Ólafur Ottesen

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 18. ágúst 2015 kl. 22:03 eftir Viglundur (spjall | framlög)
(breyting) ←Fyrri útgáfa | Nýjasta útgáfa (breyting) | Næsta útgáfa→ (breyting)
Fara í flakk Fara í leit

My great grand father the Vestmannaeyjum born clerk and actor Ólafur Ásbjörn Ottesen 1890-1921. He married june 1916 Þórunn Páldsdóttir Stephensen. They had my grand father Páll born 1916 on Vestmannaeyjum. Apparently, Ólafur was a talented actor but I have no other information about him.

Ólafur Ásbjörn Ottesen í Stakkahlíð fæddist 9. apríl 1890 og lést 9. apríl 1921.
Foreldrar hans voru Valdimar Ottesen kaupmaður, f. 11. apríl 1868, d. 13. nóvember 1918, og kona hans Sigríður Eyjólfsdóttir Ottesen húsfreyja, f. 24. janúar 1861, d. 28. apríl 1942.
Ólafur var bróðir Eyjólfs Ottesen í Dalbæ, f. 21. október 1891.
Ólafur var með foreldrum sínum í Reykjavík 1901, með þeim í Stakkahlíð 1910. Hann var ekkill í Reykjavík 1920.
Hann tók gildan þátt í leikstarfsemi í Eyjum og lék ýmis aðalhlutverk. Þótti hann afbragðs góður leikari.
Má nefni hlutverk hans sem Skrifta-Hans í Ævintýri á gönguför 1909 og Sherlock Holmes i samnefndu leikriti 1913.

Ólafur Ottesen sem Sherlock Holmes; Vestmannaeyjum 1913.
Ólafur Ottesen sem Sherlock Holmes; Vestmannaeyjum 1913.

Leikararnir Bjarni Björnsson, gamanvísnasöngvari, og Ólafur Ottesen (sitjandi).

I. Barnsmóðir Ólafs var Lovísa Gísladóttir, síðar húsfreyja á Búastöðum, f. 18. júní 1895, d. 30. mars 1979.
Barn þeirra var
1. Guðrún Ólafsdóttir, f. 26. júlí 1913, d. 25. október 1913.

II. Kona Ólafs var Þórunn Pálsdóttir Stephensen húsfreyja, f. 15. ágúst 1897, d. 13. janúar 1919.
Barn þeirra hér:
2. Páll Ólafsson Ottesen Stephensen cand. juris, ráðuneytisritari í Kaupmannahöfn, f. 6. desember 1916 á Staðarfelli, d. 11. september 1979.


Frekara efni og skýring mynda:
Blik 1962/Saga leiklistar í Vestmannaeyjum, I. kafli, III. hluti,
Blik 1965/Leiklistarsaga Vestmannaeyja, 2. kafli, I. hluti.


Heimildir


Þessi grein tilheyrir Æviskrám Eyjafólks eftir Víglund Þór Þorsteinsson.