„Þorkell Jónsson (Gjábakka)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
Lína 28: Lína 28:
*Prestþjónustubækur.
*Prestþjónustubækur.
*Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
*Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}
*Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.}}{{Æviskrár Víglundar Þórs}}
[[Flokkur: Bændur]]
[[Flokkur: Bændur]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]
[[Flokkur: Fólk fætt á 19. öld]]

Útgáfa síðunnar 26. ágúst 2015 kl. 11:00

Þorkell Jónsson bóndi á Gjábakka fæddist 1. október 1867 á Ketilsstöðum í Mýrdal.
Faðir hans var Jón bóndi á Ketilsstöðum, síðar á Litlu-Hólum í Mýrdal, f. 1829, drukknaði 20. mars 1871, Þorkelsson bónda á Hryggjum í Mýrdal 1835, f. 25. apríl 1801, d. 24. mars 1862, Runólfssonar húsmanns í Rofabæ 1801, f. 1767, Hávarðssonar og konu Runólfs í Rofabæ, Ragnhildar húsfreyju, f. 1733, Ólafsdóttur.
Móðir Jóns á Ketilsstöðum og kona Þorkels á Hryggjum var Þórunn húsfreyja frá Brekkum í Mýrdal, f. 20. október 1791, d. 8. febrúar 1870, Sveinsdóttir bónda á Brekkum 1801, f. 1758, d. 20. október 1838, Eyjólfssonar og konu Sveins Guðrúnar húsfreyju, f. 1760, Þóðardóttur prests í Kálfholti Sveinssonar og konu sr. Þórðar, Guðfinnu Þorsteinsdóttur í Árbæ í Holtum Kortssonar.

Móðir Þorkels á Gjábakka og kona Jóns á Ketilsstöðum var Ingiríður húsfreyja, f. 2. nóvember 1832, d. 18. janúar 1913 í Norðurgarði, Einarsdóttir bónda á Giljum í Mýrdal 1835, f. 1790, d. 3. júní 1866, Jónssonar bónda á Brekkum í Hvolhreppi, f. 1762, d. 12. febrúar 1842, Þorbjörnssonar, og konu Jóns á Brekkum, Vilborgar húsfreyju, f. 1763, d. 14. febrúar 1843, Jónsdóttur.
Móðir Ingiríðar Einarsdóttur og kona Einars á Giljum var Salgerðar húsfreyja, f. 1789 í Eyjum, d. 10. júní 1862 á Ketilsstöðum, Bjarnadóttir bónda á Skíðbakka í A-Landeyjum, síðast í Hrúðurnesi í Leiru, Gull., f. 20. maí 1766 á Ljótarstöðum í A-Landeyjum, d. 25. júlí 1826 í Hrúðurnesi, Guðmundssonar, og konu Bjarna á Skíðbakka, Guðrúnar húsfreyju, úr Eyjum, f. 1765, d. 10. júní 1836, Björnsdóttur.

Systkini Þorkels í Eyjum voru:
1. Vilborg Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 28. febrúar 1855, mun hafa látist í Utah.
2. Einar Jónsson bóndi og sjómaður í Norðurgarði, f. 12. júní 1859, d. 8. ágúst 1937. Kona hans var Árný Einarsdóttir húsfreyja, f. 22. apríl 1865, d. 9. ágúst 1938.
3. Guðrún Jónsdóttir húsfreyja á Kirkjubæ, f. 27. mars 1862, d. 14. janúar 1939, kona Arngríms Sveinbjörnssonar.
4. Bjarni Jónsson í Norðurgarði, bóndi og málari í Utah, f. 19. apríl 1863.
5. Salgerður Jónsdóttir vinnukona á Kirkjubæ og í Hólshúsi, f. 28. desember 1869 á Litlu-Hólum í Mýrdal.

Þorkell var með foreldrum sínum til ársins 1871, var á sveit á Ketilsstöðum í Mýrdal 1871-1880, á Felli 1880-1882. Hann fór þá að Kirkjulandshjáleigu í Landeyjum.
Hann fluttist úr Landeyjum að Túni 1886 og var þar vinnumaður, vinnumaður í Presthúsum 1887 og 1889, í Landlyst 1890-1893, húsmaður í Sjólyst 1894.
Þorkell var bóndi á Gjábakka 1895. Hann kvæntist Kristínu bústýru sinni 1896. Þau bjuggu enn á Gjábakka 1901, en fluttust til Vesturheims 1902.

Kona Þorkels, (27. nóvember 1896), var Kristín Jónsdóttir, f. 2. júní 1864.
Börn þeirra hér voru:
1. Ingiríður Þorkelsdóttir, f. 6. nóvember 1897, d. 15. nóvember 1897.
2. Auðbjörg Þorkelsdóttir, f. 10. júní 1900, d. 17. júní 1900.
3. Þorbjörn Þorkelsson, f. 11. júlí 1901, d. 19. júlí 1901.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vesturfaraskrá 1870-1914. Júníus H. Kristinsson. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands 1983.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.