Scheving Pálsson 2, Steingrímur A. Jónsson 2, Egill Jóhannsson, Birkir Hlynsson og Anton Bjamason 1 hver. Þriðji flokkur kvenna tók á móti Breiðabliki og urðu lokatölur leiksins 0-11. ÍBV hefur leikið þrjá leiki og tapað þeim öllum.

Glatað tækifæri

ÍBV sótti Þrótt  heim en sigurliðið gat komist upp í annað sæti. Það fór hins vegar lítið fyrir baráttunni í liði ÍBV í fyrri hálfleik en leikur liðsins var skárri í þeim síðari. Það voru hins vegar heimamenn sem sáu um að skora, eitt mark í hvorum hálfleik og þar með missti ÍBV af góðu tækifæri á að blanda sér í toppbaráttuna.

JÚLÍ:

Úrslitin reðust i bráðabana

Eyjamenn tóku á móti Grindvíkingum þann 1. júlí í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar og fór leikurinn fram á Hásteinsvelli. Óhætt er að segja að um maraþonleik hafi verið að ræða því eftir venjulegan leiktíma varð að grípa til framlengingar þar sem hvomgu liði tókst að skora. Leikurinn var frekar bragðdaufur og augljóst að hvorugt liðið ætlaði að falla úr leik á eigin mistökum. Hvorugu liði tókst því að skora í venjulegum leiktíma og því varð að grípa til framlengingar. Ekki gekk liðunum betur í framlengingunni enda voru leikmenn beggja liða orðnir mjög þreyttir sem að sjálfsögðu kom niður á leiknum. Hvorugu liði tókst að skora í fremlengingu og því voru úrslitin fengin með vítaspyrnukeppni. Þar skoruðu bæði lið úr fyrstu fjórum spymum sínum og því var gripið til bráðabana. Þar byrjuðu Grindvíkingar á því að skora úr sinni spyrnu en Ólafur Gottskálksson varði spymu Bjarna Geirs Viðarssonar og kom þar með sínu liði áfram í átta liða úrslit.

Hjalti Jóns út í ágúst

Enn aukast vandræði Magnúsar Gylfasonar, þjálfara ÍBV, sem þarf að glíma við meiðsli sem hafa nú þegar sett strik í reikninginn auk þess sem Bjarnólfur Lárusson fer í sitt annað bann á tímabilinu gegn KR. Hjalti og Steingrímur Jóhannessynir hafa baðir verið meiddir auk þess sem Ian Jeffs bættist í hóp þeirra. Þá hefur Unnar Hólm verið meiddur að undanförnu en nú sér vonandi fyrir endann á því. Þá mun Hjalti Jónsson yfirgefa liðið um miðjan ágúst en þá heldur kappinn til Danmerkur í nám.

Eftirmálar eftir bikarleik ÍBV og KR

Í Fréttum þann 3. júlí birtist ítarleg grein um eftirmála úr leik ÍBV og KR sem birt verður hér í heild en rekja má upphafið til þess að í helgarblaði DV birtist viðtal við Ásthildi Helgadóttur, landsliðsfyrirliða og leikmann KR þar sem blaðamaður DV, Finnur Þór Vilhjálmsson, fer hamförum í lýsingum á skrílslátum á leik ÍBV og KR í bikarnum sem hann segist hafa heyrt frá úr mörgum áttum. Þetta og viðbrögð KR-inga eftir leikinn koma mjög á óvart því hvorki blaðamenn Frétta á leiknum eða þeir sem rætt hefur verið við kannast við skrílslæti eða óvenju ljótt orðbragð í garð leikmanna KRinga. Margt var á leiknum og góð stemmning og IBV-stelpurnar náðu að slá KR út úr bikarnum með góðum stuðningi áhorfenda. Stemmningin og tapið var eitthvað sem gestirnir virtust ekki þola og m.a. sá KR-ingur nr. 11 ástæðu til að senda Hólnum miður vinsamlega kveðju eftir leik. KR sendi inn formlega kvörtun til KSI og í kjölfarið voru forráðamenn IBV beðnir um að gera greinargerð um málið. Heimir Hallgrímsson, þjálfari IBV, sagðist varla vita um hvað greinargerðin ætti að fjalla. „Þetta kom okkur algjörlega í opna skjöldu og við vissum varla hvað við áttum að fjalla um í þessari greinargerð. Það var einfaldlega frábær stemmning á vellinum, mikið af fólki og ég er helst á því að það hafi einfaldlega hrætt KR-inga. Það sjást yfirleitt ekki mjög margir áhorfendur á kvennaleikjum nema hér í Eyjum og í ofanálag lét fólk í sér heyra sem er líka mjög óvanalegt. Eg held að KRingar hafi bara ekki verið undir þetta búnir. Við höfum talað við fjölda fólks sem á leiknum var og það kannast enginn við neitt." Munuð þið svara þessu á einhvern hátt? „Það var mín ósk til stjórnar knattspyrnudeildar og til stelpnanna að svara þessu ekki. Það var byrjað að skrifa um þetta á netinu en við lentum illa í því í fyrra þegar farið var að tala um ákveðin mál í fjölmiðlum. Þetta er hins vegar farið að ganga út í öfgar og mér finnst hreinlega að verið sé að niðurlægja Vestmannaeyinga með þessu og þetta virðist aldrei hætta. Þannig að það er spurning hvort við eigum að svara þessu á einhvern hátt." Óskar Freyr Brynjarsson, formaður IBV sagði í samtali við Fréttir að hann hafi verið á leiknum en einu skrílslætin hafi verið hjá leikmönnum KR. „Eg var við varamannaskýli KR, á hólnum og einu lætin voru í raun þegar KR jafnaði því þá fögnuðu þær við Hólinn og ögruðu áhorfendum þar í kjölfarið. Svo eftir leik þegar einn leikmaður KR gekk að Hólnum og sýndi mjög svo óíþróttamannslega framkomu. Ég veit að einn stjórnarmanna IBV-íþróttafélags hefur sent DV bréf vegna málsins því þegar opnuviðtalið við Ásthildi er lesið þá sér maður að þetta er fyrst og fremst blaðamaðurinn sem er að búa til æsifrétt. Við fundum á næstu dögum og þá ræðum við um okkar viðbrögð við þessu." Vanda Sigurgeirsdóttir, þjálfari KR var á því að áhorfendur hafi farið yfir strikið í leiknum. „Mér fannst margir áhorfendur á Hásteinsvellinum fara yfir strikið í þessum leik en ég vil taka það skýrt fram að ÍBV var vel að sigrinum komið enda börðust þær allt til loka og uppskáru eftir því. Hins vegar fannst mér að áhorfendur hefðu mátt standa betur við bakið á þeim þegar svo vel gengur. Við höfum eftir leikinn fengið fjölda símtala, jafnvel frá fólki sem er óviðkomandi KR þar sem við fáum mjög alvarlegar lýsingar á framkomu áhorfenda. Þarna var fólk sem var statt á Shellmótinu með sín börn og það fór af leiknum vegna framkomu sumra áhorfenda. Auðvitað voru þetta alls ekki allir áhorfendur en það þarf bara svo fáa til að skemma fyrir." En hvað með framkomu tiltekins leikmanns KR eftir leik þar sem áhorfendum leiksins var sýnd óvirðing af hennar hálfu? ,Jú það er rétt. Einn leikmaður hjá okkur brást illa við þessu og við höfum rætt þetta við hana. Henni var hins vegar ögrað, eins og mér sjálfri því allan leikinn mátti ég taka við óþarfa athugasemdum frá áhorfendum." Landsliðsfyrirliðinn, Ásthildur Helgadóttir, sagði í samtali við Fréttir að hún hafi orðið vör við ljótt orðbragð áhorfenda á leiknum. ,,Mér fannst nokkrir áhorfendur fara yfir strikið í leiknum og það setti leiðinlegan svip á annars ágætan leik. Okkur fannst þetta auðvitað mjög leiðinlegt og kannski brugðumst við ekki rétt við en þetta orðbragð var með því versta sem ég hef upplifað. Það sem mér finnst kannski verst í þessu er að á þessum leikjum eru kannski ungir krakkar sem alast upp við þetta og í framhaldinu fara þau að apa þetta eftir fullorðna fólkinu." Nú meiddist þú í síðari hálfleik og heyrst hefur að þú hafir orðið fyrir aðkasti meðan hugað var að meiðslum þínum, er þetta rétt? „Já það var kallað á mig ýmislegt ófagurt. Það voru bæði börn og fullorðnir sem gerðu það en ég þurfti að bíða ansi lengi eftir sjúkrabílnum þannig að ég heyrði ýmislegt. Annars erum við KR-ingar ekkert að velta okkur upp úr þessu, þessi leikur er bara búinn og við féllum út úr bikarnum þetta árið. Nú einbeitum við okkur bara að Islandsmótinu og að leika knattspyrnu." Ekki náðist í Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóra KSÍ eða dómara leiksins, Sævar Jónsson.

Markalaust jafntefli

Það voru ekki góðar aðstæður til að leika knattspyrnu þegar ÍBV tók á móti KR, austan rokið var í aðalhlutverki og réði nánast gangi leiksins. ÍBV lék gegn vindinum í fyrri hálfleik og mestan hluta hálfleiksins fór leikurinn fram á vallarhelmingi IBV. Þannig kom það fyrir að útspörk Birkis Kristinssonar rétt komust út fyrir vítateig og því erfltt að koma boltanum upp völlinn. KR-ingum tókst hins vegar ekki að nýta sér meðbyrinn og fengu þeir fá færi. Besta færi hálfleiksins fékk Gunnar Heiðar Þorvaldsson þegar hann vann boltann af varnarmönnum íslandsmeistaranna en skot hans fór naumlega framhjá. Undir lok hálfleiksins átti svo gestirnir hörkuskalla í stöng ÍBV en fljótlega eftir það var flautað til hálfleiks. I síðari hálfleik snerist dæmið hins vegar við, IBV var meira með boltann án þess þó að skapa sér færi en KRingar fengu besta færi hálfleiksins. Næst því að skora komust Gunnar Heiðar þegar hann var við það að sleppa í gegnum vörn KR en markvörður þeirra handsamaði boltann á elleftu stundu, lokatölur urðu 0-0.

ÍBV-stelpurnar í Áskorendakeppnina

Stjórn handboltadeildar kvenna hefur ákveðið að taka þátt í Evrópukeppninni. Fyrir um mánuði lá ekki fyrir hvaða keppni ÍBV tæki þátt í en nú er komið í ljós að stelpurnar munu taka þátt í Áskorendakeppninni, sem er líklega lakasta keppnin. Fyrir vikið á ÍBV meiri möguleika á að komast eitthvað áfram í keppninni en meðal þeirra landa sem taka þátt eru Rúmenía, Króatía, Úkraína, Búlgaría og Bosnía en þarna má líka finna lið frá Frakklandi, Sviss, Italíu og Portúgal þannig að nú þurfa forráðamenn liðsins að leggjast á bæn og vona að ferðalagið verði þægilegt og sem ódýrast. Fyrsta umferðin í mótinu fer fram 10. eða 11. janúar en þetta verður í fjórða sinn sem kvennalið ÍBV tekur þátt í Evrópukeppni. Dregið verður í fyrstu umferð 26.október.

Björgvin til ÍBV

Handknattleiksráð karla hefur gengið frá samingi við Eyjamanninn Björgvin Þór Rúnarsson um að hann leiki með IBV í vetur. Samningurinn er út tímabilið. Björgvin kemur til með að búa í Reykjavík en spila með ÍBV og æfa með liðinu um helgar. Það eru orðin allmörg ár síðan Björgvin sást síðast í búningi ÍBV, það var í kringum 1990 sem hann spilaði síðast með liðinu en síðan þá hefur hann m.a. leikið með Selfyssingum, Stjörnunni og nú síðast FH. Björgvin hefur lengst af leikið í hægra horninu auk þess sem hann þykir liðtækur í skyttuhlutverki og kemur því væntanlega til með að nýtast IBV vel í vetur.

Slök byrjun hjá 2 flokki

Annar flokkur karla ÍBV í knattspyrnu lék gegn Selfyssingum á heimavelli þeirra síðarnefndu. Eyjamenn hafa ekki farið vel af stað í sumar, eru úr leik í bikarkeppninni og sitja í sjöunda og næstneðsta sæti B-deildar með þrjú stig úr fjórum leikjum. Lokatölur leiksins á Selfossi urðu 1 - 0 fyrir Selfoss en eina mark leiksins var skorað undir lok fyrri hálfleiks.

Margrét Lára á opna Norðurlandamótinu

Margrét Lára Viðarsdóttir, leikmaður ÍBV, var stödd í Svíþjóð í byrjun júlí með U-17 ára landsliði Íslands þar sem liðið tók þátt í Opna Norðurlandamótinu. Íslenska liðið náði sér aldrei á strik, tapaði öllum leikjum sínum í mótinu og endaði í neðsta sæti. Margrét skoraði eitt mark í mótinu og var auk þess fyrirliði íslenska liðsins. Svíar unnu mótið, Þjóðverjar urðu í öðru sæti en Norðmenn í því þriðja.

Ráðuneytið svarar ekki bréfi ÍBV

Mikillar óánægju gætir hjá ÍBV- íþróttafélagi vegna stöðugt hækkandi löggæslukostnaðar á þjóði hatíð. Er svo komið að félagið þarf að borga 8 milljónir til þess að fá leyfi til að halda hátíðina á meðan aðrar úti- og bæjarhátíðir þurfa ekki leggja fram krónu. Dómsmálaráðuneytið hefur ekki látið svo lítið að svara bréfi félagsins frá því janúar sl. þar sem þessu er mótmælt harðlega. „Þann 22. janúar í vetur sendum við bréf til dómsmálaráðuneytisins og dómsmálaráðherra þar sem við vildum fá sem gleggstar upplýsingar um löggæslukostnað á þjóðhátíð," sagði Páll Scheving framkvæmdastjóri ÍBV. „Þar bentum við á það órétti að á meðan Kántríhátíð, Neistaflug og Sfldarævintýri, sem draga til sín mörg þúsund manns, borga ekki krónu í, löggæslukostnað þurfum, við að punga út 8 milljónum í löggæslu, björgunarsveitlr, læknisþjónustu og sálgæslu." Páll sagði að þetta væri óþolandi mismunun og framkoma ráðuneytisins væri með eindæmum. „Það virðist vera stefna ráðuneytisins að skattleggja og gjaldtaka okkur þannig að við gefumst upp. Þá taka við eftirlitlausar hátíðir unglinga sem er kannski það sem þessir herrar vilja. Stærsti hluti löggæslunnar er svo í bænum en ekki Herjólfsdal sem gerir óréttlætið enn meira. Áhættan eykst líka stöðugt hjá okkur og nú þurfum við að selja 1000 miða til að eiga fyrir þessum reikningi," sagði Páll að lokum.

Frábær sigur og magalending

ÍBV mætti Skagamönnum á útivelli þar sem ÍBV hafði betur 3-0.  Eyjamenn komust yfir á 23. Mínútu þegar Atli Jóhannsson skoraði. ÍBV liðið lék sterkan varnarleik á Skaganum, hélt sig aftarlega á vellinum og beið færis. Eyjamenn léku svo síðari hálfleik einum fleiri þar sem einum Skagamanninum var vikið af leikvelli rétt fyrir leikhlé. Strákarnir bættu við tveimur mörkum til viðbótar, Atli var þá aftur á ferðinni en endahnútinn bat svo Gunnar Heiðar Þorvaldsson þegar hann skoraði gott mark eftir sendingu frá Atla.

Strákarnir sóttu KA heim nokkrum dögum síðar. Eyjamenn byrjuðu leikinn mjög vel og strax á sjöttu mínútu fékk Gunnar Heiðar ágætt færi sem markvörður KA manna varði vel. En fyrsta mark leiksins leit dagsins ljós eftir stundarfjórðungsleik þegar Birki Kristinssyni mistókst herfilega að koma boltanum frá marki. Tíu mínútum síðar hafði Ian Jeffs hins vegar jafnað leikinn með góðu skallamarki eftir glæsilega sendingu Hjalta Jóhannessonar. Annað mark heimaliðsins var svo einkar klaufalegt og heppnin með KA-mönnum. Þriðja mark KA-manna má svo skrifa á varnarmenn ÍBV þar sem Hreinn spólaði sig framhjá hverjum leikmanni IBV á fætur öðrum og skoraði svo með góðu skoti og staðan f hálfleik 3 - 1 . Síðari hálfleikur var mun harðari en sá fyrri og átti greinilega að láta sverfa til stáls. Um miðjan hálfleikinn fengu norðanmenn svo vítaspyrnu en Birkir Kristinsson gerði sér lítið fyrir og varði spyrnuna. Fátt annað markvert gerðist í síðari hálfleik, KA menn vörðu sinn hlut og niðurstaðan því 3-1 tap fyrir KA.

Lítil von um titil þetta árið

Kvennalið IBV mætti Stjörnunni í Garðabænum þar sem liðin skildu jöfn 0-0. ÍBV sótti meira en heimaliðið stillti upp þéttum varnarmúr og beitti skyndisóknum en hvorugu liði tókst að brjóta ísinn og niðurstaðan því markalaust jafntefli. Vonir Eyjastúlkna minnkuðu stórlega með jafnteflinu.

ÍBV lék svo gegn Þrótti/Haukum nokkrum dögum síðar. Yfirburðir IBV voru miklir og fór mestur hluti leiksins fram á leikhelmingi heimaliðsins, Þróttar/Hauka. ÍBV skapaði sér fjölmörg færi en síðasta hindrunin var markvörður heimastúlkna, sem lék á als oddi í leiknum og varði hvert skotið á fætur öðru. Það var ekki fyrr en á 23. mínútu þegar Margréti Láru Viðarsdóttur tókst að koma boltanum í netið úr vítaspyrnu eftir að brotið var á henni sjálfri. Áfram hélt ÍBV að sækja og færin létu ekki á sér standa en fleiri urðu mörkin ekki í fyrri hálfleik. Í síðari hálfleik var allt enn við sama heygarðshornið, Eyjastúlkur sóttu látlaust en náðu ekki að koma boltanum framhjá markverði Þróttar/ Hauka. Það var svo undir lok leiksins að Olgu Færseth tókst að finna leiðina og Íris Sæmundsdóttir gekk á lagið og tryggði ÍBV þriggja marka sigur.

Bryggjudagur kvennadeildar ÍBV

Með skemmtilegri uppákomum í bæjarlífinu er Bryggjudagur kvennadeildar ÍBV í handboltanum. Hann er orðinn árlegur viðburður og flykkist fólk á bryggjuna til að fá sér kakó og vöfflur og síðast en ekki síst að fá nýja soðningu sem ekki er daglegt brauð í Vestmannaeyjum nútímans. Bryggjudagurinn er fjáröflun fyrir kvennahandboltann og leggur stjórnin sig fram um að bjóða upp á fjölbreytt úrval af fiskmeti, nýja ýsu, skötusel, humar, rækju, saltfisk, lax og nýja bleikju svo eitthvað sé nefnt. Það var greinilegt að fólk kann að meta það að fá allt í einu fiskbúð því flestir héldu á braut með stóra poka af fiskmeti. Ekki skemmdi fyrir að geta fengið sér kakó og vöfflur við ljúfa tónlist í góða veðrinu. Einnig var staðsett lítið sædýrsafn sem vakti mikla lukki.

Sögulegur sigur ÍBV

ÍBV lék gegn Breiðabliki í undanúrslitum bikarkeppninnar en leikurinn fór fram í Kópavogi. Leikurinn fór ekki vel af stað fyrir ÍBV þar sem heimastúlkur sóttu meira til að byrja með. Breiðablik fékk hins yegar fá færi en á tólftu mínútu sótti IBV hratt upp völlinn sem endaði með því að Olga Færseth kom IBV yfir með ágætu skoti úr vítateig. Áfram héldu Blikar að sækja en Eyjavörnin gaf engin færi á sér. Mhairi Gilmour bætti hins vegar við marki þegar fyrri hálfleikur var rétt tæplega hálfnaður. Níu mínútum síðar skoruðu Eyjastúlkur sjálfsmark og héldu margir að spenna væri aftur kominn í leikinn. En Íris Sæmundsdóttir var ekki á sama máli, hún bætti við tveimur mörkum áður en flautað var til leikhlés og staðan í hálfleik 1 - 4 fyrir ÍBV. Síðari hálfleikur fór rólega af stað en þegar tuttugu mínútur voru liðnar fékk ÍBV aukaspyrnu um 25 metrum frá marki Breiðabliks og gerði Karen Burke sér lítið fyrir og skoraði beint úr spyrnunni. Lind Hrafnsdóttir gulltryggði IBV svo sigurinn átján mínútum fyrir leikslok en undir lokin skoruðu heimastúlkur síðasta mark leiksins og lokatölur leiksins því 2-6. ÍBV er því komið í úrslitaleik bikarkeppninar í fyrsta sinn í sögu félagsins.

