Ólafur Vigfússon (Gíslholti)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 14. janúar 2018 kl. 20:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 14. janúar 2018 kl. 20:27 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ólafur Vigfússon á Ólafur Vigfússon (Gíslholti))
Fara í flakk Fara í leit
Ólafur og Kristín.

Ólafur Vigfússon, Gíslholti, fæddist undir Eyjafjöllum 21. ágúst 1891 og lést 15. maí 1974. Kona Ólafs var Kristín Jónsdóttir. Þau bjuggu að Gíslholti við Landagötu og áttu börn og buru. Afkomendur Ólafs og Kristínar eru margir og búa flestir í Vestmannaeyjum.

Árið 1911 fór Ólafur til Vestmannaeyja og árið 1920 hóf hann formennsku á Heklu. Eftir það var Ólafur með ýmsa báta, þar á meðal Skallagrím, Óskar og Skúla fógeta. Formennsku gegndi hann allt til ársins 1950.

Loftur Guðmundsson samdi eitt sinn formannsvísu um Ólaf:

Ólaf á Skúla ölduslark
ægir lítt né tefur,
við sædrif, vos og veðrahark,
vanist löngum hefur.

Óskar Kárason samdi einnig um Ólaf:

Fúsa Óli fer á ról
fár þó gjóli tíðum,
Skúla sjóli sævarból
sigli kjóli fríðum.

Myndir


Heimildir

  • Óskar Kárason. Formannavísur. Vestmannaeyjum, 1950.
  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.
  • Sjómannadagsblað Vestmannaeyja. 1995.