Ólafur Pálsson (Héðinshöfða)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. nóvember 2016 kl. 20:05 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. nóvember 2016 kl. 20:05 eftir Viglundur (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Pétur Ólafur Pálsson sjómaður, verkamaður, útgerðarmaður, fiskverkandi, fæddist 3. nóvember 1927 í Sandgerði í Fáskrúðsfirði og lést 6. apríl 2011.
Foreldrar hans voru Páll Guðmundsson sjómaður, verkamaður í Héðinshöfða, f. 30. janúar 1908 í Hafnarnesi við Fáskrúðsfjörð, d. 1. maí 1955, og kona hans Þuríður Guðmundsdóttir húsfreyja, f. 17. nóvember 1907 í Tjarnarkoti í Flóa, d. 23. ágúst 1988.

Börn Páls og Þuríðar hér:
1. Pétur Ólafur Pálsson, f. 3. nóvember 1927 í Sandgerði í Fáskrúðsfirði, d. 6. apríl 2011.
2. Valdís Viktoría Pálsdóttir, f. 14. september 1929 á Búðum í Fáskrúðsfirði, d. 3. janúar 2008.
3. Már Guðlaugur Pálsson, f. 26. maí 1931 í Sandgerði í Fáskrúðsfirði, d. 8. september 2005.
4. Óskírður Pálsson, f. 11. júní 1932 í Fáskrúðsfirði, d. 26. október 1932.
5. Brynja Jónína Pálsdóttir, f. 26. desember 1935 á Þingeyri, d. 19. nóvember 2009.
6. Kristinn Viðar Pálsson, f. 4. nóvember 1938 á Þingeyri.
7. Einar Sævar Pálsson, f. 17. október 1941 í Héðinshöfða, d. 6. mars 1989.
8. Guðmundur Pálsson, f. 3. janúar 1943 í Héðinshöfða.
9. Snjólaug Pálsdóttir, f. 15. mars 1944 í Héðinshöfða.
10. Jóhanna Pálsdóttir, f. 5. mars 1946 í Héðinshöfða.

Ólafur fluttist með foreldrum sínum frá Fáskrúðsfirði til Eyja 1934. Hann bjó með þeim á Sólbergi við Brekastíg 3, síðan á Þingeyri við Skólaveg 37, en 1941 fluttust þau að Héðinshöfða og bjuggu þar síðan.
Þau Þórey giftu sig 1950 og eignuðust 6 börn. Þau bjuggu í fyrstu á Hvoli við Heimagötu, keyptu síðan Eyjarhóla, (Hásteinsveg 21). Þau byggðu húsið við Kirkjubæjarbraut 18 og fluttust þangað 1956. Þar bjuggu þau til Goss.
Ólafur gerðist fiskverkandi með Símoni Kristjánsyni. Þeir gerðu svo út bátana Andvara (síðar Blátindur) og Sæunni í samstarfi við aðra.
Eftir Gos vann hann hjá Ríkismati sjávarafurða og Fiskistofu.
Þau hjón bjuggu lengst að Heiðarlundi 20 í Garðabæ, síðar í Lautarsmára 1 í Kópavogi.
Að loknum starfsdegi lá leiðin aftur heim til æskustöðvanna í Vestmanaeyjum þar sem þau bjuggu síðustu árin að Áshamri 55.
Ólafur lést 2011.

I. Barnsmóðir Ólafs var Jónína Einarsdóttir verkakona í Götu, f. 13. nóvember 1926.
Barn þeirra:
1. Sigríður Erla Ólafsdóttir, f. 6. október 1945 í Götu.

II. Kona hans, (1. apríl 1950), var Þórey Guðrún Björgvinsdóttir, f. 9. apríl 1931.
Börn þeirra:
2. Þyrí Ólafsdóttir, f. 16. nóvember 1949 á Hvoli.
3. Björgvin Ólafsson, f. 4. janúar 1951 á Hvoli.
4. Gunnhildur Ólafsdóttir, f. 14. janúar 1953 að Hásteinsvegi 20.
5. Guðrún Ólafsdóttir, f. 25. ágúst 1956 að Kirkjubæjarbraut 18.
6. Ólafur Þór Ólafsson, f. 17. júlí 1961.
7. Anna María Ólafsdóttir, f. 12. febrúar 1967.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.