Ágætur árangur á Gullmóti

Í júlí fór fram Gullmót Breiðabliks og Járnbendingar í yngri flokkum kvenna. Eins og alltaf átti IBV sína fulltrúa á mótinu en frá Eyjum fór nokkuð stór hópur og var leikið í þriðja, fjórða, fimmta og sjötta flokki. ÍBV náði ágætum árangri, fimmti flokkur endaði í þriðja sæti í bæði A- og B-liðum og sjötti flokkur B endaði sömuleiðis í þriðja sæti. Þá sigraði B-lið fjórða flokks í Hraðmótinu sem leikið er með Gullmótinu. Annars var það samdóma álit allra að mótið hefði heppnast vel, um 1200 stelpur tóku þátt í mótinu og fengu einstaka veðurblíðu sem gerir mótið enn betra.

Góður heimasigur ÍBV

Annar flokkur karla lék gegn Leikni á heimavelli. Eyjamenn voru sterkari aðilinn í leiknum og urðu lokatölur 4-2. Mörk ÍBV: Stefán Hauksson 3, Andri Eyvindsson 1. Annar flokkur kvenna lék svo tvívegis gegn Þór/KA/KS en liðin léku á Tungubakkavelli í Mosfellsbæ til að spara ferðakostnað. Fyrri leikur liðanna, sem var heimaleikur ÍBV endaði með þriggja marka sigri ÍBV 3-0. Síðari leikur liðanna endaði einnig með þriggja marka sigri Norðanstúlkna, lokatölur 4-l. Þriðji flokkur karla lék gegn Breiðabliki. Blikamir nýttu sér heimavöllinn til hins ýtrasta því lokatölur urðu 5-0 fyrir heimaliðið. Fimmtí flokkur karla lék tvívegis fyrst gegn HK og svo gegn ÍR. Gegn HK tapaði A-liðið 4-0, B-liðið 3-1 og C-liðið 6-2. D liðið vann hins vegar sinn leik 4-5. A-liðið gerði svo jafntefli gegn ÍR, B-liðið vann l-2 og C-liðið 1-3. D liðið tapaði hins vegar sínum leik 5-2.

ÍBV verður með „bekkjabíla" á þjóðhátíð

Í ár mun IBV í fyrsta sinn halda úti tveimur bílum sem munu flytja fólk til og frá Herjólfsdal. Um er að ræða bifreiðir félagsins sem hafa verið staðsettar á Bakka og eru notaðar í ferðalögum yngri flokkanna. Verður rekstarformið á þeim það sama og á hefðbundnum bekkjabílum. „Við erum einfaldlega að bregðast við auknum útgjöldum þjóðhátíðarinnar með þessu," segir Birgir Guðjónsson, formaður þjóðhátíðarnefndar í samtali við Fréttir „Öll gjöld varðandi hátíðina, m.a. löggæslukostnaður, falla á félagið og því þurfum við að vera með allar klær úti þegar kemur að tekjum af þjóðhátíðinni. Auk þess tekur félagið alla áhættu með hátíðahöldunum og með þessu viljum við geta minnkað fallið ef innkoman verður minni en gert er ráð fyrir."

Mikilvæg stig

Eyjamenn tóku á móti Valsmönnum en bæði lið sárvantaði stig enda stutt í fallbaráttuna.. Leikurinn byrjaði fjörlega og eftir sjö mínútna leik höfðu liðin skorað sitt markið hvort. Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði fyrsta mark leiksins á fimmtu mínútu eftir góðan undirbúning Atla Jóhannssonar og Steingríms Jóhannessonar en tveimur mínútum síðar skoraði Tom Betts í eigið mark og jafnaði þar með leikinn. Eyjamenn voru svo aðeins sterkari það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og besta færið fékk Steingrímur þegar hann fylgdi á eftir skoti Gunnars Heiðars en rétt missti af boltanum sem rúllaði meðfram marklínunni og aftur fyrir endamörk. Í síðari hálfleik voru það hins vegar Valsmenn sem voru sterkari en sköpuðu sér fá færi. Þegar tuttugu mínútur voru til leiksloka fengu Eyjamenn hins vegar færi á að sækja og Ingi Sigurðsson, sem hafði komið inn á um miðjan fyrri hálfleik, negldi boltanum fram völlinn. Valsmenn náðu að hreinsa fram að miðjum eigin vallarhelming en þar var Ingi aftur mættur og sendi háan bolta inn í teig Valsmanna. Boltinn skoppaði svo í vítateignum og þaðan í netið, ótrúlegt mark hjá Inga, sem fagnaði innilega en hann var að spila sinn 200. leik fyrir ÍBV.

Þrír í úrtökumót

Á hverju ári heldur KSÍ úrtökumót fyrir unga og efnilega knattspyrnumenn á Laugarvatni. Þar koma saman um 60 knattspyrnumenn og eru þeir gjaldgengir sem eru á yngra ári í þriðja flokki. Fyrirkomulag úrtökumótsins er þannig að leikmönnunum er skipt í fjóra hópa sem svo leika gegn hver öðrum ásamt því að stunda æfingar. Samhliða þessu fer fram hæfileikamótun ungra dómara og sjá þeir m.a. um dómgæslu í mótinu. Frá ÍBV fara þrír leikmenn, þeir Frans Friðriksson, Hafþór Jónsson og Ellert S. Pálsson en úrtökumótið stendur yfír dagana 8. til 10. ágúst.

Ester og Kári í landslið

Ester Óskarsdóttir var á dögunum valin til þess að æfa með U-16 ára landsliði íslands en Esther er fimmtán ára gömul. Alls mættu 32 leikmenn til leiks en æfíngarnar og var æft tvisvar á dag. Þá var Kári Kristjánsson einnig valinn í landslið skipað leikmönnum fæddum 1984 og síðar. Íslenska liðið kemur til með að leika í lokakeppni EM dagana 7-18 ágúst og fer keppnin fram í Slóvakíu.

Margrét og Karítas í byrjunarliðinu

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum 17 ára og yngri, tekur nú þátt í Ólympíuleikum æskunnar sem fara fram í París. Fyrsti leikur liðsins var gegn írskum jafnöldrum sínum. Leiknum lyktaði með eins marks tapi Íslands 0-1 en bæði Margrét Lára Viðarsdóttir og Karítas Þórarinsdóttir voru í byrjunarliði Íslands.

ÁGÚST:

Þjóðhátíð tókt vel

Þjóðhátíðarinnar 2003, sem er sú 127. í röðinni, verður minnst fyrir frábært veður og hvað hún fór vel fram. Fjöldinn var í meðallagi og næstum allir komust heilir heim. Þá má ekki gleyma þætti Árna Johnsen sem ekki mætti í brekkusönginn. Það var ekki svo að ekki hefði verið reynt að fá hann lausan í nokkra klukkutíma á sunnudeginum, en það tókst ekki. Öll þjóðin hafði fylgst með málinu alla helgina sem fékk ótrúlega athygli fjölmiðla. Útbúinn hafði verið þyrlupallur í Dalnum og vitað var af þyrlu á flugvellinum á sunnudagskvöldinu þannig að ljóst var að eitthvað var í aðsigi. Það var svo rúmlega 11 að þyrlan sveif inn Herjólfsdal en hún lenti ekki en úr henni var hent kassa sem hafði að geyma kveðju frá Árna. Það var því Ijóst að hann kæmi ekki og eftir að Birgir Guðjónsson, formaður þjóðhótíðamefndar, las bréfið steig Róbert Marshall, Eyjamaður og fréttamaður á Stöð 2, fram og hóf upp raust sína og gítar og fór fyrir brekkusöngnum. Hann náði vel til fólksins sem virtist ekki hafa miklar áhyggjur af því hver var forsöngvari brekkukórsins. Þjóðhátíðin skartaði hljómsveitunum Skítamóral, Á móti sól og Sálinni á stóra pallinum. Á litla pallinum voru það Eyjahljómsveitimar Hippabandið og Dans á rósum sem sáu um fjörið og í hléum var það hljómsveitin Tríkot sem sá um að trylla fólkið. Dagskráin á daginn snerist mest um unga fólkið og sérstaklega var vandað til hennar fyrir yngsta fólkið þar sem Brúðubíllinn fór með stórt hlutverk. Hlutur hljómsveitarinnar, Dans á rósum í barnadagskránni var líka til fyrirmyndar og það sama má segja um Björgvin Franz, Láru Sveinsdóttur , Svein Þóri Geirsson og Tinnu Hrafnsdóttur, sem fluttu lög úr fjölskyldusöngleiknum Benedikt búalfur af stakri alúð. Eyjastúlkan Þura Stína steig einnig á stokk og söng hressilega og lét ekki smá tækni vandmál slá sig út af laginu. Brennan var á sínum stað, flugeldasýningin var glæsilegri en nokkru sinni en stóra málið var brekkusöngurinn.

Ósáttir við háan löggæslukostnað

Páll Scheving framkvæmdarstjóri IBV hefur staðið framarlega í samningaviðræðum við sýslumannsembættið og segir hann að menn hafí vissulega skipst á skoðunum og að þjóðhátíðamefnd hafi sent sýslumanni bréf þar sem óskað er eftir rökstuðningi fyrir löggæslukostnaðinum og sundurliðun á reikningnum. „Það var svo skrifað undir samkomulag á fimmtudeginum þar sem ég geri ráð fyrir að báðir aðilar hafi verið sáttir við því annars hefðu menn nú ekki skrifað undir," sagði Páll. Þjóðhátíðarnefnd þurfti að leggja fram fjögurra milljón króna tryggingu fyrir löggæslukostnaðinum og sagði Páll að óvíst væri ennþá hversu hár kostnaðurinn yrði. Páll segir að aðstandendur útihátíða víða um land hafa verið að ræða þessi mál, bæði sín á milli og í fjölmiðlum og flestir eru nú á því að þetta sé ósanngjarnt gjald. „Ég persónulega er á þeirri skoðun að löggæslukostnaður eigi að vera greiddur af ríkinu. Ísland er tæplega 300 þúsund manna samfélag og þegar þarf að auka löggæslu á einum stað þá hlýtur að mega draga úr henni annars staðar." Páll vildi koma því á framfæri að samstarfið við lögregluna hafi gengið vel. „Hún leysti öll mál sem upp komu og ber að þakka það og vil ég fyrir hönd þjóðhátíðarnefndar koma á framfæri þakklæti til allra gæslumanna, lögreglu, lækna og sálgæslufólks sem starfaði í Dalnum yfir hátíðina," sagði Páll að lokum.

Eyjamenn í landsliðshópnum

Eyjamaðurinn, Ásgeir Sigurvinsson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt hverjir skipa leikmannahóp íslenska landsliðsins sem fer til Færeyja til að leika gegn heimamönnum í undankeppni Evrópukeppninnar. Í leikmannahópnum em þeir Birkir Kristinsson, Hermann Hreiðarsson og Ívar Ingimarsson en Tryggvi Guðmundsson fótbrotnaði á dögunum og getur því ekki leikið.

Heldur slakt gengi

Annar flokkur karla lék gegn Víkingum í Víkini. Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir Eyjamenn því staðan í hálfleik var 2- 0 fyrir gestgjafana. Sveinn Sveinsson, þjálfari liðsins kom réttum skilaboðum til sinna manna í hálfleik því Eyjamenn jöfnuðu og endaði leikurinn með 2-2 jafntefli. Mörk ÍBV: Víðir Róbertsson (2). Annar flokkur kvenna lék í bikarnum og voru mótherjarnir HK/Víkingur. ÍBV leikur í A-deild en HK/Víkingur í B-deild og áttu því flestir von á sigri ÍBV. En gestirnir voru ekki á sama máli og komust yfir strax á fimmtándu mínútu en leikmönnum ÍBV tókst aðjafna leikinn. Gestirnir komust hins vegar aftur yfir undir lok fyrri hálfleiks og bættu svo við þremur mörkum í síðari hálfleik án þess að ÍBV næði að svara og niðurstaðan varð því 1 -5 tap á heimayelli. Mark ÍBV: Thelma Sigurðardóttir. Liðið lék svo gegn KR daginn eftir og töpuðu stelpumar þeim leik 5-0. Fjórði flokkur kvenna lék gegn Grindavík og fór leikurinn fram hér í Eyjum. Grindvíkingar tóku Eyjastelpur í kennslustund og fóru héðan með 1 -5 sigur í farteskinu. ÍBV lék svo á útivelli gegn HK og þá léku bæði A- og B-lið. A-liðið vann sinn leik 4-5 og B-liðið gerði sér lítið fyrir og sigraði sinn leik 0-11. Fimmti flokkur karla lék gegn Aftureldingu og fóru leikirnir fram í Mosfellsbæ. A-liðið gerði 3-3 jafntefli, B-liðið vann sinn leik 1-2, hjá C-liðum sigraði ÍBV 2-3 en D-liðið tapaði 7-4.

Í þriðja sæti

ÍBV tók á móti Grindavík í fyrsta leik þrettándu umferðar. Fyrri hálfleikur hlýtur að hafa verið einn sá allra daufasti hálfleikur í Landsbankadeildinni í sumar. Leikmenn beggja liða fóru hægt í sakirnar en þegar nær dró vítateig andstæðingsins klikkuðu flestar sendingar þannig að sóknarleikur beggja liða var slakur. Besta færi ÍBV í fyrri hálfleik fékk Steingrímur Jóhannesson þegar hann var við það að sleppa í gegnum vörn Grindvíkinga en vamarmenn gestanna þrengdu að honum og unnu af honum boltann. Í síðari hálfleik vom Grindvíkingar beittari en Birkir Kristinsson varði allt það sem á markið kom. Undir lok hálfleiksins fékk ÍBV svo skyndisókn, Ingi Sigurðsson sendi út í hom á Gunnar Heiðar Þorvaldsson sem sendi góða sendingu fyrir markið og þar var Steingrímur mættur og sneiddi boltann laglega í netið, 1-0 og urðu það lokatölur leiksins.

Tap í öllum lcikjunum

Annar flokkur karla tók á móti Fjölnismönnum. Þrátt fyrir að uppistaðan í liðinu væm leikmenn úr þriðja flokki var leikurinn jafn í fyrri hálfleik og staðan í leikhléi var 1 - 2 en Eyjamenn brenndu af víti undir lok hálfleiksins. Í síðari hálfleik kom svo getumunurinn í ljós því gestirnir bættu við tveimur mörkum og sigmðu þar með 1 - 4. Annar flokkur kvenna lék tvo leiki, fyrst var leikið gegn Breiðablik en svo gegn ÍA. Fyrri leikurinn endaði með fjögurra marka tapi, 5-1 og skoraði Thelma Sigurðardóttir eina mark IBV. Á Akranesi steinlágu stelpumar, 7 – 0. Fjórði flokkur karla tefldi fram tveimur liðum og spilaði hvort lið tvo leiki. A-liðið gegn Ungmennafélagi Bessastaðahrepps en B-liðið gegn Gróttu. A-liðið tapaði sínum leik 3-l en B liðið gerði 2 - 2 jafntefli. Daginn eftir léku svo bæði liðin gegn Stjömunni en þar tapaði A-lðið 9-0 og B-liðið 6-3.

Kári eða “Víkingurinn”

Íslenska karlalandsliðið í handknattleik, skipað leikmönnum átján ára og yngri gerði heldur betur góða ferð austur til Slóvakíu en í borginni Kosice var leikið í lokakeppni Evrópumótsins. Leikið var í tveimur riðlum og fóru tvö efstu liðin upp úr hverjum riðli. Íslenska liðið var í riðli með Ungverjum, Þjóðverjum, Slóvökum, Slóvenum og Rússum en liðið tapaði aðeins einum leik naumlega og mætti Svíum í undanúrslitum. Sá leikur var mjög spennandi en eftir framlengdan leik sigruðu Íslendingar. Í úrslitum mættu strákarnir svo Þjóðverjum, eina liðinu sem hafði tekist að sigra Ísland í riðlakeppninni. Úrslitaleiknum lauk með sannfærandi íslenskum sigri og þar með nóði þetta unga og efnilega landslið merkasta áfanga Íslendinga í hópíþrótt fyrr og síðar. Að standa uppi sem besta liðið í Evrópu er ekki lítið afrek en í íslenska hópnum var einn Eyjamaður, Kári Kristján Kristjánsson, sem vegna vasklegrar framgöngu sinnar innan sem utan vallar, fékk viðurnefnið víkingurinn.

Reynsla sem á eftir að nýtast

Þann 17. ágúst léku ÍBV og Valur til úrslita í Visabikarkeppni kvenna og fór leikurinn fram á Laugardalsvelli. Nokkur eftirvænting ríkti hjá Eyjamönnum enda var þetta í fyrsta sinn sem kvennalið ÍBV kemst í bikarúrslitaleikinn. Undirbúningur liðsins fólst í því að dvelja í Borganesi um helgina, í rólegu umhverfi og góðu yfirlæti. Það var ágætis stemmning á Laugardalsvelli á meðal þeirra rúmlega eitt þúsund áhorfenda sem lögðu leið sína á völlinn. Eyjamenn voru í meirihluta á pöllunum og höfðu betur í baráttunni þar. Leikurinn fór fjörlega af stað og ÍBV var mun betra liðið fyrstu tíu mínúturnar og það var því í samræmi yið gang leiksins að Karen Burke kom ÍBV yfír eftir fimm mínútna leik. En fimm mínútum síðar jöfnuðu Valsstúlkur með glæsilegu marki. Við þetta jafnaðist leikurinn aðeins og liðin skiptust á að sækja. Smám saman náðu þó Valsstúlkur betri tökum á leiknum og undir lok fyrri hálfleiks gerðu þær út um leikinn. Á fertugustu mínútu kom sending inn fyrir vörn IBV. Varnarmenn ÍBV náðu ekki að koma boltanum í burtu og allt í einu var sóknarmaður Vals sloppinn inn fyrir vörn IBV og átti ekki í vandræðum með að skora framhjá Rachel Brown. Við þetta virtust leikmenn IBV vera slegnir út af laginu því Valur bætti þriðja markinu við skömmu síðar og róðurinn orðinn verulega þungur. Í síðari hálfleik lögðu Valsstúlkur alla áherslu á góðan varnarleik enda komnar með tveggja marka forystu. Það gekk vel hjá þeim, IBV komst lítið áleiðis og fékk fá færi. Margrét Lára fékk líklega besta færið til að skora tíu rrúhútum fyrir leikslok þegar hún var ein á móti markverði en skot hennar fór hátt yfir. Lokatölur urðu því 1-3 fyrir Val og silfurverðlaunin því niðurstaðan fyrir IBV.

Gengur ekki að ætla að skora fjögur mörk

Olga Færseth lék í fremstu víglínu allan leikinn og var í mikilli baráttu þar sem Valsvörnin var að leika mjög vel. „Við ákváðum að mæta mjög grimmar til leiks og setja á þær mark snemma og við gerðum það. En svo var eins og botninn dytti úr þessu hjá okkur og við fóram að slaka á. Þær jöfnuðu fljótlega og skoraðu svo tvö mörk á skömmum tíma. Mér fannst við vera betri aðilinn í seinni hálfleik og ef ég lít á leikinn í heild sinni þá held ég að við hefðum átt að gera betur. Þær sáu hins vegar um að skora mörkin og það er það sem telur í leikslok." Þið fenguð færi til þess að skora en þetta virtist ekki liggja fyrir ykkur í dag? „Nei, það hefur einmitt verið okkar vöramerki undanfarið, að skora mörg mörk en þegar svona mikið er undir í leiknum getum við ekki leyft okkur að fá á okkur þrjú mörk og ætla að skora fjógur. Það gengur bara ekki upp í svona leikjum."

Tökum þetta næst

Íris Sæmundsdóttir er án efa einn leikreyndasti leikmaður ÍBV en hún sagði í samtali við Fréttir eftir leikinn að ÍBV hefði gefið óþarflega mikið eftir þegar Valur jafnaði. „Við byrjuðum leikinn mjög vel, komumst yfir og þetta leit mjög vel út. Svo veit ég ekki hvað gerist eftir að Valur jafnaði. Þá hreinlega hættum við að spila og hleyptum þeim óþarflega mikið inn í leikinn. Svo fáum við þessi tvö mörk á okkur undir lok fyrri hálfleiks og þá var þetta orðið mjög erfitt. Í seinni hálfleik fengum við fullt af færam til þess að jafna en því miður nýttust þauekki. Valur var að spila mjög vel í dag en það hefði verið sætt að taka þær líka eftir að hafa unnið tvö stórveldi, Breiðablik og KR fyrr í bikarkeppninni en það kemur ár eftir þetta ár þannig að við gerum bara betur næst." Ertu sem sagt ekkert á þeim buxunum að fara leggja skóna á hilluna? „Nei, maður hefur aldrei lyft dollu og vonandi kemur að því fyrr en síðar. Maður verður hins vegar að vera með til þess að njóta þess."

