Þorgils Bjarnason (Fagurhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. desember 2017 kl. 15:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. desember 2017 kl. 15:53 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Þorgils Bjarnason (Fagurhól)“ ([Breyta=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn) [Færa=Leyfa aðeins stjórnendur] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorgils Bjarnason frá Indriðakoti u. Eyjafjöllum, sjómaður, verkamaður í Fagurhól fæddist 9. september 1905 í Ásólfsskála og lést 21. júní 1994.
Foreldrar hans voru Bjarni Bjarnason bóndi í Indriðakoti, f. 23. júní 1862, d. 13. júlí 1947, og kona hans Ólöf Bergsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1862, d. 22. febrúar 1943.

Börn Bjarna og Ólafar í Eyjum:
1. Guðrún Bjarnadóttir húsfreyja á Hvanneyri, f. 20. apríl 1902, d. 16. desember 1987.
2. Ásólfur Bjarnason sjómaður, verkamaður, f. 17. apríl 1904, d. 24. maí 1988.
3. Þorgils Bjarnason sjómaður, verkamaður, f. 9. september 1905, d. 21. júní 1994.

Þorgils var með foreldrum sínum í æsku, með þeim í Indriðakoti 1910 og enn 1930.
Hann var sjómaður á Hvanneyri, Vestmannabraut 60 hjá Guðrúnu Bjarnadóttur systur sinni og Jóni Guðjónssyni 1940, var verkamaður með Guðrúnu Jónsdóttur í Úthlíð 1945 og enn 1949.
Þau Guðrún bjuggu í Fagurhól 1958 og síðar.
Guðrún lést 1979. Þorgils dvaldi að síðustu í Hraunbúðum. Hann lést 1994.
Þau Guðrún voru barnlaus.

I. Kona Þorgils var Guðrún Jónsdóttir verkakona, húsfreyja frá Úthlíð, f. 11. ágúst 1905, d. 12. júlí 1979.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.