Ólafur Ingileifsson

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 16:02 eftir Dadi (spjall | framlög) Útgáfa frá 27. júní 2007 kl. 16:02 eftir Dadi (spjall | framlög)
Fara í flakk Fara í leit

Ólafur Ingileifsson, Heiðarbæ, fæddist 9. júní 1891 á Ketilstöðum í Mýrdal og lést 14. febrúar 1968. Árið 1907 fór Ólafur til Vestmannaeyja. Eiginkona Ólafs var Guðfinna Jónsdóttir frá Ólafshúsum.

Hann byrjaði formennsku á Svan árið 1912. Upp frá því var Ólafur formaður með ýmsa báta allt til 1935, lengst með Karl eða í 11 ár.

Ólafur var aflakóngur Vestmannaeyja árið 1922.



Heimildir

  • Sjómannablaðið Víkingur. Farmanna- og Fiskimannasamband Íslands.