Afar slakt hjá strákunum

ÍBV lék gegn Fram í Laugardalnum í mikilvægum leik, ÍBV í toppbaráttu en Fram á botninum. Fyrri hálfleikur var með því slakasta sem sést hefur lengi vel og fátt sem gladdi augað. Eyjamenn lentu undir í lok fyrri hálfleiks þegar Framarar fengu aukaspyrnu á silfurfati við vítateig Eyjamanna. Í raun hefði átt að vera hægt að koma í veg fyrir markið en varnarveggur ÍBV var opinn sem gatasigti og var Birkir verulega ósáttur við sína menn. Í síðari hálfleik lifnaði aðeins yfir leiknum og leikmenn ÍBV fóru að berjast. Steingrímur Jóhannesson átti svo heiðurinn af jöfnunarmarki IBV en eftir að hafa brotist upp að endalínu við markteigshornið, skaut hann í varnarmann Fram og þaðan fór boltinn í netið. Steingrímur var svo aftur á ferðinni skömmu síðar þegar hann átti ágætt skot utan vítateigs en boltinn fór í utanverða stöngina. Allt leit út fyrir að jafntefli yrði niðurstaðan en undir lokin tókst Frömurum að tryggja sér sigurinn með ágætu skallamarki.

Fyrsti sigur Eyjastúlkna í Kópavogi

Kvennalið ÍBV lék um miðja  ágúst gegn Breiðabliki og fór leikurinn fram í Kópavogi. IBV hafði aldrei unnið Blika á þeirra heimavelli og fyrir þetta tímabil hafði IBV aldrei unnið Breiðablik yfir höfuð. Leikurinn fór ágætlega af stað og liðin skiptust á að skora. Á 20. mínútu skoraði Olga Færseth fyrsta mark leiksins og um leið sitt 200. mark í deildarkeppni á Íslandi. Heimaliðið neitaði að gefast upp og fimmtán mínútum eftir mark Olgu jöfnuðu Blikastúlkur og staðan í hálfleik 1 -1. Í síðari hálfleik var svo komið að þætti Karenar Burke. Eftir mikla baráttu tókst henni að koma ÍBV yfír þegar tuttugu mínútur voru eftir af leiktímanum og fimm mínútum fyrir leikslok skoraði hún sitt annað mark og þriðja mark IBV. En Karen var ekki hætt og tveimur mínútum síðar fullkomnaði hún þrennuna og tryggði IBV um leið þriggja marka sigur.

Yngri flokkarnir

Þriðji flokkur karla lék Stjörnunni í Garðabænum. Lokatölur urðu 0-1 fyrir ÍBV sem siglir lygnan sjó um miðjan B-riðil. Mark IBV: Birkir Hlynsson. Þriðji flokkur kvenna lék svo tvo leiki, fyrst var leikið gegn Selfossi og endaði sá leikur með sigri ÍBV 2-3. Mörk IBV: Tanja Sigurjónsdóttir, Fanndís Friðriksdóttir og Sara Sjöfn Grettisdóttir. Daginn eftir lék liðið svo gegn Fjölni í Grafarvoginum og sigruðu Fjölnisstúlkur 7-0. ÍBV er um miðja A-deild, er nokkuð öruggt með sæti sitt í deildinni en á ekki möguleika á titli.

ÍBV vill afnot af auðum íbúðum

Á bæjarráðsfundi lá fyrir frá formönnum handknattleiks og knattspyrnuráða ÍBV íþróttafélags bréf þar sem óskað er eftir afnotum án endurgjalds á nokkrum íbúðum í eigu bæjarins. Bæjarráð kvaðst ekki geta orðið við erindinu en felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og afla nánari upplýsinga um það hvernig Vestmannaeyjabær geti komið sem best til móts við íþróttahreyfinguna í heild sinni.

Elstu flokkarnir í fallbaráttu

Annar flokkur karla lék gegn Breiðablik þar sem liðin skildu jöfn 1-1. ÍBV er í mikilli fallbaráttu, er í næst neðsta sæti með 12 stig. Víkingar eru í neðsta sæti og eru fallnir en næstu þrjú lið fyrir ofan IBV eru öll í þriggja stiga færi og Eyjapeyjar eiga leik inni. Mark ÍBV: Einar Kristinn Kárason.

Annar flokkur kvenna reynir nú eftir fremsta megni að forðast fall. Liðið situr í neðsta sæti A-riðils með aðeins þrjú stig eftir átta leiki. Liðið lék gegn ÍA og var jafnræði með liðunum framan af leik. Skagastúlkur komust yfir í fyrri hálfleik en ÍBV náði að jafna fyrir leikhlé. Liðin skiptust svo á að sækja í síðari hálfleik en undir lok leiksins skoruðu gestirnir þrjú mörk og lokatölur því 1-4. Mark ÍBV: Thelma Sigurðardóttir.

Þriðji flokkur karla lék næstsíðasta leik sinn í sumar þegar liðið sótti Þrótt heim. IBV er um miðjan B-riðil en Þróttarar í fallsæti. Leiknum lyktaði með jafntefli 3-3 eftir að staðan hafði verið 1 -2 í hálfleik. Mörk IBV: Frans Friðriksson, Egill Jóhannsson, Einar Kristinn Kárason.

Þriðji flokkur kvenna steinlá gegn Val en stelpurnar 1-5 en staðan í hálfleik var 1-3. Mark ÍBV: Sara Sjöfn Grettisdóttir. Fjórði flokkur karla lék síðustu leiki sína en leikið er í A- og B-liðum. Mótherjinn var Leiknir og tapaði Aliðið 0-1 en jafntefli varð í viðureign B-liðanna, 3-3.

ÍBV endaði í þriðja sæti

Í lok ágúst fór fram samskipamótið í handknattleik kvenna í Eyjum, með þátttöku Stjörnunnar, Vals og Gróttu/KR auk ÍBV. Mótið gekk þannig fyrir sig að liðin léku öll innbyrðis og svo var leikið í undanúrslitum og svo um sæti. Lokastaða mótsins varð þannig að IBV endaði í þriðja sæti eftir að hafa unnið Stjömuna og Valur vann Gróttu/KR í úrslitaleiknum. Það var löngu Ijóst að ÍBV væri langt á eftir öðrum í sínum undirbúningi. Þannig komu fyrstu erlendu leikmenn liðsins til landsins viku fyrir mótið og síðasti leikmaðurinn kom daginn fyrir mót. Liðið lék heldur ekki vel, hvorki í vörn né sókn en það eru enn um fjórar vikur í fyrsta leik í Islandsmótinu þannig að Aðalsteinn Eyjólfsson ætti að hafa nægan tíma.

Hörð fallbarátta

Eyjamenn mættu með vængbrotið lið í Kaplakrika þar sem liðið lék gegn FH í fimmtándu umferð Landsbankadeildarinnar. Bæði lið þurftu nauðsynlega á sigri að halda til að forðast fallbaráttuna. Fyrri hálfleikur var slakur eins og síðustu tveimur leikjum ÍBV og var lítið um spil hjá liðinu. Tveir leikmenn voru í leikbanni hjá IBV, Bjarnólfur Lárusson tók út sitt þriðja leikbann á tímabilinu og Ian Jeffs var í banni eftir að hafa fengið rautt spjald gegn Fram. Staðan í hálfleik var 0-0. Síðari hálfleikur fór fjörlega af stað, sérstaklega fyrir heimamenn sem sóttu meira. Þeir komust yfir strax á fyrstu mínútum og fylgdu markinu vel eftir með góðum sóknarlotum. Birkir Kristinsson átti hins vegar stórleik í marki IB V og kom í veg fyrir að FH-ingar bættu við forskotið. Þegar tæpur hálftími lifði af leiknum nýttu Eyjamenn sér svo varnarmistök Hafnfirðinga  sem varð til þess að Steingrímur Jóhannesson slapp í gegn og jafnaði. En FH-ingar héldu áfram eftir að sækja og markið lá í loftinu en það kom þegar um stundarfjórðungur var eftir, lokatölur 2-1.

Sætur sigur

Liðin sem mættust í bikarúrslitaleiknum, IBV og Valur áttust við í lok ágúst en leikurinn var fyrsti leikur liðanna eftir úrslitaleikinn í bikarnum. Í þetta sinn fór viðureignin fram á Hásteinsvelli og sýndu Eyjastúlkur svo um munaði að lokatölur bikarleiksins gefa ekki rétta mynd af styrkleika liðanna. Það var augljóst frá fyrstu mínútu að leikmenn ÍBV ætluðu að sanna sig fyrir sínum stuðningsmönnum. Eyjastúlkur voru mun sterkari og eftir aðeins ellefu mínútur kom fyrsta markið. Eyjastúlkur bættu svo við tveimur mörkum fyrir leikhlé en nánast einstefna var að marki Vals. Síðari hálfleikur var jafnari ef eitthvað var en Margrét Lára Viðarsdóttir gerði vonir Valsara að engu þegar hún skoraði fjórða mark IBV í leiknum eftir fimm mínútna leik. Þrátt fyrir að leikurinn hafí jafnast þá voru Eyjastúlkur mun sterkari og gestirnir náðu aldrei að ógna marki IBV af neinu viti. Margrét Lára innsiglaði svo sigur IBV þegar tæpar tuttugu mínútur voru til leiksloka og þar með smá sárabót fyrir leikmenn liðsins eftir bikartapið.

ÍBV tók á móti Þór/KA/KS þar sem IBV hafði mikla yfirburði og sigraði 8-0. Eyjastúlkur byrjuðu reyndar ekki vel, léku undan stífum vindi og áttu í mesta basli við að ná góðu spili sín á milli. Leikurinn var sá þriðji í röðinni á aðeins sex dögum þannig að þreyta var í mannskapnum en engu að síður voru yfirburðir ÍBV miklir. Fyrsta markið lét samt bíða eftir sér, það kom ekki fyrr en eftir 25 mínútna leik þegar Olga skoraði með hnitmiðuðu skot. Eyjastúlkur bættu við tveimur mörkum fyrir hálfleik, fyrst skoraði Erna Dögg Sigurjónsdóttir með föstu skoti og svo Margrét Lára eftir glæsilegt spil við Olgu Færseth. Þrátt fyrir að leika gegn stífri austan áttinni í síðari hálfleik, gekk heimaliðinu mun betur að sækja. Erna Dögg, Margrét og Olga komu nálægt öllum mörkum liðsins Margrét bætti við þremur mörkum og Ema Dögg einu áður en Olga vippaði yfir markvörð norðanstúlkna á síðustu mínútunni og skoraði þar með áttunda mark ÍBV.

Silfur hjá fjórða flokk kvenna

B-lið fjórða flokks kvenna lék um helgina í úrslitum B-liða í Íslandsmótinu. Úrslitin byrjuðu í tveimur riðlum og efstu liðin léku svo til úrslita. Eyjastúlkur fóru nokkuð létt í gegnum sinn riðil, unnu báða leiki sína örugglega og mættu því Breiðabliki í úrslitaleik um íslandsmeistaratitilinn. En Breiðablik var mun sterkari aðilinn í leiknum og urðu lokatölur leiksins 6-0. IBV endaði því í öðru sæti sem er engu að síður mjög góður árangur.

Þrír sigrar hjá körlunum

Karlalið ÍBV í handknattleik lék þrjá æfingaleiki í lok ágúst. Tvívegis var leikið gegn Aftureldingu, sem teflir fram mjög breyttu liði í vetur. Leikimir unnust báðir, nokkuð örugglega fyrst með fjórum mörkum og svo með þremur. Síðasti leikurinn var svo gegn varaliði Fram en þar lék Sindri Ólafsson með Safamýrarliðinu. Sá leikur vannst einnig stórt eða með ellefu marka mun. Í leikmannahópi ÍBV voru þrír nýir leikmenn. Björgvin Rúnarsson var að leika í fyrsta sinn með ÍBV í langan tíma og svo stóð Jóhann Guðmundsson í markinu. Nýjasti leikmaður IBV var svo Zoltán nokkur Belány, sem á árum áður lék með ÍBV. Belló er nú orðinn 35 ára gamall og hefur síðan 1997 búið á höfuðborgarsvæðinu. Hann kemur til með að búa þar áfram en leika með ÍBV og æfa þegar tækifæri gefst.

Rússneskur markvörður

Handknattleiksráð kvenna hefur nú fyllt síðustu stöðuna sem er markvarðarstaðan. Vigdís Sigurðardóttir hafði ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir síðasta tímabil og því var úr vöndu að ráða. Nýi markvörðurinn heitir Julia Gantimurova og kemur frá Ekaterenburg í Rússlandi. Julia er 27 ára lék á árum áður með Öllu Gokorian en hún náði að leika einn leik með ÍBV í Samskipamótinu og stóð sig ágætlega þrátt fyrir að eiga sólarhringsferðalag að baki.

Vel heppnaður skemmtidagur

Í lok ágúst var haldin skemmtidagur fyrir yngstu knattspyrnuiðkendur ÍBV. Þá komu sjötti flokkur kvenna og sjöundi flokkur karla saman. Krakkarnir byrjuðu að leika knattspyrnu, svo var farið í sund og nóttinni eyddu þeir svo í Týsheimilinu en um 50 til 60 krakkar tóku þátt með foreldrum sínum.

Enn á brattann að sækja

ÍBV tók á móti Þrótti á Hásteinsvellinum en leikurinn var báðum liðum mjög mikilvægur í harðri fallbaráttunni. Eyjamenn voru mun betri í fyrri hálfleik og aðrir eins yfirburðir hafa varla sést á Hásteinsvelli í sumar. Uppskeran í hálfleik var hins vegar afar rýr, ekkert mark skorað en Eyjamenn fengu fjöldann allan af færum, sumum mjög góðum, sem ekki nýttust. Seinni hálfleikur var jafnari en sá fyrri og Björgólfur Takefusa kom gestunum yfir á 56. mínútu þegar hann þrumaði boltanum beint úr aukaspymu, í gegnum varnarvegg ÍBV og í netið. En Eyjamenn héldu haus og sóttu meira það sem eftir lifði leiks. Tuttugu mínútum fyrir leikslok gerðist það svo að Eyjamenn fengu aukaspymu rétt fyrir utan vítateig Þróttara og Bjarnólfur Lárusson gerði sér lítið fyrir og negldi boltan upp í samskeytin og í netið. Stórglæsilegt mark og án efa eitt af þeim glæsilegri í sumar. Þrátt fyrir að sækja meira undir lokin tókst Eyjamönnum ekki að skora fleiri mörk og því varð niðurstaðan jafntefli, frekar slæm úrslit fyrir Eyjamenn en Þróttarar geta andað léttar í bili.

Margrét og Olga í landsliðinu

Helena Ólafsdóttir, landsliðsþjálfari, hefur valið 16 manna hóp A-landsliðs kvenna í knattspymu en liðið leikur gegn Frakklandi, mánudaginn 8. september. Leikurinn er liður í Evrópukeppninni en íslenska liðið gerði góða ferð til Rússlands í síðasta mánuði og náði þar jafntefli. Í íslenska hópnum eru tveir leikmenn IBV, þær Margrét Lára Viðarsdóttir og Olga Færseth en Íris Sæmundsdóttir gaf ekki kost á sér að þessu sinni.

Góður sigur

Annar flokkur kvenna tók á móti Stjörnuni og léku liðin á Þórsvellinum. Eftir að hafa fengið á sig slysalegt mark um miðjan fyrri hálfleik blésu Eyjastúlkur til sóknar og skoruðu þrjú mörk áður en flautað var til leikhlés. Stjömustúlkur náðu að minnka muninn niður í eitt mark í síðari hálfleik en Fanndís Friðriksdóttir skoraði síðustu tvö mörk leiksins og tryggði ÍBV góðan sigur á Stjörnunni. I liði IBV vom tvær þrettán ára stúlkur sem eru enn í fjórða flokki en þær Fanndís og Þórhildur Ólafsdóttir sýndu það í leiknum að þær eiga yel heima í öðmm flokki. Mörk ÍBV: Fanndís Friðriksdóttir 2, Thelma Sigurðardóttir, Sara Sigurlásdóttir, Lilja Dröfn Kristinsdóttir. Annar flokkur karla lék á móti Breiðabliki í Kópavogi og lauk leiknum með 4- 0 tapi IBV.

Eyjastúlkur í 2. sæti

ÍBV lék gegn FH í næstu síðustu umferð Landsbankadeildar kvenna og fór leikurinn fram í Kaplakrika. ÍBV átti enn tölfræðilegan möguleika á íslandsmeistaratitlinum. Til þess urðu KR-ingar að tapa stigum á heimavelli gegn Stjömunni og IBV að sjálfsögðu að vinna sinn leik. Eyjastúlkur kláruðu leikinn gegn FH með stæl og unnu 8-0 en um leið sigruðu KR-ingar og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn. Elena Einisdóttir kom IBV yfír strax á sjöundu mínútu en Iris Sæmundsdóttir og Margrét Lára bættu við sín hvoru markinu fyrir hálfleik. Í síðari hálfleik skoraði Margrét Lára svo tvö mörk með rúmlega mínútu millibili og aðeins þremur mínútum síðar bætti Lind Hraihsdóttir við sjötta markinu. Olga Færseth kláraði svo leikinn með tveimur mörkum og átta marka sigur IBV því staðreynd.

Ester í landsliðið

Ester Óskarsdóttir hefur verið valin til þess að taka þátt í æfingum landsliðs íslands skipað leikmönnum l6 ára og yngri. Estherer ein af 22 leikmönnum sem eru í hópnum.

Undirbúningur hafinn

Mikið var um að vera bæði hjá körlum og konum í handbotlanum í lok ágúst. Eyjamenn léku á opna Reykjavíkurmótinu í handbolta karla en leikið var í íþróttahúsinu við Austurberg. Liðunum var skipt í þrjá riðla þar sem liðin léku innbyrðis og svo léku sex lið í úrslitum. Skemmst er frá því að segja að Eyjamenn töpuðu tveimur leikjum af þremur í riðlakeppninni og gerðu jafntefli í þeim þriðja og komust þar með ekki upp úr riðlinum. Úrslit leikjanna urðu þessi: Haukar-ÍBV 25-13 ÍBV-Stjaman 17-22 ÍBV - Breiðablik 20-20.

Guðbjörg og Alla í landsliðinu

Íslenska kvennalandsliðið lék í sterku alþjóðlegu móti sem fram fór í Frakklandi. Tveir leikmenn ÍBV, þær Guðbjörg Guðmannsdóttir og Alla Gokorian, léku með liðinu og voru drjúgar í markaskomn með liðinu. Í mótinu tóku þátt, auk íslenska liðsins, landslið Alsírs, franska stórliðið Metz, Spánanneistararnir Elda, franska liðið Marignac og spænska liðið Bera Bera. Íslenska liðið komst alla leið í úrslit mótsins þar sem mótherjinn var Metz en franska liðið sigraði í leiknum, 26-20.

Tveir æflngaleikir gegn Stjörnunni

Kvennalið ÍBV lék tvo æfingaleiki gegn Stjömunni síðustu helgina í ágúst. Í lið ÍBV vantaði þær Guðbjörgu Guðmannsdóttur og Öllu Gokorian, sem léku með landsliðinu á sama tíma. Fyrri leikurinn fór fram á föstudeginum en eftir að hafa verið tveimur mörkum yfír í hálfleik, 12-14 varð jafntefli niðurstaðan 27-27. Síðari leikurinn fór svo fram daginn eftir og aftur var ÍBV yfir í hálfleik en í þetta sinn tókst Stjörnustúlkum að sigra með sjö mörkum, 21-28.

