Þingvellir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. júlí 2005 kl. 09:16 eftir Smari (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. júlí 2005 kl. 09:16 eftir Smari (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Húsið Þingvellir.

Húsið Þingvellir var byggt af Lyder Højdal á árunum 1905 til 1907. Það stóð í upphafi við Njarðarstíg 1, en var síðar fært neðst í Heimagötu og stóð það þá á móti Útvegsbankahúsinu, þannig að það lá norður að Sveinsstaðastíg.

Húsið var nefnt Vísir þegar þar var samnefnd verslun, en þá stóð húsið á Njarðarstíg og var eingöngu ein hæð. Seinna rak Gísli J. Johnsen Pósthús Vestmannaeyja í þessu húsi , þegar hann var póstmeistari í Eyjum. Fyrsta kaupfélagið í Vestmannaeyjum, kaupfélagið Herjólfur, var með aðsetur að Þingvöllum.

Einar Sigurðsson keypti Þingvelli árið 1940 og flutti hann húsið að Heimagötu. Þá lét hann steypa hæð undir Þingvelli, og rak hann skrifstofur Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja þaðan þangað til árið 1966, þegar að þær voru fluttar í Godthåb. Á neðstu hæðinni voru á meðan verslanir af ýmsum toga.

Ljósmyndavöruverslun Heiðars Marteinssonar, Eyjafótó, var þar síðast fyrir gos.

Húsið brann til grunna í Heimaeyjargosinu, og fór svo að lokum undir hraun.


Heimildir

  • Húsanafnaskrá fyrir Vestmannaeyjar
  • Vestmannaeyjar, Byggð og Eldgos.
  • Blik 1978.