„Andrés Sigmundsson (bakarameistari)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
(Enginn munur)

Útgáfa síðunnar 22. júní 2006 kl. 10:49

Andrés Sigmundsson fæddist 11. desember 1949 í Vestmannaeyjum. Foreldrar hans voru Sigmundur Andrésson bakarameistari og safnvörður frá Eyrarbakka og Dóra Hanna Magnúsdóttir. Kona Andrésar er Þuríður Freysdóttir. Andrés lauk sveinsprófi í bakaraiðn árið 1972 og rak lengi Magnúsarbakarí í Vestmannaeyjum.

Andrés var bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum frá 1982-1990 og einnig frá 2002-2006 fyrir Framsóknarflokkinn.


Heimildir

  • Haraldur Guðnason. Við Ægisdyr: Saga Vestmannaeyjabæjar í 60 ár. II. bindi. Reykjavík: Vestmannaeyjabær, 1991.