SEPTEMBER:

Meistaraheppni með gestunum

ÍBV-stelpurnar tóku á móti KR í lokaumferð deildarinnar. Mjög erfiðar aðstæður voru þegar leikurinn hófst, austan rok og rigning og völlurinn þungur og blautur. Þrátt fyrir að leika gegn vindi í fyrri hálfleik tókst leikmönnum IBV að halda aftur af gestunum. Þegar á leið fyrri hálfleik náðu stelpurnar að venjast aðstæðum og náðu oft á tíðum ágætis spili. KR-ingar reyndu töluvert af langskotum en aðeins eitt rataði rétta leið og var staðan 0-1 í hálfleik. Í síðari hálfleik hafði vind lægt nokkuð og þegar á leið leikinn var komið hið besta knattspyrnuveður, hægur vindur og engin rigning. Elena Einisdóttir skoraði jöfnunarmark ÍBV þegar hálfleikurinn var rétt hálfnaður en KR-ingar komust aftur yfir úr einni af fáum sóknum sínum í síðari hálfleik. En Olga Færseth jafnaði fyrir IBV þegar ellefu mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma. Þegar ein og hálf mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma skoraði svo Olga aftur eftir glæsilega sendingu Láru Daggar Konráðsdóttur og héldu flestir að nú væri björninn unninn. Leikmenn og áhorfendur fögnuðu mikið en í miðjum fagnaðarlátunum tóku KR-ingar miðjuna og skoruðu aðeins fjórum sekúndum síðar. Ótrúlegur lokakafli í mjög skrautlegum leik og dálítið súr endir á tímabilinu fyrir Eyjastúlkur.

Nýr leikmaður til karlaliðsins

Joseph Bösze mun leika með ÍBV í handboltanum í vetur. Bösze er örvhent skytta en hann lék með ÍBV gegn Stjörnunni og þótti standa sig vel. Bösze er ekki hávaxinn leikmaður en er fimur með knöttinn og útsjónarsamur auk þess getur hann skotið utanaf velli.

Silfurverðlaun á Reykjavíkurmótinu

Kvennalið IBV í byrjun september í Reykjavíkurmótinu. Mótið fór þannig fram að liðunum var skipt í tvo riðla og lék IBV í riðli með Víkingum, FH, Fylki/ÍR og Fram. IBV vann alla leikina nema gegn FH og endaði því í öðru sæti riðilsins. Í undanúrslitum lék liðið svo gegn Val en staðan í hálfleik var 10 - 7. ÍBV hélt áfram á sömu braut í seinni hálfleik og sigraði 21-15. Í úrslitum mætti liðið svo Haukum en Haukaliðið hefur fengið erlendan liðsstyrk fyrir komandi átök í vetur. Leikurinn var í jafnvægi allan tímann en eftir að ÍBV hafði verið yfir í hálfleik, 14- 12 urðu lokatölur 30-30 og því varð að framlengja. Enn var jafnt eftir framlengingu og því framlengt í annað sinn. Eftir seinni framlengingu var enn jafnt og því gripið til bráðabana þar sem það lið sem skorar fyrst, vinnur leikinn. IBV byrjaði í sókn en nýtti ekki tækifærið og Haukar skoruðu úr sinni fyrstu og einu sókn og eru því Reykjavíkurmótsmeistarar. Mörk IBV í úrslitaleiknum: Guðbjörg Guðmannsd. 8, Anna Yakova 7, Sylvia Strass 6, Anja Nielsen 6, Birgit Engl 4, Alla Gokorian 2, Þórsteina Sigurbjömsdóttir.

Afleitt hjá unglingaflokkunum

Annar flokkur karla lék gegn Val í Eyjum. Eyjamenn byrjuðu sumarið afar illa en hafa náð að rétta úr kútnum að undanförnu. Til að gulltryggja sæti sitt í B-riðli hefði jafntefli dugað úr leiknum gegn Val en Valsmenn þurftu ekkert minna en sigur ef þeir ætluðu að bjarga sér frá falli. Þeim tókst ætlunarverk sitt og eftir að staðan í hálfleik hafði verið 0-1 tókst Völsurum að bæta við marki fljótlega í síðari hálfleik. Tveir leikmanna IBV fengu líta rauða spjaldið í seinni hálfleik og lokatölur urðu 1 -3. Útlitið er ekki gott hjá Eyjamönnum. Mark ÍBV: Stefán Hauksson

Annar flokkur kvenna lék síðustu tvo leiki sína í sumar þegar liðið mætti KR og Val á útivelli. Sú var tíðin að þetta voru stórleikir en hlutskipti IBV þetta sumarið var að falla niður í B deild. KR má einnig muna sinn fífil fegurri en liðið er um miðja deild. Valsstúlkur eru eina liðið af þessum þremur sem enn gengur ágætlega en liðið átti þó aldrei möguleika á efsta sætinu. ÍBV lék fyrst gegn KR og urðu lokatölur þar 3-0 heimaliðinu í vil. Seinni leikurinn endaði með sjö marka sigri Vals, 7-0 en IBV endaði sumarið í neðsta sæti A-deildar, með aðeins sex stig úr tólf leikjum og markatalan er 30 mörk í mínus.

Tveir sigrar gegn Stjörnunni

Karlalið ÍBV undirbýr sig af krafti fyrir íslandsmótið en ReMax-deildin hefst um miðjan september. Liðið lék tvo æfingaleiki gegn Stjörnunni viku fyrir mót og var leikið í Eyjum. Fyrri leikurinn endaði með naumum sigri ÍBV, 25-24 en síðari leikurinn endaði með þriggja marka sigri ÍBV, 28-25.

Ætlum að búa til Eyjastemmningu

Erlingur Richardsson þjálfar ÍBV annað árið í röð en hann segir að undirbúningur hefði verið þokkalegur í árlegu viðtali Frétta við þjálfara ÍBV. „Ég hefði viljað hafa alla leikmennina í lengri tíma. Við tókum ekki langt sumarfrí og æfingasókn hefur ekki verið frábær í sumar. Síðustu sex vikurnar hafa hins vegar verið mjög góðar og undirbúningurinn líklega betri en í fyrra. Við fórum ekki í neina æfingaferð eins og hefur oft verið áður en í stað þess höfum við farið oftar til Reykjavíkur, tókum þátt í Reykjavíkurmótinu og svo kom Stjarnan hingað. Þannig náum við svipuðum fjölda æfingaleikja og í fyrra." Hvernig líst þér á leikmannahópinn? „Þetta er nánast sami hópur og í fyrra sem gerir undirbúninginn allan mun léttari. í fyrra fórum við ekki yfir leikkerfi fyrr en um áramótin en núna getum við einbeitt okkur að öðru en leikkerfum. Kjarninn er þéttur í liðinu og hefur verið að spila lengi saman. Björgvin og Beló eru reyndir leikmenn og falla vel inn í þetta og sömuleiðis Bösze. Allir útlendingarnir eru Ungverjar sem er mjög þægilegt." Hver eru markmiðin fyrir veturinn? „Mér finnst að við eigum að setja markið hærra en í fyrra. Við höfum mannskap í það en það eru kannski 2- 3 lið sem eiga að vera betri en við. Núna eigum við hins vegar að geta strítt þeim og jafnvel unnið þau. Við stefnum á að komast í efri deild og í bikarnum stefnum við á að komast í það minnsta í átta liða úrslit. ÍBV hefur ekki náð miklum árangri í bikarnum og kominn tími á að breyta því. Fyrirkomulagið er núna þannig að liðin verða að byrja vel, það þýðir ekkert lengur að byrja af krafti eftir áramót en ef Eyjamenn styðja við bakið á okkur þá eigum við að ná langt. Við ætlum að reyna fá þessa gömlu góðu Eyjastemmningu en þá þurfum við aðstoð áhorfenda sem vonandi láta ekki sitt eftir liggja í vetur."

Lausir við falldrauginn

KR voru þegar orðnir Íslandsmeistarar  þegar þeir tóku á móti ÍBV. Eyjamenn voru mun sterkari í leiknum, spiluðu skynsamlega en börðust jafnframt af miklum krafti. Bjarnólfur Lárusson og Atli Jóhannsson hertóku miðjuna og Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Steingrímur Jóhannesson héldu varnarmönnum KR við efnið. Strákarnir höfðu betur í skemmtilegum leik, 0-2 en miðað við færin hefðu munurinn átt að vera meiri. Eins og staðan er núna eiga Eyjamenn möguleika á sæti í Inter-toto keppninni en til þess að sá möguleiki geti ræst þarf sigur í síðasta leik og lánlausir Fylkismenn þurfa að tapa sínum leik. Þá yrði fjórða sætið að veruleika, nokkuð sem enginn þorði að láta sig dreyma um fyrir leikinn gegn KR. Mörk ÍBV: Ian Jeffs, Steingrímur Jóhannesson.

Undirbúningi fyrir átök vetrarins að ljúka

Síðustu leikir í undirbúningi karlaliðs IBV voru þegar ÍBV spilaði tvo æfingaleiki gegn Valsmönnum. Fyrri leikur liðanna var jafn og spennandi allan tímann en eftir að staðan hafði verið 12-13 í hálfleik, náðu Valsmenn að kreista fram sigur á lokakaflanum og lokatölur urðu 28;26. Mörk ÍBV: Björgvin Þór Björgvinsson 5, Zoltán Belanyi 5, Sigurður Bragason 3, Frode Stellemo 3, Sigurður Ari Stefánsson 2, Kári Kristjánsson 2, Davíð Óskarsson 2, Robert Bognar 2, Josep Bösze 2. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 13. Seinni leikurinn var ekki eins góður af hálfu ÍBV en Valsmenn voru fjórum mörkum yfir í hálfleik 14-10. Lokatölur urðu svo 27-21 en leikmönnum ÍBV gekk mjög illa að koma boltanum framhjá markverði Valsmanna. Mörk ÍBV: Kári Kristjánsson 4, Björgvin Þór Björgvinsson 3, Robert Bognar 3, Sigurður Ari Stefánsson 3, Erlingur Richardsson 2, Zoltán Belanyi 2, Frode Stellemo 2, Sigurður Bragason 1, Davíð Óskarsson 1. Varin skot: Eyjólfur Hannesson 10, Jóhann Guðmundsson 3.

Óþolandi ósvífni af hálfu HSÍ

Þann 13. september átti að fara fram Meistarakeppni HSÍ og áttu Íslandsmeistarar IBV og bikarmeistarar Hauka að leika hér í Eyjum. Leiknum var hins vegar frestað þar sem veikindi þóttu mikil í herbúðum bikarmeistaranna. Forráðamenn IBV voru allt annað en hressir með þessa ákvörðun HSÍ enda fengu þeir að vita af frestuninni tæpum þremur tímum fyrir áætlaðan leiktíma. Á heimasíðu ÍBV er m.a. sagt frá því að Haukar hafi farið þess á leit við HSÍ að fresta leiknum. Starfsmenn mótanefndar HSÍ hafí svo haft samband við forráðamenn IBV daginn fyrir leik og ráðfært sig við þá og um kvöldið var formanni stjórnar handknattleiksdeildar svo tilkynnt það að leikurinn yrði á tilsettum tíma. Á leikdag hafði svo Hlynur Sigmarsson, formaður handknattleiksráðs samband við Hauka þar sem honum var tjáð að liðið ætlaði að leggja af stað í leikinn klukkan 12.30. Skömmu eftir það símtal hringdu starfsmenn HSÍ í forráðamenn IBV og tilkynntu frestunina. Páll Marvin Jónsson, í handknattleiksráði, sagði í samtali við Fréttir þetta vera óþolandi ósvífni af hálfu HSÍ. „Við erum búnir að leggja mikla vinnu í þennan leik, auglýsa hann upp og fá til liðs við okkur líknarfélag sem svo átti að fá ágóðann af leiknum í sinn vasa. Svo fáum við hringingu rúmum tveimum tímum fyrir leik þar sem okkur er tilkynnt að leiknum sé frestað. Þessir menn verða að fara átta sig á því að þó þetta sé kvennahandbolti þá verða vinnubrögðin að vera fagmannleg en ekki svona kjánaleg. Eg sé t.d. ekki fyrir mér að meistaraleiknum í karlaboltanum hefði verið frestað með jafnskömmum fyrirvara og í dag."

Annar flokkur karla féll í C-riðil

Annar flokkur karla þurfti að bíða í viku eftir örlögum sínum í B-riðli en þeir þurfti hagstæð úrslit til að halda sér í riðlinum. Staðan í B-riðli var nefnilega þannig að Víkingur var neðstur og þegar fallinn en Valsmenn sátu í fallsæti með sextán stig. IBV, Leiknir og Selfoss voru þar fyrir ofan með átján stig en öll liðin höfðu lokið sínum leikjum nema Valur og Leiknir sem léku um helgina. Leiknismenn voru svo gott sem búnir að tryggja sig enda með mun hagstæðara markahlutfall en IBV. Valsmenn sigruðu í leiknum og sendu IBV því niður í C-riðil þar sem ÍBV var með lélegasta markahlutfall liðanna þriggja.

ÍBV-stelpunum spáð efsta sætinu

Mánudaginn 15.september var opinberuð spá forráðamanna og fyrirliða handknattleiksliða á Íslandsmótinu í vetur. Í karlaflokki er Haukum spáð sigri með nokkrum yfirburðum en þeir fengu 538 af 540 stigum. Eyjamönnum var spáð ellefta sætinu af fimmtán liðum. Íslandsmeisturum IBV er spáð sigri og fengu þær 240 af 250 stigum mögulegum.

Margrét Lára með þrennu

Margrét Lára Viðarsdóttir heldur áfram að skora með íslenska A landsliðinu. Fyrr í sumar skoraði hún í sínum fyrsta landsleik eftir að hafa komið inn á sem varamaður. Var það hennar fyrsta snerting í leiknum. Íslenska liðið lék gegn Póllandi og þá var Margrét í byrjunarliðinu. Þrátt fyrir að leika á miðjunni, gerði Margrét sér lítið fyrir, skoraði þrennu og var markahæsti leikmaður liðsins í 10-0 stórsigri íslenska liðsins. Sigurinn er sá stærsti sem íslenskt A-landsIið hefur unnið. Margrét er jafnframt yngsti leikmaðurinn sem skorað hefur þrennu í landsleik en hún hefur nú samanlagt skorað fjögur mörk í fjórum leikjum. Þá lék Olga Færseth einnig í fremstu víglínu íslenska liðsins.

Líst vel á veturinn

Þjálfari meistaraflokks kvenna er Aðalsteinn Eyjólfsson en hann hefur verið viðloðandi þjálfun undanfarin ár hjá Gróttu/KR og Stjórnunni. Hann segir að undirbúningur IBV hafi ekki verið eins og best verður á kosið. „Leikmennimir koma seint til liðsins og þá meina ég erlendu leikmennimir. Ungu stelpumar hafa reyndar verið duglegar að æfa í sumar en það eru ekki margar vikur síðan útlendingarnir komu þannig að við höfum verið að vinna stíft í að koma leik liðsins í lag. Liðið var ekki að spila burðugan handbolta í Samskipamótinu en síðan þá hefur þetta farið stigbatnandi og stelpumar vom að spila ágætlega í fyrsta leik. Við reyndar höfum fengið góðan skammt af meiðslum og það er hálfsvekkjandi að mest af þessum meiðslum eru ekki þessi týpísku æfingameiðsli. Leikmenn hafa verið að fá högg og liðbönd hafa skaddast við það og allt þar fram eftir götunum. Anja Nielsen kom reyndar meidd og hefur verið meidd undanfarin tvö ár og við vissum af því. Hún er gríðarlega sterkur leikmaður og hugsaði Íslandsdvölina sem hluti af uppbyggingu sinni. Ég efa það að við hefðum nokkum tímann náð í hana ef þessar aðstæður hefðu ekki komið upp." En hvernig líst þér annars á aðstæður hérna í Eyjum? „Ég held að þetta eigi eftir að verða mjög skemmtilegt. Aðstæður hér í Eyjum eru auðvitað mjög góðar fyrir handbolta, þrír salir og félög sem hafa svo góða aðstöðu eru teljandi á fingrum annarrar handar. í kringum liðið er líka mjög duglegt fólk sem vinnur fyrir félagið þannig að þetta er mjög öflugt héma í Eyjum." Hvernig líst þér annars á veturinn? „Mér líst bara vel á veturinn og er spenntur fyrir deildinni. Okkur hefur verið spáð góðu gengi en ég er á því að deildin eigi eftir að verða jafnari en margur hefur haldið fram. Það má ekki gleyma því að við höfum misst tvo af lykilmönnum liðsins, og um leið tvær af bestu handknattleikskonum landsins, þær Ingibjörgu og Vigdísi og þau skörð verða vandfyllt. Þeir leikmenn sem við höfum fengið í staðinn em mjög sterkir leikmenn og eiga án efa eftir að verða sterkari þegar líður á veturinn en það sem okkur skortir fyrst og fremst er leiðtogann í hópinn en bæði Vigdís og Ingibjörg voru sannkallaðir leiðtogar, vom hjartað í liðinu. Það er það sem við þurfum að vinna í en ég hef fulla trú á að veturinn eigi eftir að ganga vel."

Eyjamenn enduðu í 5 sæti

IBV og ÍA léku í síðustu umferð Landsbankadeildar karla á Hásteinsvelli þann 20.september. Eyjamenn léku gegn vindinum í fyrri hálfleik en aðstæður til fótboltaiðkunar voru ekki góðar. Leikmenn ÍBV  komust ekki oft inn í teig gestanna, skagamenn náðu hins vegar ekki að skapa mikla hættu upp við mark IBV. Það var helst þegar þeir fengu hornspyrnur að hætta skapaðist en Birkir Kristinsson var traustur á milli stanganna. Staðan í hálfleik var jöfn, 0-0. En undan vindi náðu leikmenn ÍBV ekki að skapa sér nein færi. Alla áræðni vantaði og hefði að ósekju mátt láta vaða á markið mun oftar. Eyjamenn voru mun meira með boltann í síðari hálfleik og það kom því eins og ísköld vatngusa í andlit áhorfenda þegar Skagamenn komust yfir, átta mínútum fyrir leikslok. Það var í raun eina markskot Skagamanna í síðari hálfleik og úr því varð mark. Eftir þetta lifnaði hins vegar yfir leik IBV og þremur mínútum fyrir leikslok komst Steingrímur Jóhannesson upp vinstri kantinn, sendi fyrir og þar var Gunnar Heiðar sem skoraði sitt fyrsta mark síðan í elleftu umferð íslandsmótsins. Gunnar fékk svo tækifæri til að stela öllum þremur stigunum en aðstæður urðu til þess að hann náði ekki að hemja boltann og færið rann út í sandinn.

Enn fækkar á Hástcinsvelli

KSÍ gaf út í september tölur yfír áhorfendafjölda í Landsbankadeild karla og þar kemur fram að áhorfendum fjölgar að meðaltali á hverjum leik. Þeir voru 1025 áhorfendurnir sem mættu að meðaltali á leiki í Landsbankadeildinni. Er það í annað sinn sem meðaltalsfjöldi áhorfenda fer yfir eitt þúsund. Alls komu 92.250 manns að sjá leikina sem voru 90 talsins og en fjöldi áhorfenda hefur farið vaxandi jafnt og þétt síðustu ár ef frá er talið keppnistímabilið 2002 þegar lítilsháttar fækkun varð. Eyjamenn virðast hins vegar vera undantekningin sem sannar regluna því undanfarin ár hefur áhorfendum fækkað á Hásteinsvelli. Þetta er vissulega mikið áhyggjuefni en í ár komu að meðaltali 420 á leiki ÍBV sem er 605 undir meðaltali. Næsta lið fyrir ofan IBV á listanum er KA með 669 áhorfendur að meðaltali á leiki liðsins fyrir norðan þannig að Eyjamenn eru nokkuð langt á eftir öðrum liðum Ágætis aðsókn er hins vegar á leiki liðsins á útivelli en alls sáu 1154 útileiki ÍBV að meðaltali og er það fjórða hæsta meðaltal liða á útivelli. Eins og áður sagði hefur aðsókn á leiki liðsins dregist saman undanfarin ár en árið 2002 voru að meðaltali 601 sem sáu leiki IBV á Hásteinsvelli, 2001 voru þeir 685 og árið 2000 mættu að meðaltali 707 á leiki ÍBV á heimavelli. Á þessum fjórum árum hefur áhorfendafjöldinn því farið úr 707 niður í 420 sem er fækkun um rúm 41%.

Karen Burke og Birkir Kritins best

Það var mikið um dýrðir á lokahófi knattspyrnunnar hjá IBV í Höllinni laugardagskvöldið 20.september. Þar voru samankomin um 350 manns, leikmenn, starfsmenn og dyggir stuðningsmenn. Úr þessu varð heilmikil veisla með frábærum mat að hætti Hallarmanna. Á eftir fylgdu ræðuhöld, verðlaunaafhendingar og loks stiginn dans við undirleik Írafárs og Birgittu Haukdal í boði Ölgerðarinnar. Í kvennaflokki fengu eftirtaldar viðurkenningar; Karen Burke var valin besti leikmaðurinn, Olga Færseth var markahæst, Hanna G. Guðmundsdóttir sýndi mestar framfarir, Sara Sigurlásdóttir var best í öðrum flokki, María Guðjónsdóttir sýndi mestar framfarir í öðrum flokki og Pálína Bragadóttir fékk svo Marteinsbikarinn. Í karlaflokki: Birkir Kristinsson var valinn bestur, Gunnar Heiðar Þorvaldsson var markahæstur, Atli Jóhannsson var valinn efnilegastur og Víðir Róbertsson var bestur í öðrum flokki. Að venju var efnilegasta knattspymufólkinu í yngri flokkum afhentir Fréttabikaramir. Þá hlutu að þessu sinni Sara Sigurlásdóttir og Víðir Róbertsson.

