Angantýr Elíasson (Hlaðbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 31. ágúst 2006 kl. 11:12 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) Útgáfa frá 31. ágúst 2006 kl. 11:12 eftir Sigurgeir (spjall | framlög) (Smáleiðr.)
Fara í flakk Fara í leit

Angantýr Elíasson fæddist í Vestmannaeyjum 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var Sigríður Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð. Þau bjuggu í Hlaðbæ.

Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.

Angantýr var einnig formaður með mótorbátinn Sídon.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Angantý:

Hrafnkeli goða að hafi snýr
horskur að drengjamati
orðvar og prúður Angantýr
enginn veifiskati.


Óskar Kárason samdi formannavísu um Angantý:

Angantýr á ufsa mó
ýtir þrátt til fanga,
Sídon þó að kylju kló
klappi þétt á vanga.



Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.