1973

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. maí 2012 kl. 20:36 eftir Frosti (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. maí 2012 kl. 20:36 eftir Frosti (spjall | framlög) (Ný síða: Heimaeyjargosið hófst 23. janúar 1973 og var því lýst lokið þann 3. júlí sama ár. Gosið er fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi. Giftusamlegri björgun á fólki og ...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Heimaeyjargosið hófst 23. janúar 1973 og var því lýst lokið þann 3. júlí sama ár. Gosið er fyrsta eldgos sem hefst í byggð á Íslandi. Giftusamlegri björgun á fólki og stórum hluta af eignum er minnst þegar gosið er rifjað upp. Þó að nú á 21. öldinni rísi upp kynslóð, sem ekki upplifði atburðina örlagaríku, eru þeir þó greyptir í hjörtu Eyjamanna. Minningarnar lifa og munu fara frá manni til manns. Þannig hefur gosið grópað huga Eyjamanna.