Tap í fyrsta leik

Karlalið ÍBV tók á móti ÍR í fyrstu umferð deildarinnar. Eyjamenn mættu grimmir til leiks og léku ágætan handbolta. Reyndar vantaði herslumuninn í varnarleik liðsins en 3-2-1 vörnin var dálítið opin fyrir sterkum skyttum ÍR-liðsins. Mikill hraði var í leiknum og staðan í hálfleik var 17-16 fyrir IBV en Zoltán Belányi skoraði síðasta mark hálfleiksins og þar með sitt fyrsta mark fyrir IBV í langan tíma. Síðari hálfleikur fór ágætlega af stað fyrir ÍBV sem strax komst þremur mörkum yfir, 19-16. En ÍR-ingar jöfnuðu leikinn og var lengst af jafnt. Um miðjan síðari hálfleik fóru dómarar leiksins hins vegar að vísa Eyjamönnum af leikvelli, hverjum á fætur öðrum. Þetta fóróskaplega í taugarnar á leikmönnum IBV, skiljanlega en leikmenn hefðu átt að einbeita sér að því að halda aftur af ÍR-ingum í stað þess að tuða í arfaslökum dómurum leiksins. Þetta nýttu IRingar sér og náðu forystunni sem þeir juku svo til leiksloka. Lokatölur urðu 30-34, tap í fyrsta leik hjá ÍBV. Mörk IBV: Sigurður Ari Stefánsson 8, Robert Bognar 7, Davíð Óskarsson, Björgvin Rúnarsson 3, Zoltán Belányi 3, Sigurður Bragason 3, Erlingur Richardsson 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 16/2.

Skyldusigur þrátt fyrir meiðsli

Íslandsmeistarar IBV hófu titilvörn sína í ReMaxdeild kvenna gegn Fylki/ÍR á heimavelli þeirra síðarnefndu. Fyrirfram var talið nánast öruggt að Eyjastúlkur myndu sigra en mikil meiðsli eru í herbúðum IBV þannig að Aðalsteinn Eyjólfsson gat ekki stillt upp sínu sterkasta liði. Engu að síður var sigur IBV nokkuð öruggur og loka tölur urðu 19-25. Leikurinn fór vel af stað fyrir ÍBV en styrkleikamunurinn kom fljótlega í ljós. Eyjastúlkur náðu mest átta marka forystu, 4-12 en staðan í hálfleik var 6- 13. Í seinni hálfleik hélt ÍBV forystunni og um miðjan hálfleikinn fengu svo varamenn IBV að spreyta sig og munurinn á liðunum minnkaði hægt og sígandi. Engu að síður var sigur IBV aldrei í hættu. Mörk ÍBV: Anna Yakova 7, Sylvia Strass 6, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Birgit Engl 3, Aníta Ýr Eyþórsdóttir 2, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Edda Eggertsdóttir 1. Varin skot: Julia Gantimurova 18/2.

Yngri flokkarnir í handbolta

Unglingaflokkur kvenna lék í A-riðli en með ÍBV í riðli voru Grótta, Fram2, Grótta2 og HK2. ÍBV lék aðeins tvo leiki þar sem upp komu meiðsli hjá Eyjastúlkum þannig að Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari liðsins átti ekki í lið. IBV tapaði þessum tveimur leikjum gegn HK2 og Fram2 og enduðu stelpurnar því í neðsta sæti riðilsins. Þriðji flokkur karla lék í D-riðli Íslandsmótsins en fjölliðamótið fór fram á hófuðborgarsvæðinu. IBV leikur í riðli með Val, ÍR, Víking og KA2 en leikirnir fóru fram á laugardag og sunnudag. IBV vann leikina gegn Víkingum og KA2 en tapaði gegn Val og IR og enduðu strákarnir þar með í þriðja sæti riðilsins.

Sara með U-19 til Slóvakíu

Sara Sigurlásdóttir er nú stödd með U-l 9 ára landsliði Íslands í Slóvakíu en þar tekur liðið þátt í undankeppni Evrópumótsins. Í fyrsta leik liðsins var Sara á varamannabekk íslenska liðsins og tók ekki þátt í leiknum en íslenska liðið vann öruggan sigur gegn Lettum 4-0. Auk Letta eru Slóvakía og Tékkland í riðlinum.

Andri á úrtaksæfingar

Andri Ólafsson, knattspyrnumaðurinn efnilegi úr IBV, var kallaður á úrtaksæfingar hjá U-19 ára landsliðsins í september en liðið tekur þátt í undankeppni Evrópumótsins. Þjálfari liðsins er Guðni Kjartansson en Andri tók ekki þátt í æfingunum þar sem hann lék með ÍBV á sama tíða og æfingarnar fóru fram.

Fjölmennt lokahóf yngri flokkanna

Lokahóf sumarsins í yngri flokkum IBV fór fram í Týsheimilinu síðasta sunnudag septembermánaðar og var krökkunum boðið í kökuveislu. Þetta er orðinn fastur liður í starfi ÍBV-íþróttafélags og skemmtilegt er að sjá hvað margir mæta, ekki síst foreldrarnir sem telja ekki eftir sér að eyða þessari stund með börnum sínum. Veitt voru verðlaun í hverjum flokki fyrir sig og fengu eftirfarandi krakkar viðurkenningu:

7. flokkur karla-eldri: Besta ástundun: Jón Ingason Mestu framfarir: Frans Sigurðsson Prúðastur: Guðmundur Geirsson

7. flokkur karla-yngri: Besta ástundun: Guðmundur T. Sigfússon Mestu framfarir: Hjalti Jóhannsson Prúðastur: Sindri Jóhannsson

6. flokkur karla-eldri: Besta ástundun: Hannes Jóhannsson og Ágúst Sölvi Hreggviðsson Mestu framfarir: Guðni Freyr Sigurðsson Prúðastur: Bjartur Týr Ólafsson og Björn Sigursteinsson

6. flokkur karla-yngri: Besta ástundun: Hallgrímur Júlíusson Mestu framfarir: Brynjar Einarsson Prúðastur: Jakob Þór Bergþórsson og Nökkvi Sverrisson

6. flokkur kvenna-eldri: Besta ástundun: Armey Valdimarsdóttir Mestu framfarir: Berglind Dúna Sigurðardóttir Prúðust: Ásta Lilja Gunnarsdóttir

6. flokkur kvenna-yngri: Besta ástundun: Guðný Erla Guðnadóttir Mestu framfarir: Nína Friðriksdóttir Prúðust: Bryndís Jónsdóttir

5. flokkur karla: Besta ástundun: Hjörvar Gunnarsson, Víðir Þorvaldsson og Einar Gauti Ólafsson Mestu framfarir: Sindri Georgsson og Guðjón Orri Sigurðsson Prúðastir: Andrés Guðjónsson og Kristján Tómasson

5. flokkur kvenna: Besta ástundun: Guðný Ósk Ómarsdóttir, Kateryna Hlynsdóttir Mestu framfarir: Ragnheiður Perla Hjaltadóttir Leikmaður ársins: Berglind Þorvaldsdóttir

4. flokkur karla: Besta ástundun: Þorsteinn Amarson, Amór Eyvar Ólafsson og Eiður Sigurbjömsson Mestu framfarir: Elías F. Stefnisson, Birkir Helgason og Vignir Stefánsson Prúðastir: Gauti Þorvarðarson, Guðjón Ólafsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson

4. flokkur kvenna: Besta ástundun: Allur flokkurinn Mestu framfarir: Nína Björk Gísladóttir, Sara Sjöfn Grettisdóttir, Eva María Káradóttir Leikmaður ársins: Fanndís Friðriksdóttir

3. flokkur karla-eldri: Einar Kr. Kárason og Anton Bjamason fyrir góða frammistöðu

3. flokkur karla-yngri: Egill Jóhannsson og Frans Friðriksson fyrir góða frammistöðu

3. flokkur kvenna: Besta ástundun: Tanja Tómasdóttir Mestu framfarir: Sólveig Rut Magnúsdóttir Leikmaður ársins: Tanja Sigurjónsdóttir

Jafntefli og naumt tap

ÍBV mætti Stjörnunni á heimavelli en bæði lið voru án stiga. Það vantaði ekkert upp á baráttuna og augljóst að bæði lið ætluðu sér sigur, en leiknum lauk með jafntefli, 26-26. Eyjamenn geta hins vegar nagað sig í handarbökin því eftir jafnan og skemmtilegan fyrri hálfleik, voru þeir með undirtökin lengst af í þeim síðari. ÍBV komst m.a. þremur mörkum yfír þegar aðeins sjö mínútur voru til leiksloka. Í stað þess að halda áfram að sækja á mark andstæðinganna, ætluðu leikmenn liðsins að hanga á forystunni á lokakaflanum. Það varð til þess að ÍBV skoraði aðeins eitt mark það sem eftir lifði leiks á meðan gestirnir skoruðu fjögur og lokatölur því 26-26. Mörk ÍBV: Robert Bognar 8, Josep Bösze 6, Davíð Þór Óskarsson 4/3, Zoltán Belányi 2, Erlingur Richardsson 2, Sigurður Ari Stefánsson 2, Kári Kristjánsson 1, Sigurður Bragason 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 16/1

ÍBV tók svo á móti HK en gestirnir höfðu að betur 32-34. Fyrri hálfleikur hjá ÍBV var mjög slakur. Breytt var um áherslu í varnarleik frá fyrstu leikjunum og spiluð 6-0 vörn. Hún virkaði hins vegar engan veginn og í raun ótrúlegt að sjá hversu auðveldlega leikmenn HK komust í gegnum miðja vörnina. Gestirnir náðu fljótlega undirtökunum, náðu mest fimm marka forystu en staðan í hálfleikvar 13-17. Síðari hálfleikur var hins vegar mun betri hjá Eyjamönnum sem breyttu aftur í 3-2-1 vörn sem hægði töluvert á gestunum. ÍBV sýndi mjög góðan leik fyrstu tuttugu mínútur hálfleiksins, baráttan var í algleymingi og hverju marki fagnað sem sigurmarki. IBV náði ekki einungis að jafna leikinn heldur komst tveimur mörkum yfír 25-23. En þá hrökk allt í baklás aftur, gestirnir skoruðu fimm mörk gegn tveimur mörkum IBV og komust aftur yfir. Þeir létu forystuna ekki af hendi það sem eftir lifði leiks og sigmðu með tveimur mörkum. Mörk ÍBV: Robert Bognar 8, Kári Kristjánsson 5, Sigurður Bragason 5, Sigurður Ari Stefánsson 5, Davíð Þór Óskarsson 4/2, Zoltán Belányi 4/2, Erlingur Richardsson 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 17, Eyjólfur Hannesson 1.

Olga og Margrét Lára skoruðu

Íslenska kvennalandsliðið lék gegn því pólska en fyrri leik þeirra lyktaði með 10-0 sigri Íslands. Leikurinn ytra var öllu erfiðari fyrir Ísland og Pólverjar skoruðu fyrsta mark leiksins strax á fyrstu mínútu. Olga Færseth jafnaði fjórum mínútum síðar og fjórum mínútum fyrir leikslok kom Margrét Lára Viðarsdóttir, Íslandi yfir. Fyrirliði íslenska liðsins, Ásthildur Helgadóttir bætti þriðja markinu við fyrir hálfleik en í síðari hálfleik skoruðu Pólverjar einu sinni og lokatölur því 2-3 sigur hjá íslenska liðinu.

Atli aftur inn í U-21 árs liðið

Ólafur Þórðarson, þjálfari U-21 árs landsliðs Íslands tilkynnti leikmannahópinn í lok september en liðið leikur gegn Þjóðverjum 10. október næstkomandi. Það vakti óskipta athygli fyrir síðasta leik, sem var einmitt heimaleikur gegn Þjóðverjum að Ólafur skyldi ekki hafa valið Atla Jóhannsson, einn efnilegasta knattspyrnumann landsins, í lið sitt. En Atli er aftur kominn í hópinn og auk hans eru þar Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Tryggvi Bjarnason.

Tap á útivelli og sigur heima

IBV sótti Val heim en báðum liðum hefur verið spáð mikilli velgengni í vetur. ÍBV byrjaði betur, skoraði fyrstu tvö mörkin en Valsstúlkur voru fljótar að jafna og liðin skiptust á að skora út hálfleikinn. Staðan var jöfn í leikhléi, 9-9 en seinni hálfleikur fór afar illa af stað hjá ÍBV. Valsstúlkur skoruðu sex mörk gegn tveimur mörkum IBV og náðu svo mest sex marka forystu, 28- 22. En leikmenn ÍBV neituðu að gefast upp og með ótrúlegri baráttu náðu stelpumar að minnka muninn niður í eitt mark. Síðustu mínútumar vom æsispennandi en þrátt fyrir að vera tveimur fleiri tókst ÍBV ekki að jafna leikinn og síðasta mark leiksins skoruðu Valsstúlkur og lokatölur því 29-27. Mörk ÍBV: Birgit Engl 7, Anna Yakova 7/3, Guðbjörg Guðmannsdóttir 3, Elísa Sigurðardóttir 2, Anja Nielsen 1, SylviaStrass 1. Varin skot: Julia Gantimorova 11.

Stelpurnar tóku svo á móti FH en þetta var jafnframt fyrsti heimaleikur ÍBV en lið FH-inga var engin hindrun fyrir ÍBV. Það var aðeins á fyrstu mínútum leiksins að jafnræði var með liðunum en eftir tæplega tíu mínútna leik tók Eyjaliðið góðan sprett, skoraði sjö mörk í röð og breytti stöðunni úr 3-4 í 10-4. Þama var grunnurinn lagður að sigri IBV og eftir þetta slökuðu heimastúlkur aðeins á klónni. Staðan í hálfleik var 14-7 en í síðari hálfleik hélt munurinn áfram að aukast. Mestur varð hann ellefu mörk en Hafnfirðingar náðu að minnka muninn aðeins á lokakaflanum. Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari notaði alla leikmenn ÍBV í leiknum og kláruðu varamenn ÍBV leikinn, lokatölur 24-15. Mörk ÍBV: Guðbjörg Guðmannsdóttir 6, Alla Gokorian 5, Anna Yakova 4, Birgit Engl 3, Sylvia Strass 3, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 2, Anja Nielsen 1. Julia Gantimorova 13.

Tryggvi aftur inn í landsliðshópinn

Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson, landsliðsþjálfarar hafa tilkynnt leikmannahóp sinn sem mætir Þýskalandi 11. október næstkomandi í Þýskalandi. Leikurinn mun fara fram í Hamborg en í leikmannahópi íslenska liðsins má finna Birki Kristinsson, Hermann Hreiðarsson, Ívar Ingimarsson og Tryggva Guðmundsson, sem nú kemur aftur inn í landsliðshópinn eftir að hafa fótbrotnað fyrr í sumar.

ÍBV komið áfram

Karlalið ÍBV er komið í 16-liða úrslit bikarkeppninnar í handbolta en liðið átti að mæta Þór frá Akureyri í 32ja liða úrslitum. Norðanmenn drógu lið sitt hins vegar út úr keppninni og því komst ÍBV sjálfkrafa áfram. IBV hefur ekki komist lengra í bikarkeppninni síðustu fjögur keppnistímabil en tímabilið 1998 til 1999 komst ÍBV í átta liða úrslit. Árið áður tapaði liðið hins vegar í undanúrslitum gegn Val þannig að nú þyrstir Eyjamenn í árangur í bikarkeppninni.

OKTÓBER:

Heimir þjálfari seinni umferðarinnar

Þann 1.október voru veittar viðurkenningar fyrir umferðir 13 til 18 í Landsbankadeild karla og 8 til 14 í Landsbankadeild kvenna. Heimir Hallgrímsson, þjálfari kvennaliðs ÍBV, var valinn þjálfari seinni umferðarinnar enda var frammistaða IBV nánast óaðfinnanleg í síðustu sjö leikjunum ef frá er talinn útileikurinn gegn Stjörnunni. Þá voru Olga Færseth, Íris Sæmundsdóttir og Karen Burke allar valdar í úrvalslið seinni umferðarinnar en sú síðastnefnda var einnig í liði fyrri umferðar.

Andri Ólafs í U-19 ára landsliðið

U-19 ára landsliðið sem tekur þált í undankeppni Evrópumótsins hefur verið valið en alls voru 18 leikmenn valdir. Andri Ólafsson hefur verið í æfingahópi liðsins og hann er einn af þeim átján sem munu leika síðar í þessum mánuði í Moldavíu. Auk Íslands og heimamanna eru Israelar og Hollendingar í riðlinum.

ÍBV fékk sex verðlaun og fjórar Eyjastelpur í liði ársins

Laugardaginn 4. október fór fram lokahóf KSÍ og var það að venju haldið á Broadway. Hófið var auðvitað allt hið glæsilegasta en heiðursgestur var Michel Platini og afhenti hann verðlaunin. Bestu leikmenn Íslandsmótsins voru að þessu sinni valin Allan Borgvardt, sóknarmaður úr FH og landsliðsfyrirliðinn Ásthildur Helgadóttir. Efnilegastur hjá körlunum var Ólafur Ingi Skúlason en Margrét Lára Viðarsdóttir var valin efnilegust hjá konunum og kom það fáum á óvart. ÍBV átti þrjá af sex markahæstu leikmönnum sumarsins, Olga Færseth fékk silfurskóinn og Margrét Lára og Gunnar Heiðar Þorvaldsson fengu bronsskóinn. Þá fóru prúðmennskuverðlaunin bæði til ÍBV, í karlaflokki Hjalti Jóhannesson en í kvennaflokki Íris Sæmundsdóttir sem fengu þessa viðurkenningu. Í lið ársins í kvennafloklti mátti svo finna fjóra leikmenn úr ÍBV, þær Írisi, Margréti Láru, Olgu og Karen Burke en enginn leikmaður úr karlaliði IBV komst í lið ársins að þessu sinni.

Tryggvi ekki til Þýskalands

Tryggvi Guðmundsson, leikmaður Stabæk, féll út úr íslenska landsliðshópnum þegar landsliðsþjálfararnir, Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson tilkynntu 20 manna leikmannahóp sinn fyrir leikinn mikilvæga gegn Þjóðverjum. Þeir voru búnir að velja 22 manna hóp en Tryggvi féll út ásamt Gylfa Einarssyni. Hermann Hreiðarsson, Birkir Kristinsson og Ivar Ingimarsson eru hins vegar allir á sfnum stað. Með ungmennaliðinu fara þrír Eyjamenn, þeir Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Tryggvi Bjarnason og Atli Jóhannsson en auk þeirra verða Magnús Gylfason og Hjalti Kristjánsson í starfsmannaliði íslenska liðsins.

3. flokkur

Þriðji flokkur karla lék í milliriðli í Íslandsmótinu en í riðlinum léku, auk IBV, FH, Haukar og Grótta. Eyjapeyjar léku fyrst gegn FH og unnu þann leik 32-27. Næsti leikur var svo gegn Gróttu en sá leikur tapaðist 21-28. Þriðji og síðasti leikur liðsins var gegn Haukum en lokatölur í þeim leikurðu 24-17.

Aníta Ýr hætt

Enn hafa Íslandsmeistararnir orðið fyrir blóðtóku því í byrjun október tilkynnti Aníta Ýr Eyþórsdóttir að hún væri að hætta og á leið út til Þýskalands sem Au-pair. Aníta fékk Fréttabikarinn árið 2002 en hún hefur verið fastamaður í leikmannahópi Íslandsmeistaranna og spilað reglulega. Leikmannahópur ÍBV er þunnskipaður fyrir en alls hafa níu leikmenn horfið á braut frá því á síðasta tímabili.

