Alexander Kristmannsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Alexander Kristmannsson.
Jensína Ólafsdóttir.

Alexander Kristmannsson járnsmiður fæddist 17. apríl 1919 í Steinholti og lést 4. ágúst 1956.
Foreldrar hans voru Kristmann Agnar Þorkelsson yfirfiskimatsmaður, f. 23. júlí 1883 á Seyðisfirði, d. 22. janúar 1972 í Reykjavík og kona hans Jónína Jónsdóttir húsfreyja, f. 11. ágúst 1885 í Mandal, d. 3. mars 1957 í Reykjavík.

Systkini Alexanders voru:
1. Ingi Kristmanns bankagjaldkeri, bankaritari, f. 13. nóvember 1905, d. 31. desember 1974.
2. Rósa Kristmannsdóttir, f. 15. apríl 1908, skírð 5. júní 1908. Hún var ekki með foreldrum sínum í Steinholti í lok árs 1908 né síðar, - finnst ekki lífs né liðin.
3. Júlíana Kristín Kristmannsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 18. júlí 1910, d. 10. janúar 1990.
4. Karl Kristmanns kaupmaður, f. 21. nóvember 1911, d. 19. janúar 1958.
5. Magnea Þórey Kristmannsdóttir húsfreyja, f. 11. febrúar 1915, d. 6. ágúst 1955.
6. Huld Kristmannsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 19. febrúar 1917, d. 10. maí 2010.
7. Sigurveig Þóra Kristmannsdóttir húsfreyja, skrifstofumaður í Reykjavík, f. 7. janúar 1921, d. 13. apríl 1997.
8. Ágúst Kristmannsson, f. 11. ágúst 1922, d. 28. júlí 1928.

Alexander var með fjölskyldu sinni í Steinholti í æsku. Hann var járnsmiður í Reykjavík.

I. Kona Alexanders, (22. júní 1940), var Jensína Ólafsdóttir húsfreyja, f. 16. nóvember 1912, d. 5. september 2001. Foreldrar hennar voru Ólafur Gíslason verkamaður í Hafnarfirði, f. 26. ágúst 1885, d. 1. október 1970 og kona hans Valgerður Jónsdóttir bústýra á Rauðsgili í Hálsasveit í Borgarfirði, síðar húsfreyja í Hafnarfirði, f. 14. apríl 1874, d. 7. janúar 1954.
Börn þeirra hér:
1. Valgerður Alexandersdóttir, f. 20. mars 1942. Makar hennar: I. Ingólfur Örn Blöndal, f. 13. júní 1937. II. John Reilley, f. 13. október 1937.
2. Sigurveig Alexandersdóttir, f. 27. nóvember 1950. Maki hennar var Ásgeir S. Björnsson, f. 12. desember 1946, d. 20. ágúst 1989.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.