Þórdís Jónsdóttir (Einarshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. apríl 2015 kl. 18:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. apríl 2015 kl. 18:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Verndaði „Þórdís Jónsdóttir (Einarshúsi)“ (‎[edit=sysop] (ótiltekinn)))
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Jónsdóttir vinnukona fæddist 1796 í Mýrdal og lést 21. september 1870 á Oddsstöðum.
Foreldrar hennar voru Jón Pétursson bóndi í Presthúsum í Mýrdal, f. 1764 á Reyni þar, d. 13. janúar 1834 á Norður-Fossi þar, og kona hans Ástríður Þorsteinsdóttir húsfreyja, f. 1768 í Hvammi í Mýrdal, d. 14. maí 1832 á Norður-Fossi.

Þórdís var með foreldrum sínum í æsku, vinnukona í Reynisholti í Mýrdal 1816, í Reynishjáleigu þar 1834 og líklega til 1837.
Hún fluttist úr Mýrdal að Vilborgarstöðum 1837, var vinnukona þar til 1839, í Brandshúsi 1840, í Nýjabæ 1841, bústýra þar 1842, vinnukona á Gjábakka 1841-1848, í Háagarði 1848-1857, í Elínarhús 1858, í Einarshúsi 1859 og enn 1860.
Þórdís lést 1870, þá ómagi á Oddsstöðum.
Hún var ógift og barnlaus í Eyjum.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Prestþjónustubækur
  • Vestur-Skaftfellingar 1703-1966. Björn Magnússon. Leiftur 1970-1973.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.