Óskar Steindórsson (Jóhannshúsi)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.
Óskar Steindórsson.

Óskar Steindórsson frá Jóhannshúsi, (Steindórshúsi) við Vesturveg 4, kvikmyndasýningamaður fæddist þar 28. maí 1920 og lést 14. febrúar 2002.
Foreldrar hans voru Steindór Sæmundsson bifreiðastjóri, afgreiðslumaður í kvikmyndahúsi, f. 26. janúar 1881 í Auðsholtshjáleigu í Ölfusi, d. 9. ágúst 1948, og kona hans Guðbjörg Jónsdóttir, f. 13. október 1883 á Nabba í Flóa, d. 13. september 1980.

Börn Guðbjargar og Steindórs voru:
Börn þeirra:
1. Sófónías Sæmundur Steindórsson, f. 21. október 1905, d. 6. desember 1907.
2. Guðfinna Jóna Steindórsdóttir Wíum húsfreyja, f. 27. febrúar 1909 í Götuhúsum á Stokkseyri, d. 14. maí 1998.
3. Óskar Steindórsson kvikmyndasýningamaður, f. 28. maí 1920 í Jóhannshúsi, d. 14. febrúar 2002.

Óskar var með foreldrum sínum í æsku. Hann gekk í Flensborgarskóla í Hafnarfirði. Hann stundaði verslunarstörf í Eyjum og vann við að sýna kvikmyndir í Samkomuhúsinu.
Þau Margrét Ólafía giftu sig 1945, eignuðust Ólöfu Ernu á því ári og Dóru Björgu 1947. Þau bjuggu á Hásteinsvegi 7, síðar á Fífilgötu 5.
Fjölskyldan flutti til Reykjavíkur 1948 og bjó þar síðan. Hann vann við kvikmyndasýningar til 1993.
Óskar lést 2002 og Margrét Ólafía 2008.

I. Kona Óskars, (24. desember 1944), var Margrét Ólafía Eiríksdóttir húsfreyja, afgreiðslumaður, f. 24. febrúar 1921, d. 21. júní 2008.
Börn þeirra:
1. Ólöf Erna Óskarsdóttir, f. 2. apríl 1945.
2. Dóra Björg Óskarsdóttir húsfreyja, f. 6. maí 1947. Maki hennar Helgi Guðjón Ragnar Maríasson.
3. Hallgrímur Helgi Óskarsson prenttæknir í Reykjavík, Grenigrund 32, Selfossi, f. 17. desember 1949 í Reykjavík. Kona hans Pálína Halldóra Magnúsdóttir.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.