Ólafur Jónsson (Skála)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Fara í flakk Fara í leit
Prentvæn útgáfa er ekki lengur studd og gæti verið með myndgerðarvillur. Uppfærðu bókamerki vafrans þíns og notaðu frekar sjálfgefna prentunaraðgerð vafrans.

Sjá aðgreiningarsíðuna fyrir aðra sem hafa borið nafnið „Ólafur Jónsson


Ólafur Jónsson, Skála, fæddist að Hvammi undir Eyjafjöllum 21. september 1897. Ólafur fór ungur til Eyja með foreldrum sínum, Jóni Auðunssyni og Sigríði Ólafsdóttur að Skála og ólst þar upp.

Ólafur fór strax og aldur leyfði til sjóróðra og varð fljótlega vélamaður hjá Þorsteini Jónssyni í Laufási á Unni III en árið 1938 tók Ólafur við formennsku á Unni því þá lét Þorsteinn af formennsku. Ólafur var einnig formaður á Ásdísi og Hjálpara.

Eiginkona Ólafs var K. Svanhildur Sigfúsdóttir og áttu þau fjögur börn


Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.