Þóra Gísladóttir (Drangey)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 16. febrúar 2017 kl. 14:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 16. febrúar 2017 kl. 14:23 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Ný síða: '''Þóra Gísladóttir''' í Drangey fæddist 18. nóvember 1906 og lést 31. ágúst 1982.<br> Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason bóndi, s...)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

Þóra Gísladóttir í Drangey fæddist 18. nóvember 1906 og lést 31. ágúst 1982.
Foreldrar hennar voru Gísli Gíslason bóndi, síðar verkamaður í Eyjum, f. 27. nóvember 1866 á Kotferju í Sandvíkurhreppi í Flóa, d. 29. desember 1935, og kona hans Guðrún Sigurðardóttir húsfreyja, síðar í Heiðardal, f. 6. október 1868 á Kalastöðum (Kaðalsstöðum), d. 30. desember 1945.

Þóra var með foreldrum sínum í æsku. Hún var komin til Eyja 1926, er hún ól Kristinn í Skálholti.
Hún lauk ljósmæðraprófi í Reykjavík 1930, var ljósmóðir í Raufarhafnarumdæmi 1930-1933, Eyraumdæmi í Patreksfirði sumarið 1934, stundaði ljósmæðra og hjúkrunarstörf á Siglufirði 1935 fram um 1941.
Þóra fluttist til Eyja, var með foreldrum sínum í Drangey 1945, skráð sjúklingur þar 1949.
Við Gos fluttist hún til Stokkseyrar og hélt heimili með systkinum sínum þar, en dvaldi að síðustu á sjúkrahúsinu á Selfossi.
Þóra lést 1982.

Barnsfaðir Þóru var Gísli Wíum verkstjóri, síðar kaupmaður, f. 22. maí 1901, d. 27. júlí 1972.
Barn þeirra var
1. Kristinn G. Wíum verslunarmaður, f. 17. júní 1926 í Skálholti yngra, d. 13. janúar 1994.


Heimildir

  • Samantekt: Víglundur Þór Þorsteinsson.
  • Íslendingabók.is.
  • Ljósmæður á Íslandi 1-2. Ritstjóri Björg Einarsdóttir. Ljósmæðrafélag Íslands 1984.
  • Manntöl.
  • Prestþjónustubækur.


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.