„Þorsteinn Jónsson (Laufási)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
mEkkert breytingarágrip
Lína 11: Lína 11:
Þorsteinn var mjög framfarasinnaður í útgerðarmálum og var m.a. sá fyrsti til að gera tilraunir með veiðar í þorskanet. Hann var gerður að heiðursborgara Vestmannaeyjabæjar.
Þorsteinn var mjög framfarasinnaður í útgerðarmálum og var m.a. sá fyrsti til að gera tilraunir með veiðar í þorskanet. Hann var gerður að heiðursborgara Vestmannaeyjabæjar.

Þorsteinn hafði mikinn áhuga á ritstörfum og eftir hann standa rit og greinar.
Þorsteinn hafði mikinn áhuga á ritstörfum og eftir hann standa rit og greinar. Einar af þekktri bókum má nefna sjálfsævisögu hans, Formannsævi í Eyjum og Aldahvörf í Eyjum.

Þorsteinn lést 25. mars árið 1965.
Þorsteinn lést 25. mars árið 1965.

Útgáfa síðunnar 25. júlí 2005 kl. 13:11

Þorsteinn Jónsson

Þorsteinn fæddist í Gularáshjáleigu í Austur Landeyjum 14. október 1880. Hann var sonur Jóns Einarssonar og Þórunnar Þorsteinsdóttur. Þau fluttu til Vestmannaeyja árið 1883. Þorsteinn var kvæntur Elínborgu Gísladóttur. Þorsteinn átti bróður, Ísleifur Jónsson að nafni, sem dó í suðurlandsskjálftanum 1896 þar sem að hann var í fýlatekju í Dufþekju.

Sjómaður

Þorsteinn hóf sjómennskuferil sinn um fermingu á opnu skipi með Hannesi lóðs á Miðhúsum. Hann varð svo formaður á teinæringnum Ísak árið 1900 og var með hann til ársins 1905. Formaður í 48 ár

Hann varð ásamt öðrum fyrstur manna til þess að kaupa vélbát til Vestmannaeyja og markaði á þann hátt upphaf vélbátaaldar í Vestmannaeyjum. Báturinn sem Þorsteinn og félagar keyptu var nefndur Unnur og var Þorsteinn formaður með hann í. Hann eignaðist síðar tvo aðra báta með sama nafni og var formaður með þá til ársins 1948 og hafði þá verið formaður í samtals 48 ár.

Framfarasinni