Adólf Sigurgeirsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. desember 2016 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. desember 2016 kl. 21:35 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Adólf Sigurgeirsson og Anna Jenný White Marteinsdóttir.

Adólf Sigurgeirsson frá Stafholti, sjómaður, járnsmiður fæddist 15. ágúst 1930 á Sæbergi, (Urðavegi 9).
Foreldrar hans voru Sigurgeir Þorleifsson verkamaður á Sæbergi, f. 12. júlí 1902, d. 24. ágúst 1950, og kona hans Júlía Gísladóttir húsfreyja, f. 16. júlí 1904, d. 19. september 1933. Fósturforeldrar hans voru Gróa Þorleifsdóttir húsfreyja í Stafholti, f. 20. október 1896, d. 10. júlí 1991, og maður hennar Gunnsteinn Eyjólfsson verkamaður, f. 14. mars 1893, d. 27. mars 1972.

Börn Gunnsteins og Gróu og fóstursystkini Adólfs voru:
1. Kristín Þóra Gunnsteinsdóttir húsfreyja í Kópavogi, f. 13. ágúst 1919 í Fagradal, d. 17. september 2011. Maður hennar var Sigurvin Magnús Magnússon framleiðslustjóri, f. 11. mars 1918, d. 8. janúar 2006.
2. Jóhann Sigurður Gunnsteinsson stöðvarstjóri, f. 4. febrúar 1925, d. 1. mars 2008. Kona hans var Margrét Anna Jónsdóttir frá Ísafirði, f. 20. júlí 1925, d. 27. september 2016.

Adólf missti móður sína, er hann var þriggja ára. Hann fór í fóstur til Gróu föðursystur sinnar í Stafholti og ólst upp hjá henni og Gunnsteini og bjó þar fram á fullorðinsár.
Hann var sjómaður í 20 ár, varð starfsmaður í Vélsmiðjunni Magna 1964, var í námi í plötu- og ketilsmíði 1969-1972, er hann lauk sveinsprófi. Hann vann síðan í Magna fram að Gosi, en fluttist til Grindavíkur þar sem hann vann í Vélsmiðju Grindavíkur, sem síðar varð Áhaldahús Grindavíkur. Þar vann hann til sjötugs.
Adólf og Stefanía eignuðust tvö börn, en slitu sambandi sínu 1953.
Þau Anna Jenný bjuggu saman frá 1958, fyrst á Kirkjubæjarbraut 5, en síðan byggðu þau húsið að Grænuhlíð 25, fluttu inn 1965 og bjuggu þar til Goss.
Þau giftu sig 1959 og eignuðust fjögur börn, misstu eitt þeirra, Sigurgeir Halldór, tæpra átta ára.
Þau búa nú í Grindavík.

I. Barnsmóðir Adólfs er Stefanía Guðmundsdóttir verkakona frá Hábæ, síðar húsfreyja og bóndi í Hallskoti í Fljótshlíð, f. 24. maí 1932 í Mandal.
Börn þeirra:
1. Júlía Kristín Adólfsdóttir húsfreyja, starfsmaður á sambýli fyrir fatlaða í Reykjavík, f. 24. nóvember 1952 á Sjúkrahúsinu.
2. Elísa Beglind Adólfsdóttir húsfreyja á Selfossi, f. 24. desember 1953 að Skólavegi 1.

II. Kona Adólfs, (17. maí 1959), er Anna Jenný White Marteinsdóttir frá Björgvin, (Sjómannasundi 3), f. 31. mars 1937 í Reykjavík.
Börn þeirra:
1. Sigurgeir Halldór Adólfsson, f. 24. desember 1959, d. 18. ágúst 1967.
2. Kjartan Friðrik Adólfsson bókari, f. 6. nóvember 1964.
3. Margrét Adólfsdóttir húsfreyja, ræstingastjóri, f. 27. september 1966.
4. Sigrún Adólfsdóttir húsfreyja, tölvutæknir í Þýskalandi, f. 13. desember 1969.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.