Úraníus Guðmundsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 21. nóvember 2019 kl. 14:59 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 21. nóvember 2019 kl. 14:59 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Úraníus Guðmundsson vélstjóri, f. 28. desember 1914 í Reykjavík, d. 17. júní 1968.
For.: Pálína Samúelsdóttir úr Strandasýslu, f. 10. júní 1871, d. 3. des 1959 á Elliheimili VestmannaeyjaSkálholti, og Guðmundur Semingsson frá Skinnastöðum í Þingeyrarsókn í Húnavatnssýslu, f. 15. október 1854, d. 23. ágúst 1922.

Úraníus bar skírnarnafnið Úranus, en breytti því. Hann varð vélstjóri 1941 og var vélstjóri um árabil á Baldri VE-24 með Haraldi Hannessyni. Í blaðnefnd Sjómannadagsblaðs Vestmannaeyja var hann 1954 og 1955.
Maki: Jórunn Lilja Magnúsdóttir húsfreyja, ljósmóðir, f. 5. desember 1919, d. 14. febrúar 2008, Boðaslóð 6, síðast að Hraunbúðum.
Börn þeirra:
1. Viktor Þór Úraníusson, trésmiður í Eyjum og á Reykjalundi, f. 27. janúar 1942 á Flötum 10.
2. Pálína Úraníusdóttir, starfskona á Sjúkrahúsinu, f. 5. september 1950 á Landspítalanu.
3. Gylfi Þór Úraníusson vélstjóri, f. 10. nóvember 1953, d. 30. september 2012.
4. Jón Trausti Úraníusson, vinnuvélastjóri, f. 9. júní 1952, dó af slysförum í hlíðum Eldfells 28. júní 1993.
5. Skúli Úraníusson, bifreiðastjóri, f. 23. maí 1956 á Brekastíg 8.
6. Oddgeir Magnús Úraníusson, sjómaður, f. 30. október 1958 í Eyjum.



Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.