Þórunn Sigjónsdóttir

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. nóvember 2015 kl. 15:37 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. nóvember 2015 kl. 15:37 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Þórunn Aðalheiður Sigjónsdóttir húsfreyja fæddist 26. febrúar 1913 á Skaftafelli og lést 25. júlí 1998.
Foreldrar hennar voru Sigjón Halldórsson vélstjóri og trésmiður frá Bakka á Mýrum í A-Skaft., f. 31. júlí 1888, d. 19. apríl 1931 og kona hans Sigrún Runólfsdóttir frá Króki í Flóa, húsfreyja, f. 26. maí 1889, d. 11. ágúst 1991.

Börn Sigjóns og Sigrúnar:
1. Þórunn Aðalheiður Sigjónsdóttir húsfreyja, f. 27. febrúar 1913 á Skaftafelli, d. 25. júlí 1998. Maður hennar var Svavar Þórðarson.
2. Bragi Sigjónsson vélstjóri, f. 27. júní 1914 á Skaftafelli, d. 25. september 1985. Kona hans var Rósa (Rósamunda) Einarsdóttir frá Seyðisfirði.
3. Sigurjón Sigjónsson, f. 16. ágúst 1915 á Eyjarhólum, d. 31. maí 1916.
4. Jón Garðar Sigjónsson vélstjóri, útgerðarmaður, hafnsögumaður á Höfn í Hornafirði, f. 18. október 1916 á Lögbergi, d. 15. febrúar 2006. Kona hans var Guðfinna Bjarnadóttir.
5. Tryggvi Sigjónsson útgerðarmaður á Höfn í Hornafirði, f. 10. apríl 1918 á Lögbergi, d. 26. janúar 2000. Kona hans var Herdís Ragna Clausen.
6. Þórhallur Sigjónsson vörubifreiðastjóri í Reykjavík, f. 11. maí 1919 á Lögbergi, d. 17. júlí 1993. Kona hans var Ólöf Hannesdóttir.
7. Friðrik Sigjónsson, f. 22. október 1920 í Héðinshöfða, drukknaði 23. desember 1944.
8. Halldór Sigjónsson, f. 31. desember 1922, d. 25. júní 1930.
9. Guðríður Sigjónsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 26. febrúar 1924 í Héðinshöfða, d. 31. ágúst 1987. Maður hennar var Jón Karlsson.
10. Kristbjörg Sigjónsdóttir hjúkrunarfræðingur, húsfreyja í Reykjavík, f. 26. maí 1925 í Héðinshöfða. Maður hennar var Gísli Tómasson.
11. Gústaf Sigjónsson vélstjóri, skipstjóri, bifreiðstjóri, nú á Akureyri, f. 22. janúar 1927 í Héðinshöfða. Kona hans er Guðbjörg Halldóra Einarsdóttir.
12. Guðmundur Sigjónsson vélvirki í Eyjum, f. 22. mars 1928 í Héðinshöfða, d. 7. nóvember 2009. Kona hans var Jónína Þuríður Guðnadóttir.

Þórunn var með foreldrum sínum í æsku, var með þeim í Héðinshöfða 1930.
Hún var húsfreyja á Litlu-Grund 1940 með Svavari og óskírðri stúlku (Eddu Sigrúnu), var með fjölskylduna í London 1945, á Heiðarvegi 13 1949.

Maður Þórunnar, (28. september 1940), var Svavar Þórðarson afgreiðslumaður frá Litlu-Grund, f. 11. febrúar 1911, d. 10. janúar 1978.
Börn þeirra:
1. Edda Sigrún Svavarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 1. janúar 1936, d. 29. júní 2011. Maður hennar var Garðar Gíslason.
2. Dóra Guðríður Svavarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 12. maí 1942, d. 3. febrúar 2004. Maður hennar var Halldór Pálsson.
3. Friðrikka Svavarsdóttir húsfreyja, f. 13. maí 1945. Maður hennar er Hrafn Oddsson.
4. Áslaug Svavarsdóttir húsfreyja í Reykjavík, f. 9. júní 1948. Maður hennar er Ingvar Vigfússon.
5. Svava Svavarsdóttir húsfreyja í Kópavogi, f. 29. febrúar 1956. Maður hennar er Egill Ásgrímsson.
6. Sif Svavarsdóttir húsfreyja í Eyjum, f. 7. júlí 1957. Maður hennar er Stefán S. Guðjónsson.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.