Ólafur Ingileifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 30. desember 2010 kl. 10:35 eftir Inga (spjall | framlög) Útgáfa frá 30. desember 2010 kl. 10:35 eftir Inga (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ingileifsson, Heiðarbæ, fæddist 9. júní 1891 á Ketilstöðum í Mýrdal og lést 14. febrúar 1968. Árið 1907 fór Ólafur til Vestmannaeyja.

Ólafur var þríkvæntur. Fyrsta kona hans var Sigurjóna Þórðardóttir. Þau eignuðust soninn Karl. Önnur eiginkona Ólafs var Sigurlín Jónsdóttir frá Ólafshúsum. Þriðja eiginkona hans var systir Sigurlínar, Guðfinna Jónsdóttir. Synir þeirra voru Sigurgeir Eggert, Einar á Kap og Guðni á Gjafari.

Hann byrjaði formennsku á Svan árið 1912. Upp frá því var Ólafur formaður með ýmsa báta allt til 1935, lengst með Karl eða í 11 ár.

Ólafur var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1922.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.