Þórdís Guðjónsdóttir (Svanhól)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit

Þórdís Guðjónsdóttir frá Kirkjubæ, húsfreyja í Svanhól fæddist 26. nóvember 1908 og lést 2. júní 1995
Foreldrar hennar voru Guðjón Eyjólfsson bóndi á Kirkjubæ, f. 9. mars 1872, d. 14. júlí 1935, og kona hans Halla Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 29. ágúst 1875, d. 6. september 1939.

Börn Höllu og Guðjóns á Kirkjubæ voru:
1. Guðmundur sjómaður, f. 28. apríl 1900, drukknaði 16. desember 1924.
2. Jóhann Eyjólfur sjómaður, f. 20. desember 1901, drukknaði 20. ágúst 1924.
3. Gunnar Guðjónsson, f. 12. október 1903, d. 21. nóvember 1903.
4. Kristinn Guðjónsson, f. 7. október 1904, d. 18. október 1904.
5. Gunnar skipstjóri, f. 6. desember 1905, drukknaði 6. febrúar 1938.
6. Sigrún vinnukona, f. 9. júlí 1907, d. 20. júní 1967.
7. Þórdís húsfreyja, f. 26. nóvember 1908, d. 2. júní 1995, kona Sigurðar Bjarnasonar.
8. Jórunn Ingunn húsfreyja, f. 14. febrúar 1910, d. 28. nóvember 1995, kona Guðmundar Guðjónssonar.
9. Þórarinn bifreiðastjóri, f. 20. janúar 1912, d. 7. maí 1992, ókvæntur.
10. Gísli vélstjóri, f. 20. janúar 1914, drukknaði 6. febrúar 1938.
11. Lilja, f. 16. október 1915, d. 10. mars 1921.
12. Emma Kristín Reyndal húsfreyja, verslunarkona á Akranesi, f. 25. janúar 1917, d. 25. október 2001. Hún varð kjörbarn Jóhanns Péturs Reyndals bakarameistara í Tungu og konu hans Halldóru Guðmundu Kristjánsdóttur Reyndal húsfreyju.

Þórdís var með foreldrum sínum í æsku og til giftingar.
Þau Sigurður Gísli giftu sig 1930, eignuðust fimm börn. Þau bjuggu í fyrstu í Hlaðbæ, á Heiði 1932, byggðu húsið Svanhól við Austurveg 28, bjuggu þar 1933 og síðan.
Sigurður Gísli lést 1970.
Þórdís flutti til Reykjavíkur í Gosinu 1973, en sneri síðar til Eyja og dvaldi í Hraunbúðum. Hún lést 1995.

Maður Þórdísar, (7. júní 1930), var Sigurðar Gísli Bjarnason frá Hlaðbæ, skipstjóri, útgerðarmaður, f. 14. nóvember 1905, d. 5. október 1970.
Börn þeirra:
1. Jóhann Guðmundur Sigurðsson skipstjóri, útgerðarmaður, f. 30. júní 1930 í Hlaðbæ, d. 17. október 2003. Kona hans Guðný Guðmundsdóttir, látin.
2. Bjarni Hilmir Sigurðsson vélstjóri á Selfossi, f. 3. september 1932 á Heiði, d. 14. september 2023. Kona hans Friðrikka Sigurðardóttir.
3. Halla Guðrún Sigurðardóttir, húsfreyja í Reykjavík, f. 18. júlí 1936. Maður hennar Jón Snæbjörnsson.
4. Sigurður Sigurðsson járnsmiður, f. 12. ágúst 1945. Kona hans Margrét Sigurðardóttir.
5. Gunnar Þór Sigurðsson vélstjóri, rafvirki í Hafnarfirði, f. 7. júlí 1948. Kona hans Bjartey Sigurðardóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.