Þórarinn Grímsson (Sjávarborg)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 6. janúar 2021 kl. 17:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 6. janúar 2021 kl. 17:32 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þórarinn Grímsson''' verkamaður, bifreiðastjóri fæddist 31. desember 1924 í Sjávarborg og lést 28. maí 1997.<br> Foreldrar hans voru Grímur Grímsson (Reynifelli)...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þórarinn Grímsson verkamaður, bifreiðastjóri fæddist 31. desember 1924 í Sjávarborg og lést 28. maí 1997.
Foreldrar hans voru Grímur Theodór Grímsson frá Hegranesi í Skagafirði, verkamaður, síðar bústjóri, f. 13. mars 1890 á Þorgeirsbrekku á Höfðaströnd, Skagaf., d. 3. apríl 1964, og kona hans Jónína Guðrún Ísleifsdóttir frá Nýjahúsi, f. þar 19. febrúar 1902, d. 18. júní 1974.

Börn Jónínu og Gríms:
1. Steindór Þórarinn Grímsson bifreiðastjóri í Reykjavík, f. 31. desember 1924 í Sjávarborg, d. 28. maí 1997. Fyrrum kona hans Erla Guðjónsdóttir. Fyrrum kona hans Ása Guðrún Jónsdóttir.
2. Ísleif Þórey Grímsdóttir Doyle húsfreyja í Bandaríkjunum, f. 26. apríl 1926 í Varmadal, d. 31. maí 2011. Maður hennar Gerry Doyle.
Börn Gríms:
3. Hilmar Hafsteinn Grímsson innheimtugjaldkeri hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur, f. 5. apríl 1913 í Reykjavík, d. 28. ágúst 2001. Kona hans Jóhanna Sigurjónsdóttir.
4. Theódóra Magnea Stella Grímsdóttir húsfreyja, verslunarmaður, f. 31. janúar 1918 í Reykjavík, d. 24. apríl 2000. Maður hennar Hjálmtýr Guðvarðsson.
5. Ólafur Theodór Grímsson, f. 20. desember 1923, d. 14. maí 2010.

Þórarinn var með foreldrum sínum í æsku, í Sjávarborg, í Varmadal og á Reynivöllum og fluttist með þeim til Reykjavíkur 1936.
Hann flutti til Eyja vann hjá Hraðfrystistöðinni. Eftir flutning til Reykjavíkur vann hann hjá Sölufélagi garðyrkjumanna og var bifreiðastjóri.

I. Fyrri kona hans Guðný Erla Guðjónsdóttir húsfreyja, f. 24. apríl 1932, d. 24. apríl 2016. Þau skildu.
Börn þeirra:
1. Theodóra Jóna Þórarinsdóttir húsfreyja, starfsmaður á leikskóla, f. 1. september 1953. Maður hennar Birgir Bernódusson, látinn.
2. Guðjón Þór Þórarinsson vélvirki, f. 20. júlí 1960, ókvæntur. Barnsmóðir hans Ragnheiður Helen Ólafsdóttir.

II. Síðari kona Þórarins Ása Guðrún Jónsdóttir. Þau skildu.

III. Sambúðarkona hans Margrét Magnúsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.