Þóra Stígsdóttir (Brekkuhúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 15. september 2020 kl. 14:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 15. september 2020 kl. 14:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Stígsdóttir húsfreyja í Brekkuhúsi fæddist 29. janúar 1824 og lést 8. október 1892.
Foreldrar hennar voru Stígur Jónsson bóndi í Brekkuhúsi, f. 2. apríl 1793, d. 8. mars 1838, og kona hans Oddrún Sigurðardóttir húsfreyja, f. 1781, d. 1. september 1846.
Þóra var með fjölskyldu sinni í Ömpuhjalli og fluttist með þeim að Brekkuhúsi 1827.
Hún var vinnukona í Godthaab 1840, giftist Árna 1841.
Þau misstu Þorkel son sinn mánaðargamlan 1842 úr ginklofa.
1844 misstu þau Stíg úr ginklofa.
Þóra var gift húsfreyja í Brekkuhúsi 1845 og var þar með Árna, móður sinni Oddrúnu og systur sinni Guðrúnu.
Þau misstu Valgerði 1846 úr ginklofa.
1850 var hún þar með Árna og barni þeirra Auðuni Árnasyni þriggja ára. Vinnukona var Sigríður Guðmundsdóttir systir Árna, og hún var með dóttur sína Valgerði Níelsdóttur hjá sér.
1855 var Þóra húsfreyja í Brekkuhúsi með Árna og börnunum Auðuni 7 ára og Guðlaugi 3 ára. Guðrún systir hennar var hjá þeim.
Auðun hrapaði til bana úr Hamrinum 1859.
1860 voru þau Árni í Brekkuhúsi með Guðlaug son sinn og Guðrúnu vinnukonu, systur Þóru. Þar var einnig María Magnúsdóttir 7 ára tökubarn um stund, en hún var systurdóttir Árna bónda, dóttir Guðrúnar og Magnúsar Eyjólfssonar silfursmiðs.
1870 voru þau enn búandi í Brekkuhúsi með Guðlaug 17 ára. Vinnufólk var Guðlaug Magnúsdóttir 17 ára, en hún var líka systurdóttir Árna. Vinnumaður var Þóroddur Sighvatsson 40 ára kvæntur fyrrum bóndi á Núpi u. Eyjafjöllum. Niðursetningur var Ingimundur Árnason 11 ára.
Guðlaug tók út í Brimurð 1877.
1880 voru hjónin próventufólk í Brekkuhúsi hjá Sigurði Ögmundssyni bónda og konu hans Sigríði Magnúsdóttur húsfreyju.
Árni lést 1889. Hann var á sveit í Brekkuhúsi, hafði veikst á geði, hvarf að heiman um nótt og fannst látinn á floti við Hamarinn.
Þóra var á sveit í Dölum 1890 og lést þar 1892.

Maður Þóru, (28. október 1841), var Árni Guðmundsson bóndi í Brekkuhúsi, f. 18. desember 1817, d. 20. júlí 1889.
Börn þeirra hér:
1. Þorkell Árnason, f. 4. nóvember 1842, d. 6. desember 1842 úr ginklofa.
2. Stígur Árnason, f. 11. júní 1844, d. 18. júní 1844 úr ginklofa.
3. Valgerður Árnadóttir, f. 1. júní 1846, d. 8. júní 1846 úr ginklofa.
4. Auðun Árnason, f. 3. október 1848, d. 7. september 1859, hrapaði úr Hamrinum.
5. Guðmundur Árnason, f. 20. október 1850, dó nýfæddur.
5. Guðlaugur Árnason, f. 24. nóvember 1852, drukknaði 27. janúar 1877, tók út í brimi, er hann gekk á reka í Brimurð.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Landeyingabók – Austur-Landeyjar. Valgeir Sigurðsson og fleiri. Ritstjóri: Ragnar Böðvarsson. Austur-Landeyjahreppur, Gunnarshólma 1999.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.