Þjóðhátíðarvísa

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 13:40 eftir Margret (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júlí 2006 kl. 13:40 eftir Margret (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit
Þjóðhátíðarlag
1945 1948 1949
Þegar kvöldið kátt
Kyssir dag og nátt,
mörgum yljar minning heit.
Út við ystu sker
aldan leikur sér
­kveður sólin klettareit.
Þegar rökkvar, dátt er hér í Dalnum,
dansinn stiginn, óma hlátrasköll.
Söngvar hljóma frjálst í fjallasalnum.
Fléttast armar.
Bjartir bjarmar
birtu slá um tind og völl.
Hjörtun ung og ör
öll á sigurför.
Hefja vinir heillaskál
meðan stjarna stök
stikar himinvök.
­Líður nótt við leyndarmál.


Lag: Oddgeir Kristjánsson
Texti: ?