Angantýr Elíasson (Hlaðbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2006 kl. 08:19 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2006 kl. 08:19 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Angantýr á göngu.

Angantýr Elíasson fæddist í Vestmannaeyjum 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var Sigríður Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð.

Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Angantýr:

Hrafnkeli goða að hafi snýr
horskur að drengjamati
orðvar og prúður Angantýr
engum veifiskati.

Heimildir

  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.