Þorbjörg Guðmundsdóttir (Boðaslóð)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 7. apríl 2019 kl. 19:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 7. apríl 2019 kl. 19:12 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þorbjörg Guðmundsdóttir''' húsfreyja á Boðaslóð 3 fæddist 29. ágúst 1905 í Kasthúsum í Reykjavík og lést 10. febrúar 1960.<br> Foreldrar hennar...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 3 fæddist 29. ágúst 1905 í Kasthúsum í Reykjavík og lést 10. febrúar 1960.
Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson ökumaður, múrari, skipasmiður, verkamaður, bóndi, f. 11. apríl 1876, d. 2. október 1958, og fyrri kona hans Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880, d. 13. nóvember 1913.
Stjúpmóðir Þorbjargar var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880, d. 11. maí 1954.

I. Barnsmóðir Guðmundar var Vilborg Kristjánsdóttir, þá í Ólafsvík, en sama ár vinnukona á Akri í Staðarsveit á Snæfellsnesi, en síðar á Mið-Hvammi í Dýrafirði, f. 11. júlí 1868, d. 22. febrúar 1941. Foreldrar hennar voru Kristján Steindórsson bóndi í Eyrarbúð í Laugarbrekkusókn á Snæf., f. 1815, d. 25. janúar 1892, og Vilborg Bjarnadóttir vinnukona, f. 1829, d. 28. mars 1883.
Barn þeirra:
1. Kristjana Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Þingeyri við Dýrafjörð, f. 25. júní 1901, d. 14. júlí 1978. Menn hennar voru Óskar Gunnar Jóhannsson og Bjarni Guðbjartur Jóhannsson.

II. Fyrri kona Guðmundar var Kristjana Rósa Sigurðardóttir húsfreyja, f. 29. febrúar 1880 í Hvammi í Sandasókn í Dýrafirði, d. 13. nóvember 1913. Foreldrar hennar voru Sigurður Greipsson, þá kvæntur vinnumaður í Lægsta-Hvammi í Sandasókn í Dýrafirði, f. 14. nóvember 1841, d. 21. júlí 1890, og kona hans Kristjana Jónsdóttir vinnukona þar, f. 20. desember 1849, d. 24. júní 1943.
Börn þeirra:
2. Sigurður Guðmundsson, f. 27. maí 1904 á Þingeyri í Sandasókn, Ís., drukknaði 17. mars 1928.
3. Þorbjörg Guðmundsdóttir húsfreyja á Boðaslóð 3, f. 29. ágúst 1905 í Kasthúsum í Reykjavík, d. 10. febrúar 1960.
4. Guðni Tómas Guðmundsson sjómaður, vélstjóri, f. 20. september 1906 í Reykjavík, d. 2. apríl 1995.
5. Ingólfur Guðmundsson úrsmiður í Eyjum, f. 27. júlí 1909 í Reykjavík, d. 28. febrúar 1968.

III. Barnsmóðir Guðmundar var Ólína Sigríður Ólafsdóttir í Reykjavík, f. 11. maí 1876, d. 22. júlí 1928. Foreldrar hennar voru Ólafur Jón Sigurðsson prentsmiður, lausamaður, húsmaður í Borgarfirði, f. 4. desember 1844, d. 1. ágúst 1879 og kona hans Helga Magnúsdóttir húsfreyja, f. 5. janúar 1850, d. 9. október 1911.
Barn þeirra:
6. Margrét Guðlaug Guðmundsdóttir húsfreyja á Siglufirði, f. 11. desember 1917, d. 2. september 1992. Maður hennar var Jósafat Sigurðsson.

IV. Síðari kona Guðmundar, (1920), var Guðríður Þórunn Ásgrímsdóttir húsfreyja, f. 19. september 1880 á Kröggólfsstöðum í Ölfusi, d. 11. maí 1954.
Börn þeirra:
7. Ásþór Guðmundsson rafsuðumaður, síðar á Vatnsleysuströnd, f. 20. mars 1918 í Reykjavík, d. 17. nóvember 1985.
8. Kristján Rósberg Guðmundsson pípulagningamaður, f. 17. september 1919, síðar á Vatnsleysuströnd, d. 24. júlí 1975.
9. Matthías Gunnlaugur Guðmundsson húsasmiður, síðar í Keflavík, f. 19. nóvember 1920, d. 25. október 1997.

Þorbjörg var með foreldrum sínum í frumbernsku, en móðir hennar dó, er Þorbjörg var á níunda árinu.
Hún var þjónustustúlka í Hafnarstræti 8 í Reykjavík 1920, fluttist til Eyja, eignaðist Rósu með Snorra í Drangey í september 1927.
Hún fluttist að Brekkum í Mýrdal 1927 með barnið, var vinnukona þar til 1928, en bústýra þar hjá Snorra 1928-1929, er hann lést, en hún stóð ein fyrir búi þar 1930.
Hún fluttist til Eyja 1930 með barnið, var leigjandi á Borgarhól, Kirkjuvegi 11 á því ári.

Þau Ólafur giftu sig 1940. Þau bjuggu í Langa-Hvammi, Kirkjuvegi 41 1933 og 1935, á Kalmanstjörn, Vestmannabraut 3 1938, á Skjaldbreið, Urðavegi 36 við giftingu 1940. Þau voru komin á Boðaslóð 3 1943.
Þorbjörg lést 1960 og Ólafur 1970.

I. Sambýlismaður Þorbjargar var Snorri Guðmundsson bóndi á Brekkum í Mýrdal, f. 21. ágúst 1902 á Ketilsstöðum þar, d. 11. október 1929 á Brekkum.Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson bóndi á Brekkum, f. 7. september 1867 á Brekkum, d. 10. mars 1964, og kona hans Rannveig Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 2. desember 1871 á Ketilsstöðum í Mýrdal, d. 30. júlí 1956 á Brekkum.
Barn þeirra var
1. Rósa Guðmunda Snorradóttir húsfreyja, f. 3. september 1927, d. 24. júlí 2015. Maður hennar var Hilmar Rósmundsson]].

II. Maður Þorbjargar, (26. október 1940), var Ólafur Guðmundsson Vestmann sjómaður, f. 25. desember 1906 á Strönd, d. 15. apríl 1970.
Börn þeirra:
1. Theodór Snorri Ólafsson, Bessahrauni 6, sjómaður, vélstjóri, f. 14. maí 1933 í Langa-Hvammi. Kona hans er Margrét Eiríka Sigurbjörnsdóttir.
2. Sigurveig Þórey Ólafsdóttir, f. 30. mars 1935 í Langa-Hvammi, d. 17. júlí 1935.
3. Snorri Sigurvin Ólafsson sjómaður, síðar í Hveragerði, f. 10. ágúst 1938. Fyrri kona hans var Svala Sigríður Auðbjörnsdóttir, d. 5. júlí 1991. Síðari kona er Elínborg Einarsdóttir.
4. Ingi Steinn Ólafsson, Hólagötu 24, f. 22. apríl 1942 á Skjaldbreið. Kona hans Guðný Stefanía Karlsdóttir.
5. Ellen Margrét Ólafsdóttir húsfreyja, f. 15. desember 1943 á Boðaslóð 3. Maður hennar er Guðmundur Karl Guðfinnsson.
6. Þór Guðlaugur Ólafsson sjómaður, f. 29. október 1947 á Boðaslóð 3. Kona hans er Margrét Sigurbergsdóttir.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.