Angantýr Elíasson (Hlaðbæ)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 11:11 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 10. júlí 2006 kl. 11:11 eftir Margret (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Angantýr Elíasson fæddist í Vestmannaeyjum 29. apríl 1916 og lést 18. júní 1991. Kona hans var Sigríður Björnsdóttir frá Bólstaðarhlíð.

Angantýr, eða Týri eins og hann var gjarnan kallaður, starfaði við embætti bæjarfógetans í Vestmannaeyjum. Síðar var hann hafnsögumaður og hafnarvörður.