Tveir sigrar gegn KA/Þór

IBV lék fyrstu helgina í október tvo leiki gegn KA/Þór og fóru þeir báðir fram fyrir norðan. Annar leikurinn var í þriðju umferð Remaxdeildarinnar. Þetta er gert til að spara ferðakostnaðinn og lögðu leikmenn og forráðamenn ÍBV m.a. það á sig að ferðast með Herjólfi, keyra norður yfir heiðar og svo aftur til baka en samanlagt er ferðalagið tæpur sólarhringur. Það kom hins vegar ekki að sök því IBV sigraði í báðum leikjunum nokkuð örugglega. Fyrri leikurinn fór fram á föstudeginum en stelpurnar lögðu upp frá Eyjum daginn áður. ÍBV var mun sterkari aðilinn í leiknum og var sigurinn aldrei í hættu. Staðan í hálfleik var 6-18 fyrir IBV en munurinn hélst nokkum veginn í síðari hálfleik enda fengu varamenn ÍBV að spreyta sig. Lokatölur urðu 18-31 ÍBV í vil Mörk ÍBV: Anna Yakova 7, Sylvia Strass 7, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 2, Elísa Sigurðardóttir 2, Anja Nielsen 2 og AllaGokorian 1. Varin skot: Julia Gantimorova 22. Í seinni leiknum hafði IBV ekki eins mikla yfirburði en engu að síður voru Eyjastúlkur mun sterkari. Leikurinn var jafn framan af en Eyjastúlkur náðu góðum leikkafla undir lok fyrri hálfleiks og voru fjórum mörkum yfir í hálfleik, 13-17. Í seinni hálfleiks hélst munurinn en mikil stemmning var á pöllunum í Húsavík og hafði stuðningurinn þau áhrif að lið KA/Þórs tvíefldist. Sigur IBV var þó aldrei í hættu og lokatölur urðu 26:31. Mörk ÍBV: Guðbjörg Guðmannsdóttir 7, Anna Yakova 6, Alla Gokorian 6, Sylvia Strass 5, Birgit Engl 3, Elísa Sigurðardóttir 2, Anja Nielsen 2, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 1. Varin skot: Julia Gantimorova 18

Neyðarlegt tap

Strákarnir spiluðu gegn Breiðabliki og þó að Blikamir hafi styrkst töluvert þá hefði sigur IBV að öllu jöfnu verið eðlilegur. En Eyjamenn töpuðu leiknum með einu marki, 34-33. Eins og sjá má á þessum tölum var ekki mikið um varnarleik hjá liðunum í Kópavogi. 3-2-1 vöm IBV, sem hefur oft virkað ágætlega, var ekki vel leikin um helgina og þegar leið á fyrri hálfleik var skipt yfir í 6-0 vörn. Ekki tók þá betra við, leikmenn virðast hreinlega ekki kunna þá varnaraðferð og Blikarnir óðu oftar en ekki óareittir inn fyrir punktalínu. Að tapa fyrir Breiðabliki segir meira um slaka frammistöðu IBV en getu Breiðabliks. Mörk ÍBV: Zoltán Belányi 11/6, Robert Bognar 7, Sigurður Ari Stefánsson 6, Joseph Bösze 3, Sigurður Bragason 3, Kári Kristjánsson 1, Sindri Haraldsson 1, Michael Lauritsen 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 12.

Heimir þjálfar áfram

Heimir Hallgrímsson gaf það út á í byrjun október að hann ætlaði sér að halda áfram þjálfun meistaraflokkskvenna. En Heimir var að ljúka sínu fjórða ári með liðið. Undir stjóm hans hefur ÍBV tekið miklum framförum en auk þess var Heimir kosinn besti þjálfarinn af blaðamönnum og KSÍ í seinni umferð Íslandsmótsins. Heimir sagði í samtali við Fréttir að líklega yrði sami mannskapur hjá ÍBV næsta sumar. „Við erum búin að tala við leikmenn og allar stelpumar hafa sagt mér að þær ætli að halda áfram. Við bættum okkur það mikið í sumar að það væri synd að geta ekki haldið því starfi áfram. Það er óneitanlega betra andrúmsloft innan liðsins núna en á sama tíma í fyrra, stelpurnar era jákvæðar og ákveðnar í að bæta sig enn frekar."

Gjaldþrot Móa kemur illa við ÍBV

Nú stefnir allt í það að Móar kjúklingabú fari í gjaldþrot en tilraunir til að bjarga fyrirtækinu virðast nú runnar út í sandinn. Gjaldþrotið mun snerta handknattleiksdeild kvenna ÍBV illa en Móar hafa undanfarin ár verið aðalstyrktaraðili liðsins. „Þetta skiptir okkur miklu máli, það er ekki auðvelt að fá peninga í dag og Móar hafa reynst okkur mjög vel síðustu ár," sagði Hlynur Sigmarsson, formaður handknattleiksdeildarinnar og sagði að nú þegar væru menn farnir að kanna aðra möguleika. „Með gjaldþroti Móa hverfa tíu prósent af rekstrartekjum deildarinnar og það er stórbiti að kyngja."

Fjölmennt mót hjá IBV

Helgina 11-12 október fór fra riðlakeppni íslandsmótsins. ÍBV sá um einn riðilin en í honum eru auk ÍBV, Haukar, HK og Valur en um 50 stelpur komu til Eyja. Til að gera langa sögu stutta þá tapaði ÍBV öllum þremur leikjum sínum í mótinu en HK vann alla sína og vann því mótið. Íslandsmótið fer þannig fram að lið geta unnið sig á milli deilda og því fer HK upp um deild. Úrslit mótsins urðurþessi, staðan í hálfleik í sviga: ÍBV-Haukar 13-14 (8-6 ) ÍBV-HK 11-19 (3-11 ) ÍBV-Valur 12-16(5-10) Mörk IBV um helgina gerðu Hekla 13, Ester 10, Birgitta 4, Anna María 3, Þóra Sif 2 og Sædís 2.

Framtíðarnefnd stofnuð hjá ÍBV

Í október var haldinn fundur með þjálfumm ÍBV-íþróttafélags um framtíð félagsins en gengi yngri flokka félagsins í sumar var afar slakt. Óskar Freyr Brynjarsson, formaður IBV sagði í samtali við Fréttir að fundurinn hefði verið mjög gagnlegur fyrir alla aðila. „Það kom margt fram á fundinum sem ég tel að eigi eftir að nýtast okkur vel í framtíðinni. En það sem mér fannst best við þennan fund var að ákveðið var að setja á laggirnar nefnd sem mætti kalla framtíðanefnd. Henni er ætlað að móta stefnu félagsins í framtíðinni og við fengum til liðs við okkur fært fólk," sagði Óskar Freyr. Í nefndinni eru Sigurlás Þorleifsson, Heimir Hallgrímsson, Unnur Sigmarsdóttir, Erlingur Richardsson og Aðalsteinn Eyjólfsson.

Strákarnir stóðu sig vel

Ungmennalið Íslands lék í síðustu viku gegn jafnöldrum sínum frá Þýskalandi. Gengi íslenska liðsins hefur verið afleitt í keppninni og hafði það tapað öllum leikjunum. En íslensku strákarnir sýndu einn sinn besta leik í keppninni. Þar átti ÍBV þrjá fulltrúa, Gunnar Heiðar Þorvaldsson, Atla Jóhannsson og Tryggva Bjarnason en í DV var Tryggvi valinn maður leiksins- Leiknum lauk hins vegar með eins marks sigri Þjóðverja, 1-0 og endaði Ísland því í neðsta sætí riðilsins með ekkert stig.

Útileikirnir á Fjölsýn

Í vetur munu upptökur frá útileikjum karla- og kvennaliðs IBV verða sýndar á Fjölsýn. Fengist hefur leyfi frá RÚV, sem er með sýningarétt Remaxdeildarinnar um að sýna leikina en um er að ræða samstarf milli Fjölsýnar og ÍBV. Með þessu vonast forráðamenn ÍBV að auka áhugann á handboltanum en leikimir verða sýndir klukkan 20.00 kvöldið eftir leikdag eða eftir auglýsta dagskrá Fjölsýnar.

Tveir sigrar hjá strákunum

Eyjamenn mættu Selfyssingum á útivelli um miðjan október. Eyjamenn voru nánast allan leikinn yfir, náðu mest sex marka forystu í síðari hálfleik en gáfu eftir undir lokin. Þannig varð leikurinn nokkuð spennandi á lokamínútunum eftir að Selfyssingar náðu að minnka muninn niður í eitt mark, 27-28 þegar tvær mínútur voru til leiksloka. En Sigurður Bragason tryggði ÍBV sigurinn með glæsilegu marki þegar ein og hálf mínúta var eftir, 27-29. Mörk IBV: Davíð Þór Óskarsson 6/3, Kári Kristjánsson 5, Robert Bognar 5, Zoltán Belányi 4/1, Sigurður Bragason 3, Sigurður Ari Stefánsson 2, Josep Bösze 2, Björgvin Rúnarsson 1, Sindri Haraldsson 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 15/1.

Í kjölfarið á fyrsta sigri vetrarins kom fyrsti heimasigurinn þegar Arnar Pétursson, Svavar Vignisson og félagar þeirra í FH komu í heimsókn. Í liði FH mátti finna eina fimm fyrrverandi leikmenn ÍBV og höfðu menn á orði að þarna væru A og B-lið Eyjamanna að mætast. Leikurinn var jafn fyrstu mínúturnar en svo fór að draga í sundur með liðunum. Eyjamenn náðu samt sem áður ekki að hrista gestina af sér fyrr en undir lok fyrri hálfleiks að munurinn varð fjögur mörk en Arnar Pétursson skoraði síðasta mark hálfleiksins og staðan 17-14 þegar leikmenn gengu til búningsherbergja. Seinni hálfleikur var á svipuðum nótum og sá fyrri, Eyjamenn héldu þriggja til fjögurra marka forystu en um miðjan hálfleikinn tókst Hafnfírðingum að jafna 21-21. En í kjölfarið komu fjögur mörk frá Eyjamönnum gegn aðeins einu marki FH og munurinn aftur kominn í þrjú mörk. Undir lok leiksins reyndu gestirnir allt hvað þeir gátu til að fiska boltann en leikmenn IBV voru skynsamir og innbyrtu sinn fyrsta heimasigur á tímabilinu, 33-29. Erlingur Richardsson var að vonum ánægður með sigrana tvo. „Við gerðum það sem við ætluðum okkur í þessum leik, spiluðum eins og við lögðum upp með og þá getum við látið finna fyrir okkur. Mér fannst við stjórna allan leikinn og þó að þeir hafi jafnað í seinni hálfleik hafði ég aldrei neinar áhyggjur. Við höfum verið óheppnir í leikjum okkar til þessa, áttum að vinna Stjörnuna og fá meira út úr leikjunum gegn HK og ÍR en svo var tapið gegn Breiðablik ófyrirgefanlegt. Ef við hefðum unnið þann leik værum við með sjö stig og í toppbaráttunni en nú verðum við að sækja stig hjá toppliðinum." Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 8/2, Robert Bognar 7, Jozep Bösze 5, Sigurður Ari Stefánsson 4, Kári Kristjánsson 3, Zoltán Belányi 2/2, Sigurður Bragason 2, Erlingur Richardsson 1, Björgvin Þór Rúnarsson 1. Varin skot: Jóhann G. 15/1.

Haukastúlkur voru kjöldregnar

Haukar koma í heimsókn í lok október en leikir IBV og Hauka hafa undanfarin ár verið jafnir og spennandi. Haukar voru betri lengst af í fyrri hálfleik, voru einu til tveimur mörkum yfir og virtust hafa leikinn í hendi sér. En á síðustu sjö mínútum síðari hálfleiks tókst Eyjastúlkum að gera út um leikinn. Þá breyttist staðan úr 10- 11 í 17-12 og stóðu leikmenn Hauka eins og illa gerðir hlutir á vellinum enda hefur annar eins viðsnúningur í handboltaleik varla átt sér stað. Það var augljóst í byrjun síðari hálfleiks að gestirnir voru búnir að gefast upp og leikmenn IBV sýndu enga miskunn. Jafnt og þétt jókst munurinn og skipti engu þótt varamenn ÍBV kæmu inn á, munurinn hélt áfram að aukast. Lokatölur urðu 36-23, ótrúlegir yfirburðir ÍBV. Mörk ÍBV: Anna Yakova 8, Sylvia Strass 7/1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 6, Alla Gokorian 5, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 4, Anja Nielsen 2, Elísa Sigurðardóttir 1, Ester Óskarsdóttir 1, Birgit Engl 1 og Nína K. Björnsdóttir 1. Varin skot: Julia Gantimorova 14, BirnaÞórsdóttir5/l.

Gerðu það sem þurfti

ÍBV tók á móti Gróttu/KR í óskemmtilegum leik. Grótta/KR var sterkari aðilinn til að byrja með en góður leikkafli Eyjastúlkna undir lok fyrri hálfleiks gerði það að verkum að IBV var yfir í hálfleik 15-11. Síðari hálfleikur var heldur skárri en sá fyrri, leikmenn ÍBV spiluðu betri varnarleik og fyrir vikið fékk liðið fleiri hraðaupphlaup. Leikurinn endaði með tíu marka sigri ÍBV, 34- 24. ÍBV spilaði lengst af mjög illa, varnarleikurinn var slakur, lítil markvarsla í fyrri hálfleik og sóknarleikurinn byggðist á stórum kafla upp á einstaklingsframtaki. Það býr hins vegar mikið í liðinu og oft er talað um að það séu einkenni góðra liða að leika illa en vinna samt. Mörk ÍBV: Anna Yakova 9/6, Guðbjörg Guðmannsdóttir 6, Alla Gokorian 5, Sylvia Strass 4, Birgit Engl 4, Nína K. Björnsdóttir 3, Anja Nielsen 1, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 1, Elfsa Sigurðardóttir 1. Varin skot: Julia Gantimorova 14

Andri í byrjunarliðinu

Andri Ólafsson, knattspyrnumaðurinn efnilegi úr ÍBV, var í byrjunarliði íslenska U-19 ára landsliðs Íslands sem lék í undankeppni Evrópumótsins. Riðill Islands var leikinn í Moldóvíu og auk heimamanna og íslands vom ísraelar og Hollendingar í riðlinum. Íslenska liðið gerði jafntefli við Holland í fyrsta leik, tapaði svo fyrir Ísrael en unnu Moldóva. Andri var í byrjunarliðinu í öllum leikjum liðsins en var skipt út af gegn Ísrael.

Tvö töp gegn toppliðunum

Karlalið ÍBV lék gegn ÍR á útivelli þar sem heimamenn höfðu betur, 32-28 en sigurinn var tæpari en tölurnar gefa til kynna. ÍR-ingar voru sterkari í fyrri hálfleik og voru ávallt yfir en náðu aldrei að hrista Eyjamenn af sér. Varnarleikur og markvarsla er enn vandamál hjá IBV en þó komu ágætir leikkaflar hjá liðinu. Í hálfleik höfðu ÍR-ingar fímm marka forystu 18-13 og útlitið ekki gott hjá ÍBV. En leikmenn IBV neituðu að gefast upp og fljótlega fór að draga saman með liðunum í síðari hálfleik. Þannig náðu Eyjamenn að minnka muninn niður í eitt mark, 20-19 þegar tíu mínútur voru búnar af hálfleiknum en náðu ekki að jafna í það skiptið. Sindri Haraldsson minnkaði muninn aftur í eitt mark þegar átta mínútur voru eftir af leiknum og Sigurður Ari Stefánsson jafnaði leikinn í 26-26 þegar sjö mínútur voru eftir. Í stöðunni 27-27 fengu Eyjamenn kjörið tækifæri til að komast yfir í leiknum, Zoltán Belányi komst þá í hraðaupphlaup, einn gegn markverði ÍR-inga sem sá við honum. Í staðinn skoruðu ÍR-ingar næstu fjögur mörk en lokatölur leiksins urðu 32-28. Mörk ÍBV: Davíð Þór Óskarsson 5, Josep Bösze 5, Zoltán Belányi 5/3, Robert Bognar 4, Sigurður Bragason 2, Sigurður Ari Stefánsson 2, Sindri Haraldsson 1, Björgvin Þór Rúnarsson 1, Kári Kristjánsson 1, Michael Lauritzen 1, Erlingur Richardsson 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 13.    

Karlalið ÍBV mætti Haukum á Ásvöllum þar sem ÍBV átti litla möguleika gegn ríkjandi Íslandsmeisturum. Haukar voru mun betri aðilinn í fyrri hálfleik og skoruðu hvorki fleiri né færri en sautján mörk, mörg hver úr hraðaupphlaupum og lentu Eyjamenn strax undir. Fyrri hálfleikur hjá ÍBV var líklega einn sá lélegasti hjá ÍBV það sem af er í vetur, mestur varð munurinn níu mörk 15-6 en staðan í hálfleikvar 17-12. Síðari hálfleikur fór ekki vel af stað hjá IBV, Haukar skoruðu sex mörk gegn aðeins einu marki IBV og komust tíu mörkum yfir, 23-13. En í framhaldi af því kom góður leikkafli hjá ÍBV og þegar tíu mínútur voru eftir af leiknum var staðan 26-22. Svo virðist sem leikmenn IBV hafi fengið trú á að þeir ættu virkilegan möguleika gegn Haukum og þegar tvær mínútur voru eftir, var munurinn aðeins tvö mörk, 29-27. En lengra komust Eyjamenn ekki, íslandsmeistararnir skomðu síðasta markið og sigruðu því með þremur mörkum, 30-27. Mörk ÍBV: Zoltán Belányi 9/4, Robert Bognar 5, Josep Bösze 4, Michael Lauritzen 2, Sigurður Ari Stefánsson 2, Sigurður Bragason 2, Björgvin Rúnarsson 1, Davíð Þór Óskarsson 1, Erlingur Richardsson 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 20/1

Úr í bikarnum

3. flokkur karla tók á móti Valsmönnum í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar hér í Eyjum. Liðin leika í sama riðli í Íslandsmótinu og höfðu áður mæst og þá sigruðu Valsmenn með sex mörkum, 26-20. Valsmenn bættu um betur í þetta sinn, lokatölur bikarleiksins urðu 21-28 og er ÍBV því úr leik í bikamum. Fjórði flokkur karla lék gegn Aftureldingu en þá léku liðin í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar. Fyrri hálfleikur var afar illa leikinn hjá ÍBV enda komu strákarnir nánast beint úr Herjólfi og í leikinn en munurinn í hálfleik var tíu mörk. Síðari hálfleikur var hins vegar mun jafnari en heimamenn úr Aftureldingu komust áfram eftir ellefu marka sigur á ÍBV, 28-17.

Enginn unglingaflokkur?

Stelpumar áttu að leika tvo leiki um um miðjan október en hvorugur þeirra fór fram. Leikmannahópurinn telur aðeins þrjá leikmenn og átti að notast við leikmenn úr fjórða flokki til að fylla upp í þær stöður sem vantaði. Þegar komið var að leikjunum voru hins vegar meiðsli á meðal þeirra þriggja sem skipa unglingaflokkinn auk þess sem leikmenn úr fjórða flokki gátu ekki spilað. HSÍ er nú að skoða málið og ef allt fer á versta veg verður IBV vísað úr keppni en unglingaflokkur samanstendur af öðrum og þriðja flokki kvenna samkvæmt gamla skipulaginu. Í flokknum eru því fjórir árgangar og sorglegt að aðeins þrír leikmenn skuli vera í flokknum. .

Gunnar Berg í landsliðið

Í október tilkynnti Guðmundur Guðmundsson, landsliðsþjálfari íslands í handbolta, leikmannahóp sinn sem kemur til með að mæta Pólverjum í þremur æfingaleikjum. Í fyrsta sinn í langan tíma var enginn Eyjamaður í landsliðinu en rétt fyrir leik kallaði Guðmundur á Gunnar Berg Viktorsson inn í hópinn vegna meiðsla Sigfúsar Sigurðssonar. Leikirnir verða, föstudaginn 31. október, laugardaginn 1. nóvember og sunnudaginn 2. nóvember.

Guðbjörg með átta mörk

Íslenska kvennalandsliðið lék í lok október í Silesia Cup mótinu sem fór fram í Póllandi en auk Íslands og heimastúlkna léku Tékkland, Slóvakía og Túnis. Íslenska liðið tapaði þremur af þessum fjórum leikjum en sigurinn kom í síðasta leik gegn Túnis. Í íslenska landsliðshópnum var einn leikmaður ÍBV, Guðbjörg Guðmannsdóttir og skoraði hún átta mörk í tveimur leikjum og skoraði m.a. fjögur mörk í sigurleiknum gegn Túnis.

Sylvia og Birgit saman í austurríska landsliðinu

Um leið og íslenska landsliðið lék á Silesia Cup lék austuríska landsliðið tvo leiki gegn Makedóníu. í austurríska liðinu voru tveir leikmenn IBV, þær Sylvia Strass og Birgit Engl en í fyrri leiknum skoraði Sylvia þrjú mörk og Birgit eitt. Í síðari leiknum skoraði svo Sylvia fjögur mörk en austurríska liðið vann fyrri leikinn en tapaði þeim síðari.

