Þorkell Einarsson (Þorkelshjalli)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. desember 2017 kl. 18:30 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. desember 2017 kl. 18:30 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þorkell Einarsson tómthúsmaður í Þorkelshjalli fæddist 1809 í Stokkseyrarsókn og lést 6. febrúar 1853.

Þorkell var í Eyvakoti í Stokkseyrarsókn 1818. Hann var vinnumaður í Berjanesi í V-Landeyjum 1835, kom þaðan að Ofanleiti 1836, tómthúsmaður í Götu 1839, en var bóndi í Árnahjalli 1839.
Þorkell var í Þorkelshjalli 1840, Þorlaugargerðishjalli 1845 og aftur í Þorkelshjalli 1850.

I. Barnsmóðir Þorkels var Helga Þorsteinsdóttir vinnukona.
Barn þeirra var
1. Jón Þorkelsson vinnumaður, sjómaður, f. 1833, fórst með þilskipinu Helgu 1867.

II. Kona hans, (4. október 1839), var Þuríður Jónsdóttir húsfreyja frá Vilborgarstöðum, f. 21. maí 1815 , d. 24. júlí 1850.
Börn þeirra hér:
2. Guðmundur Þorkelsson, f. 15. janúar 1837, d. 22. janúar 1837 úr „Barnaveiki“.
3. Helga Þorkelsdóttir, f. 6. september 1838, vinnukona í Stóra-Gerði við andlát 22. júlí 1857.
4. Jóhann Þorkelsson, f. 22. október 1839, d. 29. október 1839 úr ginklofa.
5. Jón Þorkelsson, f. 30. maí 1841, d. 31. maí 1841 úr ginklofa.
6. Sigurður Þorkelsson, f. 12. ágúst 1842, d. 17. ágúst 1842 „af ginklofa“.
7. Böðvar Högni Þorkelsson, f. 12. ágúst 1842, d. 16. ágúst 1842 „af ginklofa“.
8. Guðrún Þorkelsdóttir húsfreyja í Fagurlyst, f. 10. janúar 1844, d. 14. október 1919.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.