„Óskar Magnússon (Skansinum)“: Munur á milli breytinga

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Ekkert breytingarágrip
Ekkert breytingarágrip
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 20. apríl 2021 kl. 14:31

Óskar Magnússon frá Skansinum, sjómaður fæddist 15 ágúst 1927 á Miðhúsum og lést 7. janúar 1950.
Foreldrar hans voru Magnús Þórðarson kaupmaður, verkamaður f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955, og kona hans Gíslína Jónsdóttir húsfreyja, f. 21. nóvember 1889 í Bakkakoti u. Eyjafjöllum, d. 22. mars 1984.

Börn Magnúsar og Gíslínu:
1. Halldóra Guðleif Magnúsdóttir húsfreyja, f. 18. nóvember 1917 í Langa-Hvammi, d. 28. desember 2004.
2. Drengur, f. 15. janúar 1919 í Langa-Hvammi, lést nokkurra daga gamall.
3. Sigríður Gunnlaugsdóttir Magnúsdóttir húsfreyja, f. 4. maí 1921 í Langa-Hvammi, d. 30. ágúst 2013.
4. Ívar Magnússon verkstjóri, f. 3. október 1923 í Langa-Hvammi, d. 13. nóvember 2005.
5. Guðjón Gísli Magnússon sjómaður, f. 20. október 1924 í Litlakoti, d. 27. febrúar 2000.
6. Óskar Magnússon sjómaður, f. 15 ágúst 1927 á Miðhúsum, d. 7. janúar 1950.
7. Guðrún Lilja Magnúsdóttir ljósmóðir, f. 27. september 1928 á Miðhúsum, d. 11. ágúst 2012.
8. Magnús Magnússon bóndi, verkamaður, f. 10. febrúar 1930 á Miðhúsum, d. 3. janúar 2009.
9. Klara Magnúsdóttir húsfreyja, f. 16. október 1931 á Miðhúsum, d. 6. desember 1987.
10. Þórður Magnússon bifreiðastjóri, verktaki, f. 11. apríl 1933 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 6. mars 2021.
11. Guðmundur Magnússon blikksmiður, f. 19. september 1934 á Skansinum við Strandveg 1c, d. 4. janúar 2014.

Börn Magnúsar og Margrétar Bjarnadóttur sambýliskonu hans:
12. Þórarinn Sigurður Thorlacius sjómaður, f. 27. nóvember 1906 í Langa-Hvammi, drukknaði 29. janúar 1940.
13. Magnús Sigurður Hlíðdal Magnússon sjómaður, f. 11. júlí 1910 í Langa-Hvammi, d. 13. maí 1995.
14. Anna Sigrid Magnúsdóttir húsfreyja, f. 23. febrúar 1913 í Langa-Hvammi, d. 20. apríl 1991.

Börn Magnúsar og Magneu Gísladóttur.
15. Hafsteinn Magnússon kyndari, f. 17. júní 1913, d. 30. desember 2002.
16. Axel Hálfdán Magnússon sjómaður, símsmiður, f. 28. maí 1914 í Langa-Hvammi, d. 8. janúar 2000.
17. Þorbjörn Ólafur Maríus Magnússon sjómaður, f. 19. september 1916 í Langa-Hvammi, d. í apríl 1943.

Börn Þórðar Ívarssonar í Eyjum:
1. Þorkell Þórðarson í Sandprýði, f. 7. desember 1872 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 14.júlí 1945.
2. Magnús Þórðarson Thorlacius kaupmaður, bóndi, verkamaður á Skansinum, f. 24. desember 1876 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. apríl 1955.
3. Gísli Þórðarson verkamaður, f. 5. desember 1877 að Ormskoti í Fljótshlíð, síðast í Görðum, d. 7. nóvember 1943.
4. Guðrún Þórðardóttir verkakona, f. 31. ágúst 1882 í Ormskoti í Fljótshlíð, d. 1. mars 1878.
Barn Þórðar Ívarssonar og fyrri konu hans Sigríðar Nikulásdóttur, f. 8. mars 1838, d. 24. maí 1864 var
5. Ívar Þórðarson á Mið-Sámsstöðum í Fljótshlíð, bóndi, síðar í Eyjum, f. 3. september 1863, d. 10. apríl 1924.

Óskar var með foreldrum sínum ævi sína.
Hann stundaði snemma sjómennsku, bæði á veiðibátum og á flutningaskipi. Hann var í áhöfn Helga VE 333, er hann fórst á Faxaskeri 7. janúar 1950.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.