Anders Peter Asmund Bjarnasen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Anders Peter Asmund Bjarnasen, en gekk meðal fjölskyldunnar undir nafninu Osmund Bjarnesen, fæddist 2. febrúar 1882 í Pétursborg og mun hafa látist í Danmörku.
Foreldrar hans voru Gísli Bjarnasen verslunarstjóri, f. 30. maí 1837, d. 16. mars 1888, og kona hans Dortija Maria Andersdóttir Bjarnasen húsfreyja í Garðinum f. 3. júní 1839, d. 7. apríl 1916.

Börn Maríu og Gísla voru:
1. Johan Carl Anders Bjarnasen, f. 5. febrúar 1869, d. 4. maí 1875 „úr Diphtheria“, (barnaveiki).
2. María Sigríður Ásdís Bjarnasen húsfreyja, f. 12. mars 1871. Hún fluttist til Danmerkur.
3. Jóhann Gísli Anders Bjarnasen, f. 30. desember 1873. Hann fluttist til Danmerkur.
4. Rósa Jónína Petrea Bjarnasen húsfreyja, f. 20. ágúst 1875 í Stakkagerði. Hún fluttist til Danmerkur.
5. Jóhanna Soffía Ágústa Bjarnasen húsfreyja, f. 24. ágúst 1877. Hún fluttist til Danmerkur.
6. Níels Kristinn Benedikt Bjarnasen kaupmaður, f. 23. febrúar 1879. Hann fluttist til Danmerkur.
7. Anders Peter Asmund Bjarnasen kaupmaður, f. 2. febrúar 1882 í Pétursborg. Hann fluttist til Danmerkur.

Asmund var með foreldrum sínum í Pétursborg og var með þeim á Vilborgarstöðum í lok fæðingarársins. Hann fluttist með þeim til Danmerkur 1883.
Faðir hans var þar daglaunamaður og móðir hans hafði tekjur af saumaskap.
Gísli faðir hans lést 1888 og í æsku var Níels með móur sinni, sem hélt heimili fyrir börnin með saumaskap og útleigu húsnæðis.
Asmund var skrifstofumaður, síðar tískuvörusali hjá Köbenhavns Straa- og Filthattefabrik og kaupmaður.
Hann lést í Rotorua í Bay of Plenty á Nýja-Sjálandi.

Kona hans var Ingeborg Ulrikke Augusta Nilsson.
Börn þeirra hér
1. Helge Bjarnesen, f. 1917, d. í Queensland í Ástralíu.
2. Johan Bjarnesen, f. 1924 í Danmörku, d. í Rotorua á Nýja-Sjálandi.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.