Þorsteinn Gunnarsson (vélstjóri)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 19. júní 2012 kl. 10:55 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 19. júní 2012 kl. 10:55 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Þorsteinn og Pálína.
l250px

Þorsteinn Gunnarsson frá Horninu, Vestmannabraut 1, fæddist 1. nóvember 1932 og lést 24. maí 1958. Hann var yngsti sonur hjónanna Gunnars Marels Jónssonar og Sigurlaugar Pálsdóttur.

Hann tók vélstjóramenntun í Eyjum og lagði stund á sjómennsku. Þorsteinn eignaðist mb Herstein VE 40 og átti hann með Eggert Ólafssyni frá Heiðarbæ, föður sínum Gunnari og Ása í Bæ og gerðu út á línu og handfæri. Það kemur fram í bók Ása, " Sá hlær best", að þeir fiskuðu vel á bátinn en þar fjallar hann um útgerðarsögu þeirra og sinnar.

Þorsteinn byggði sér hús að Búastaðabraut 1 og náði að gera það að miklu leyti tilbúið undir tréverk áður en hann féll frá.

Þorsteinn fór til eggja ásamt fleirum í Súlnasker þann 24. maí 1958 þar sem hann ásamt þeim Jóni Þórðarsyni og Sveini Hjörleifssyni fóru upp en Eggert Ólafsson og Sigurður Ólafsson frá Kalmanstjörn urðu eftir niðri. Borðuppgangan gekk vel og er þeir voru komnir upp fór Sveinn niður á stað sem kallast "Á Hellir." Þorsteinn lagði af stað á eftir honum þegar Sveinn var kominn niður. Jón var á brúninni og beið færis að komast niður. Þegar Þorsteinn missir tökin á bandinu að talið er og fellur niður og lamdist utan í bjargið á leið sinni niður. ,Þeir á bátunum sjá hann falla og hvar hann lendir skammt frá þeim. Sigurður stakk sér í sjóinn á eftir honum og náði taki en á meðan tókst Eggerti að koma léttabátnum upp að þeim og í sameiningu koma þeir Þorsteini um borð. Stuttu seinna ná þeir Sveini og Jóni um borð og sigldu til hafnar. Þar var Þorsteini komið undir hendur læknis sem kom út til móts við þá. Hann var lifandi er komið var á sjúkrahúsið en lést þar af sárum sínum.

Þorsteinn var giftur Pálínu Geirþrúði Höjgaard Einarsdóttur, f. 30 janúar 1936 frá Bakkafirði. Þau áttu tvö börn: Sigurlaug Þorsteinsson f. 15. apríl 1953 og Unni Þorsteinsdóttur f. 7. febrúar 1956.

Myndir


Heimildir