Ólafur Halldórsson (læknir)

Úr Heimaslóð, Sögusetri Vestmannaeyja
Útgáfa frá 24. október 2019 kl. 10:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) Útgáfa frá 24. október 2019 kl. 10:18 eftir Viglundur (spjall | framlög) (Viglundur færði Ólafur Halldórsson á Ólafur Halldórsson (læknir))
Fara í flakk Fara í leit
Ólafur Halldórsson læknir.

Ólafur Halldórsson var læknir í Vestmannaeyjum frá árinu 1938 til ársins 1957. Hann var fæddur í Vestmannaeyjum þann 4. desember 1906 og lést 20. febrúar 1997. Foreldrar hans voru Halldór Gunnlaugsson fyrrverandi héraðslæknir og Anna Sigrid Threp.
Ólafur var tvíkvæntur. Fyrri kona Ólafs var Erna María. Síðari kona hans var Guðbjörg Magnúsdóttir úr Bolungarvík.

Ólafur varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1927. Hann nam læknisfræði við Kaupmannahafnarháskóla, en settist síðan í læknadeild Háskóla Íslands og lauk þaðan læknisprófi 1935. Ólafur starfaði sem kandidat á sjúkrahúsum í Danmörku, en kom til Vestmannaeyja árið 1938 og stundaði almennar lækningar. Hann var jafnframt aðstoðarlæknir við sjúkrahúsið þar. Ólafur var skipaður héraðslæknir í Súðavíkurhéraði árið 1957 og síðar í Bolungarvíkurhéraði.

Ólafur bjó á Akureyri er hann lést, níræður að aldri.

Myndir


Heimildir

  • Guðlaugur Gíslason: Eyjar gegnum aldirnar. Frásagnir af mannlífi og atburðum í Vestmannaeyjum frá gamalli tíð og nýrri. Reykjavík, 1982.