Útgerðarsaga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 9. júní 2005 kl. 14:07 eftir Daniel (spjall | framlög) Útgáfa frá 9. júní 2005 kl. 14:07 eftir Daniel (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Skipafloti Vestmannaeyja samanstendur mestmegnis af fiskiskipum sem eru í útgerð að minnsta kosti hluta ársins. Frá því að byggð hófst á Íslandi hafa Vestmannaeyjar verið mjög mikilvæg verstöð, en það hlutverk margelfdist þegar að vélbátavæðingin hófst. Ýmsir frægir eyjamenn hafa unnið að fiskiðnaði, en þá ber helst að nefna Binna í Gröf, aflakóng.

Vegna þess hve stutt er á miðin frá Vestmannaeyjum hafa eyjarnar skipað ser sess sem stærsta verstöð Íslands. Þegar mest var voru Vestmannaeyjar að skapa um þriðjung af útflutningstekjum þjóðarinnar, en þó voru ekki nema um 5% af þjóðinni búsett í Vestmannaeyjum á þeim tíma. Á seinni árum hefur hinsvegar hallað undan fæti vegna flutnings á fiskikvóta milli byggða.

Vélbátaútgerð hófst í byrjun 20. aldar.