Ester á landsliðsæfíngar

Ester Óskarsdóttir, handknattleiksstúlkan efnilega í IBV hefur verið valin í æfingahóp íslenska landsliðsins, skipað leikmönnum fæddum 1987 og 1988. Alls verða 25 leikmenn á æfingunum sem fara fram helgina 7. til 9. nóvember.

NÓVEMBER:

Mikil törn hjá stelpunum

Stelpurnar í ÍBV spiluðu þrjá leiki á aðeins sjö dögum  í byrjun nóvember. Fyrst gegn Stjörnunni  í bikarnum, svo tók deildin við fyrst léku stelpurnar gegn Víkingi og en síðan aftur gegn Stjörnuni. Bikarleikurinn var nokkuð skrautlegur og mótspyma Stjörnu stúlkna var töluvert meiri en flestir áttu von á. Liðið barðist mjög vel og voru Eyjastúlkur langt frá því að finna taktinn í fyrri hálfleik. Í hálfleik voru gestimir einu marki yfir 13-14 en í síðari hálfleik snerist dæmið nánast gjörsamlega við. Nú voru Eyjastúlkur allt í öllu og gestimir skoruðu aðeins fjögur mörk fyrstu tuttugu mínúturnar á meðan leikmenn ÍBV röðuðu inn mörkunum. ÍBV náði mest átta marka forystu, 27-19 en lokatölur urðu 28-24. Mörk ÍBV: Anna Yakova 10/5, Sylvia Strass 7/1, Birgit Engl 3, Alla Gokorian 3, Anja Nielsen 2, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 1, Elísa Sigurðardóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1. Varin skot: Julia Gantimorova 12, Bima Þórsdóttir 2.

Eyjastúlkur léku svo gegn Víkingum á heimavelli þeirra síðarnefndu. Styrkleikamunurinn á liðunum var töluverður og þó að ÍBV hafi nánast verið á hálfum hraða þá var sigur liðsins í raun aldrei í hættu. IBV var yfir nánast allan tímann en góður leikkafli í upphafi þess síðari tryggði liðinu nánast sigurinn. Undir lok leiksins kom upp kæruleysi í leik IBV en það kom ekki að sök enda Eyjaliðið með örugga forystu. Lokatölur leiksins urðu 23-29 en staðan í hálfleik hafði verið 10-13.. Mörk ÍBV: Anna Yakova 7/1, Alla Gokorian 6, Birgit Engl 5, Sylvia Strass 5/1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4 og Anja Nielsen 2. Varin skot: Julia Gantimorova 16/2. 

Leikurinn á móti Stjörnunni var svipaður og bikarleikurinn nokkrum dögum áður. Gestimir voru betri í fyrri hálfleik en í þeim síðari var Eyjaliðið mun sterkara og sigraði að lokum með níu mörkum, 29 - 20. Það er samt sem áður orðið einkennandi fyrir leik ÍBV að leikmenn virðast vita að það dugi að spila vel í tíu mínútur til þess að vinna leiki. Þannig voru nokkrir leikmenn liðsins algjörlega úti á þekju í fyrri hálfleik, köstuðu boltanum út af og hver mistökin ráku önnur. En Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari IBV, var greinilega ekki sáttur í leikhléi þegar staðan var 12-12 og hálfleiksræða hans hefur greinilega vakið leikmenn IBV af þeim þyrnirósarblundi sem þær vom í. í síðari hálfleik fór Alla Gokorian hreinlega á kostum, skoraði sjö mörk í öllum regnbogans litum eftir að hafa skorað aðeins þrjú mörk í fyrri hálfleik úr sjö tilraunum. Julia Gantimorova sýndi Eyjamönnum einnig hvers megnug hún er í markinu, varði sautján skot, þar af tvö víti. Mörk IBV: Alla Gokorian 11/2, Anna Yakova 5/1, Sylvia Strass 4, Birgit Engl 3, Þórsteina Sigurbjömsdóttir 2, Anja Nielsen 2, Elísa Sigurðardóttir 1, Guðbjörg Guðmannsdóttir 1. Varin skot: Julia Gantimorova 17/2, Birna Þórsdóttir 1/1. 

Sigþór hættir

Einn af efnilegustu handknattleiksmönnum ÍBV, Sigþór Friðriksson, þarf að leggja skóna á hilluna aðeins rétt tvítugur að aldri. Sigþór hefur undanfarin misseri glímt við meiðsli í hné en hefur leikið með ÍBV þrátt fyrir það. Undanfarnar vikur voru meiðslin hins vegar orðin það slæm að hann hefur ekkert leikið með liðinu í undanfömum leikjum og í síðustu viku fór Sigþór í speglun. Þar kom í ljós að liðþófinn var rifinn og mikil brjóskeyðing sem varð til þess að læknar ráðlögðu honum að hætta allri íþróttaiðkun. Þetta er að sjálfsögðu mikið áfall fyrir Sigþór og líka fyrir ÍBV en Sigþór hafði fram til þessa verið einn af lykilmönnum liðsins í varnarleiknum. 

Samstarfsamningur við Crewe

Birgir Stefánsson, framkvæmdastjórí knattspyrnudeildar IBV og Gísli Hjartarson í stjórn knattspymudeildar voru á dögunum staddir í Englandi þar sem þeir heimsóttu enska 1. deildarliðið Crewe Alexandra. Þeir Ian Jeffs og Tom Betts, sem léku með ÍBV í sumar em leikmenn Crewe. Markmið ferðarinnar var að koma á föstu sambandi við enska félagið og í samtali við Fréttir sagði Birgir að þeir félagar hafi náð góðum samningi. „Við vorum í samningaviðræðum við forráðamenn Crewe um samstarf milli þeirra og IBV. Hugmyndin var að við fengjum lánaða leikmenn hjá þeim og við gætum sent okkar menn á æfingar hjá þeim í vetur," sagði Birgir og bætti því við að forráðamenn Crewe hefðu tekið vel í málið. „Við hittum Dario Gradi, framkvæmdastjóra og Neil Baker, aðstoðarþjálfara og þeir voru mjög áhugasamir. Samkomulagið við Crewe er þannig að nú fáum við lista yfir leikmenn sem hafa áhuga á að koma til Íslands næsta sumar og leika með okkur. Ég tel að þessi samningur sé mjög góður fyrir ÍBV og ef við hefðum svona samning við tvö til þrjú félög eins og Crewe, þá gætum við búið til heilt fótboltalið þó að það standi að sjálfsögðu ekki til."

Dómaraskandall og einelti

B-lið ÍBV spilaði gegn Fylki í 16 liða úrslitum bikarkeppninnar og var búist við hörkuleik enda B-liðið skipað sannkölluðum þungavigtarmönnum. En Fylkismenn komu heimamönnum á óvart og sigruðu 26-32. Jóhann Pétursson sagði að dómgæslan hafi komið Eyjamönnum um koll. „Dómgæslan var þannig að örugg skytta eins og Magnús Amgrímsson fann sig tilknúinn til að þruma boltanum með reglubundnum hætti í magann á markmanni Fylkis og vildi með því mótmæla dómgæslunni með áberandi hætti. Þá var varnarleikur ÍBV mjög óöruggur og það var ekki fyrr en í síðari hálfleik að Jón Snædal reif sig upp og sýndi gamalkunna takta," segir Jóhann en Jón fékk rauða spjaldið í síðari hálfleik. „En ÍBV-liðið lofar að mæta að ári með sitt sterkasta lið og þá verður ekki látið staðar numið í 16 liða úrslitum, það er víst," sagði Jóhann að lokum. 

Tryggvi eini Eyjamaðurinn í hópnum

Landsliðsþjálfararnir Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson tilkynntu íslenska A-landsliðshópinn sem mun mæta Mexíkó í Bandaríkjunum 20. nóvember næstkomandi. Hvorki Hermann Hreiðarsson né Birkir Kristinsson eru í hópnum og þá dró Ívar Ingimarsson sig líka úr hópnum en lið Hermanns og Ívars þrýstu á þá að leika ekki leikinn. Tryggvi Guðmundsson kemur hins vegar aftur inn í hópinn eftir langvarandi meiðsli og er hann eini Eyjamaðurinn í leikmannahópnum að þessu sinni. 

Guðfinnur á leið til ÍBV

Stjórn handknattleiksdeildar IBV karla hefur verið í viðræðum við Eyjamanninn Guðfinn Kristmannsson sem hefur verið búsettur í Svíþjóð undanfarin ár. Guðfinnur hefur ákveðið að slá til og stefnir allt í að hann spili með liðinu í deildarkeppni Íslandsmótsins sem hefst í byrjun febrúar. Viktor Ragnarsson, formaður handknattleiksráðs sagði í samtali við Fréttir að það væru vissulega gleðitíðindi fyrir IBV að Guðfinnur væri á leiðinni heim. „Við vitum hvern mann Guffi hefur að geyma og hvar hjartað slær. Í honum er stórt IBV hjarta og við erum mjög heppnir með að fá hann til Eyja aftur. Hann hefur reyndar ekki skrifað undir en sagðist ætla koma og orð hans eru fyrir mér það sama og undirritaður samningur," sagði Viktor og bætti því við að almenn ánægja væri hjá karlaliði IBV með komu Guðfinns.

Komnir í 8-liða úrslit

Eyjamenn léku gegn B-liði Vals í 16 - liða úrslitum bikarkeppninnar. Í liði Vals voru ekki ómerkari kempur en Geir Sveinsson, Sigurður Sveinsson, Jón Kristjánsson og fleiri. Þessir leikmenn mega hins vegar flestir muna sinn fífil fegurri og frískir Eyjapeyjar sigruðu nokkuð örugglega. Leikurinn var í járnum til að byrja með og Eyjamenn áttu í nokkrum vandræðum með að finna réttu leiðina framhjá vörn Valsmanna. Undir lok fyrri hálfleiks náðu Eyjamenn samt góðum leikkafla, skoruðu nokkur mörk úr hraðaupphlaupum og höfðu þriggja marka forystu í hálfleik, 12-15. Í síðari hálfleik bættu Eyjamenn svo forskotið jafnt og þétt enda úthaldið töluvert betra hjá ÍBV og lokatölur urðu 28-36. Já, það er ekki á hverjum degi sem ÍBV vinnur átta marka sigur á Hlíðarenda. IBV er þar með komið í átta liða úrslit en þangað hefur liðið ekki komist síðan seint á tíunda áratug síðustu aldar. Markaskorarar IBV: Zoltán Belányi 10, Robert Bognar 5, Sigurður Ari Stefánsson 5, Björgvin Þór Rúnarsson 4, Kárí Kristjánsson 3, Josep Bösze 3, Erlingur Richardsson 2, Davíð Þór Óskarsson 2, Sigurður Bragason 1, Michael Lauritzen I. Varin skot: Jóhann Guðmunds. 24. 

Einn sigur og tveir tapleikir

Fjórði flokkur karla lék í annarri umferð Íslandsmótsins en IBV er í 2. deild og lék í A-riðli ásamt Víkingi, Gróttu og ÍR. Riðillinn var leikinn hér í Eyjum og unnu Eyjamenn einn leik en töpuðu tveimur. Sigurður Bragason, þjálfari strákanna, var samt sem áður mjög ánægður með lið sitt. „Strákarnir lögðu sig alla fram í leikjunum og í raun vorum við óheppnir á móti ÍR. Þar brenndum við af víti undir lokin og ÍR vann með einu marki. Annars er þetta langbesta frammistaða sem ég hef séð hjá flokknum síðan ég tók við þeim fyrir rúmu árí síðan. Þetta er líka fjólmennur hópur, 17-18 strákar sem æfa að staðaldri og mikið fjör hjá okkur." Úrslit helgarinnar urðu annars þessi: ÍBV-Víkingur 19-13. Mörk ÍBV: Daði Magnússon 7, Óttar Steingrímsson 4, Birkir Hlynsson, Þórhallur Friðriksson og Björn Kristmannsson 1. ÍBV-Grótta 15-20. Mörk ÍBV: Daði Magnússon 8, Bergur Gylfason 3, Birkir Hlynsson, Ellert Scheving og Sæþór Garðars. 1. ÍBV-ÍR 14-15 Mörk ÍBV: Ellert Scheving 5, Birkir Hlynsson 3, Daði Magnússon, Þórhallur Friðriksson og Bergur Gylfa. 2

4. flokkur féll úr bikarnum

4. flokkur kvenna í handknattleik lék gegn Haukum í bikarkeppní flokksins og var leikið hér í Eyjum. Haukar sigruðu með einu marki, 15-14 en staðan í hálfleik var 7-8 og er IBV þar með fallið úr keppni í bikarnum. Mörk ÍBV: Hekla Hannesdóttir 6, Ester Óskarsdóttir 3, Anna María Halldórsdóttir 2, Birgitta Rúnarsdóttir 2, Sædís Magnúsdóttir 1. Elísabet Þorvaldsdóttir varði ágætlega.

Guðjón á úrtaksæfingu

Guðjón Ólafsson hefur verið valinn á úrtaksæfingu hjá U-16 ára landsliðinu í knattspyrnu en æfingarnar fara fram seinni part desember mánaðar. 

Samskip styrkja framkvæmdina

Í desember stóðu yfir töluverðar framkvæmdir við malarvöllinn fyrirofan Þórsvöll. Þar hafa forráðamenn ÍBV-íþróttafélags verið að tyrfa svæðið sem upphaflega var hugsað sem æfingasvæði en hefur aldrei þjónað öðrum tilgangi en sem bílastæði og geymslupláss. Nú á hins vegar að bæta úr vallarþörf knattspymumanna en í samstarfi við Samskip var ráðist í að tyrfa svæðið og verður völlurinn kallaður Samskipavöllur í framtíðinni. Svæðið nær því reyndar ekki að vera lögleg stærð keppnisvallar en er góð viðbót við vellina, sem að mati knattspyrnufróðra manna í Vestmannaeyjum, eru of fáir. Svæðið verður fyrst og fremst hugsað fyrir æfingar snemma á vorin svo knattspyrnumenn Eyjamanna komist sem fyrst á gras án þess að það bitni á völlum bæjarins en yfir sumartímann mun svæðið einnig nýtast sem æfingasvæði. 

Glæsileg handboltaveisla

Um miðjan nóvember fóru fram mikil veisluhöld í íþróttahöllinni í Vestmannaeyjum en þá var tveimur handboltaleikjum slegið saman í eina handboltaveislu. Handknattleiksráð karla- og kvenna ákváðu að prófa þessa leið og ekki stóð á Eyjamönnum en þegar mest var voru um 600 manns í íþróttahöllinni. Á inilli leikja og í hálfleik var velunnurum liðanna boðið upp á léttar veitingar . þannig að segja má að boðið hafi verið í mat og skemmlun. Leikirnir voru svo ágætis skemmtun, kvennaliðið tók topplið deildarinnar í kennslustund en karlaliðið tapaði fyrir Íslandsmeisturum Hauka. 

Eyjastúlkur byrjuðu af krafti og komust í 7-1 en þá tóku Valsstúlkur leikhlé. En stelpurnar voru í miklum ham og náðu mest sjö marka forystu en staðan í hálfleik var 16-11. ÍBV hélt uppteknum hætti í upphafi síðari hálfleiks en um miðjan hálfleikinn dró saman með liðunum og þegar tæpar tíu mínútur voru eftir minnkuðu gestirnir muninn niður í tvö mörk, 24-22. En Eyjastúlkur skoruðu næstu fjögur mörk og sigruðu að lokum 28-25. Mörk ÍBV: Anna Yakova 10, Alla Gokorian 7/2, Sylvia Strass 5, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 2, Guðbjörg Guðmannsdóttir 2, Anja Nielsen 1, Birgit Engl 1. Varin skot: Julia Gantimorova 18. 

Þá var komið að karlaliðinu sem tók á móti Islandsmeisturum Hauka sem hafa án efa best mannaða liðið í Remaxdeildinni. Þrátt fyrir það voru það leikmenn ÍBV sem voru mun betri fyrstu tíu mínúturnar og komst ÍBV fjórum mörkum yfír 9-4. Þá virtist allt hrökkva í baklás og næstu níu mörk komu frá Íslandsmeisturunum sem voru þar með komnir fjórum mörkum yfir,9-13. Á þessum leikkafla gerðu Eyjamenn mistök. Í stað þess að spila eins og í upphafí leiks og keyra á sömu mönnum og í byrjun var skipt inn á tveimur leikmönnum sem komust aldrei í takt við leikinn. Staðan í hálfleik var 10-14. Í síðari hálfleik léku gestirnir á alls oddi, léku sterkan varnarleik og fengu fyrir vikið töluvert af hraðaupphlaupum sem þeir nýttu vel. Eyjamenn gátu í raun ekkert gert annað en að læra af meisturunum og lokatölur urðu 25-33. Mörk ÍBV: Zoltán Bragi Belányi 6/1, Sigurður Bragason 6, Kári Kristj- ánsson 4, Robert Bognar 3, Josep Bösze 3, Michael Lauritsen 2, Björgvin Rúnarsson 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 15, Eyjólfur Hannesson 1. 

Jón Skaftason til ÍBV

Leikmannamál knattspyrnuliðs ÍBV hafa verið að skýrast á undanförnum dögum, Jón Skaftason, ungur knattspyrnumaður úr KR, hefði skrifað undir þriggja ára samning við Eyjamenn. Jón lék reyndar með Vfkingi í 1. deildinni síðastliðið sumar og þótti standa sig vel. 

Tróna á toppnum

Eyjastúlkur léku tvo síðustu leiki sína á þessu ári í nóvember en þá fór liðið í góða ferð á höfuðborgarsvæðið. Fyrst var leikið gegn Fylki/ÍR en gegn FH tveimur dögum síðar. Leikurinn gegn Fylki/ÍR átti að vera formsatriði enda ÍBV með mun sterkari mannskap en gestgjafarnir. Sem oft fyrr mættu Eyjastúlkur með hangandi haus í fyrri hálfleik sem varð til þess að hann var jafnari en hefði þurft að vera. IBV var samt sem áður með undirtökin og staðan í hálfleik var 13-16. ÍBV byrjaði svo síðari hálfleikinn af miklum krafti og lagði þar grunninn að sigri sínum. Niðurstaðan varð átta marka sigur Eyjastúlkna, 26-34 og var liðið þar með komið í efsta sæti Remaxdeildarinnar. Mörk ÍBV: Anna Yakova 9, Nína K. Björnsdóttir 7, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Alla Gokorian 4, Birgit Engl 4, Sylvia Strass 3, Elísa Sigurðardóttir 1, Þórsteina Sigurbjörnsdóttir 1 og Sæunn Magnúsdóttir 1. 

Lið ÍBV byrjaði mjög vel í leiknum gegn FH og náði strax þriggja marka forystu. IBV lét forystuna ekki af hendi það sem eftir lifði fyrri hálfleiks, munaði yfirleitt þremur til sex mörkum og staðan í hálfleik var 14-17. Það sama var svo uppi á teningnum í síðari hálfleik, leikmenn IBV létu forystuna ekki af hendi en Hafnfirðingar voru aldrei langt undan. Lokatölur urðu 27- 31 en eins og tölurnar bera með sér var varnarleikur og markvarsla IBV ekki góð í leiknum. Mörk ÍBV: Anna Yakova 10, Alla Gokorian 7, Sylvia Strass 5, Guðbjörg Guðmannsdóttir 4, Birgit Engl 3 og Anja Nielsen 2. 

Draumur um efri deild úr sögunni

Vonir karlaliðs IBV um að komast í efri deild Íslandsmótsins í handbolta að lokinni riðlakeppni urðu nánast að engu þegar liðið tapaði naumlega gegn Stjörnunni. Jafnræði var með liðunum fyrstu mínúturnar en smám saman náðu heimamenn undirtökunum. Eyjamenn voru samt sem áður aldrei langt undan og í hálfleik var staðan 13-10 fyrir Stjörnuna. Strax í upphafi síðari hálfleiks jöfnuðu Eyjamenn 14-14 en aftur náðu heimamenn undirtökunum þegar leið á hálfleikinn. Stjarnan náði mest fjögurra marka forystu undir lokin en Eyjamenn náðu aðeins að laga stöðuna fyrir leikslok en töpuðu með tveimur mörkum. Lokatölur voru 29 - 27. Mörk ÍBV: Zoltán Bragi Belányi 8/3, Robert Bognar 4, Sigurður Bragason 4, Kári Kristjánsson 3, Josep Bösze 3, Sigurður Ari Stefánsson 3, Björgvin Rúnarsson 2. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 13. 

