Anders Bergesen Hals (Þinghól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
(Endurbeint frá Anders Bergesen)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Anders Bergesen Hals.

Anders Bergesen Hals fæddist 5. október 1908 og lést 22. september 1975. Kona hans var Sólveig Ólafsdóttir, f. 23. september 1913, d. 27. júní 2000. Dætur þeirra eru Margrét, f. 4. janúar 1934, Martine Birgit, f. 22. ágúst 1935 og Ólafía, f. 25. október 1946. Þau bjuggu í Þinghól við Kirkjuveg.

Frekari umfjöllun

Anders Ingibrigt Johan Bergesen Hals frá Vågsoy í Nordfjord í Noregi, útgerðarmaður fæddist 5. október 1908 og lést 22. september 1975.
Foreldrar hans voru Berge Hals bóndi og kona hans Martina Vedvik. Anders kom til Íslands og var vertíðarmaður í Þinghól 1930, síðar útgerðarmaður vb. Veigu VE 291 með öðrum.
Anders slasaðist og lá á spítala í Reykjavík lamaður upp að hálsi í heilt ár þar til hann lést 1975. Þau Sólveig giftu sig 1933, eignuðust fjögur börn. Þau bjuggu í Þinghól til Goss 1973, voru að byggja húsið við Brimhólabraut 38, þegar Anders slasaðist.
Hann lést 1975 og Sólveig 2000.

I. Kona Anders, (9. desember 1933), var Sólveig Ólafsdóttir frá Þinghól, húsfreyja, f. 23. september 1913 á Hnausum við Landagötu 5b ( Sólnes) og lést 27. júní 2000.
Börn þeirra:
1. Margrét Andersdóttir húsfreyja á Strembugötu 17, f. 4. janúar 1934. Maður hennar Kjartan Konráð Úlfarsson rennismíðameistari, f. 10. júní 1935, d. 4. september 2019.
2. Martina Birgit Andersdóttir húsfreyja í Þinghól við Kirkjuveg 19, f. 22. ágúst 1935. Maður hennar Ásmundur Jónsson rennismíðameistari, f. 28. ágúst 1928, d. 28. ágúst 2019.
3. Ólafía Andersdóttir húsfreyja, bóndi í Noregi, f. 25. október 1946 í Eyjum. Maður hennar Jon Stöyva, látinn.
4. Inger Elísa Andersdóttir húsfreyja, bankastarfsmaður, f. 22. janúar 1950 í Eyjum. Maður hennar Arnþór Flosi Þórðarson, látinn.

Myndir


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.