Þorleifur Einarsson (Túnsbergi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. febrúar 2018 kl. 10:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. febrúar 2018 kl. 10:47 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: thumb|200px|''Steinunn Guðmundsdóttir og Þorleifur Einarsson. '''Þorleifur Einarsson''' á Túnsbergi, bóndi, verkamaður fæddist 7....)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Steinunn Guðmundsdóttir og Þorleifur Einarsson.

Þorleifur Einarsson á Túnsbergi, bóndi, verkamaður fæddist 7. janúar 1878 í Hallgeirsey í A-Landeyjum og lést 22. maí 1960.
Foreldrar hans voru Einar Sigurðsson bóndi í Hallgeirsey, f. 12. júlí 1843 í Hallgeirsey, d. 16. september 1899, og kona hans Þuríður Ólafsdóttir húsfreyja, síðar í Breiðholti, f. 20. júní 1848 á Parti í Oddasókn, d. 4. september 1938.

Börn Þuríðar og Einars í Eyjum:
1. Gróa Einarsdóttir fiskverkakona í Gróuhúsi, f. 19. júlí 1875, d. 16. október 1967, ógift, en átti einn son.
2. Þorleifur Einarsson bóndi á Kirkjulandi í A-Landeyjum, síðar á Túnsbergi, f. 7. janúar 1878, d. 22. maí 1960.
3. Guðni Einarsson sjómaður á Grund, f. 27. júlí 1883, d. 20. febrúar 1924.

Þorleifur var með foreldrum sínum 1880, var tökubarn í Hallgeirsey hjá Guðrúnu Bergsdóttur húsfreyju og Jóni Brandssyni 1890, var vinnuhjú á Bergþórshvoli 1901.
Þau Steinunn giftu sig 1904 og bjuggu á Kirkjulandi í A-Landeyjum 1904-1911 og á Ljótarstöðum þar 1911-1919, en fluttust þá til Eyja og bjuggu á Túnsbergi.
Þorleifur stundaði verkamannavinnu í Eyjum. Hann eignaðist barn með Jóhönnu Júníu 1932.
Steinunn lést 1944 og Þorleifur 1960.

I. Kona Þorleifs, (5. júlí 1904), var Steinunn Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 19. ágúst 1867 á Brekkum í Hvolhreppi, d. 12. maí 1944 í Eyjum.
Þau Þorleifur voru barnlaus.

II. Barnsmóðir Þorleifs var Jóhanna Júnía Guðlaugsdóttir verkakona, f. 28. júní 1905, d. 6. október 1933.
Barn þeirra:
1. Unnur Guðlaug Þorleifsdóttir húsfreyja, verslunarmaður í Kópavogi, f. 16. júlí 1932, d. 19. september 2017.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.