Sjómannadagsblað Vestmannaeyja 2009/Þúsundaþjalasmiðurinn Tryggvi Sigurðsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 23. febrúar 2018 kl. 13:25 eftir Valli (spjall | framlög) Útgáfa frá 23. febrúar 2018 kl. 13:25 eftir Valli (spjall | framlög) (Ný síða: ÞORBJÖRN VÍGLUNDSSON SKRIFAR Þúsund- þjalasmiðurinn Tryqqvi Sigurðsson T ryggvi Sigurösson, vélstjóri úr Vestmannaeyj- um, er flestum í Eyjum vel kunnur. Tryggvi s...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

ÞORBJÖRN VÍGLUNDSSON SKRIFAR Þúsund- þjalasmiðurinn Tryqqvi Sigurðsson



T ryggvi Sigurösson, vélstjóri úr Vestmannaeyj- um, er flestum í Eyjum vel kunnur. Tryggvi starfar sem vélstjóri á Frá VE 78 og hefur gert lengi. Ekki vil ég draga úr vélstjórnarhæfileikum Tryggva en hæfileikar hans í módelsmíðum eru ótvíræðir. Tryggvi hefur sinnt þessu áhugamáli sínu frá árinu 1988 en þá smíöaöi hann sitt fyrsta líkan. Það var48 tonna vertíðarbátur, Frigg VE 316, smíðaður í Dan- mörku. Þeir bátar sem voru smíðaðir í Eyjum eftir 1925 hafa alltaf verið mikið í uppáhaldi Tryggva og hefur hann smíðað módel af þeim nokkrum. Hon- um finnst þetta mjög merkilegur hluti í sögu Vest- mannaeyja enda voru margir bátar smíðaðir í Eyjum og nokkrir þeirra komust í sögubækurnar. Frá árinu 1988 liggja eftir Tryggva 40 líkön svo Tryggvi vió líkan af Dala-Rafni sem er t smíðum