Tveir tapleikir hjá 3ja lokki

3. flokkur karla ÍBV lék norðan heiða, bæði gegn Þór og KA. Fyrst var leikið gegn Þór og eftir slæma byrjun í leiknum náðu Eyjamenn að rétta sinn hlut þegar leið á leikinn. Lokatölur urðu hins vegar 29-26, þriggja marka tap ÍBV. Daginn eftir léku strákarnir svo gegn KA og var sá leikur mun jafnari en gegn Þór. Eftir æsispennandi leik var staðan jöfn þegar leiktíminn var liðinn en KA-menn áttu aðeins eftir eitt aukakast. Þeir gerðu sér hins vegar lítið fyrir og skoruðu sigurmarkið úr aukakastinu og lokatölur urðu 27-26. 

Stelpurnar í 2. sæti

Fjórði flokkur kvenna lék í fjölliðamóti um miðjan nóvember en þá fór fram önnur umferð Íslandsmótsins. ÍBV leikur í 2. deild og var í riðli með Haukum, Val og Stjörnunni. Eyjastelpur unnu tvo leiki en töpuðu gegn Haukum og enduðu því í öðru sæti riðilsins. Úrslit leikjanna urðu þessi: ÍBV-Haukar 11-17, ÍBV-Valur 22-16 og ÍBVStjarnan 18-17. 

Fimm marka tap fyrir HK

ÍBV sótti HK heim þar sem HK sigraði 33-28. Leikmenn ÍBV voru lengi í gang í leiknum og það virtist duga heimamónnum að spila á hálfum hraða til þess að komast þremur mörkum yfir. Heimamenn juku muninn jafnt og þétt það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Mestur varð munurinn sex mörk, 12-6 en Eyjamenn náðu aðeins að klóra í bakkann fyrir leikhlé og staðan í hálfleik var 14-9. Síðari hálfleikur fór ágætlega af stað hjá ÍBV, Eyjamenn skomðu þrjú mörk gegn einu marki heimamanna og munurinn var þar með kominn niður í þrjú mörk, 15-12. En þá virtust heimamenn aftur gefa í og náðu strax í kjölfarið aftur fimm marka forystu. Mestur varð munurinn hins vegar sjö mörk í síðari hálfleik, 27-20 en lokatölur urðu 33-28. Mörk ÍBV: Zoltán Belányi 7/5, Davíð Þór Óskarsson 6, Kári Kristjánsson 4, Sigurður Ari Stefánsson 4, Josep Bösze 3, Robert Bognar 3, Sigurður Bragason 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 7

Gott gengi yngri flokka

3. flokkur karla lék tvo leiki, annars vegar gegn FH og hinsvegar ÍR2.  Í fyrri leiknum reyndust Hafnfirðingarnir sterkari, lokatölur urðu 29- 21 eftir að staðan í hálfleik hafði verið 14-10. Daginn eftir  var svo komið að fyrsta sigurleik IBV í vetur þegar liðið lék gegn ÍR2. Eyjamenn reyndust vera mun sterkari aðilinn í leiknum og voru sex mörkum yfir í hálfleik. Lokatölur urðu svo 17-27, tíu marka útisigur hjá IBV. Fimmti flokkur kvenna spilaði líka en frá ÍBV fóru A-, B- og Clið og alls um 25 stelpur. Keppni flokksins í Íslandsmótinu er nokkuð flókin, þannig er annað hvert fjölliðamót leikið í deildarkeppni eftir styrkleika en liðin raðast í styrkleika eftir að hafa leikið í riðlakeppnum í hinum fjölliðamótunum. Í lok vetrar em svo talin saman stigin sem liðin safna sér með árangri úr riðlakeppninni. Árangur IBV um helgina var mjög góður, A- og B-liðin urðu í fyrsta sæti í 2. deild og C-liðið í öðru sæti í 1. deild. Úrslit urðu þessi:

A-lið: ÍBV-Valur 11-8, ÍBV-FH 6-6, ÍBV-Fjölnir 10-14, ÍBV-Stjaman 9-8. 

B-lið: ÍBV-Grótta 9-5, ÍBV-Selfoss 20-1, ÍBV-Stjarnan 9-6, ÍBV-Víkingur6-3.

C-lið: ÍBV-Stjaman 5-4, ÍBV-Vfkingur 8-8, ÍBV-Fylkir 20-5, ÍBV-Haukar 12-9, ÍB V-Haukar2 13- 9,ÍBV-Grótta5-9. 

Fimmti flokkur karla var líka á ferðinni en þeir tefldu fram tveimur liðum, ÍBV A- og B-lið í 3. deild. Strákamir í A-liðinu gerðu sér lítið fyrir og unnu alla sína leiki mjög örugglega og spila því í 2. deild í næsta fjölliðamóti. Árangur B-liðsins var ekki mikið síðri en strákarnir í B-liðinu töpuðu aðeins einum leik og enduðu í öðru sæti 3. deildar. Úrslit urðu þessi:

A-lið: ÍBV-Fram 17-9, ÍBV-HK 20-9, ÍBV-Fylkir 16-6, ÍBV-Höttur 16-5. 

B-lið: ÍBV-Grótta/KR 6-15, ÍBVValur 12-7, ÍBV-Fjölnir 9-7, ÍBV-Breiðablik 13-10. 

Íslenska kvennalandsliðið áfram

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik lék í forkeppni undankeppni Evrópumótsins en í riðli íslenska liðsins voru Makedónía, Portúgal og Ítalía. Makedónía þótti sterkasta liðið en þrjú lið komust áfram í undankeppnina sjálfa og stóð baráttan á milli Portúgals, Íslands og Ítalíu en riðillinn var leikinn á Sikiley. Ísland sigraði Portúgal, en steinlá gegn Makidóníu og tapaði með einu gegn Ítaíu, þrátt fyrir það komst liðið áfram.. Guðbjörg Guðmannsdóttir var í leikmannahópi íslenska liðsins en lék lítið og náði ekki að skora mark. 

Birkir áfram

Birkir Kristinsson hefur tilkynnt forráðamönnum ÍBV að hann ætli að spila með liðinu næsta sumar. Eyjamenn hafa beðið með öndina í hálsinum að undanförnu enda voru sögusagnir um að Birkir myndi skipta um lið eða jafnvel leggja skóna á hilluna. Birkir hefur nú tekið af allan vafa í málinu en þessi 39 ára gamli unglingur átti mjög gott sumar á milli stanganna í ár og sýndi það enn og aftur að þar er á ferðinni einn besti markvörður íslensku deildarinnar. 

Fimmtán marka sigur

ÍBV tók á móti Breiðabliki laugardaginn 29.nóvember. Leikurinn var reyndar lítið fyrir augað og Eyjamenn hafa oft leikið betur. Í upphafi var eins og leikmenn ÍBV vanmætu andstæðinginn og upphafsmínúturnar voru jafnar. Smám saman sigu Eyjamenn hins vegar fram úr og í hálfleik var staðan 20-14 fyrir ÍBV. Í síðari hálfleik kom hins vegar aftur upp vanmat hjá ÍBV og gestirnir gengu á lagið. Minnstur varð munurinn í síðari hálfleik fjögur mörk, 23-19 en eftir það tóku Eyjamenn öll völd á vellinum og keyrðu hreinlega yfir andstæðinga sína, lokatölur 37-22. Mörk IBV: Davíð Þór Óskarsson 8/4,  Robert Bognar 8, Sigurður Ari Stefánsson 6, Josef Bösze 5, Zoltán  Belányi 4, Björgvin Rúnarsson 2, Magnús Sigurðsson 1, Kári Kristjánsson 1, Michael Lauritsen 1, Sigurður Bragason 1.    Varins skot: Eyjólfur Hannesson 8, Jóhann Guðmundsson 8/1. 

Stelpurnar komust í úrslitin

Í lok nóvember fór fram Íslandsmót í efstu deildum í innanhússknattspymu og áttu Eyjamenn þrjá fulltrúa, kvenna- og karlalið IBV og Smástund en karlaliðin léku í sama riðli. Það kom í hlut leikmanna kvennaliðsins að halda uppi merki IBV því liðið komst alla leið í úrslitaleikinn á meðan hvorugt karlaliðanna komst áfram eftir riðlakeppnina. Fyrirkomulagið í 1. deild Íslandsmótins er þannig að byrjað var að leika í fjórum riðlum þar sem fjögur lið léku gegn hvert öðru. Tvö efstu liðin komust svo í átta liða úrslit þar sem leikið var með útsláttarfyrirkomulagi. Þrátt fyrir að tapa ekki leik í riðlakeppninni þá komst ÍBV ekki áfram en liðið gerði þrjú jafntefli. Í kvennakeppninni er leikið í tveimur riðlum og komast tvö efstu liðin í undanúrslit. ÍBV vann alla leiki sína í riðlinum og mætti KR í undanúrslitum. ÍBV sigraði þann leik 2-1 og í úrslitum mætti liðið Val. Þar beið ÍBV hins vegar skipsbrot því Valsstúlkur sigruðu 7-1 og eru því Íslandsmeistarar í innanhússknattspymu. Eina mark ÍBV í úrslitum skoraði Elena Einisdóttir.

DESEMBER:

Harðort bréf til bæjarstjórnar

Í Fréttum kemur fram að ÍBV- íþróttafélag lagði bréf fyrir bæjarráð í byrjun desember þar sem óskað er eftir því að bæjaryfirvöld hefji þegar í stað viðræður við Vegagerðina um aukaferðir Herjólfs í kringum Shellmót og þjóðhátíð. Segir í bréfinu að sá háttur sem hafður hefur verið síðustu ár að skríða á hnjánum fyrir fulltrúa Vegagerðarinnar, stuttu fyrir þessa stóru viðburði sé molbúaháttur sem hljóti að vera bam síns tíma. Allir viti að þessir viðburðir hleypi miklu lífi í verslun og þjónustu í bæjarfélaginu og niðurstaðan um auknar ferðir sé svo háð duttlungum einhverra embættismanna. „Það er tímabært að fara fram á það við Vegagerðina að hún viðurkenni mikilvægi þessara viðburða fyrir Vestmannaeyinga og þörfina fyrir opinn þjóðveg á þessum tímum. Það þarf ekki að birtast fulltrúum Vegagerðarinnar eins og þruma úr heiðskíru lofti, að haldin sé útihátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgi, þjóðhátíð hefur verið haldin síðan 1874 og Shellmótið var tuttugu ára síðastliðið sumar." Ennfremur segir að umtalsverðum fjármunum sé varið til markaðssetningar á þjóðhátíð og Herjólfur er ekki bara ódýrasti kosturinn, heldur eini öruggi kosturinn til Eyja. IBV - íþróttafélag hvetur því bæjaryfirvöld til að vopnast nú þegar, leggjast í víking og bera höfuðið hátt þegar barið er í borðið og þess krafíst sem okkur sannarlega ber. Félagið er reiðubúið að leggja til bardagamann í reisuna. Undir þetta skrifar Páll Scheving Ingvarsson framkvæmdarstjóri. 

Einn Eyjamaður í æfingahópi u-17

Lúkas Kostic, landsliðsþjálfari U- 17 ára landsliðs Íslands í knattspymu, hefur valið 58 leikmenn til æfinga og er einn Eyjamaður í hópnum. Sá heitir Ellert Scheving Pálsson og hefur verið viðloðandi landsliðið að undanförnu en æfingamar fara fram um helgina. Athygli vekur að ÍBV er aðeins úthlutað einu sæti af tæplega sextíu, jafn mörgum og Selfossi, Víði, Hetti og Leikni en lið eins og BÍ sendir þrjá leikmenn og Njarðvík tvo. 

Ekkert bikarævintýri í ár

Það varð ekkert bikarævintýri í ár, frekar en síðustu ár hjá karlaliði ÍB V. Það var niðurstaðan eftir leik gegn Val í byrjun desember. Eyjamenn hafa ekki náð langt í keppninni undanfaríð en voru nú komnir í átta liða úrslit. Leikurinn var leikinn á Hlíðarenda en Valsmenn, sem eru á toppi Norðurriðils voru fyrirfram taldir eiga sigurinn nokkuð vísan. Það fór líka þannig að Hlíðarendapiltar voru ekki í teljandi vandræðum með IBV og eftir að hafa verið 17-11 yfir í hálfleik, breikkuðu þeir bilið í síðari hálfleik og endaði leikurinn með þrettán marka sigri Valsmanna, 37-24. Leikurinn er af mörgum talinn einn sá slakasti hjá IBV í vetur og grátlegt að lenda í slíku í bikarkeppninni. Mörk ÍBV: Davíð Þór Oskarsson 5, Björgvin Rúnarsson 5, Sigurður Ari Stefánsson 4, Michael Lauritsen 2, Robert Bognar 2, Zoltán Belányi 2, Ríkharð Guðmundsson 1, Josef Bösze 1, Sigurður Bragason 1, Kári Kristjánsson 1. 

Heillum horfnir í seinni hálf leik

ÍBV lék gegn FH í Remaxdeild karla. Eyjamenn komust fjórum mörkum yfir í upphafi leiks, 2-6 en lengst af í fyrri hálfleik munaði fimm mörkum á liðunum. FH-ingar náðu hins vegar að minnka muninn niður í þrjú mörk fyrir hálfleik og héldu þar með í vonina um sigur. FH-ingar, með þá Svavar Vignisson og Arnar Pétursson innanborðs, eru í harðri baráttu við Stjörnuna um fjórða sæti Suðurriðils og þurftu því nauðsynlega á sigri að halda. Þorbergur Áðalsteinsson, þjálfari FH og fyrrverandi þjálfari IBV hélt greinilega réttu hálfleiksræðuna yfir sínum mönnum því í síðari hálfleik tóku Hafnfirðingar öll völd á vellinum. Eyjamenn héldu þó forystunni fyrstu mínúturnar en eftir tíu mínútur hrundi leikur IBV. Staðan breyttist úr 19-22 í 25-22 og með þessum sex mörkum lögðu FH-ingar grunninn að sigrinum. Eyjamenn virtust algjörlega heillum horfnir og varð munurinn mestur sex mörk, 31- 25 en leikmenn IBV skoruðu síðustu fjögur mörk leiksins og lokatölur því 31-29. Mörk ÍBV: Zoltán Belányi 8/3, Robert Bognar 6, Josef Bösze 5, Sigurður Ari Stefánsson 4, Davíð Þór Óskarsson 4/3, Sigurður Bragason 2. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 22/1. 

Birgit og Sylvia komust áfram

Heimsmeistaramót kvenna í handknattleik fór fram í Króatíu. Eyjamenn eiga tvo fulltrúa á mótinu, þær Birgit Engl og Sylviu Strass, sem leika með austurríska landsliðinu sem er í B-riðli. Liðið fór vel af stað í mótinu og vann fyrstu þrjá leiki sína en tapaði svo síðustu tveimur en komst engu að síður upp úr riðlinum. Þær stöllur hafa spilað talsvert með liði sínu og skoraði Sylvia níu mörk í þessum fimm leikjum og Birgit átta. Birgit hefur reyndar verið veik hluta af mótinu og lék lítið í síðustu þremur leikjunum. 

Vel sótt þjálfaranámskeið

Um miðjan desember stóð IBV fyrir þjálfaranámskeiði í knattspyrnu og var Þorlákur Már Arnason, þjálfari Fylkis fenginn til að stýra námskeiðinu. Birgir Stefánsson, framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar ÍBV, sagði í samtali við Fréttir að námskeiðið hafi gengið vel. „Það var mjög góð þátttaka í námskeiðinu, í allt um 14 manns og margir efnilegir þjálfarar þar á meðal. Láki var mjög ánægður með þátttökuna en hann gaf okkur skýrslu eftir námskeiðið og benti okkur á efnilega þjálfara úr hópnum. Hann lét okkur líka fá punkta um starfið héma í Eyjum, sagði m.a að það ætti að vera yfirþjálfari hjá ÍBV auk fleiri punkta sem við erum að skoða."

Samningar við yngri leikmenn

Knattspyrnudeild ÍBV hefur á undanförnum vikum farið af stað með hugmyndafræði sem verið hefur áður hjá klúbbnum sem gengur út á að leikmenn sem eru ungir að árum og eru enn í 2. flokki karla fái leikmannasamning. Með þessu vill knattspyrnuráð karla gera 2. flokk karla enn tengdari meistaraflokknum og hafa starfsemi klúbbsins að erlendri fyrirmynd líkt og vinafélag ÍBV, Crewe. Leikmenn taka þátt í almennri starfsemi félagsins líkt og leikdögum mfl., fjáröflunum, skemmtikvöldum sem leikmenn halda ásamt fleim innan klúbbsins. Með kvöðum koma fríðindi sem leikmenn fá, svo ekki er þetta eintómt puð og vinna. Verið er að gera leikmenn 2. flokks fyrr reiðubúna til að takast á við verkefni, kröfur og væntingar sem gerðar eru til leikmanna meistaraflokks svo að hægt verði að gera leikmenn fyrr reiðubúna fyrir meistaraflokkinn. Með þessu vonar knattspymudeildin að leikmönnum fjölgi sem eiga þess kost að æfa með 2. flokki sem og þeim leikmönnum sem skila sér upp í meistaraflokk karla á næstu árum sem fullmótaðir knattspymumenn. 

Sigur í síðasta leik

ÍBV og Selfoss mættust í síðustu umferð Suðurriðils þar sem ÍBV sigraði 30-28. Eyjamenn byrjuðu af miklum krafti, komust í 8-1 og allt stefndi í stórsigur IBV. Eina mark Selfyssinga fyrstu tólf mínútumar var úr víti en eftir að annað markið kom þá komust þeir á bragðið. Eyjamenn héldu ágætu forskoti framan af í síðari hálfleik en undir lok hálfleiksins skoruðu gestirnir fjögur mörk gegn aðeins einu marki IBV og staðan í hálfleik var 13-10. Skömmu fyrir leikhlé misstu gestirnir litháíska leikmanninn Ramuros Mikalonis út af vegna þriggja brottvísana og áttu Eyjamenn því von á vængbrotnu liði Selfyssinga í síðari hálfleik. En sú varð ekki raunin, Selfyssingar mættu tvíefldir til leiks og náðu að minnka muninn niður í eitt mark, 14- 13 og svo 15-14. En þá vöknuðu Eyjamenn loksins úr rotinu, þeir skoruðu fimm mörk gegn einu marki gestanna og náðu aftur þægilegu forskoti. Eyjamenn héldu fimm marka forystu allt þar til undir lok leiksins en þá fengu varamenn IBV að spreyta sig. Þá minnkaði forystan niður í tvö mörk og var farið að fara um áhorfendur en strákarnir héldu haus og sigraðu með tveimur mörkum. Mörk ÍBV: Sigurður Ari Stefánsson 7, Sindri Haraldsson 6, Davíð Óskarsson 5/3, Joseph Bösze 3, Michael Lauritzen 3, Kári Kristjánsson 2, Zoltán Belányi 2, Björgvin Rúnarsson 1, Sigurður Bragason 1. Varin skot: Jóhann Guðmundsson 18/1, Eyjólfur Hannesson 2/1. 

Anna Yakova íslenskur ríkisborgari

Í Umsókn erlendra aðila að íslenskum ríkisborgararétti var eitt af þeim málum sem komið var í gegn á Alþingi á lokadögum þingsins. Leikmaður ÍBV til tveggja ára, Anna Yakova var á meðal umsækjenda og var henni veittur íslenskur ríkisborgararéttur. Anna er þar með orðin gjaldgeng í íslenska kvennalandsliðið og mun án efa koma til með að spila með liðinu enda er Anna í hópi bestu skyttna deildarinnar. Tveir leikmenn ÍBV hafa þar með öðlast íslenskan rikisborgararétt en Alla Gokorian varð íslensk fyrr á þessu ári. 

Eyjamenn ósáttir við HSÍ

Handknattleiksráð kvenna sótti um, í síðustu viku, breytingu á leikdegi ÍBV liðsins í byrjun janúar. Þannig er mál með vexti að ÍBV á að leika miðvikudaginn 7. janúar næstkomandi útileik gegn Gróttu/KR og var send beiðni til mótanefndar HSÍ um að færa leikinn til laugardagsins 10.janúar. Ástæðan fyrir breytingunni var sú að dýrara er fyrir Eyjaliðið að leika í miðri viku, þar sem því fylgir kvöldflug sem eykur kostnaðinn töluvert. Forráðamenn ÍBV bentu á það að liðið væri að leika í Evrópukeppninni í sama mánuði en því fylgja mikil útgjöld og því væru ráðsmenn með allar klær úti við að spara. Til að gera langa sögu stutta þá hafnaði mótanefnd HSI beiðni IBV á þeim rökum að í upphafi vetrar hafi verið lagt hart að mótanefnd að finna fasta leikdaga sem yrði ekki breytt. Kaldhæðnin í málinu er hins vegar sú að upphaflega átti leikur ÍBV og Gróttu/KR að fara fram 10. janúar en því var breytt vegna þátttöku ÍBV í Evrópukeppninni.


Til baka á forsíðu