að ekki situr hann auðum höndum í fríum sínum frá sjónum. Mikill tími fer í þessar smíðar og talar hann um 1500 klukkustundir fyrir hvert módel, sum klárar hann á skemmri tíma en er lengur með önnur. Hann nefnir í því dæmi Beiti NK 123 frá Neskaups- stað, en í hann fóru rúmir 2000 tímar. Beitir NK var upphaflega smíðaður sem síðutogari í Bremerhaven árið 1958 og hét í upphafi Þormóður Goði RE 209. Þegar Tryggvi gerði af honum líkan haföi honum verið breytt mikið frá því hann kom til landsins og var orðinn sérútbúinn til nóta- og flottrollsveiða. Hann er farinn yfir móðuna miklu því hann var seld- ur í brotajárn árið 2007 svo að hann átti aðeins eitt ár eftir í að veröa fimmtugur. Tryggva þótti erfitt að smíða líkan af honum því þegar skipið var uppi á vinnuborðinu hjá honum var það enn gert út. Það sem Tryggvi hafði í höndunum voru teikningar af skipinu og ljósmyndir en líkanið varð að vera eins og fyrirmyndin, því þeir sem störfuðu á skipinu þekktu hvert smáatriði um borð og hefðu tekið eftir minnstu skekkju. Líkanið af Beiti NK heppnaðist vel og fékk Tryggvi mikið lof fyrir smíðina og þykir ákaflega vænt um það líkan. Mun auðveldara reynd- ist að smíða líkan af Sigurði VE þó að svipaður tími hafi farið í hann og Beiti því ef hann vantaði upplýs- ingar um einhver smáatriði þá kíkti hann bara út um gluggann á verkstæðinu sem hann er með í krónni hjá Óskari á Frá niðri í Básum. En Tryggvi hefur ekki eingöngu gert líkön affiski- bátum þó svo að þeir séu í miklum meirihluta því hann gerði líkan af síldarfiutningarskipinu Hafern-  9 inum. A síðasta ári kláraði Tryggvi líkan af Þorsteini GK 15 en það er eikarbátur, smíðaður í Svíþjóö árið l946ogerhann enn geröur út. Það fór mikil vinna í það líkan sem hann smíðaði fyrir eigendur Þorsteins GK. Svo skemmtilega vill til að útgerð Þorsteins tengist Eyjum, en að útgerðinni standa Una Elías- •• dóttir, ættuð frá Varmadal og Onundur Kristjánsson, eiginmaður hennar. Báturinn er gerður út frá Rauf- arhöfn. 9 I dag er Tryggvi með þrjú líkön í höndunum en þaueruaf Dala-Rafni VE 508, áður Sindri VE. Von- in II Ve 113 sem smíðuð var í dráttarbrautinni í Eyj- um á íjórða áratugnum. Og svo er það síðutogarinn Surprise GK 4 en þaö er annað líkanið sem Tryggvi smíðar af síðutogara. Sá fyrsti var Austfirðingur SU 3. Surprise var upphaflega smíðaður hjá skipa- smíðastöð John Lewis & Sons í Aberdeen í Skot- landi en í þeirri stöð var Bjarnarey VE 11 smíðuð fyrir Vestmannaeyinga. Eigandi Surprise var stór- greifinn Einar Þorgilsson í Hafnarfirði, afi lyrrver- andi fjármálaráðherra landsins Árna Mathicsen. Hann var umsvifamikill í útgerð í Hafnarfirði og gerði út nokkur skip og báta, hann rak auk þess Ein- arsbúð þar í bæ. Hann tók töluna 4 í svipað ástfóst- urogákveðinn útgerðarmaður hér í Eyjum en allir hans bátar báru 4 í skipsnúmeri sínu. Það mætti halda að Þóröur Rafn Sigurðsson, út- gerðarmaöur Dala-Rafns VE 508, sé áskrifandi að líkönum hjá Tryggva, því hann er með tvö í smíðum fyrir Rabba. Annað er af togaranum sem Rabbi gerði út um árabil en hann hét áður Sindri VE 60. Einnig hefur Tryggvi nýhafið smíði á líkani af Dala-Rafni, sem hétáður Emrna VE, en engin mynd er enn kom- in á það líkan. Tryggvi er kominn vel á leiö með togarann fyrir Rabba og er skrokkurinn tilbúinn, ásamt yfirbyggingunni. Tryggvi hefur áður smíðað þrjú líkön fyrir útgerð Dala-Rafns svo að Rabbi á orðið líkön af öllum sínum skipum og bátum, fyrir

utan þann nýjasta, og hefurTryggvi smíðað þau öll. Tryggvi leggur mikinn metnað í smíðarnar á lík- önum sínum. Hann byrjar á því að fara yfir svokall- aðar línuteikningar en á þeim sjást öll bönd skrokks- ins. Þegar hann hefur smíðað þau öll eru þau límd við kjölinn og bolurinn settur utan um. Síðan setur hann dekkið á, Iíkanið fer þá að taka á sig skips- mynd. Hljómar kannski auðvelt og fljótlegt en eins og komið hefur fram þá fer í þetta mikill tími og fer hann með að meðaltali um 1500 klukkustundir í hvert líkan, eða um 37 vinnuvikur (ef miðað er við 40 klst. vinnuviku). Hann hefur klárað 40 líkön svo að um 60 þúsund klukkustundir hafa farið í þetta áhugamál Tryggva frá árinu 1988. Þetta eru 2500 sólarhringar, það fara því 62 sólarhringar í hvert lík- an. Tvö líkön á ári er ekki slæmur árangur því ef Tryggvi ætlaði sér að smíða mikið fleiri þá þyrfti hann aukalega tíu klukkustundir í sólarhringinn því hann sinnir einnig af ástríðu hinu áhugamálinu sínu en það eru mótorhjól. Hann á sjö mótorhjól og hefur gert þau flest upp sjálfur, því hlýtur maður að spyrja sig, er Tryggvi nokkurn tímann á sjó eða hefur hann tíma til að sinna konunni?